Bókasafnið - 01.05.2013, Blaðsíða 36

Bókasafnið - 01.05.2013, Blaðsíða 36
36   Útdráttur Þessi grein byggist á lokaverkefni (BA) mínu í bókasafns- og upplýsingafræði við Háskóla Íslands sem fjallar um eigindlega rannsókn er gerð var á umfjöllun þriggja íslenskra fréttavef- miðla um WikiLeaks samtökin. Skoðaðir voru þrír fréttavef- miðlar: mbl.is, vísir.is og DV.is. Leitast var við að svara eftirfar- andi rannsóknarspurningum: Hvernig umfjöllun fær Wiki- leaks á þessum vefmiðlum? Er munur á milli þessara vefmiðla á þeirri umfjöllun sem Wikileaks fær? Við framkvæmd rann- sóknarinnar var innihaldsgreining notuð. Leitað var eftir um- fjöllunum á fréttavefmiðlunum með fyrirfram ákveðnum efn- isorðum sem tengdust WikiLeaks. Lesið var yfir þær umfjall- anir sem voru síðan greind í nokkur þemu. Að því loknu var hver umfjöllun talin niður í ákveðna flokka. Helstu niðurstöður voru þær að umfjöllunin á milli fréttavefmiðlanna þriggja var frekar svipuð hvað varðaði innihald. Enginn fréttamiðlanna þriggja fjallaði sérstaklega né meira en hinir um málefni sem tengdust WikiLeaks. Hinsvegar var munur á því hversu mikla áherslu fréttavefmiðlarnir lögðu á ákveðin umfjöllunarefni tengd WikiLeaks. Inngangur WikiLeaks samtökin eru mjög umdeild og hafa verið áberandi í umræðunni um upplýsingafrelsi undanfarin ár og hafa upp- lýsingalekar þeirra vakið mikla athygli um allan heim. Þeir upplýsingalekar sem þau hafa staðið að tengjast mörgum að- ilum og mörgum löndum, þar á meðal Íslendingum og Ís- landi. Af þeim ástæðum taldi höfundur áhugavert að athuga hverskonar umfjöllun samtökin væru að fá á þremur íslensk- um fréttavefmiðlum og hve mikla. Ástæðan fyrir því að frétta- vefmiðlanir mbl.is, vísir.is og DV.is voru valdir var sú að þeir töldust vera helstu fréttavefmiðlar landsins að mati höfundar. WikiLeaks samtökin Þann 4. október 2006 var lénið WikiLeaks.org stofnað af Julian Assange, einum af forsprökkum WikiLeaks samtakanna og markaði það upphaf þeirra. Þrátt fyrir ungan aldur hafa sam- tökin sett mark sitt á heim upplýsinga með því að miðla um- deildum og að mörgu leyti mikilvægum upplýsingum til al- mennings. Upplýsingar, sem sumir einstaklingar, fyrirtæki og yfirvöld eru gjarnan á móti að komi fyrir augu almennings (Assange, 2011). WikiLeaks fær oftast upplýsingar frá nafnlausum heimilda- mönnum í gegnum Netið þó þau taki líka stundum við upp- lýsingum í eigin persónu. Starfsfólk samtakanna vinnur sífellt að því að þróa örugga og nýstárlega tækni sem gerir fólki kleift að miðla upplýsingum rafrænt til samtakanna eða ann- arra miðla á öruggan og fljótlegan hátt. WikiLeaks gefa aldrei upplýsingar um heimildamenn sína og reyna eftir fremsta megni að vernda nafnleysi þeirra. Þegar samtökunum berast upplýsingar fer af stað ferli þar sem uppruni þeirra og trú- verðugleiki er rannsakaður. Leitað er eftir því hvort upplýsing- arnar séu sannar og réttar með ýmsu móti. Þegar upplýsing- arnar hafa svo verið sannreyndar skrifa fréttamenn WikiLeaks Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar er bókasafns- og upplýsingafræðingur, BA og stundar nú nám til meistaragráðu í sömu fræðum við Háskóla Íslands. WikiLeaks og frelsi til upplýsinga Rannsókn á umfjöllun þriggja íslenskra fréttavefmiðla um WikiLeaks
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.