Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Morgunblaðið - 04.06.2015, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 04.06.2015, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 2015 Bílavörur í miklu úrvali frá 795 Hjólkoppar 12/13/14/15/16” Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Verkfæralagerinn Ennþá meira úrval af listavörum Þökkum frábærar viðtökur á Van Gogh olíulitunum og Amsterdam akryllitunum, sem seldust nánast upp. Ný sending með fullt af nýjungum komin í sölu. Kolibri trönur í miklu úrvali, gæðaværa á góðu verði Ný sending af Kolibri penslum Handgerðir þýskir penslar í hæsta gæðaflokki á afar hagstæðu verði frá 14.995 Mössunarvélar frá 2.995 Bílaþvotta- kústar Öflug Loftdæla 12V 30L 8.995 frá 5.995Kerruljósabretti Hjólastandur Gormaþvingur á kúlu 4.995 Sonax vörur í miklu úrvali á frábæru verði Mótorstandur 19.995 Jeppatjakkur 2.25T 52CM Bílabónvél 4.995 Vélagálgar Þekjulitir/ Föndurlitir frá 845 Strigar, ótal stærðir frá 295 Hleðslutæki margar gerðir frá 4.995 5.995 5.995 2T tjakkur í tösku Áætluð er bygging nýs íþróttahúss við Vatnsendaskóla í Kópavogi. Umsóknarfrestur í forvali um þátt- töku í alútboði vegna viðbyggingar- innar rann út í gær, en úr inn- sendum umsóknum verða í framhaldinu valdar fimm til þátt- töku í útboðinu. Um er að ræða 2.700 fermetra íþróttahús, ætlað al- mennri skólaleikfimi, en einnig verður húsið sérútbúið til þjálfunar hópfimleika. Sigríður Björg Tómasdóttir, al- mannatengill Kópavogsbæjar, segir að hingað til hafi skólinn ekki haft aðgang að eigin íþróttahúsi og nemendur þurft að sækja skóla- leikfimi í Kórinn. Auk skólans hefur fimleika- félagið Gerpla aðgang að húsinu. Ása Inga Þorsteinsdóttir, fram- kvæmdastjóri Gerplu, segir að iðk- endafjöldi félagsins hafi fjórfaldast síðan félagið flutti inn í núverandi húsnæði og iðkendur séu nú orðnir um 2.100. Hingað til hefur Gerpla átt samstarf við Salaskóla um íþróttahús. „Samstarfið hefur gengið vel og við erum mjög ánægð með þá samvinnu sem við höfum átt með Salaskóla,“ segir Ása Inga. Nýtt skóla- íþróttahús í Vatnsenda  Gerpla fær einnig nýja æfingaaðstöðu Sprengingar og gröftur í Vaðla- heiðargöngum hefur gengið stór- áfallalaust eftir að byrjað var aftur að sprengja frá stafninum Eyja- fjarðarmegin. „Það er að vísu ekki hraður gangur, við förum okkur að engu óðslega,“ segir Einar Hrafn Hjálmarsson, staðarstjóri Ósafls sem er aðalverktaki við Vaðlaheið- argöng. Sprengingar hófust að nýju Eyja- fjarðarmegin 26. maí, eftir miklar aðgerðir til að bæta vinnuaðstæður. Þá hafði vinna við gangagröft legið alveg niðri um tíma, vegna vatns- aga við báða stafna. Einar segir að tekist hafi að skerma af mestan hluta af heita vatninu sem lekur inn í göngin og hefur gert vinnuaðstæður erfiðar. Það vatn sem enn lekur inn er leitt út um rör. Þá hefur verið sett upp öflugra loftræstikerfi. „Rakinn hef- ur minnkað, það hefur bætt vinnu- aðstæður mikið,“ segir Einar. Í síðustu viku, fyrstu heilu vik- unni eftir að sprengingar hófust að nýju, lengdust göngin aðeins um 19 metra. Einar segir að það sé vegna þess að mikið þurfi að grauta til að halda öllu vatni frá göngunum og því sjaldnar sprengt. Vonast hann til að afköstin aukist smám saman. Heildarlengd ganganna er nú um 4,2 kílómetrar. Enn renna 350 lítrar á sekúndu út úr göngunum Fnjóskadalsmegin sem er mun minna en í upphafi þeg- ar 520 lítrar streymdu út. Verið er að huga að dælum. Ekkert liggur þó fyrir um hvenær unnt verði að hefja sprengingar þeim megin. Göngin lengdust um 19 metra Ljósmynd/Vaðlaheiðargöng Vettvangur Forystumenn í vettvangsferð um framkvæmdasvæðið.  Hafa ekki náð upp afköstum við Vaðlaheiðargöng Rauði krossinn á Íslandi tók í gær við ávísun frá samfélagi EVE On- line-spilara við hátíðlega athöfn í höfuðstöðvum CCP, sem á og rekur tölvuleikinn, í Grandagarði. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, ávarpaði starfsmenn CCP sem héldu utan um söfnunina en forsetinn er jafnframt verndari Rauða krossins á Íslandi. Spilurum leiksins tókst að safna um 13,8 milljónum króna sem nýtast til hjálpar- og uppbyggingarstarfs Rauða krossins í Nepal eftir jarð- skjálfta sem skóku landið, þeir stærstu 25. apríl og 12. maí. Í tilkynningu frá Rauða kross- inum segir að söfnunin hafi farið þannig fram að spilarar EVE Online létu fé af hendi rakna til hjálpar- stafsins í Nepal með gjaldmiðlinum PLEX sem er annar af tveim gjald- miðlum EVE-heimsins sem spilarar leiksins nota. Söfnuðu 13,8 milljónum fyrir Nepal CCP Spilarar tölvuleiksins Eve-Online söfnuðu fyrir Nepal.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.