Bókasafnið - 01.05.2013, Qupperneq 25
25
bókasafnið 37. árg. 2013
aðgang að birtum vísindagreinum og Landsbókasafn Íslands
– Háskólabókasafn (2012) gerði slíkt hið sama í október 2012.
Þrátt fyrir að kveðið sé á um opinn aðgang að rannsóknarnið-
urstöðum í stefnu Vísinda- og tækniráðs hafa flestir íslenskir
háskólar, stofnanir og rannsóknasjóðir ekki markað sér form-
lega OA stefnu. Undantekningin er Háskólinn á Bifröst sem
markaði sér OA stefnu í janúar 2012. Samkvæmt OA stefnunni
„samþykkja akademískir starfsmenn skólans að leitast við að
birta fræðigreinar sínar í opnum aðgangi, annað hvort í gegn-
um tímarit sem gefin eru út í opnum aðgangi eða með safn-
vistun“ (Háskólinn á Bifröst, 2012).
Rannsóknamiðstöð Íslands – Rannís (2013) samþykkti reglur
um opinn aðgang að rannsóknarniðurstöðum í desember
2012. Í samræmi við regluna var bætt við ákvæði um opið að-
gengi í samninga við rannsóknaraðila sem undirritaðir voru
fyrir næsta styrktímabil 2013.
Evrópusambandið (ESB) hefur frá 2008 lagt áherslu á OA í
styrkjastefnu sinni, þar á meðal í FP7 rammaáætluninni sem
margir íslenskir vísindamenn hafa sótt í (OpenAIRE, 2011).
Hluti af þessu átaki er OpenAIRE verkefnið (Open Access In-
frastructure for Research in Europe) sem er fjármagnað af ESB
undir Seventh Framework Programme. Verkefnið heldur úti
upp lýsingagátt um OA og veitir aðra þjónustu. Verkefnið hófst
2011 og hét þá OpenAIRE en árið 2012 breyttist heitið í
OpenAIREplus (2011). Rúmlega 40 háskólar og vísindastofnanir
í Evrópu taka þátt í verkefninu en Ísland gerðist þátttakandi
árið 2011 og er höfundur fulltrúi Íslands í verkefninu. Verkefnið
er um opinn aðgang, varðveislusöfn og hvernig hægt er að
koma vísindum innan Evrópu á framfæri í opnum aðgangi.
Þetta er gott tækifæri fyrir Ísland til að vinna betur að framgangi
opins aðgangs og varanlegrar varðveislu vísindagagna.
Verði opinn aðgangur að veruleika eins og allt bendir til þá
munu aðföng og samningar um aðgang að tímaritum og
bókum heyra sögunni til. Þessi störf eru mikilvæg á sérfræði-
söfnum nú á tímum. Fjárveiting til safnanna mun breytast þar
sem þau munu ekki sjá um þessi aðföng lengur þegar opinn
aðgangur er kominn varanlega til sögunnar. Starfsmenn safn-
anna verða að vera útsjónasamir með því að nýta sér hin nýju
tækifæri sem bjóðast er tengjast vísinda- og útgáfustörfum.
Fækkun safna – samruni – þjónustusamningar
Starfsmenn sérfræðisafnanna hafa verið virkir þátttakendur í
öllum þessum tækniframförum og hafa innleitt flestar nýjung-
ar á söfnunum. Oftar en ekki hafa starfsmenn safnanna verið
frumkvöðlar í innleiðingu tækninýjunga. Sú er samt raunin að
þessar breytingar hafa þegar haft neikvæð áhrif þannig að
störf hafa verið lögð niður og mörgum söfnum lokað. Þótt svo
tæknin hafi haft afgerandi áhrif er ekki hægt að kenna
tæknibreytingum alfarið um. Aðrar helstu ástæður eru: endur-
skipu lag, aðhald, sameining, þjónustusamningar og efnahags-
hrunið. Mörg dæmi eru um fækkun safna á Íslandi. Á 15 árum
hefur heilbrigðissöfnum fækkað um 73%. Árið 1995 voru
starfandi 11 heilbrigðisvísindabókasöfn. Árið 2012 voru heil-
brigðis vísindabókasöfnin aðeins þrjú; Fagbókasafn Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri (FSA), Bókasafnið að Keldum og Heil-
brigðis vísindabókasafn Landspítalans. Hjá Heilsugæslu Reykja -
víkur er ekki lengur formlegt safn.
Þann 3. mars 2000 varð samruni Sjúkrahúss Reykjavíkur og
Landspítala háskólasjúkrahúss (skammstafað LSH). Söfn þeirra
voru formlega sameinuð árið 2001 í eitt safn sem hlaut nafnið
Bókasafn Landspítala háskólasjúkrahúss. Forsagan er að árið
1995-1996 var stofnað Sjúkrahús Reykjavíkur með samruna
Borgarspítalans og St. Jósefsspítala Landakoti. Samtímis voru
söfn þeirra sameinuð í eitt. Þetta safn var eitt þriggja safna
sem sameinaðist Bókasafni Landspítalans árið 2001. Þriðja
safnið var Geðdeildarsafnið sem hafði verið áður sjálfstætt
safn á Landspítalanum. Árið 2001 breyttist heiti Bókasafns
Landspítalans í Bókasafns- og upplýsingasvið Landspítalans
(skammstafað BUSV) og var því stjórnað af sviðsstjóra sem er
bókasafnsfræðingur. BUSV tilheyrði sérstakri skrifstofu sem hét
Skrifstofa kennslu, vísinda og fræða. BUSV varð til við samruna
bókasafnanna, tölvuvers LSH og ljósmyndadeildar. Á sviðinu
störfuðu 24 starfsmenn sem voru bókasafnsfræðingar, ljós-
myndarar og hönnuðir. Árið 2009 urðu þær breytingar að svið-
ið var lagt niður og breytt í deild sem heyrði undir Skrifstofu
kennslu-, vísinda og gæða. Yfir safninu var nú deildarstjóri, sá
hinn sami og verið hafði sviðsstjóri BUSV og var nafni bóka-
safnsins breytt í Heilbrigðisvísindabókasafn.
Í lok árs 2012 urðu enn breytingar þannig að nú er safnið
verkefni innan Vísindadeildar Landspítalans og yfirmaður
verkefnastjóri. Árið 2001 störfuðu 24 starfsmenn og þar af tíu
bókasafnsfæðingar á BUSV, en nú starfa þar átta manns, þar
af þrír bókasafnsfræðingar í 2.8 stöðugildum, en sá fjórði er í
námsleyfi til vorsins 2013.
Bókasafn Landspítalans gerði þjónustusamninga við
Krabbameinsfélagið árið 2001, Landlæknisembættið 2004,
Reykjalund 2004 og Vinnueftirlitið árið 2010. Þarna störfuðu
sérstök söfn sem voru lögð niður þegar þjónustusamning-
arnir voru gerðir. Saga FSA er sambærileg sögu Bókasafns
Landspítalans. Þar hefur starfsmönnum fækkað, yfirmaður
heitir nú verkefnastjóri og starfsemi safnsins hefur breyst í
verkefni sem fellur undir Vísindadeild spítalans.
Frekari breytingar
Á árinu 2013 standa fyrir dyrum breytingar á Siglingastofnun,
Umferðarstofu, Vegagerð og Flugmálastjórn þar sem til
stendur að sameina þessar stofnanir í tvær; Fjarsýsluna og
Vegagerðina. Ekki er ákveðið hvað verður um gömlu stofnan-
irnar né hvernig útgáfumálum þeirra verður háttað (Eiríkur Þ.
Eiríksson, tölvupóstur 9. júlí 2012). Hjá Matís er ekkert form-
legt bókasafn lengur. Bækur merktar Rannsóknarstofnun
fiskiðnaðarins eru geymdar hjá Matís en voru áður hjá
Sjávarútvegsbókasafninu. Þar er nú aðeins starfandi skjalasafn
(Eydís Arnviðardóttir, tölvupóstur 28. júní 2012).
Samvinna á innlendum og erlendum vettvangi
Sérfræðisöfnin hafa verið þátttakendur í samvinnuverkefnum
á innlendum og erlendum vettvangi. Flest þeirra eru
virkir þátttakendur í Landsaðgangi og Gegni. Erlend sam-
vinnuverkefni hafa til dæmis verið í tengslum við millisafnalán.