Bókasafnið - 01.05.2013, Blaðsíða 26

Bókasafnið - 01.05.2013, Blaðsíða 26
26 bókasafnið 37. árg. 2013 Einnig hafa starfsmenn sótt ráðstefnur og námskeið hér á landi og erlendis og hefur verið mikilvægt fyrir sérhæfð söfn að geta sótt þekkingu til annarra landa þar sem í sumum tilfellum er ekkert sambærilegt safn starfandi hér á landi. Þau hafa einnig verið meðlimir í félögum sem tengjast starfinu bæði hér á landi og erlendis. Sérstök félög rannsóknarbókasafna og heilbrigðisvísindabókasafna hafa verið starfandi hér á landi. Heilbrigðisvísindabókasöfn hafa verið meðlimir í norrænum, evrópskum og bandarískum félögum fyrir heilbrigðisvísindabókasöfn. Einnig hafa þau birt greinar og haldið fyrirlestra hér á landi og erlendis. Stærsta félag á sviði sérfræðibókasafna er The Special Library Association (skammstafað SLA) sem var stofnað árið 1909 og eru alþjóðleg samtök með 12.000 félagsmönnum og 59 deildum á heimsvísu. Ráðstefnur eru haldnar ár hvert með um 5000-6000 þátttakendum. Eftir efnahagshrunið 2008 hafa starfsmenn lítið getað sótt ráðstefnur erlendis og þar með ekki verið virkir þátttakendur í erlendri samvinnu. Framtíðin 2013 – 2020 Spáð er að aðeins 20% af safnkostinum muni verða eign safn- anna í náinni framtíð og staðsettur á safninu, en um 80% gagna verði gögn sem safnið hefur samið um rafrænan aðgang að (Susan Gibbons, 2010). Safnkostur verður keyptur eða samið um aðgang að gögnum eftir þörfum í tæka tíð. Þetta er breyt- ing frá því að safnkostur var byggður upp til öryggis og val gagna oft eingöngu í höndum þeirra sem á safninu störfuðu með væntanlegan notanda í huga. Meira verður um pöntun bókakafla í stað bóka og greina í stað tímarita. Prentun mun breytast þannig að prentað verður aðeins þegar þörf krefur. Starfsmenn munu miðla og beina notendum að efninu. Minna verður varðveitt nema innlent efni. Eflt verður miðlægt að- gengi að safnkosti um til dæmis Landsaðgang, Landskerfi og varðveislusöfn. Allt efni mun vera í opnum aðgangi samkvæmt markmiðum Evrópusambandsins. Unnið er að þessu verkefni með verkefni þeirra Horizon 2020, the EU’s Framework Programme for Rese- arch and Innovation (2014-2020) (European Commission, 2010). Fyrir 10 árum var haldinn fundur í Búdapest þar sem stofnuð voru samtök til að vinna að framgangi opins aðgangs. Þetta frumkvæði er talið vera upphafið að opnum aðgangi. Í tilefni 10 ára afmælis Budapest Open Access Initiative (BOAI) árið 2012 birtu samtökin nokkrar tillögur fyrir næsta áratug OA hreyfingarinnar og má nefna meðal annars: Varðveislusöfn ættu að vera hjá sérhverri þjóð og ætti hver þjóð að sjá um að varðveita innlent efni í opnum aðgangi. Eitt varðveislusafn ætti að vera fyrir eldra efni á prenti. Söfnin ættu að skrá og miðla staðbundnu efni innanlands og utan í opnum aðgangi. Prenta ætti aðeins þegar þörf krefði (Budapest Open Access Initiative, 2012). Útgáfa tímarita mun taka miklum breytingum. Nú þegar eru komin á markaðinn tímarit sem sýna dæmi um þær breyt- ingar. Þessi tímarit birta ritrýnt lokahandrit greina. Handritin tengjast risavöxnu gagnasafni þar sem hægt er að nálgast öll gögn sem tengjast handritinu og býður upp á nákvæma greiningu gagna. Útgáfustarfsemin mun breytast og ný módel verða þróuð. Líklegt er að það verði opin ritrýni og mikil dreif- ing starfsþátta. Tækni mun bjóða upp á nýjar lausnir eins og snjallsíma og tölvur, 2D, 3D tækni og 4D sem mun nýtast vel í útgáfumálum. Starfsfólk safnanna mun verða með aukna alþjóðlega sam- vinnu. Þeir sem starfa á söfnunum þurfa að hafa góða þekk- ingu á höfundarétti, varðveislusöfnum, stöðlum, lýsigögnum (e. metadata) útgáfu vísindagreina, varðveislu og skráningu vísindagagna. Þeir verða að geta leiðbeint höfundum vísinda- greina og vera leiðandi í allri tækni varðandi útgáfu. Í þessum nýju verkefnum liggja tækifærin fyrir bókasafnsfræðinga. Sagt er að bókasafnsfræðingurinn verði leiðsögumaður um heim upplýsinga í samræmi við þarfir notenda en til þess þarf hann að búa yfir góðum samskiptahæfileikum sem og mjög góðri tækniþekkingu. Ljóst er að aðgangur Íslendinga að vísindaefni hefur stórauk- ist á síðastliðnum tólf árum. Þróun upplýsingatækni hefur gegnt þar lykilhlutverki. Bókasafnsfræðingar hér á landi verða að vera framsæknir og duglegir að koma sinni þekkingu á framfæri eigi þeir að halda sínum stöðum innan stofnana og fyrirtækja þar sem störfin eru að breytast. Á söfnunum mun þjónustan felast í beinum samskiptum á vefnum. Millisafnalán eða greinaþjónusta mun aukast. Fræðsla verður stór þáttur bæði hvað varðar útgáfumál, höfundarétt og varðveislusöfn. Aukinn stuðningur við vísindastarfsemi mun verða áberandi. Árangursmælingar munu verða stórauknar og öflug kerfi munu styðja við þær sem bókasafnsfræðingar munu taka þátt í að byggja upp og miðla frá þeim grunnum. Stuðn- ingur við að birta greinar og halda utan um efnið sem vísinda- skrif voru byggð á verða í verkahring bókasafnsfræðinga ef þeir sækjast eftir því. Vonandi verða söfnin áfram staður í þeirri mynd sem við þekkjum og að sá staður verði upplýsingatorg og vinnuað- staða vísindamanna, starfsfólks og nema. Tækifærin eru til staðar og vonandi berum við gæfu til að nýta þau. Heimildir: Berlin Declaration on Open Access to Knowledge in the Sciences and Humani- ties. (2003). Sótt 6. mars 2013 af http://oa.mpg.de/lang/en-uk/berlin- prozess/berliner-erklarung/ Bókasafnalög nr. 150/2012 Budapest Open Access Initiative. (2012) BOAI 10 Recommendations. Sótt 15. desember 2012 af http://www.opensocietyfoundations.org/openac- cess/boai-10-recommendations European Commission. (2010). Horizon 2020; the EU Framework Programme for Research and Innovation. Sótt 15.desember 2012 af http://ec.europa. eu/research/horizon2020/index_en.cfm?pg=h2020 Forsætisráðuneytið. (1996). Framtíðarsýn ríkisstjórnar Íslands um upplýs- ingasamfélagið. Sótt 15. desember af http://www.forsaetisraduneyti.is/ utgefid-efni/listi/1996 Forsætisráðuneytið. (2004). Auðlindir í allra þágu – Stefna ríkistjórnarinnar um upplýsingasamfélagið 2004-2007. Sótt 15. desember 2012 af http:// www.forsaetisraduneyti.is/utgefid-efni/listi/2004
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.