Bókasafnið - 01.05.2013, Page 50

Bókasafnið - 01.05.2013, Page 50
50   Sæmundur fróði útskrifaðist frá Svartaskóla eftir sjö ára nám eins og frægt er orðið. Hann hafði hug á að fá brauð í Odda en til þess að það gæti orðið þurfti hann að vera snar í snúning- um. Hann brá því á það ráð að gera samning við kölska um flutning heim til Íslands. Kölski brást vel við, breytti sér í sel og flutti Sæmund á baki sér, átti hann að eignast prest að launum ef honum tækist að koma honum heim án þess að kjóllaf hans vöknaði. Sæmundur hafði með sér bók sem hann hafði fengið lánaða á bókasafni Svartaskóla en láðst að skila. Var það Saltarinn. Las prestur ákaft í bókinni á leiðinni. Rétt áður en þeir félagar tóku land var kölski farinn að hrósa sigri en þá sló Sæmundur hann í hausinn með bókinni, svo fast að hann sökk, prestur vöknaði og synti í land en sá vondi varð af kaupunum. Af þessu má sjá að bækur eru til margra hluta nytsamlegar og geta komið að óvæntum notum þegar á reynir. Því fer þó fjarri að hlutverk bókasafna sé eingöngu að lána út bækur heldur fer þar fram fjölbreytt starfsemi og á það ekki síst við um skólabókasöfn. Í samtímanum er ákaflega auðvelt að nálgast upplýsingar um allt milli himins og jarðar og magnið slíkt að mörgum reynist erfitt að fóta sig í þeim frumskógi. Verksvið bókasafns- og upplýsingafræðinga felst því í auknum mæli að kenna nemendum að nýta þær upplýsingar sem þeir hafa aðgang að og hjálpa þeim að greina hismið frá kjarnanum. Náms- framboð í íslenskum framhaldsskólum er fjölbreytt og þarfir nemenda mismunandi. Í slíkum skólum er hlutverk bóka- safnsins afar mikilvægt og eins og nærri má geta kallar þessi mikla fjölbreytni á umtalsverða þekkingu og hæfni starfsfólks. Sem betur fer eru bókasöfn í langflestum framhaldsskólum landsins, söfn sem eru vel mönnuð fagfólki sem hefur metnað fyrir hönd nemenda sinna og vill sjá þá ná árangri í leik og starfi. Vonandi verður svo áfram, nemendum og kennurum til gagns og gamans því ef vel tekst til er skólabókasafnið eins konar miðstöð skólans; staðurinn þar sem hjarta hans slær. Í Tækniskólanum höfum við verið einstaklega heppin hvað þetta snertir. Lipurð, færni og hlýlegt viðmót einkennir and- rúmsloftið á bókasafninu og þar má sannarlega heyra hjarta skólans slá. Dóróthea J. Siglaugsdóttir er kennari við Tækniskólann. Hún er með BA próf í málvísindum og kennsluréttindi frá Háskóla Íslands Á bókasafninu slær hjarta skólans

x

Bókasafnið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.