Bókasafnið - 01.05.2013, Blaðsíða 54

Bókasafnið - 01.05.2013, Blaðsíða 54
54 bókasafnið 37. árg. 2013 Kristín Gústafsdóttir fæddist 26. mars 1946 og var því rétt að verða 67 ára þegar hún lést hinn 12. mars 2013. Kristín var fædd og alin upp í Reykjavík, lauk stúdentsprófi við stærð- fræðideild Menntaskólans í Reykjavík árið 1967 og kennara- prófi frá Kennaraskóla Íslands ári síðar. Sama ár hóf hún kennslu við Álftamýrarskóla þar sem hún kenndi til ársins 1973 þegar hún venti sínu kvæði í kross og fór í nám í bóka- safnsfræði og sálarfræði við Háskóla Íslands. B.A.-prófi í þeim greinum lauk hún haustið 1977. Meðfram háskólanámi sínu vann hún sem bókavörður í hlutastarfi við Landsbókasafn og frá 1977–1980 var hún þar bókasafnsfræðingur í fullu starfi . Þá færði hún sig aftur um set og gegndi starfi bókasafnsfræð- ings á Aðalsafni Borgarbókasafns næstu 13 ár eða þangað til hún sótti um og fékk starf við bókasafn Kennaraháskóla Ís- lands haustið 1993 þar sem hún starfaði til ársins 2008. Kristín sinnti ýmsum félagsstörfum á vettvangi bókasafnsmála og var meðal annars varaformaður Félags bóksafnsfræðinga 1984–1986. Ég kynntist Kristínu fyrst eitthvað að ráði haustið 1982 þegar ég hafði um fj ögurra mánaða skeið vinnuskipti við Önnu Torfadóttur, sem þá var bókasafnsfræðingur á Aðal- safninu í Þingholtsstræti. Kristín og fl eira fólk á svipuðum aldri bar þá af miklum metnaði uppi upplýsingaþjónustuna í safninu. Greinilegt var að samstarfsfólkið virti vel fagmennsku Kristínar. Hún lét sér annt um safngesti og gerði sér far um að sinna þörfum þeirra af alúð og nákvæmni. Athugul, fróð og orðheppin var hún í hópi samstarfsfólks, tillögugóð og vel liðin. Menntun Kristínar, hæfi leikar og vinnubrögð nýttust ekki síður vel í starfi við Kennaraháskólann. Það var í upphafi öðr- um þræði við kennslumiðstöð, sem Námsgagnastofnun kom á fót á Laugavegi 166, en hafði verið færð yfi r til Kennarahá- skólans. Að hinu leytinu var verið að innleiða nýja þætti í Gegniskerfi nu og tók hún þátt í því af festu og fumleysi. Á meðan Kristín starfaði við Kennaraháskólann urðu þar miklar breytingar á öllum sviðum, í starfsemi stoðþjónustunnar eins og annars staðar. Skólar voru sameinaðir, skipulagi umturnað og hrikti þá annað slagið í ýmsum innviðum. Þó að Kristín hefði kannski stundum kosið að umrótið væri minna sló hún aldrei af gæðakröfum í neinu verki og lagði sig alla fram. Hún átti við vanheilsu að stríða síðustu árin og varð að lokum að hætta störfum upp úr sextugu. En þar sem Kristín var glögg og nákvæm æxlaðist það þannig að efnislyklun og skráning urðu hennar meginviðfangsefni síðustu árin. Hún skráði greinar í íslenskum uppeldis- og menntamálatímaritum í Gegni um leið og þau komu út og naut til þess óskoraðs trausts bæði innan bókasafnsins og hjá skráningarsérfræð- ingum Landsbókasafns. Samstarfsfólki ber saman um hve gott hafi verið að vinna með Kristínu. Hún setti sig vel inn í mál, var gagnrýnin og hreinskiptin í viðræðum og kom há- loftafl ugköppum jafnan niður á jörðina en tók vel öllum góð- um rökum. Blessuð sé minning Kristínar Gústafsdóttur. Kristín Indriðadóttir Höfundur er verkefnisstjóri í skjalasafni Háskóla Íslands en var forstöðumaður bókasafns Kennaraháskólans og síðar Menntasmiðju Minning Kristín Gústafsdóttir 1946-2013  
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.