Morgunblaðið - 04.06.2015, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 04.06.2015, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 2015 ráðagóð, alltaf til staðar og sýndi áhuga á öllu því sem við gerðum. Hún á þakkir skilið fyrir að halda vel utan um okkur frændsystkin- in og gera okkur að þeim vinum sem við öll erum í dag. Við mun- um aldrei gleyma ömmu Betu. Blessuð sé minning hennar. Finnur, Brynjar Kári og Elísabet Eva. Þegar amma Beta varð áttræð árið 2013 sungum við barnabörn- in fyrir hana í afmælisveislunni. Við sömdum texta um hana við lag Dr. Gunna, „Glaðasti hundur í heimi“ og mér finnst við hæfi að kveðja hana með textabút: Við erum glöðustu, glöðustu, barnabörn í heimi Elsku amma Beta er áttræð og við erum að fílaða Hún passaði okkur áður Lumaði á góðum ráðum Í ömmuskóla lífsins hún hefur allar gráður Hún vill sínum allt það besta Við matarborðið vill sem flesta Hlýju sinni deilir til allra gesta Ég er elsta barnabarn ömmu Betu og fékk að njóta samverunn- ar með henni í 36 ár. Við bröll- uðum ýmislegt skemmtilegt sam- an og alltaf skein í gegn hvað henni þótti vænt um mig og hin barnabörnin. Amma var sterkur persónu- leiki og hafði mikinn áhuga á mál- efnum ættingja og vina. Við Georges áttum alltaf hauk í horni í ömmu Betu. Hún lifði sig inn í samband okkar frá upphafi og var okkur ómetanleg stoð og stytta þegar við bjuggum í kjallaranum hjá henni og afa í Dísarásnum. Hana dreymdi um að verða langamma og var himinlifandi þegar sá draumur rættist. Ömmu fannst gaman að fara í bíó og leikhús. Síðast fórum við saman að sjá Mary Poppins og hlógum mikið að því að við þurft- um aðstoð til að komast inn í sal- inn, ég kasólétt og amma með göngugrind. Við nutum svo sýn- ingarinnar til fulls. Amma hafði mikinn áhuga á málefnum kóngafólks í Evrópu, þar með talið nöfnu okkar Elísa- betu Bretlandsdrottningar. Ég mun aldrei gleyma að hafa horft á konunglega brúðkaupið þeirra Will og Kate með henni fyrir nokkrum árum og amma var hæstánægð með að hafa eignast nöfnu þegar litla prinsessan Karl- otta Elísabet fékk nafnið sitt fyrir stuttu. Amma lagði áherslu á það að við barnabörnin værum góðir vin- ir og félagar. Hún bauð okkur oft að gista eða í matarboð án for- eldranna þar sem hún bauð upp á lambalæri með sykurbrúnuðum kartöflum. Jóladagsspilaboðið með Sörum og Mackintoshi er komið til að vera í hugum okkar allra. Hvíl í friði elsku amma Beta. Elísabet Anna. Það er erfitt að ímynda sér til- veruna án elsku ömmu Betu enda var hún alltaf svo gríðarstór part- ur af mínu lífi. Ást hennar og um- hyggja fyrir velferð barna sinna og barnabarna var einstök og tel ég það heiður og forréttindi að hafa fengið að þekkja hana í öll þessi ár. Hún passaði mig þegar ég var lítill, hún stjanaði við mig í hádegishléum og eftir skóla, hún tók upp hvern einasta íslenska barnatíma og sendi til mín þegar ég bjó í Svíþjóð í æsku, hún átti heiðurinn af því að við öll barna- börnin urðum sannir vinir, hún veitti lífslexíur hægri vinstri og umfram allt var hún alltaf til stað- ar þegar maður þurfti á henni að halda. Hún kenndi mér að meta góðar bækur, alvöru íslenskan mat, mikilvægi þess að vera skipulagður, ýmis spil, krossgát- ur og svo margt, margt fleira. Minningarnar og gullkornin eru óteljandi og munu lifa áfram í sögunum sem ég mun rifja upp um ókomna tíð. Vertu sæl, amma mín, og takk fyrir allt. Þú varst mér svo ótrúlega mikið og ég mun aldrei gleyma þér. Takk fyrir samfylgdina, hvíldu í friði og ég bið að heilsa afa. Guðmundur Gauti Sveinsson. Við „Siggu systur“ börn kveðj- um Betu frænku með kærleika og þakklæti. Þakklæti fyrir allar þær góðu stundir sem við höfum átt með henni og hennar fjöl- skyldu, þegar þau bjuggu í næsta húsi á Kleppsveginum og síðar í Árbænum, við þá reyndar ekki langt undan eða hinum megin við Elliðaárdalinn. Áður voru stóru jólafjölskylduboðin haldin til skiptis hjá þeim systkinunum en þegar fjölskyldurnar stækkuðu þróuðust boðin yfir í „ættarjól“ í „sal úti í bæ“, þar sem allir hjálp- uðust að. Frænkuboðin voru nauðsynleg á undan til að undir- búa veisluna. Aldrei verið skortur á veitingum hjá „nóg“ stórfjöl- skyldunni. Þessi fjölskylduboð og samvera mynduðu órjúfanleg tengsl milli okkar frændsystkin- anna. Er fátt skemmtilegra en þegar þessi hópur hittist, t.d. eins og í vetur við að undirbúa fyrst ættarjólin, síðan samkomu í til- efni af 100 ára afmæli ömmu Jönu. Höfum við sjaldan hlegið jafn mikið og á þessum fundum, við að rifja upp gamlar minningar og skiptast á sögum. Beta frænka hafði átt við erfið veikindi að stríða síðustu árin, oftar en ekki inniliggjandi á sjúkrahúsi og vart hugað líf, en sýndi alltaf sömu vestfirsku seigl- una, hresstist aftur og komst heim. Nema nú fékk hún lokakall- ið. Hún var rík, þrjú börn, tíu barnabörn og fjögur langömmu- börn. Hafa börnin og elstu barna- börnin verið stoð hennar og stytta í veikindum undanfarinna ára. Var hún mjög ánægð í hvert skipti sem hún náði að komast í stóra viðburði í lífi barna- barnanna, nú síðast fermingu El- ísabetar Evu. Beta frænka var skörungur, hjartahlý og ætíð höfðingi heim að sækja. „Beta systir“ var stór hluti af lífi mömmu, þær hittust nánast daglega meðan þær bjuggu ná- lægt hvor annarri, síðan nánast dagleg símtöl. Ef lengi var á tali hjá mömmu var nokkuð víst að hún væri að tala við Betu systur. Þegar heilsan fór að bila hjá Betu fór mamma reglulega í heimsókn til hennar til að stytta henni dag- inn, fara út að ganga og njóta samvistanna. Gerði það ekki minna fyrir mömmu en Betu. Það verða mikil viðbrigði fyrir mömmu að geta ekki lengur hringt í Betu systur eða kíkt í heimsókn. Það verður líka erfið- ara fyrir okkur systkinin að fylgj- ast með hennar stóru fjölskyldu þegar sú fréttaveita sem systra- sambandið var er ekki lengur til staðar. Fésbókin bjargar þó nokkru. Betu verður sárt saknað þó að hún sjálf hafi líklega verið hvíld- inni fegin. Vonandi fær hún nú að hitta Billa sinn og foreldra hinum megin. Sjöfn, Sveinn og Birna, við sendum ykkur og fjölskyldum ykkar okkar bestu samúðaróskir. Anna, Kristján, Rósa og Auður Siggubörn. Mig langar að skrifa nokkur orð um Betu frænku. Beta var hjartahlý, tilfinningarík og falleg kona sem umvafði sína nánustu ást og umhyggju. Þau systkinin voru einstaklega samheldinn hóp- ur sem sýndi með væntumþykju sinni hvað góð fjölskyldutengsl eru mikilvægur hluti af okkar lífi. Beta frænka hafði þann lofsverða eiginleika að hafa áhuga á fólki í kringum sig óháð aldri þess. Hún sýndi okkur ávallt hluttekningu og samkennd í hverju sem við tókum okkur fyrir hendur. Hún hlustaði af ósviknum áhuga og fylgdist vel með því sem fram fór í lífi stórfjölskyldunnar og deildi með okkur jafnt gleði sem sorg- um. Beta var að mörgu leyti and- lega þenkjandi, hvort sem var um kristna trú, stjörnuspeki eða ann- að sem auðgar andann. Í því tilliti verður mér oft hugsað til tveggja jólagjafa sem hún gaf mér á ung- lingsárunum. Þegar ég var tólf ára gaf hún mér bókina Spá- manninn eftir Khalil Gibran. Tveimur árum seinna gaf hún mér aftur sömu bók í jólagjöf. Þegar ég hringdi til að þakka fyr- ir gjöfina spurði hún mig hvort hún hefði nokkuð gefið mér þessa bók áður. Ég sagði að reyndar hefði hún gert það en þá svaraði hún á þá leið að þessa bók læsi maður aldrei nógu oft. Gegnum árin gleymdi ég bókinni en tók hana fram fyrir nokkrum dögum og endurlas og er ekki frá því að ég kunni betur að meta spekina í dag en þegar ég las hana fyrst fyrir þrjátíu árum. Nú hefur Beta frænka náð ævitindinum og ég mun alltaf minnast hennar með mikilli hlýju og væntumþykju. Ég sendi ykkur, fjölskyldu hennar, mínar innilegustu samúð- arkveðjur. „Því að hvað er það að deyja annað en standa nakinn í blænum og hverfa inn í sólskinið? Og hvað er að hætta að draga andann annað en að frelsa hann frá friðlausum öldum lífsins, svo að hann geti risið upp í mætti sínum og ófjötraður leitað á fund guðs síns? Að- eins sá, sem drekkur af vatni þagnar- innar, mun þekkja hinn volduga söng. Og þegar þú hefur náð ævitindinum, þá fyrst munt þú hefja fjallgönguna. Og þegar jörðin krefst líkama þíns, muntu dansa í fyrsta sinn.“ (Khalil Gibran) Þín Sólveig. Skömmu eftir að Sigurður afi í (Unaðs)-Dal keypti Grænadals- húsið í Hnífsdal með sonum sín- um auðnaðist okkur systkinum sú gæfa að fá að dveljast hjá afa og fjölskyldum nokkrum sinnum á stríðsárunum. Það voru yndisleg- ir bernskudagar og þar kynnt- umst við fyrst öðlingsfrænku okkar Elísabetu Kristinsdóttur, trausti hennar, gæsku og hlýju viðmóti – hún var aðeins nokkrum árum eldri en við. Grænadalshúsið sem var tvær hæðir með kjallara og risi var sannkallaður undraheimur. Hér fannst okkur borgarsystkinum spennandi að lifa og ævintýrin biðu hugmyndaríkra barna við hvert skref í húsinu og umhverf- inu. Moldarbörð og melar, hólar og áin með fallegum steinum og grasivöxnum bökkum, seiðandi fjaran og gönguferðir inn á bryggju með kaffiflöskur í ullar- sokkum handa afa og frændun- um, en ekki síst húsið sjálft með skotum, skápum, hornum og æv- intýralegu háalofti. Hvílíkur heimur fyrir fjörug og þróttmikil frændsystkini sem gáfu sennilega „Yztahúspúkunum“ ekkert eftir þegar þeir slettu úr klaufunum í æsku. Beta frænka var oftast ná- læg með ábyrgðartilfinningu sem blandaðist svo vel við aga, glettni og græskulausa æskugleði. Æskan leið og unglingsárin tóku við þegar Beta fluttist til Siglufjarðar og síðan fullorðins- árin með reynsluríkum verkefn- um af ýmsum toga. Hún var ávallt hreinskiptin, traust og seig og hlý í viðmóti og yfir henni hvíldi sér- stök reisn í því sem hún tók sér fyrir hendur. Okkur er ljúft að minnast „frænkuveislunnar“ sem Beta hélt fyrir nokkru, þá orðin veik. Ekki var rætt um veikindi heldur slegið á létta strengi og þær frænkurnar Beta og Bettý léku á gítar og sungu með okkur. Söngurinn fylgir Dalsættinni. Er aldrei langt undan. Söngur í gleði og sorg. Tvær af þessum frænk- um hafa kvatt með stuttu millibili, Guðjóna fyrir skömmu og nú El- ísabet. Frændsystkini fara og koma. Það er erfitt að kveðja, sælt að fagna nýjum frændum og frænk- um og eiga góðar og hlýjar minn- ingar um þá sem kveðja. Börnum Betu frænku, barnabörnum og öllum ástvinum hennar vottum við okkar dýpstu samúð um leið og við þökkum henni eftirminni- lega samfylgd. Að lokum eftir langan, þungan dag, er leið þín öll. Þú sest á stein við veginn, og horfir skyggnum augum yfir sviðið, eitt andartak. Og þú munt minnast þess, að eitt sinn, eitt sinn, endur fyrir löngu lagðir þú upp frá þessum sama stað. (Steinn Steinarr) Guðlaug, Þórir, Jón, Sævar og fjölskyldur. Mig langar að minnast hennar Elísabetar Kristindóttur, Betu, vinkonu minnar, í nokkrum orð- um. Ég kynntist henni fyrst þeg- ar ég sem ungur maður hóf nám í netagerð hjá eiginmanni hennar, Guðmundi Sveinssyni (Billa), fyr- ir um 50 árum. Þá var Beta komin í húsmóðurhlutverkið sem hún sinnti af mikilli natni alla tíð með- an þess var þörf fyrir fjölskyld- una. Á þessum uppgangsárum í síldveiðum landsmanna voru mik- il umsvif í veiðarfæraframleiðslu og þjónustu við fiskiskipaflotann. Þar lék Billi stórt hlutverk með því að reka eigið nótaverkstæði um áratugaskeið hér í Reykjavík. Það voru oft langir og strangir vinnudagar hjá Billa og sjálfsagt ekki oft mikill tími til að sinna fjölskyldunni eins og þurfti. Þar stóð Beta vörðinn af stakri prýði og dugnaði og hélt verndarhendi yfir fjölskyldu sinni og var stoð og stytta barna sinna og barnabarna þegar þau komu til sögunnar. Það var alltaf gaman að tala við hana Betu um nánast hvað sem var á baugi hverju sinni. Það var alltaf eitthvað svo bjart yfir henni Betu og hún lagði alltaf eitthvað gott til málanna. Aldrei heyrði ég hana hallmæla nokkurri manneskju. Hún hafði sérlega fallega og hljómmikla rödd sem gott var að hlusta á. Beta átti við veikindi að stríða á seinni árum en aldrei tal- aði hún um þau veikindi eins og okkur mannfólkinu er svo tamt að gera á efri árum. Það var eins og það væri eitthvað sem hún ætti bara sjálf og það þyrfti ekkert að ræða það meira, punktur. Nú þegar komið er að leiðarlokum vil ég þakka Betu fyrir alla um- hyggju og vinsemd í minn garð og þeirra sem næst mér standa. Held það sé rétt sem Sveinn son- ur hennar sagði nýlega að líklega væri hún byrjuð að hella upp á kaffið fyrir Billa í þeim vistarver- um sem allir enda í að lokum. Votta Sjöfn, Sveini, Birnu og fjöl- skyldum þeirra samúð mína við andlát og útför frábærrar konu sem mun alltaf verða mér minn- isstæð. Hvíli hún í friði hjá Billa. Guðmundur Gunnarsson. „Þótti þér rosalega vænt um hana?“ spurði Stefán Fannar son- ur minn þegar ég sagði honum að Beta okkar væri farin. Svarið er einfalt, já, mér þótti rosalega vænt um hana. Allt frá því að vinátta okkur Birnu vinkonu minnar hófst í Verzló fyrir rúmlega 30 árum hef ég átt samleið með foreldrum hennar, Betu og Billa, og allri fjöl- skyldunni. Það er ekki sjálfgefið að fá að vera hluti af fjölskyldu vina sinna og er ég mjög þakklát fyrir það. Þegar ég kom til Betu tveimur dögum áður en hún kvaddi var hún eins og sönn ættmóðir að spá í velferð barna sinna, tengda- barna, barnabarna og langömmu- barna. Eins sló hún á létta strengi og gat alveg séð spaugilegu hlið- arnar á hlutunum og því sem hún var að velta fyrir sér og stundum að hafa óþarfa áhyggjur af. Í mín- um huga bar hún hag fjölskyldu og vina fyrir brjósti og var þakk- lát fyrir allar þær stundir sem hún átti með sínu fólki, hvort sem það var eitthvað hversdagslegt eða stórir áfangar sem hún fékk að upplifa. Frá því að Stefán Fannar fæddist fyrir tæpum tíu árum fylgdist Beta af kærleik og vænt- umþykju með honum. Hún gekk undir nafninu „amma Beta“ hjá Stefáni. Hún sendi honum alltaf gjafir á afmælum og jólum, með handskrifuðum kveðjum. Við Beta höfðum sameiginleg- an áhuga á konungsfjölskyldum og furstum í Evrópu og gladdi það hana mikið að fá ný blöð með myndum af þessu „samferða- fólki“ sínu, hvort sem það voru fréttir af nöfnu hennar í Bretlandi eða öðrum fyrirmennum. Ég sendi samúðarkveðjur til Birnu, Svenna, Sjöbbu og fjöl- skyldna þeirra. Guð blessi minningu Betu. Ég er þakklát fyrir að hafa átt samleið með Betu. Anna vinkona og Stefán Fannar. Ég er á leið í vinnuna, í útvarp- inu spjallar þulurinn glaðlega og ég keyri í rólegheitum upp Ár- túnsbrekkuna. Mér er ekki rótt, hafði nefnilega fengið það hlut- verk að aðstoða konu í Dísarásn- um sem var nýkomin heim af sjúkrahúsi. „Hvað á ég að segja, og gera hjá konu sem ég þekki ekki neitt.“ Er á staðinn var kom- ið mætti mér aðeins hlýlegt við- mót og þegar ég spurði vesæld- arlega hvað ég ætti að gera svaraði Beta með sinni dásam- legu hreinskilni: „Ég veit það ekki, gerðu bara eitthvað.“ Alla tíð síðan höfum við gert grín að þessum fyrsta fundi okkar, ekki síst fyrir það að meðan hún beið komu minnar var hún jafn kvíðin að hitta mig og ég hana. Um tíma var það vinnan mín að mæta til Betu og rétta henni hjálparhönd. Og vinnan fólst sko ekki í enda- lausu striti. Það voru framreiddir dýrindis hádegisverðir undir leið- sögn Betu, hitað heitt súkkulaði, bakaðar vöfflur og fyrr en varir vorum við komnar út í göngutúra að ógleymdum bæjarferðunum, þar sem við röltum í búðir og fór- um á kaffihús. Þó að ég hætti að mæta í „vinnu“ í Dísarásinn hætti ég ekki að koma þangað. Beta var einstakur vinur og oft gátum við setið langtímum saman og rætt um ótrúlegustu hluti. Í mörg ár mætti hún alltaf á tónleika hjá kórnum mínum. Eitt sinn var kór- inn að fara af landi brott eftir tón- leika. Þegar konsert var lokið kemur Garðar með umslag og segir: „Beta sendir þér þetta“. Í umslaginu voru peningar sem ég átti að kaupa mér eitthvað fyrir í ferðinni. Þetta atvik gleymist aldrei, ég stóð þarna undrandi, glöð og þakklát, hreinlega með tárin í augunum. Já, Beta var gjafmild með eindæmum, alltaf gaf hún mér jólagjöf og í upphafi hverrar aðventu hengi ég í eld- húsgluggann tvær bjöllur sem hún gaf mér eitt sinn og ég kalla Beturnar. Þrisvar sinnum hef ég verið í stórafmæli hjá Betu, það voru skemmtilegar samkomur fullar af gleði og söng þar sem af- mælisbarnið ljómaði eins og stjarna. Beta elskaði að hafa þá sem henni þótti vænt um í kring- um sig en hún þurfti líka að fá að vera í einrúmi. Nú í seinni tíð hringdi ég ef ég var á ferðinni og langaði að líta við, þá sagði hún stundum: „Æ, ég er hálf léleg, komdu frekar seinna.“ Þessa hreinskilni kunni ég einstaklega vel að meta, hún kom alltaf hreint fram og sagði það sem hún meinti. Skömmu áður en Beta kvaddi kom ég til hennar á Borg- arspítalann, hún var ótrúlega hress og ekki grunaði mig að þetta væri okkar síðasti fundur. Ég segi það hiklaust að eitt af mínum stærstu gæfusporum í líf- inu var þegar ég gekk inn til Betu og Billa í Dísarásinn. Yndislegri, hreinskilnari, heiðarlegri, hjálp- samari og betri manneskju en Betu er varla hægt að hugsa sér. Elsku Beta mín, ef ég hefði haft grun um að ég sæi þig ekki oftar en á sjúkrahúsinu forðum, hefði ég kvatt þig mun betur og sagt þér hversu óendanlega vænt mér þætti um þig. Megir þú blómstra í sumarlandinu. Birna, Sjöfn, Sveinn og fjölskyldur, innilegar samúðarkveðjur og megi allt hið góða vaka með ykkur. Signý Sigtryggsdóttir. Amma Beta er dáin. Hún er fyrrverandi tengdamóðir mín og frá því börnin mín fæddust hefur hún ávallt verið kölluð amma Beta í daglegu tali á mínu heimili. Á milli okkar mynduðust strax sterk tengsl sem aldrei rofnuðu í tímans rás. Ég kom fyrst inn á heimili þeirra Billa tvítug að aldri og upp frá því reyndist hún mér sem önnur móðir. Beta var sterk- ur karakter, hafði ákveðnar skoð- anir og einbeittan vilja og hún var tilfinningarík og hlý. Börnin og fjölskyldan áttu athyglina óskipta og hún hikaði ekki við að láta í ljósi mótbárur þegar henni þótti forgangsröðun okkar hinna riðlast. Hún vissi sínu viti og oft hefur mér verið hugsað til þess að ég hefði mátt fara betur eftir hennar leiðsögn þegar vinnusem- in tók lífið yfir. Ég er innilega þakklát fyrir allt sem hún gerði fyrir mig og börnin mín. Þegar frumburðurinn Guðmundur Gauti fæddist fyrir rúmum þrjá- tíu árum var fæðingarorlofið ein- ungis þrír mánuðir. Betu fannst óviðunandi að hann færi svo ung- ur í gæslu til vandalausra. Hún bauðst því til að koma heim og gæta hans og í framhaldinu var hann í nokkur ár oft í pössun hjá ömmu og afa. Milli þeirra mynd- aðist einstakt samband og Guð- mundur hafði alla tíð ánægju af samskiptunum við þau og studdi vel við ömmu sína eftir að heilsu hennar hrakaði síðustu árin. Það er svo ótal margs að minn- ast og ánægju- og gleðistundirn- ar voru margar. Beta og Billi komu í langar heimsóknir til Uppsala þegar við bjuggum þar og við ferðuðumst saman víða, hérlendis og erlendis. Einnig minnist ég allra matarboðanna, en þau Beta og Billi voru einstak- lega góðir gestgjafar og var hús- móðirin óþreytandi að framreiða nýjar og spennandi uppskriftir. Enn í dag eru uppskriftir frá ömmu Betu í hávegum hafðar á hátíðarstundum. Þau Beta og Billi voru ákveðin í því að þau vildu halda samskiptunum við börnin sem mestum og bestum óháð skilnaði og áttum við því áfram margar góðar samveru- stundir þrátt fyrir breyttar að- stæður. Þau voru t.d. með okkur hjónum, móður minni, tengdafor- eldrum og börnunum um áramót- in í mörg ár og voru alltaf til stað- ar til að gleðjast og taka þátt. Fyrir það er ég sérstaklega þakklát því það eru ekki allir sem ná að fylgja sannfæringu sinni við nýjar aðstæður, en Beta lét aldrei nokkurn tímann segja sér fyrir verkum. Hún velti hlutun- um fyrir sér, tók ákvörðun og fylgdi henni. Þannig var hún samkvæm sjálfri sér í öllum mál- um, alltaf. Ég hef ætíð dáðst að henni fyrir það og svo margt fleira. Minnið var ótrúlegt, hún mundi allt. Hún gat sagt mér hvað ég hafði sagt og gert langt aftur í tímann, sumt sem ég hafði lítinn áhuga á að muna en það þýddi lítið að malda í móinn. Hún rökstuddi þá bara mál sitt með enn fleiri atriðum og lýsti að- stæðum eins og hún væri að ræða um gærdaginn. Beta hefði örugg- lega getað staðið sig frábærlega vel í hvaða námi sem er, því minn- ið og rökhugsunin voru engu lík. Beta átti yndislega og sam- henta fjölskyldu og þegar heils- unni fór að hrak naut hún þess hversu vel hún hafði ræktað garðinn sinn. Elsku Beta mín, takk fyrir samfylgdina. Hjördís Ásberg.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.