Bókasafnið - 01.05.2013, Qupperneq 24
24
bókasafnið 37. árg. 2013
hagræðing bæði í vinnulagi og nýtingu fjármagns, en fyrst og
fremst hefur þessi tækni stórbætt aðgengi notenda að upp-
lýsingum.
Með tilkomu veraldarvefsins opnaðist nýr heimur. Helsta
breytingin var sú að söfnin áttu aðeins hluta af safnkostinum
en kaupa nú aðgang að efni sem er staðsett víðs fjarri safninu.
Aðgangur notenda að rafrænu efni hefur tekið miklum breyt-
ingum frá því um aldamótin. Notandinn getur nýtt gagna-
grunna og rafræn tímarit á virkari og fjölbreyttari hátt en áður.
Tækni sem hefur auðveldað aðgang að gögnum eru til
dæmis spjallvefir eins og Twitter og Facebook. Einnig þjónusta
eins og RSS og MY Space. Tækni þessi gerir notendum kleift að
skapa sitt eigið svæði á vefnum. Í þessu lokaða umhverfi geta
þeir safnað saman völdum tímaritum og greinum í samræmi
við þeirra þarfir og áhugasvið. RSS er þróuð vöktunarþjónusta
þar sem notandinn getur sótt og lesið efnið þegar honum
hentar.
Önnur tækni sem hefur verið nýtt af söfnum hér á landi er
Link Resolvers. Þessar krækjur eru til í mörgum útgáfum, en þær
sem hafa verið notaðar hér á landi eru SFX og OVID Link Solver.
Tækni þessi beinir notendum að ýmislegri þjónustu og leiðir
þá áfram í leit sinni að tímaritum eða greinum. Til dæmis geta
þeir í beinu framhaldi af leit sinni pantað frá söfnunum greinar
sem eru ekki til á rafrænu formi.
Rafrænt efni varð að veruleika á þessu tímabili. Áhersla varð
sífellt meiri á rafrænt efni og eru prentaðar bækur og tímarit á
undanhaldi. Flest tímaritin eru aðeins keypt í rafrænum að-
gangi. Sérfræðibókasöfn semja við útgefendur um aðgang að
sérhæfðum gagnagrunnum, tímaritum og rafbókum. Sam-
skrár eins og Gegnir og Leitir.is veita notandanum upplýsingar
um rafræn rit sem beina honum í rafrænan tengil ritanna.
Landsaðgangur að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum -
Hvar.is (hér eftir notað Landsaðgangur) er aðgangur heillar
þjóðar að upplýsingum sem er einsdæmi í heiminum. Eitt af
markmiðunum með Landsaðgangi er að efla menntun og
rannsóknir hérlendis með því að bæta aðgengi að erlendu
vísindaefni. Tímarit gegna lykilhlutverki í miðlun nýrrar, vís-
indalegrar þekkingar og hefur aðgangur að rafrænum tímarit-
um verið sterkasti þátturinn hjá Landsaðgangi frá upphafi.
Kostir Landsaðgangs eru meðal annars aukin hagræðing, betri
nýting á fjármagni og stórbættur aðgangur notenda að upp-
lýsingum. Þar sem Landsaðgangur er ekki með samning við
alla útgefendur hafa sérfræðisöfnin verið með samlög utan
Landsaðgangs á sérsviðum eins og til dæmis heilbrigðisvís-
indabókasöfnin.
Tæknin hefur laðað að sér nýja útgefendur og það sem hefur
gjörbreyst er að vísindagreinar eru orðnar verslunarvara. Með
samruna margra útgáfufyrirtækja hafa útgáfufyrirtækin styrkt
fjárhagsstöðu sína og eru þau flest skráð á hlutabréfamarkaði
heimsins. Þar ríkir fákeppni og einokun sem hefur orðið til þess
að nú á dögum hafa aðeins rík söfn efni á að kaupa aðgang að
öllu því rafræna efni sem þörf er á fyrir sína notendur. Ágóði
útgáfufyrirtækja nemur milljarði Bandaríkjadala á ári. Mestur
er ágóðinn á sviði tækni- og heilbrigðisfræða. Útgáfufyrirtækin
Kluwer/Springer, Wiley, Taylor & Francis, Elsevier og Thomson
byggjast á samruna 68 útgáfufyrirtækja. Ágóði af útgáfunni er
talinn vera milljónir Bandaríkjadala á ári. Gróði af útgáfu tíma-
rita á sviði tækni- og heilbrigðisfræða er 34-40% af heildar-
gróða fyrirtækjanna.
Opið aðgengi (e. Open Access, skammstafað OA) er hug-
myndafræði sem varð til um árið 2002 og var svar bókasafns-
fræðinga og vísindasamfélagsins við mjög háu verði á útgefn-
um vísindagreinum. Bókasöfnin eru greiðendur að aðgangi að
vísindaritum í flestum tilfellum og þess vegna hafa þau beitt
sér fyrir OA. Kostnaður við rafrænan aðgang að tímaritum er
gífurlegur. Samkvæmt OA eru vísindamenn hvattir til þess að
gefa út vísindagreinar í opnum aðgangi lesendum að kostnað-
arlausu. Þetta geta þeir gert með því að birta greinar í varð-
veislusöfnum þeirrar stofnunar sem þeir starfa hjá eða birta
greinina hjá útgefendum sem leyfa opinn aðgang að vísinda-
greinum. Þrátt fyrir birtingar á sinni stofnun geta vísindamenn
samt sem áður látið birta sömu grein í vísindaritum sem eru
gefin út af hefðbundnum útgáfufyrirtækjum.
Háskólar og rannsóknabókasöfn víða um heim hafa opnað
varðveislusöfn sem hýsa og veita OA að vísindaskrifum vís-
indamanna viðkomandi stofnunar. Tilgangurinn er meðal
annars að gefa vísindamönnum tækifæri til þess að birta vís-
indagreinar í völdum tímaritum sem geta verið í lokuðum að-
gangi og einnig í varðveislusöfnum tilheyrandi stofnunar sem
veitir OA að vísindaskrifum.
Á Íslandi eru tvö varðveislusöfn. Annars vegar Skemman,
sem hýsir og veitir aðgang að lokverkefnum nemenda og
rannsóknarritum kennara og fræðimanna frá sjö háskólum á
Íslandi undir stjórn Landsbókasafns Íslands – Háskólabóka-
safns. Hins vegar er það Hirslan á vegum Heilbrigðisvísinda-
bókasafns Landspítalans, sem veitir aðgang að vísindagreinum
starfsmanna Landspítalans. Open DOAR (Directory of Open
Access Repositories) er skrá yfir 2000 varðveislusöfn. Hægt er
að leita í öllum varðveislusöfnum samtímis. Jafnframt er hægt
að fá þar upplýsingar um sérhvert varðveislusafn.
Öflug tímarit eru nú gefin út í opnum aðgangi og má þar
nefna Plos Genetics. Tímarit sem eru gefin út í opnum aðgangi
fá helmingi fleiri lesendur. Íslenska ríkisstjórnin hefur þrívegis
með stefnum sínum um upplýsingamál kveðið á um opinn
aðgang að gögnum (Forsætisráðuneytið, 1996; 2004; 2008).
Alþingi samþykkti fyrir jólin 2012 frumvarp til laga um breyt-
ingu á lögum um opinberan stuðning við vísindarannsóknir nr.
3/2003. Nýrri grein var bætt við um opinn aðgang og hljóðar
svo í málsl. e. 10. gr. laga nr. 149/2012:
Niðurstöður rannsókna, sem kostaðar eru með styrkjum úr
sjóðum er falla undir lög þessi, skulu birtar í opnum aðgangi
og vera öllum tiltækar nema um annað sé samið. Styrkþegar
skulu í öllum ritsmíðum sínum um niðurstöður rannsókna
geta um þátt sjóðanna í viðkomandi verki.
Vísinda- og tækniráð (2010) sem markar stefnu íslenskra
stjórnvalds í vísinda- og tæknimálum undirritaði 27. maí 2010
Berlínaryfirlýsinguna (Berlin Declaration on Open Access to
Knowledge in the Sciences and Humanities, 2003) um opinn