Bókasafnið - 01.05.2013, Blaðsíða 11

Bókasafnið - 01.05.2013, Blaðsíða 11
11 bókasafnið 37. árg. 2013 Frjáls og opinn hugbúnaður Samhliða hraðri þróun og útbreiðslu internetsins hefur hreyf- ingunni í kringum frjálsan og opinn hugbúnaði vaxið ásmeg- in. Þekktasta dæmið þar um er Linux-stýrikerfið sem er í víð- tækri notkun á netþjónum um allan heim. Í opinberri stefnu íslenskra stjórnvalda um frjálsan og opinn hugbúnað er hvatt til notkunar á honum í þeim tilvikum sem hugbúnaðurinn býður upp á sambærilega virkni og séreignarhugbúnaður (Forsætisráðuneytið, 2007). Ástæðurnar eru þær að opinn og frjáls hugbúnaður er oft hannaður með hliðsjón af opnum stöðlum (opnir staðlar auka meðal annars líkurnar á auðveldri yfirfærslu gagna á milli hug- búnaðarkerfa), hann býður upp á meiri sveigjanleika (hægt er að breyta hugbúnaðinum eftir þörfum), og að lokum er komið í veg fyrir möguleikann á fastbindingu heildsalans (e. vendor lock in).2 Opinberir aðilar jafnt sem einkaaðilar nota í auknum mæli opinn hugbúnað. Þjóðarbókhlaðan notast við CMS Made Simple-vefumsýslukerfið og Háskóli Íslands, Ríkisútvarpið og Þjóðskjalasafnið eru á meðal stórra stofnana sem hafa innleitt vefumsjónarkerfið Drupal. Þjóðskjalasafn valdi Drupal meðal annars vegna þess að það var ódýrasti kosturinn og bauð auk þess upp á mikinn sveigjanleika. Ákvörðunin var einnig tekin með hliðsjón af stefnu ríkisstjórnarinnar um að opinberar stofnanir skuli frekar nota frjálsan og opinn hugbúnað. Hag- kvæmni og opinber stefna eru atriði sem taka þarf ríkulega tillit til í rekstri opinberra stofnana í dag. Tæknileg þekking Ýmsar vísbendingar eru svo sem uppi um að gagnagnótt og aukið tæknistig kalli á breyttar áherslur í þekkingarstjórn. Merkingafræðilegar (e. semantic) leitarvélar á borð við Wol- fram|Alpha skilja raunverulega merkingu spurninga og svara í samræmi við þann skilning. Upplýsingaarkitektúr er nýleg undirgrein bókasafns- og upplýsingafræðinnar þar sem sér- stök áhersla er lögð á skipulagningu og utanumhald gagna (Eva Ósk Ármannsdóttir, 2011). Nýleg meistararitgerð höf- undar um íslensku Wikipediu sýnir fram á vaxandi vinsældir hennar og er Wikipedia (enska og íslenska) gott dæmi um speki mannfjöldans (e. wisdom of crowds) sem er að einhverju marki talin réttmæt þekkingarlind (Hrafn H. Malmquist, 2013). Ætla má að skilin á milli forritunar, eða tölvunarfræði, og bókasafns- og upplýsingafræði muni minnka. Til marks um þetta má nefna að Hinn konunglegi bókasafns- og upplýs- ingafræðiskóli í Danmörku hefur frá og með júní 2010, breytt um nafn og heitir nú Háskóli upplýsingafræðinnar (d. Det In- formationsvidenskabelige Akademi). Áherslan er í auknum mæli þverfræðileg, bókasafnið sem slíkt virðist mega missa sín, eða bækur í öllu falli. Við Álaborgardeild Háskóla upplýs- ingafræðinnar er hægt að fara í sérhæft meistaranám í upp- lýsingaarkitektúr og má geta þess að Íslendingur, Hildur Fjóla Svansdóttir, var í hópi fyrsta árgangs sem útskrifaðist.3 Svo annað dæmi sé tekið, eru kennd valkvæð námskeið í bóka- safns- og upplýsingafræði í Háskólanum í Pittsburgh í Banda- ríkjunum þar sem nemendur læra meðal annars SQL-gagna- grunnsfyrirspurnarmálið og uppsetningu á DSpace fyrir staf- ræn bókasöfn.4 Í Háskóla Íslands er bókasafns- og upplýsingafræði kennd til BA-gráðu og einnig meistaragráðu (MA og MLIS fyrir nem- endur með annan bakgrunn en bókasafns- og upplýsinga- fræði). Nokkur vandræðagangur hefur verið með kennslu í námskeiðinu BÓK090F Vefstjórnun - MLIS5 á MLIS-stigi og samkvæmt reglum háskólans má ekki bjóða upp á námskeið á grunnstigi sem hluta af meistaranámi. Þetta þýðir að meist- aranemum í bókasafns- og upplýsingafræði stendur hvorki til boða TÖL101G Tölvunarfræði 16 né TÖL306G Vefforritun7 sem eru valnámskeið fyrir grunnnema í bókasafns- og upplýsinga- fræði. Höfundi er kunnugt um að hætt hafi verið kennslu í gagnasafnsfræði við bókasafns- og upplýsingafræðideild Há- skóla Íslands vegna fjárskorts. Höfundur þessarar greinar er nýútskrifaður úr MLIS-námi við Háskóla Íslands. Þar sat hann námskeiðið BÓK108F Inter- netið og upplýsingamiðlun – MLIS sem er skyldunámskeið.8 Enda þótt sá fyrirvari sé hafður á að námskeiðinu sé ætlað að vera inngangur er það álitamál hvort háskólinn verði ekki að gera meiri kröfur til nemenda á námskeiðinu, sér í lagi til nem- enda á meistarastigi. Til þess að gera bragarbót á þekkingu minni á forritun sótti höfundur diplómanám í forritun hjá Nýja tölvu- og viðskiptaskólanum. Þessu innskoti er ekki ætlað að vera auglýsing en höfundur getur óhikað mælt með því. Að hlaða Rafhlöðuna Rafhlaðan nefnist rafrænt varðveislusafn Landsbókasafns Ís- lands – Háskólabókasafns. Verkefninu var fyrst hleypt af stokk- unum árið 2010. Í mars 2011 innihélt safnið 567 færslur. Í mars 2012 voru færslurnar orðnar 2.275 talsins. Áætla má að árlega útgefið rafrænt efni á vegum opinberra stofnana skipti hundr- uðum titla. Sem dæmi má taka smáritið Dagur leikskólans 6. febrúar: við bjóðum góðan dag – alla daga, sem er sex blaðsíður og er að- gengilegt í rafrænu formi á vef Stjórnarráðsins (Menntamála- ráðuneytið, 2008). Magn smárita, skýrslna og annars slíks efnis 2. Fastbinding nefnist það þegar viðskiptavinur verður háður seljanda þjónustu vegna takmarkana, oft tæknilegra eða fjárhagslegra, við að færa viðskiptin annað. 3. Sjá http://www.studyguide.aau.dk/programmes/postgraduate/53279/ 4. Sjá http://www.ischool.pitt.edu/lis/courses/descriptions.php#technology 5. https://ugla.hi.is/kennsluskra/index.php?tab=nam&chapter=namskeid&id=10514520126 6. https://ugla.hi.is/kennsluskra/index.php?tab=nam&chapter=namskeid&id=08711120126 7. https://ugla.hi.is/kennsluskra/index.php?tab=nam&chapter=namskeid&id=08715320126 8. https://ugla.hi.is/kennsluskra/index.php?tab=nam&chapter=namskeid&id=10510320126
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.