Morgunblaðið - 04.06.2015, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 04.06.2015, Blaðsíða 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 2015 Vandaðir og vottaðir ofnar Ofnlokasett í úrvali NJÓTTU ÞESS AÐ GERA BAÐHERBERGIÐ AÐ VERULEIKA FINGERS 70x120 cm • Ryðfrítt stál JAVA 50x120 cm • Ryðfrítt stál COMB 50x120 cm • Ryðfrítt stál Handklæðaofnar í miklu úrvali þar sem gæði ráða ríkjum á góðu verði. Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - 577 5177 - www.ofnasmidja.is Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það fer bókstaflega allt í taugarnar á þér í dag svo það reynir verulega á þolinmæði þeirra sem í kringum þig eru. Stundum verð- ur maður að leyfa hlutunum að hafa sinn gang, þótt erfitt sé. 20. apríl - 20. maí  Naut Þér er nauðsyn að ná tökum á fjármál- unum en að öllu óbreyttu stefnir þar í óefni. Þú færð óvæntar upplýsingar í þessum mán- uði. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þér verða fengin ný verkefni og þótt þér lítist hreint ekki á þau við fyrstu sýn skaltu hefjast handa ótrauð/ur. Reyndu að halda ró þinni hvað sem á dynur. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú munt komast að því að hæfileikar þínir liggja á mörgum sviðum. Ef þú ferð of geyst í hlutina áttu á hættu að missa stuðn- ing þeirra, sem skipta sköpum upp á fram- haldið. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það skiptir öllu máli að vera sjálfum sér samkvæmur og reyna ekki að blekkja sjálfan sig hvað varðar takmörk í lífinu. Haltu öllum kvittunum til haga. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þótt vinnan sé skemmtileg og mikils virði er líf eftir vinnu og þú þarft að sinna því svo lífshamingjan blómstri. Farðu eftir eigin hyggjuviti. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú skalt hefja vikuna á að ræða við yfir- mann þinn. Gættu þess bara að tala ekki of mikið og sýndu öðrum tillitssemi og skilning. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú hefur lagt hart að þér til þess að ljúka við verkefni, sem þér var falið. Ein- hverjum er umhugað um velferð þína. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú færð fréttir sem hrista upp í draumórum þínum um hvernig hlutirnir ættu að vera eða munu verða. Haltu ró þinni, íhug- aðu málin, taktu ákvörðun og slíttu þig lausa/n. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú verður að láta reyna á dóm- greind þína því það hefur ekkert upp á sig að láta aðra stjórna lífi þínu á öllum sviðum. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Listi yfir eitthvað sem má og ekki má kemur til þinna kasta. Láttu til skarar skríða en gættu þess þó að fara ekki of hratt yfir. 19. feb. - 20. mars Fiskar Láttu ekki óþolinmæðina ná tökum á þér þótt hlutirnir gangi ekki jafnfljótt fyrir sig og þú vilt. Einhver vill sýna þér velvilja en þú ert eins og snúið roð í hund. Á Leirnum á þriðjudag rifjaðiÞórir Jónsson upp góða vísu eftir Harald Zophoníasson Eins og gömul gróin sár geta ýfst og rifnað, gleði, sem var geymd um ár getur aftur lifnað. Þetta varð kveikjan að skemmti- legum orðaskiptum. Helgi Zimsen sagðist hafa rambað inn á basar í fyrradag og rekist þar á um 90 ára gamla bók með um 600 ára gömlum háttalykli Lofts Guttormssonar. – „Það var fagnaðarfundur enda margt athyglisverðra hátta þar að líta. Þar eru t.d. refhvörf minni, sem ég freist- aðist til að apa eftir og orti um tíð- arfarið sem er nátturlega alveg sí- gilt. Refhvörf er það þegar orðum með gagnstæðum merkingum er skotið saman, en í háttalyklinum var andstæðunum troðið í fyrsta braglið hverrar línu. Vor leit. Hátt, lágt reyndi að hitta. Hér þar niður bera. Gott illt var að glitta greitt hægt vor í þæga. Ljóst dult finna lysti, leynt sjá, hitann reyna. Fast leyst hér úr frysti fannst týnt núna í júní. Kristján Eiríksson kom inn á Leirinn og sagði, að hinar ref- hverfu vísur Lofts og Helga minntu sig á þessa alhnepptu dróttkvæðu vísu Hallgríms Péturssonar. Hlýtt er, vott var, víst blítt, síst strítt, hýrt loft, súrt svift, sætt skín, hætt dvín, flest sælt, fæst fúlt, flýr þraut, býr skraut, lán eykst, hrun hrekst, hryggð fjær, tryggð nær. Refhverfan kemur hér fram tvisvar í hverju vísuorði og svo eru líka tvær rímhendingar í hverju vísuorði. Öllu lengra verður líklega ekki komist í dróttkvæðum eða eig- um við að segja hrynhendum dýr- leika, segir Kristján. Þessi orðaskipti rifjuðu upp, að í ljóðabók sinni Bí, bí og blaka orti Jóhannes úr Kötlum háttalykil. Þennan hátt kallar Jóhannes „kimlabönd meiri“: Brosa byggðir ljósar, björt er öld í kvöld, hárauð himintjöld. – Sólarstöður sælar signa jörð og fjörð. Vættir halda vörð. Fljóðið þögla, þýða, þrýstir mér að sér, – eldur um mig fer. – Logar líf í augum, ljóminn skín – og dvín – aldrei, ástin mín! Halldór Blöndal halldorblondal@simnet Vísnahorn Refhvörf og kimlabönd meiri Í klípu „ÞESS VEGNA BANNAÐI ÉG ÞÉR AÐ GEFA HONUM NAFN.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÍSLENSKUKENNARINN HANS SEGIR AÐ HANN SÉ „SVALUR GAUR“.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... þegar kaffi með létt- mjólk hittir tvöfaldan espresso. Ó, ÞÚ ÁTT SVO ERFITT LÍF ÉG GÆTI NOTAÐ KODDA GETUM VIÐ ENNÞÁ FENGIÐ MORGUNHANATILBOÐIÐ? ÞAÐ VELTUR Á ÝMSU, FRÚ... ÉG SKAL SPYRJA KOKKINN HVORT HANN EIGI EINHVERJA HANA EFTIR... Víkverji varð pínu hvumsa þegarsamstarfsmaður hans tjáði hon- um með nokkrum æsingi í röddinni að „þetta væri búið!“ Eftir að Vík- verji hváði sagði samstarfsmað- urinn: „Nú, splatterinn er hættur!“ og vísaði þar til Sepps nokkurs Blat- ter, forseta FIFA, sem ákvað að fagna nýju kjörtímabili með því að segja af sér eftir einungis fjóra daga á stólnum. Miðað við viðbrögðin er ekki mikil eftirsjá að Blatter. x x x Eins og gjarnan gerist þegar mennláta af völdum hefst hávær um- ræða um hentuga eftirmenn. Jórd- anski prinsinn Hussein, sem vænt- anlega er skyldmenni Husseins konungs heitins, hefur til að mynda sagt að hann muni bjóða sig fram á ný. Einnig hafa kappar á borð við Luis Figo og David Ginola gert sig líklega. Víkverji er þó sjálfur líklega hrifnastur af hugmyndinni um brasilíska snillinginn Zico sem næsta forseta knattspyrnu- sambandsins, enda þar mættur maður með fiðring í tánum, og með reynslu af stjórnunarstörfum í brasilísku íþróttahreyfingunni. x x x Víkverja líst hins vegar síður áuppástunguna frá forseta Vene- súela, en sá taldi að knattspyrnu- goðið Diego Armando Maradona væri hinn eini rétti í forsetastólinn. Víkverji lítur raunar á Maradona sem langbesta knattspyrnumann sem nokkurn tíma hefur lifað, en hátterni hans utan vallar er ekki beinlínis til þess að vekja traust á Maradona sem manninum sem geti endurreist ímynd FIFA úr ösku- stónni. x x x Þið getið kallað Víkverja gamal-dags, en hann er bara ekki al- veg sannfærður um það að maður sem hefur orðið uppvís að kók- aínneyslu, sem hefur skotið á blaða- menn með loftriffli, hallað sér að einræðisherrum og svo mætti lengi telja sé endilega réttur maður í það hreinsunarstarf sem nú þarf að vinna. Jafnvel þó að markið hans gegn Englendingum um árið hafi verið flott. víkverji@mbl.is Víkverji Orð dagsins: Því getum við öruggir sagt: Drottinn er minn hjálpari, eigi mun ég óttast. Hvað geta mennirnir gjört mér? (Hebr. 13, 6.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.