Fréttablaðið - 25.04.2015, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 25. apríl 2015 | HELGIN | 25
Leggðu grunn að
framtíðinni og
Landsbankinn bætir
6.000 krónum við
Þegar fermingarbörn leggja 30.000 krónur eða meira inn á Framtíðargrunn
Landsbankans greiðir bankinn 6.000 króna mótframlag inn á sama reikning.
Þannig viljum við hvetja til sparnaðar.
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Þögn
Þegar við höfðum áttað okkur á því að þetta yrði ekki þrautalaust ferli
þá þótti mér erfitt að lifa í þögn og þurfa að snúa út úr þegar mínir
nánustu vinir og vandamenn spurðu hvernig gengi og hvað væri að. Árin
liðu og við alltaf að reyna. Mig langaði til að opinbera vandann og ræða
um hann. En þögnin umlykur karlmennskuna, hina ævagömlu misskildu
karlmennsku. Eins og pungurinn sé ekki einvörðungu verndarhjúpur um
eistun heldur líka þagnarhjúpur. Er það þess vegna sem karlmenn sparka
í pung hver annars? Til að reyna að sprengja upp þögnina sem er að gera
þá geðveika?
Um leið og ljóst var að vandinn væri ekki eingöngu minn, leitaði ég
heimilda um frjósemisvanda karlmanna. Fann ekkert nema óskjalfestan
sársauka.
Orðsifjafræðin
Við sátum á skyndibitastað nálægt frjóvgunarstöðinni með krumpað blað fyrir
framan okkur, biðum eftir núðlum, bókhveitinúðlum, löngu búin að taka úr fæð-
unni hveiti og sykur, fyrir frjósemina. Við litum yfir listann. Notuðum útilokunar-
aðferðina, strikuðum yfir þá sem ekki voru bláeygir og ljóshærðir. Líka yfir þá sem
voru feitir og ómenntaðir. Reyndum að miða á þann sem væri genetískt líkastur
honum. Völdum á endanum grannan orðsifjafræðing. Við vorum sammála.
Leiddumst inn línóleumklæddan ganginn, inn í flúrljós og kerfiskanínurnar skopp-
uðu í kring, hjúpurinn okkar var opinn, tilbúinn. Læknirinn, hrósaði okkur fyrir
valið og við brostum hvort til annars en þá bætti hann við að þetta væri einmitt
mjög vinsælt sæði. Nú? Hvernig má það vera? Vinsælt?
Næst völdum við annað frosið sæði. Gáfum því nokkra sénsa eins og hinu. En allt
kom fyrir ekki. Það vantaði neistann.
BLÁTT BLÓЖ Í LEIT AÐ KÁTU SÆÐI
Kona leitar að nógu kátu sæði til að frjóvga örvæntingarfull egg, sem fer óðum fækkandi. Hún lætur sig jafnvel dreyma um aðstoð kynskiptings,
drykkjurúts eða nasista með blá augu. Eftir misheppnaðar tilraunir endurskoðar hún væntingar til móðurhlutverksins. Hér má lesa kaflabrot úr bókinni.
sem hjálpar öðrum, eins og hún
hjálpaði mér að vinna á sorginni.
En það er auðvitað óskhyggja.“
Næstu dagana verður Oddný í
Reykjavík og býr sig undir fæð-
ingu. Hún býr í lítilli íbúð á Ægi-
síðunni á meðan hún bíður eftir
barninu. Í stofunni er hún búin
að raða upp fötum, vöggu, barna-
stól. Þótt hún lýsi heimilinu sem
sígaunatjaldi þá er greinilega
hreiðurgerð í gangi.
„Nú er stefnan tekin á að fæða.
Ég skynja að ég veit ekkert hvað
ég er að fara út í og ég veit ekk-
ert hvað það er sem ég hef þráð
svona lengi. Og þessu fylgir vissu-
lega ótti. Í lok bókarinnar segist ég
vera frjáls undan óttanum og vænt-
ingunum enda gafst ég upp. Ég var
varla búin að sleppa orðinu þegar
ég fékk tíðindi sem heltóku mig
af gleði. En líka af ótta. Hvað með
fæðinguna? Hvernig móðir verð
ég? Þessi tilraun til að verða æðru-
laus er líklega bara rétt að byrja og
ég held henni ljúki ekkert á meðan
maður lifir.“
Hætt að vera feimin
Bókin kom út á sumardaginn
fyrsta og er því nú komin fyrir
sjónir almennings. Ertu ekkert
feimin við að berskjalda þig svona
fyrir heiminum?
„Ég er búin að vera mjög feimin
við bókina en núna er eins og þetta
komi mér ekki eins mikið við. Mér
finnst eitthvað fallegt og gott við
að hún komi út á sama tíma og ég
á að eiga. Líklega þarf ég að sleppa
tökunum á bókinni og sorginni og
taka við nýju verkefni. Ég guggn-
aði um daginn og var næstum
hætt við útgáfuna því mér fannst
þetta auka álag og stress sem ég
þurfti ekki á að halda núna. Bókin
snertir líka svo marga í kringum
mig og ég fann að áhyggjurnar af
þeim trufluðu mig mjög mikið. Þá
hringdi nágrannakona mín í sveit-
inni í mig og sagði að fæðing sner-
ist um að sleppa takinu. Þá hugs-
aði ég að það væri bara gott að
sleppa takinu á bókinni. Það myndi
kannski hjálpa mér að sleppa tak-
inu í fæðingunni.“
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
9
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
6
A
-4
8
B
C
1
7
6
A
-4
7
8
0
1
7
6
A
-4
6
4
4
1
7
6
A
-4
5
0
8
2
8
0
X
4
0
0
8
B
F
B
1
0
4
s
_
2
4
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K