Morgunblaðið - 04.06.2015, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 04.06.2015, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 2015 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Nokkrir menn hafa verið nefndir sem líklegir frambjóðendur í for- setakjöri Alþjóðaknattspyrnusam- bandsins, FIFA, eftir að Sepp Blatter tilkynnti í fyrradag að hann hygðist segja af sér. Talið er að for- setakjörið fari fram í fyrsta lagi eft- ir hálft ár, eða í desember. The New York Times skýrði frá því í gær að bandaríska alríkislög- reglan, FBI, væri að rannsaka hvort Blatter væri viðriðinn spill- ingu innan FIFA. Bandaríska sjón- varpið ABC sagði einnig að Blatter sætti rannsókn í tengslum við mál fjórtán manna sem voru ákærðir í Bandaríkjunum í síðasta mánuði, þeirra á meðal níu frammámanna í FIFA. Talið er að þeir séu viðriðnir mútugreiðslur sem bandarísk yfir- völd segja að hafi numið jafnvirði alls 20 milljarða króna. Michael Platini, forseti Knatt- spyrnusambands Evrópu, UEFA, er á meðal þeirra fyrstu sem voru nefndir sem líklegir frambjóðendur í forsetakjöri FIFA. Platini er þekktastur þeirra sem taldir eru koma til greina. Hann fékk Gull- boltann í þrjú ár í röð, 1983-1985, og argentínski knattspyrnukappinn Lionel Messi er sá eini sem hefur fengið verðlaunin jafnoft og hann. Platini er 59 ára, hafði umsjón með skipulagningu heimsmeistaramóts- ins í fótbolta í Frakklandi árið 1998 og hefur verið forseti UEFA frá árinu 2007. Platini ákvað í fyrra að bjóða sig ekki fram gegn Blatter í forseta- kjöri FIFA sem fór fram á föstu- daginn var, en útilokaði þá ekki framboð árið 2019 þegar kjörtíma- bili Blatters átti að ljúka. Til að eiga möguleika á að ná kjöri þarf hann leita eftir stuðningi asískra og afrískra aðildarríkja FIFA sem studdu Blatter í forsetakjörinu. Platini var einn af helstu stuðnings- mönnum þess að heimsmeistara- mótið árið 2022 yrði haldið í Katar og það kann að koma honum illa vegna ásakana um að Katarar hefðu greitt mútur til að tryggja sér mótið. Svo gæti farið að hann veldi að vera áfram forseti UEFA, sem er áhrifamesta og auðugasta knattspyrnusambandið innan FIFA. Sjeik í forsetastólinn? Enginn hefur lýst yfir framboði í forsetakjöri FIFA en talsmaður jórdanska prinsins Alis bin al Huss- eins sagði að hann væri „tilbúinn að gefa kost á sér“. Prinsinn beið ósig- ur fyrir Blatter í forsetakjörinu á föstudaginn var. Portúgalinn Luis Figo og Mich- ael Van Praag, forseti Knattspyrnu- sambands Hollands, buðu sig einnig fram gegn Blatter en drógu fram- boðin til baka viku fyrir forseta- kjörið. Þeir eru báðir taldir íhuga að gefa kost á sér að nýju. Hol- lenskir fjölmiðlar höfðu í gær eftir Van Praag að hann hygðist ráðfæra sig við félaga sína á fundi UEFA í Berlín á laugardaginn kemur áður en hann gerði upp hug sinn. Líklegt er að stuðningsmenn Blatters í Asíu og Afríku reyni að sameinast um frambjóðanda. Þrír menn hafa verið nefndir í því sam- bandi, þeirra á meðal kúveiski sjeikinn Ahmad Al-Fahad Al-Sa- bah, forseti Ólympíuráðs Asíu (OCA), en hann fékk sæti í fram- kvæmdastjórn FIFA á föstudaginn var. Forseti Knattspyrnusambands Asíu, Salman bin Ebrahim al Kha- lifa, sjeik frá Barein, og Suður- Kóreumaðurinn Chung Mong-Joon, fyrrverandi varaforseti FIFA, eru einnig taldir íhuga framboð. Chung er vellauðugur, einn eigenda Hy- undai-stórfyrirtækisins, og hefur lengi gagnrýnt Sepp Blatter. Chung er fyrrverandi forseti suð- urkóreska knattspyrnusambandsins og átti sæti í framkvæmdastjórn FIFA þar til hann missti það til jórdanska prinsins Alis bin al Huss- eins. Tvísýn keppni um sæti Blatters  Platini, Figo, jórdanskur prins og sjeikar á meðal líklegra frambjóðenda Hætt við HM í Katar? » Fréttaskýrendur telja ólík- legt að fall Blatters og ásak- anir um mútugreiðslur verði til þess að hætt verði við að halda næsta heimsmeistaramót í fót- bolta í Rússlandi árið 2018. » Líklegra þykir að ásakan- irnar verði til þess að hætt verði við að halda HM í Katar árið 2022. Talið er þó að það verði ekki gert nema fram komi óyggjandi sannanir fyrir því að Katarar hafi greitt mút- ur til að tryggja sér mótið. Sagði af sér 2. júní 20 15 Sepp Blatter segir af sér sem forseti FIFA Frakki framkvæmdastjóri FIFA Michel Platini Jerome Valcke Eftir að hafa verið endurkjörinn 29. maí í fjórða sinn Eftirmaður hans verður kjörinn á sérstöku þingi FIFA einhvern tíma frá des. 2015 til mars 2016 Sepp Blatter FIFA hefur neitað ásökunum um að Valcke sé viðriðinn mútugreiðslur að andvirði 10 milljóna dollara (1,3 milljarða króna) frá Suður-Afríku Ali prins Jórdani Hefur boðað framboð að nýju í forseta- kjöri FIFA forseti UEFA 5 stjórnendur fyrirtækja á sviði markaðssetningar Loretta Lynch dómsmálaráðherra Bandaríkjanna Bandarísk yfirvöld hófu rannsókn á ásökunum um spillingu innan FIFA 47 ákærur á hendur 9mönnum í yfirstjórn FIFA Átti áður sæti í framkvæmdastjórn FIFA Chuck Blazer Veitti yfirvöldum upplýsingar ummálið Aldur: 79 ára JeffreyWebb (Caymaneyjum) Varaforseti FIFA ÁkærðirHandteknir 27. maí í Zürich Costas Takkas (Bretlandi) Eduardo Li (Kosta Ríka) Rafael Esquivel (Venesúela) Eugenio Figueredo (Úrúgvæ) JackWarner (Trínidad og Tóbagó) Nicolas Leoz (Paragvæ) Jose Maria Marin (Brasilíu) Frá Sviss Julio Rocha (Níkaragva) Fjölmiðlar í Rússlandi furðuðu sig í gær á þeirri ákvörðun Sepps Blatt- er að segja af sér sem forseti Al- þjóða knattspyrnusambandsins, FIFA. Þeir spáðu því að afsögnin vekti óvissu um hvort staðið yrði við þá ákvörðun FIFA að heims- meistaramótið í fótbolta yrði haldið í Rússlandi árið 2022. „Þeir hæfðu FIFA en miðuðu á Rússland,“ sagði í forsíðufyrirsögn vikublaðsins Argumentí I Faktí. „Það er augljóst að herferðin gegn FIFA, sem Bandaríkjamenn og Bretar hófu, byggist 99% á pólitísk- um markmiðum og aðeins 1% á ákærunum,“ hafði blaðið eftir vara- forseta neðri deildar rússneska þingsins, Ígor Lebedev. „Vestrænu ríkin nota hvert einasta tækifæri sem gefst til að valda landi okkar eins miklu tjóni og mögulegt er.“ Talsmaður Vladímírs Pútín Rúss- landsforseta viðurkenndi að afsögn Blatters hefði komið Rússum í opna skjöldu en sagði að þeir myndu halda áfram undirbúningi heims- meistaramótsins árið 2022. AFP Fer frá Sepp Blatter gengur af blaðamannafundi í Zürich eftir að hafa sagt af sér sem forseti Alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA, í fyrradag. Rússar kenna vestrænum ríkjum um afsögn Blatters Hólshraun 3 · 220 Hafnarjörður · Símar 555-1810, 565-1810 · Fax: 565-2367 · veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Við sendum hádegismat í bökkum og kantínum til fyrirtækja og stofnana alla daga ársins! Boðið er upp á sjö valrétti á virkum dögum: Tvo aðalrétti, þrjá aukarétti, heilsurétt og ávaxtabakka. Aðalréttirnir eru breytilegir frá degi til dags. Matseðill og nánari upplýsingar á veislulist.is Fjölbreyttur matseðill og valréttir alla daga SKÚTAN HÁDEGISMATUR Í FYRIRTÆKI OG STOFNANIR VINSÆLT - HEILSUBAKKAR Heilsubakkar eru réttir sem samanstanda af léttu fæði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.