Bókasafnið - 01.05.2013, Blaðsíða 38
38
bókasafnið 37. árg. 2013
Leitast var við að svara eftirfarandi rannsóknarspurningum:
Hvernig umfjöllun fær WikiLeaks á þessum vefmiðlum? Er munur
á milli þessara vefmiðla á þeirri umfjöllun sem WikiLeaks fær?
Við flokkun og greiningu á þeim gögnum sem fundust við
leit á vefmiðlunum þremur var stuðst við aðferðir Amir Mar-
vasti sem hann gerir grein fyrir í bók sinni, Qualitative Research
in Sociology frá árinu 2004. Í henni nefnir hann aðferð sína við
öflun gagna og innihaldsgreiningu á efni sem tengdist einni
rannsókn hans. Hann byrjaði á að ákveða hvaðan hann ætlaði
að afla gagna og hvernig gögn hann ætlaði að skoða. Síðan tók
hann að lesa yfir gögnin og greina þau þemu sem komu fram í
hverri umfjöllun. Að lokum taldi hann hverja umfjöllun fyrir sig
og flokkaði niður í ákveðin þemu (Marvasti, 2004). Í tilviki rann-
sóknar höfundar um WikiLeaks var hægt að þemagreina mis-
munandi umfjallanir um WikiLeaks, til dæmis umfjöllun um
fréttir sem tengjast lekum eða umfjöllun um einkalíf Julian
Assange.
Valin voru nokkur efnisorð til að leita að efni um WikiLeaks á
vefmiðlunum þremur sem gáfu margvíslegar en ólíkar niður-
stöður. Meðal efnisorða voru: Julian Assange, WikiLeaks, Data
Cell og International Modern Media Institute. Umfjallanirnar
voru allt frá því að vera litlir fréttabútar upp í að vera stór og
mikil viðtöl. Nokkrar umfjallanir töldust ekki tengjast WikiLeaks
nægjanlega þótt þær kæmu upp í heimildaleit.
Við gagnaleit á vefmiðlunum þremur komu í ljós annmarkar
sem rekja má til mismunandi gæða þeirra leitarvéla sem þeir
bjóða upp á við leit að ákveðnu efni á vefsíðum þeirra. Á mbl.is
er notuð leitarvél sem er sérstaklega hönnuð fyrir leit í gagna-
grunnum vefmiðilsins. DV.is og vísir.is styðjast hinsvegar við
Google Custom Search, leitarvél sem vissulega hefur sína kosti
en er ekki gerð sérstaklega fyrir gagnagrunn þeirra vefmiðla.
Þar af leiðandi gefur hún mögulega ekki rétta mynd af því efni
sem er annars að finna á þeim. Svo virðist sem að fleiri niður-
stöður fáist á vef mbl.is heldur en hjá vísir.is og DV.is. Að auki
fylgir sá galli leitarvél vísir.is og DV.is að þrátt fyrir gríðarlegan
fjölda niðurstaðna sem birtast, sýnir leitarvélin þær ekki allar.
Því er ekki hægt að fullyrða að um tæmandi leit hafi verið að
ræða á vefmiðlunum þremur og að hugsanlega leynast þar
gögn með umfjöllun sem ekki komu fram við leit.
Niðurstöður
Að lokinni efnisleit og gagnagreiningu á vefmiðlunum þremur
var farið að vinna með þær umfjallanir sem fundust höfðu og
bera þær saman. Þær voru settar upp í töflur til að fá betri
yfirsýn yfir hvernig hver umfjöllun skiptist hlutfallslega milli
vefmiðlanna. Þeim var skipað í fimm yfirflokka: 1. Almenn
umfjöllun um WikiLeaks, 2. Umfjöllun um starfsemi og rekstur
WikiLeaks, 3. Umfjöllun um upplýsingaleka WikiLeaks, 4.
Barátta WikiLeaks, 5. Umfjöllun um málefni sem tengjast
einkalífi Julian Assange (sjá mynd 1). Eftir nánari greiningu
kom í ljós að hver yfirflokkur hafði að geyma nokkra undirflokka.
Yfirflokkar voru auðkenndir með tölustöfum, en undirflokkar
með tölustaf yfirflokks ásamt bókstaf (sbr. mynd 2 og 3). Í
þessari grein verður aðeins fjallað um tvo þeirra ásamt
undirflokkum: Umfjöllun um upplýsingaleka WikiLeaks (3) og
umfjöllun um málefni sem tengjast einkalífi Julian Assange (5).
Fyrst skal greint frá samanburði á yfirflokkunum fimm sem
fundust við greiningu gagna.
Á mynd 1 sést hvernig hver umfjöllun skiptist hlutfallslega á
milli vefmiðlanna þriggja. Í vinstri dálki má sjá númer og heiti
yfirflokkanna, en í þeim hægri hvernig umfjöllunin skiptist
hlutfallslega í hvern flokk fyrir sig. Áhugavert er að sjá að þótt
sömu þemu eða yfirflokkar einkenni umfjöllunina hjá vefmiðl-
unum þremur er tíðni umfjöllunar ekki sú sama á milli vefmiðl-
anna.
Það sem var sameiginlegt með vefmiðlunum þremur var sú
umfjöllun sem var algengust og sú umfjöllun sem var óalgeng-
ust. Umfjöllun 3 um upplýsingaleka WikiLeaks var algengust.
Með henni er átt við almenna og sértæka umfjöllun um þau
gögn sem WikiLeaks hefur lekið eins og hinum umtöluðu
sendiráðspóstum. Ástæður fyrir háa tíðni umfjöllunar um upp-
lýsingaleka WikiLeaks geta verið margar. Eins og komið hefur
fram hér á undan hafa WikiLeaks samtökin mikil tengsl við Ís-
land og hefur eitthvað af þeim upplýsingum sem samtökin
hafa lekið tengst Íslandi beint. Nánar um tölur og tíðni um-
fjöllunarinnar má sjá á mynd 2. Hin almenna umfjöllun um Wiki-
leaks (1) var sú óalgengasta á öllum vefmiðlunum, en með
henni er átt við sögu, tilgang og stefnu WikiLeaks. Það kom á
óvart hversu litla umfjöllun hún fékk á vefmiðlunum eða 1%.
Tíðni umfjöllunar í hinum þremur flokkunum, eða flokkum
númer 2, 3 og 4 var hins vegar ólík milli vefmiðla. Umfjöllun 4
um baráttu WikiLeaks inniheldur allar þær umfjallanir sem
tengjast baráttu WikiLeaks við hin ýmsu fjármálafyrirtæki sem
og tilraunir einstaklinga, fyrirtækja og yfirvalda til að þagga
niður í samtökunum. Þessi umfjöllun var sú næst algengasta
hjá DV.is eða 26%. Aftur á móti var umfjöllun 5 um málefni sem
tengjast einkalífi Julian Assange næst algengust hjá mbl.is og
vísir.is eða 26% og 30%. Með þeirri umfjöllun er átt við pers-
ónulegar umfjallanir á Assange, hvort sem þær tengjast
ákærum sem hann sætir vegna kynferðisbrota eða ekki.
Yfirflokkar
-‐
samanburður Tíðni % Tíðni % Tíðni %
1.
Almenn
umfjöllun
um
WikiLeaks 3 1% 1 1% 1 1%
2.
Umfjöllun
um
starfsemi
og
rekstur
WikiLeaks 61 17% 17 12% 15 14%
3.
Umfjöllun
um
upplýsingaleka
WikiLeaks 154 42% 55 38% 38 36%
4.
Barátta
WikiLeaks 56 15% 27 19% 28 26%
5.
Umfjöllun
um
málefni
sem
tengjast
einkalífi
Julian
Assange 94 26% 43 30% 25 23%
Samtals 368 100% 143 100% 107 100%
Mynd
1
Mbl.is Vísir.is DV.is
Yfirflokkar
-‐
samanburður Tíðni % Tíðni % Tíðni %
1.
Almenn
umfjöllun
um
WikiLeaks 3 1% 1 1% 1 1%
2.
Umfjöllun
um
starfsemi
og
rekstur
Wik Leaks 61 17% 17 12% 15 14%
3.
Umfjöllun
um
upplýsingaleka
WikiLeaks 154 42% 55 38% 38 36%
4.
Barátta
WikiLeaks 56 15% 27 19% 28 26%
5.
Umfjöllun
um
mále ni
sem
tengjast
e nkalífi
Julian
Assange 94 26% 43 30% 25 23%
Samtals 368 100% 143 100% 107 100%
Mynd
1
Mbl.is Vísir.is DV.is
Yfirflokkar
-‐
samanburður Tíðni % Tíðni % Tíðni %
1.
Almenn
umfjöllu
WikiLeaks 3 1% 1 1% 1 1%
2.
Umfjöllun
u
starfse i
og
ekstur
WikiLe ks 61 17% 7 12% 15 14%
3.
Umfjöllun
u
upplýsingaleka
WikiL aks 154 42% 55 38% 38 36%
4.
Barátta
WikiLeaks 56 15% 27 19% 28 26%
5.
Umfjöllun
u
málefni
se
t ngjast
einkalífi
Jul an
Assa e 94 26% 3 30% 25 23%
Samtals 368 100% 143 1 0% 107 1 0%
Mynd
1
Mbl.is Vísir.is DV.is
Yfirflokkar
-‐
samanburður Tíðni % Tíðni % Tíðni %
1.
Almenn
umfjöllun
um
WikiLeaks 3 1% 1 1% 1 1%
2.
Umfjöllun
um
starfsemi
og
re tur
WikiLeaks 61 17% 17 12% 15 14%
3.
Umfjöllun
um
upplýsingaleka
WikiLeaks 154 42% 55 38% 38 36%
4.
B rátta
WikiLeaks 56 15% 27 19% 28 26%
5.
Umfjöllu
um
mál fni
em
t ngjast
eink lífi
Julian
Assange 94 26% 43 30% 25 23%
Samtals 68 100% 143 10 % 107 100%
Mynd
1
Mbl.is í ir.is DV.is