Bókasafnið - 01.05.2013, Blaðsíða 40

Bókasafnið - 01.05.2013, Blaðsíða 40
40 bókasafnið 37. árg. 2013 Umræða WikiLeaks samtökin hafa greinilega sett sitt mark á heim upplýsingafræða með baráttu sinni fyrir upplýsingafrelsi og frjálsri fjölmiðlun. Samtökin hafa veitt heiminum aðgang að upplýsingum sem vakið hefur almenning til umhugsunar um hvort raunverulegt gagnsæi ríki í starfsemi yfirvalda og fyrirtækja. Samtökin eru þó umdeild og óhætt er að segja að ólíkar skoðanir ríki meðal fólks um gagnsemi og starfsemi þeirra og hvort upplýsingalekar samtakanna eigi rétt á sér. Rannsóknin sem þessi grein fjallar um gaf ýmsar áhugaverðar niðurstöður (Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar, 2012). Til dæmis kom það ekki á óvart að umfjöllun um það efni sem upplýsingalekar WikiLeaks innihalda væri algengust, hvort sem hún tengdist Íslandi sérstaklega eða ekki. Áætla má að WikiLeaks fái mesta umfjöllun á flestum vefmiðlum heims vegna þeirra upplýsingaleka sem þeir hafa staðið að og fjölmiðlar, ekki bara íslenskir, hafa verið duglegir að gera þeim gögnum skil sem WikiLeaks hafa lekið. Það kemur þó á óvart hve gríðarlega mikla umfjöllun málefni sem tengjast einkalífi Julian Assange fá, mögulega á kostnað annarra málefna sem tengjast samtökunum. Í þeim flokki sést að umfjöllun um ákærur á hendur Julian Assange vegna meintra kynferðisbrota er langmest enda birtist sú umfjöllun oft í öðrum umfjöllunum um WikiLeaks, þeim sem tengdust ekki einkalífi Julian Assange á nokkurn hátt. Því má velta fyrir sér af hverju umfjallanirnar skiptast líkt og þær gera hjá vefmiðlunum þremur. Mögulega eru áherslurnar gagnvart allri umfjöllun um WikiLeaks misjafnar hjá hverjum vefmiðli fyrir sig. Sumir gætu lesið út úr þessum niðurstöðum og haldið því fram að vefmiðlarnir séu hlutdrægir, þess vegna fjalli einn þeirra meira en hinir um ákærur á hendur Julian Assange vegna meintra kynferðisbrota og svo framvegis. Eitt er þó víst að umfjöllunin er eins á vefmiðlunum þremur þegar kemur að innihaldi hennar. Enginn vefmiðlanna fjallaði sérstaklega eða mikið um eitthvað tengt WikiLeaks sem hinir fjölluðu ekki um og þess vegna var hægt að nota sömu yfir- og undirflokka við greiningu á gögnum vefmiðlanna þriggja. Umfang hverrar umfjöllunar var svo mismunandi eftir frétta- vef miðli eins og áður hefur komið fram. Í þessari rannsókn var eingöngu skoðað magn og eðli þeirra umfjallana sem fundust um WikiLeaks á vefmiðlunum þremur. Áhugavert væri að gera rannsókn um hvort umfjöllun þessara vefmiðla um WikiLeaks væri hlutdræg. Eins væri athyglisvert að skoða umfjöllun um WikiLeaks í prentútgáfu þessara þriggja vefmiðla en þeir gefa allir út sitt eigið dagblað. Abstract This article contains an overall take on the WikiLeaks organisation where some of their information leaks are mentioned as well as a discussion on some of the critique that the organisation has received. The article is based on a qualitative study which was done as part of a thesis towards a BA degree in Library and information science at the University of Iceland. The purpose of the study was to see how much and what type of media coverage the WikiLeaks organisation received from three Icelandic news sites during a specific time period. The news sites that were studied were mbl.is, vísir.is and DV.is. The main findings were that the coverage was quite similar between the three news sites when it comes to its contents. None of the news sites covered a specific topic which the other news sites didn‘t cover. However there was a difference on how much emphasis the news sites had on topics involving WikiLeaks. Yfirflokkar  -­‐  samanburður Tíðni % Tíðni % Tíðni % 3.  Umfjöllun  um  upplýsingaleka  WikiLeaks  -­‐  samanburður Tíðni % 1.  Almenn  umfjöllun  um  WikiLeaks 3 1% 1 1% 1 1% Mbl.is 2.  Umfjöllun  um  starfsemi  og  rekstur  WikiLeaks 61 17% 17 12% 15 14% 3a.  Almenn  umfjöllun  um  upplýsingaleka  WikiLeaks 23 15% 3.  Umfjöllun  um  upplýsingaleka  WikiLeaks 154 42% 55 38% 38 36% 3b.  Umfjöllun  sem  inniheldur  tilkynningar  um  leka 16 10% 4.  Barátta  WikiLeaks 56 15% 27 19% 28 26% 3c.  Umfjöllun  um  efni  sem  kemur  fram  í  skjölum  WikiLeaks 86 56% 5.  Umfjöllun  um  málefni  sem  tengjast  einkalífi  Julian  Assange 94 26% 43 30% 25 23% 3d.  Umfjöllun  um  efni  sem  tengist  Íslandi  og  kemur  fram  í  skjölum  WikiLeaks 29 19% Samtals 368 100% 143 100% 107 100% Samtals 154 100% Mynd  1 Vísir.is 3a.  Almenn  umfjöllun  um  upplýsingaleka  WikiLeaks 5 9% 3b.  Umfjöllun  sem  inniheldur  tilkynningar  um  leka 8 15% 3c.  Umfjöllun  um  efni  sem  kemur  fram  í  skjölum  WikiLeaks 12 22% 3d.  Umfjöllun  um  efni  sem  tengist  Íslandi  og  kemur  fram  í  skjölum  WikiLeaks 30 55% Samtals 55 100% DV.is 3a.  Almenn  umfjöllun  um  upplýsingaleka  WikiLeaks 12 32% 3b.  Umfjöllun  sem  inniheldur  tilkynningar  um  leka 6 16% 3c.  Umfjöllun  um  efni  sem  kemur  fram  í  skjölum  WikiLeaks 17 45% 3d.  Umfjöllun  um  efni  sem  tengist  Íslandi  og  kemur  fram  í  skjölum  WikiLeaks 3 8% Samtals 38 100% Mynd  2 5.  Umfjöllun  um  málefni  sem  tengjast  einkalífi  Julian  Assange  -­‐  samanburður Tíðni % Mbl.is 5a.  Umfjöllun  um  ákærur  á  hendur  Julian  Assange  vegna  meintra  kynferðisbrota 82 87% 5b.  Almenn  umfjöllun  sem  tengist  Julian  Assange  persónulega 12 13% Samtals 94 100% Vísir.is 5a.  Umfjöllun  um  ákærur  á  hendur  Julian  Assange  vegna  meintra  kynferðisbrota 36 84% 5b.  Almenn  umfjöllun  sem  tengist  Julian  Assange  persónulega 7 16% Samtals 43 100% DV.is 5a.  Umfjöllun  um  ákærur  á  hendur  Julian  Assange  vegna  meintra  kynferðisbrota 20 80% 5b.  Almenn  umfjöllun  sem  tengist  Julian  Assange  persónulega 5 20% Samtals 25 100% Mynd  3 Mbl.is Vísir.is DV.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.