Fréttablaðið - 25.04.2015, Side 20
25. apríl 2015 LAUGARDAGUR
Erla Björg Gunnarsdóttir
erlabjorg@frettabladid.is
Pönnukökur:
1 bolli hveiti
1 tsk. matarsódi
¼ tsk. salt
3 msk. sykur
1 ½ bolli súrmjólk
1 stórt egg
½ tsk. vanilludropar
½ bolli hnetusmjör
1 banani, skorinn í litla bita
Setjið hveiti, matarsóda,
salt, sykur, súrmjólk, egg,
vanilludropa og hnetusmjör
í skál og hrærið þar til
hráefnin hafa blandast.
Bætið bananabitunum út í,
hrærið þeim varlega saman
við deigið. Steikið pönnu-
kökurnar báðum megin á
miðlungsheitri pönnu.
Nutella-síróp:
½ bolli ósaltað smjör
½ bolli sykur
½ bolli mjólk
½ tsk. matarsódi
½ tsk. vanilludropar
¼ bolli Nutella
Setjið smjör, sykur og mjólk
í pott og hitið yfir miðlungs-
háum hita. Hrærið í pottinum
þar til hráefnin hafa bráðnað
saman. Lækkið hitann við
suðu og hrærið matarsóda
og vanilludropum saman
við. Sírópið mun bullsjóða
og lyftast við þetta. Takið
pottinn af hitanum og hrærið
Nutella saman við þar til það
hefur bráðnað. Berið sírópið
fram með pönnukökunum
og ef það verður afgangur þá
er kjörið að eiga hann út á ís
eða til að dýfa jarðarberjum í.
Uppskrift fengin af Ljufmeti.com.
Hnetusmjörspönnukökur með Nutella-sírópi
Það er alltaf gaman að útbúa gómsætan bröns. Þessar girnilegu pönnukökur eru tilvalið upphaf á helginni.
Á ÓKEYPIS LEIK- OG DANS-
SÝNINGAR fyrir alla fjöl-
skylduna í Tjarnarbíói þar sem
sviðslistahátíðin ASSITEJ er haldin.
Lokadagur í dag!
Á LAGIÐ Í KVÖLD með
Emmsjé Gauta og Friðrik Dór.
Ferskt, nýtt og spennandi.
SAMTÍMASÖGUNA og fyrstu
skáldsögu Vals Grettissonar–
Gott fólk.
Á FÓKUS klukkan 19.40
á Stöð 2 í kvöld. Þar ræðir
Sigríður Elva við Ís-
lendinga sem
hafa náð langt í
kvikmyndaheim-
inum.
Við erum að fara að fljúga úr hreiðrinu,“ segir Dom-inique Gyða Sig rúnar-dóttir en hún er einn ell-efu útskriftarnemenda leikarabrautar Listahá-
skóla Íslands. Hópurinn frumsýndi
í gær verkið Að eilífu, eftir Árna
Ibsen, en það er útskriftarverkefni
nemendanna. Eftir sýningarnar eru
þau útskrifaðir leikarar og almenn-
ingur fær vonandi að kynnast þeim
á næstu árum í leikhúsinu, kvik-
myndum og öðrum verkum.
„Þetta er ljúfsárt, eins og þegar
lífið gerist best. Það er erfitt að
kveðja þennan hóp, við erum ótrú-
lega náin enda búin að vera saman
á hverjum degi í þrjú ár. En það er
líka kominn tími til að takast á við
ný verkefni.“
Dominique viðurkennir að það
sé svolítið ógnvekjandi að fara út
í stóra heiminn úr öruggu skjóli
skólans. En hún segir líka mikla
spennu vera í hópnum.
„Nokkrir í bekknum, svona um
helmingur, eru á leiðinni inn í leik-
húsin og eru komnir með samning.
Aðrir eru að fara að vinna sjálfstætt.
Það eru tækifæri úti um allt og aðal-
málið er að missa ekki móðinn.“
Í gær var frumsýning og svo fær
hópurinn eins dags frí. Á morg-
un tekur við tíu sýninga mara-
þon. „Þetta verður svolítil harka
en ótrúlega gaman. Við erum að
klára þetta með trompi. Við lofum
mikilli gleði og algjörri glimmer-
sprengju á sýningunni. Ég held að
allir ættu að geta skemmt sér vel.“
Hvað? Að eilífu
Hvar? Smiðjan, Sölvhólsgötu 13
Miðapantanir á svidslist@lhi.is
Hvenær? 26. apríl til 5. maí
Aðgangur ókeypis.
Klára námið með trompi
Útskriftarnemendur leikarabrautar LHÍ frumsýndu í gær Að eilífu og lofa glimmersprengju.
NÝR ÁRGANGUR LEIKARA Þessi ellefu manna hópur útskrifast í maí. Frá vinstri: Ólafur, Vala Kristín, Albert, Halldóra Rut, Dominique Gyða, Baltasar Breki, Eysteinn, Kristín
(í efri röð) og Katrín. Sitjandi á gólfi: Þuríður Blær og Kjartan Darri.
Ágúst Bent, tónlistarmaður
Arkar Esjuna og andar að sér fersku loft i
„Ég verð dálítið þunnur í dag en ætla svo að rífa mig upp úr
þessari sjálfsvorkunn og fara á Lavabar. Þar er vinur minn, Erpur,
að frumsýna myndband og lag. Ég gef mér að þar verði dúndrandi
stuð. Á sunnudag kem ég til með að halda uppteknum hætti og
arka upp Esjuna, anda að mér fersku lofti og vera þakklátur fyrir
þetta líf sem ég á.“
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir,
söngkona
Viðrar hundana
Þessi helgi verður tekin
í rólegheitunum. Upp úr
stendur að viðra hundana
mína í góðum göngutúrum
og nýta svo tímann vel með
manninum mínum.
Gnúsi Yones,
tónlistarmaður
Hleður batteríin
AmabAdamA spiluðu á
tónleikum í Hvíta Húsinu á
Selfossi í gærkvöldi og ég fór
þaðan í bústað að hlaða batt-
eríin með góðu fólki restina
af helginni.
Sveinbjörg Birna Svein-
björnsdóttir, borgarfulltrúi
Börnin og vinnan
Ég ætla í hjólatúr og sund
með kids. Verð líka að vinna
því það eru oddvitaumræður
í borgarstjórn í næstu viku
um ársreikning borgarinnar.
Hrikalega spennó.
HELGIN
25. apríl 2015 LAUGARDAGUR
FARÐU
HLUSTAÐU
LESTU
HORFÐU...
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
9
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
6
8
-E
F
1
C
1
7
6
8
-E
D
E
0
1
7
6
8
-E
C
A
4
1
7
6
8
-E
B
6
8
2
8
0
X
4
0
0
4
B
F
B
1
0
4
s
_
2
4
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K