Bókasafnið - 01.05.2013, Qupperneq 39

Bókasafnið - 01.05.2013, Qupperneq 39
39 bókasafnið 37. árg. 2013 Þegar kemur að þriðju algengustu umfjölluninni er niður- staðan mismunandi hjá vefmiðlunum þremur. Hjá mbl.is var það umfjöllun 2 um starfsemi og rekstur WikiLeaks, hjá vísir.is var það umfjöllun 4 um baráttu WikiLeaks og hjá DV.is var það umfjöllun 5 um málefni sem tengjast einkalífi Julian Assange. Fjórða algengasta umfjöllunin var eins hjá vísir.is og DV.is með umfjöllun um starfsemi og rekstur WikiLeaks. Aftur á móti var fjórða algengasta umfjöllin hjá hjá mbl.is um baráttu WikiLeaks. Næst verður skýrt frá þriðja yfirflokki, umfjöllun um upp- lýsingaleka WikiLeaks og undirflokkum hans. Í neðangreindri töflu (mynd 2) má sjá hvernig þeirri umfjöllun var háttað hjá vefmiðlunum þremur: Algengasta umfjöllunin var hin sama hjá mbl.is og DV.is með umfjöllun 3c um efni sem kemur fram í skjölum WikiLeaks. Með þeirri umfjöllun er átt við ítarlega umfjöllun um efni þeirra skjala sem WikiLeaks hefur lekið og tengist ekki Íslandi. Aftur á móti var algengasta umfjöllunin hjá vísir.is umfjöllun 3d um efni sem tengist Íslandi og kemur fram í skjölum WikiLeaks. Næst algengasta umfjöllunin hjá DV.is var umfjöllun 3a um upplýsingaleka WikiLeaks eða 32% en hjá vísir.is var það um- fjöllun 3c um efni sem kemur fram í skjölum WikiLeaks. Aftur á móti var það umfjöllun 3d um efni sem tengist Íslandi og kemur fram í skjölum WikiLeaks á mbl.is. Þriðja algengasta umfjöllunin hjá mbl.is var 3a, almenn um- fjöllun um upplýsingaleka WikiLeaks, en hjá vísir.is og DV.is var það umfjöllun 3b sem inniheldur tilkynningar um leka. Með henni er átt við tilkynningar frá WikiLeaks samtökunum þar sem von er á upplýsingalekum í náinni framtíð. Í þeim tilvikum eru oft veittar nákvæmar upplýsingar um hvenær og hvers- konar gögnum verður lekið. Fjórða algengasta umfjöllunin, eða sú óalgengasta, var misjöfn milli vefmiðlanna. Hjá mbl.is var það umfjöllun 3b, sem inniheldur tilkynningar um leka eða 10%. Hjá vísir.is var um að ræða almenna umfjöllun um upplýsingaleka WikiLeaks (3a) og að síðustu, hjá DV.is, umfjöllun 3d um efni sem tengist Íslandi og kemur fram í skjölum WikiLeaks. Það telst ekki óvænt niðurstaða að algengasta umfjöllunin í þessum yfirflokki tengist umfjöllun um það efni sem upplýsingalekar WikiLeaks innihalda, hvort sem það tengist Íslandi sérstaklega eða ekki. Áætla má að WikiLeaks fái mesta umfjöllun á flestum vefmiðlum heims vegna þeirra upp- lýsingaleka sem þeir hafa staðið að og fjölmiðlar, ekki bara íslenskir, hafa verið duglegir að gera þeim gögnum skil sem WikiLeaks hefur lekið. Það telst þó sérstakt að sú umfjöllun sem minnst er af hjá DV.is sé umfjöllun um efni sem tengist Íslandi og kemur fram í skjölum WikiLeaks, en mögulega má rekja ástæðu þess til annmarka rannsóknarinnar eins og minnst hefur verið á hér á undan. Að lokum skal greint frá 5. yfirflokki sem inniheldur umfjöllun um málefni sem tengjast einkalífi Julian Assange og skiptist í tvo undirflokka. Í töflu á næstu síðu (mynd 3) má sjá hvernig umfjöllun 5a og 5b skiptist milli vefmiðlanna þriggja: Hjá öllum vefmiðlunum þremur var umfjöllun 5a algengust, umfjöllun um ákærur á hendur Julian Assange vegna meintra kynferðisbrota. Hjá mbl.is var hún 87% af heildarumfjöllun vefmiðilsins um málefni sem tengjast Julian Assange. Hjá vísir. is var hún 84% af heildarumfjölluninni og 80% hjá DV.is. Þar sem aðeins um tvo undirflokka er að ræða gefur það augaleið að almenn umfjöllun sem tengist Assange persónulega og tengist ekki ákærum sem hann sætir vegna kynferðisbrota (5b) var minnst hjá vefmiðlunum þremur; hjá mbl.is var hún 13% af heildarumfjöllun yfirflokksins, 16% hjá vísir.is og 20% hjá DV.is. Yfirflokkar  -­‐  samanburður Tíðni % Tíðni % Tíðni % 3.  Umfjöllun  um  upplýsingaleka  WikiLeaks  -­‐  samanburður Tíðni % 1.  Almenn  umfjöllun  um  WikiLeaks 3 1% 1 1% 1 1% Mbl.is 2.  Umfjöllun  um  starfsemi  og  rekstur  WikiLeaks 61 17% 17 12% 15 14% 3a.  Almenn  umfjöllun  um  upplýsingaleka  WikiLeaks 23 15% 3.  Umfjöllun  um  upplýsingaleka  WikiLeaks 154 42% 55 38% 38 36% 3b.  Umfjöllun  sem  inniheldur  tilkynningar  um  leka 16 10% 4.  Barátta  WikiLeaks 56 15% 27 19% 28 26% 3c.  Umfjöllun  um  efni  sem  kemur  fram  í  skjölum  WikiLeaks 86 56% 5.  Umfjöllun  um  málefni  sem  tengjast  einkalífi  Julian  Assange 94 26% 43 30% 25 23% 3d.  Umfjöllun  um  efni  sem  tengist  Íslandi  og  kemur  fram  í  skjölum  WikiLeaks 29 19% Samtals 368 100% 143 100% 107 100% Samtals 154 100% Mynd  1 Vísir.is 3a.  Almenn  umfjöllun  um  upplýsingaleka  WikiLeaks 5 9% 3b.  Umfjöllun  sem  inniheldur  tilkynningar  um  leka 8 15% 3c.  Umfjöllun  um  efni  sem  kemur  fram  í  skjölum  WikiLeaks 12 22% 3d.  Umfjöllun  um  efni  sem  tengist  Íslandi  og  kemur  fram  í  skjölum  WikiLeaks 30 55% Samtals 55 100% DV.is 3a.  Almenn  umfjöllun  um  upplýsingaleka  WikiLeaks 12 32% 3b.  Umfjöllun  sem  inniheldur  tilkynningar  um  leka 6 16% 3c.  Umfjöllun  um  efni  sem  kemur  fram  í  skjölum  WikiLeaks 17 45% 3d.  Umfjöllun  um  efni  sem  tengist  Íslandi  og  kemur  fram  í  skjölum  WikiLeaks 3 8% Samtals 38 100% Mynd  2 5.  Umfjöllun  um  málefni  sem  tengjast  einkalífi  Julian  Assange  -­‐  samanburður Tíðni % Mbl.is 5a.  Umfjöllun  um  ákærur  á  hendur  Julian  Assange  vegna  meintra  kynferðisbrota 82 87% 5b.  Almenn  umfjöllun  sem  tengist  Julian  Assange  persónulega 12 13% Samtals 94 100% Vísir.is 5a.  Umfjöllun  um  ákærur  á  hendur  Julian  Assange  vegna  meintra  kynferðisbrota 36 84% 5b.  Almenn  umfjöllun  sem  tengist  Julian  Assange  persónulega 7 16% Samtals 43 100% DV.is 5a.  Umfjöllun  um  ákærur  á  hendur  Julian  Assange  vegna  meintra  kynferðisbrota 20 80% 5b.  Almenn  umfjöllun  sem  tengist  Julian  Assange  persónulega 5 20% Samtals 25 100% Mynd  3 Mbl.is Vísir.is DV.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bókasafnið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.