Bókasafnið - 01.05.2013, Blaðsíða 6

Bókasafnið - 01.05.2013, Blaðsíða 6
6 bókasafnið 37. árg. 2013 henni reifar hún sögu tímaritsins frá upphafi en fyrsta tölublað kom út árið 1974. Eva Sóley skiptir greinum Bókasafnsins í þrjá flokka eftir því hvort markmiðið sé af lýsandi, hagnýtu eða fræðilegum toga. Hún álítur að efni Bókasafnsins sé að mestu leyti skrifað með lýsandi markmið í huga. En það sé hagnýtt að því leyti að tímaritið hefur verið notað við kennslu í bókasafns- og upplýsingafræði í áraraðir og komið mörgum nemendum að gagni. Fræðilegt markmið tengir hún við rannsóknarverk- efni meistaranema í bókasafns- og upplýsingafræði. Fræðigreinar Fræðigreinar (e. scholarly/academic journals articles) eru rit- rýndar og eiga fyrst og fremst að birta áður óbirtar niðurstöð- ur. Þær eiga að vera upprunalegar (e. original), sem þýðir að þær hafa ekki birst áður í öðrum ritverkum. Þær eiga að miðla nýrri þekkingu til fræðasamfélagsins sem byggjast á vísinda- legum rannsóknum og hafa verið ritrýndar. Það er frumleiki og framlag til nýrrar þekkingar sem skiptir sköpum í hverju ritverki (American Psychological Association, 2010; Matskerf- isnefnd, 2011). Í megindráttum byggist fræðigrein á niðurstöðum rann- sóknar eða gagnasöfnunar höfundar, gagnagreiningu og túlkun. Uppbygging fræðigreina lúta ákveðnum lögmálum þar sem fram þurfa að koma: útdráttur, inngangur, fræðilegt yfirlit um rannsóknir annarra (e. literature review), aðferðar- fræði, niðurstöður, umræða, lokaorð og heimildalisti (Americ- an Psychological Association, 2010; Anna Bryndís Einarsdóttir, Rúnar Helgi Vignisson og Einar Stefánsson, 2011; Bowen, 2010; Craswell, 2005; Einar Guðmundsson og Júlíus K. Björns- son, 1995; Fallon, 2009a, 2009b; Friðrik H. Jónsson og Sigurður J. Grétarsson, 2007; Kennan og Olsson, 2011; Murray, 2005). Fleiri tegundir fræðigreina Það eru til fleiri fræðigreinar en þær sem byggjast á rann- sóknum og eigin gagnaöflun höfundar. Bowen (2010) talar um fjórar tegundir fræðigreina og miðar við eigindlegar rann- sóknir í félagsvísindum, þær eru: rannsóknargreinar (e. rese- arch), yfirlitsgreinar (e. review), yfirlit um aðferðafræði (e. met- hodological) þar sem mat er lagt á nýjar rannsóknaraðferðir og rannsóknarsnið og kenningagreinar (e. theoretical). Í þeirri síðastnefndu er ný kenning lögð fram og eða lagt mat á aðrar kenningar sem áður hafa komið fram. Vert er að staldra aðeins við yfirlitsgreinar sem ef til vill hafa fallið í skuggann á greinum sem byggjast eingöngu á rann- sóknum og gagnaöflun höfunda. Í yfirlitsgrein er fjallað á gagnrýnin hátt um birtar rannsóknir á afmörkuðu sviði, rann- sóknir eru teknar saman og bent er á aðferðafræðilega veik- leika og styrk (American Psychological Association, 2010; Bo- wen, 2010; Einar Guðmundsson og Júlíus K. Björnsson, 1995; Kellsey, 2005; Ridley, 2012). Í grein sinni gerir Kellsey (2005) grein fyrir nauðsyn þess að skrifa yfirlitsgreinar. Að hennar mati hefur of lítið verið skrifað um hvernig eigi að skrifa slíkar greinar. Kellsey beinir orðum sínum til bókasafns- og upplýs- ingafræðinga og gefur þeim góð ráð um hvernig eigi að haga þeim skrifum og leggur sérstaka áherslu á skipulagningu, hvernig eigi að ráða bót á heimildagnóttinni. Það má segja að yfirlitsgrein sé einskonar söguágrip rannsókna á tilteknu fræðasviði sem auðveldar lesendum að bera saman rann- sóknir annarra og átta sig á samhengi þeirra í fræðunum. Yfir- litsgreinar eru til dæmis tilvaldar fyrir Bókasafnið. Uppbygging þeirra er formföst og svipar til uppbyggingar fræðigreina. Hún samanstendur af inngangi ásamt viðfangsefni eða rannsókn- arspurningu (e. state of problem), yfirliti yfir fræðin (e. literat- ure review), aðferðafræði, niðurstöðum, umræðum og loka- orðum (Kellsey, 2005; Ridley, 2012). Það sem gildir hér er ekki einungis umfjöllun og upptalning á fræðunum heldur þarf einnig að koma fram gagnrýnið mat höfundar á áður birtum niðurstöðum í „fræðalitteratúrnum“. Ritrýnd tímarit og mikilvægi þeirra innan háskólasamfélagsins Á undanförnum árum hefur birtingum í ritrýndum tímaritum fjölgað mikið. Fjöldi birtinga á Íslandi hefur margfaldast á ár- unum 1984-2008. Heildarfjöldi birtinga á Íslandi fór úr 64 árið 1984 í 642 árið 2008. Hlutfallsleg fjölgun birtinga á Íslandi er því um 900% (Rannsóknamiðstöð Íslands, 2010). Þessa aukn- ingu má meðal annars rekja til síaukinnar kröfu til akadem- ískra fræðimanna og kennara sem þurfa árlega að skila rann- sóknarskýrslu þar sem árangur ársins er metinn til stiga og ræður stigafjöldi röðun í launaflokk.4 Ritrýni og ritrýndar greinar eru þar af leiðandi mikilvægur þáttur í útgáfuferli tímarita hérlendis. Dr. Jóhanna Gunnlaugsdóttir benti einmitt á hið sama í fyrrnefndum tölvupósti þar sem hún tók fram að háskólafólk legði mikið upp úr því að birta greinar sem hefðu verið ritrýndar. Þær gæfu stig samkvæmt stigamatskerfinu á verkum akademískra starfsmanna ef ritrýnin væri viðurkennd innan stigamatskerfisins. Stigamatskerfi opinberra háskóla og skilyrðin 19 Á vefsíðu Háskóla Íslands er að finna skjöl um Matskerfi opin- berra háskóla og Flokkun íslenskra tímarita samþykkt af Mats- kerfisnefnd (2011, 2012). Í matskerfinu má lesa um þau 19 skilyrði sem tímarit þurfa að uppfylla til að geta talist fræði- tímarit og veita um leið akademísku starfsfólki stig fyrir rit- rýndar birtingar. Matskerfið raðar tímaritum í þrjá flokka eftir stigafjölda. Til frekari glöggvunar var ákveðið að birta hér öll skilyrðin sem talin eru upp í skjali Matskerfisnefndar Háskóla Íslands (2011, bls. 16): Til að fá fimm stig (1. flokkur) þarf tímarit að uppfylla eftirfarandi fjögur skilyrði: 1. Birting á áður óbirtum niðurstöðum. 2. Ritstjóri og ritstjórn eru með framhaldsmenntun á fræðasviðinu og með umtalsverða rannsóknareynslu. 4. sjá http://www.hi.is/sites/default/files/oldSchool/leidbeiningar_um_framtal_starfa.pdf
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.