Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2009, Blaðsíða 2
Eigið fé Radda fólksins voru 1,4 milljónir í febrúar.
Hörður Torfason segir að sá sem hafði umsjón með fjármálum sam-
takanna sé fluttur úr landi. Hann fullyrðir þó að til séu reikningar
fyrir þeirri upphæð sem stóð eftir þá en segir ekki hafa staðið til að
leggja þá fram. Hörður er kominn í hvíld frá mótmælum í bili en
hvetur þá sem ósáttir eru til að láta í sér heyra.
föstudagur 8. maí 20092 Fréttir
hitt málið
Þetta helst
- þessar fréttir bar hæst í vikunni
auðmenn í ólgusjó
Magnús Þor-
steinsson var
úrskurðaður
gjaldþrota
fyrir héraðs-
dómi á mánu-
dag. Hann skuldar
Straumi-Burðarási
rúman milljarð
króna. Fyrrver-
andi viðskiptafélagi
Magnúsar, Björgólf-
ur Guðmundsson,
skuldar Landsbank-
anum persónulega
tæpa 60 milljarða en eignir hans
rýrnuðu um meira en 110 milljarða á síðustu 17 mánuðum. Magn-
ús og Björgólfur eru hins vegar, samkvæmt heimildum, aðeins tveir
af helstu auðmönnunum sem eru með sjálfskuldarábyrgðir sem falla
munu á þá á næstunni. Samkvæmt heimildum DV hyggjast Sigurður
Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings banka, og Ólafur
Ólafsson í Samskipum sækja um ríkisborgararétt í Sviss á næstunni.
Sigurður sagði þó að þetta væri „tóm þvæla“. Ólafur og Ingibjörg kona
hans eru stödd í Sviss um þessar mundir og munu þau vera alflutt
þangað samkvæmt heimildum DV.
fastur í
fangelsi
24 ára Íslendingur, Ragnar Erling Her-
mannsson, var handtekinn að kvöldi
föstudagsins 1. maí í Brasilíu með 5,7
kíló af hreinu kókaíni í fórum sínum.
Faðir hans, Hermann Þór, segir að sér
líði skelfilega og að Ragnar sé góður
drengur að upplagi en hafi átt við sín
vandamál að stríða. Það var á föstu-
dagskvöldið sem Ragnar var handtek-
inn á flugvellinum í borginni Recife,
sem er hafnarborg norðarlega í Brasil-
íu. Samkvæmt brasilískum fjölmiðlum
var hann á leið upp í flugvél á leið til Malaga á Spáni. Efnin fundust
falin í botni á ferðatösku Ragnars en hann hafði fengið þau afhent í
borginni Fort Alez sem er norður af Recife. Við yfirheyrslu hjá lögreglu
sagði hann að sér hefði verið lofað tíu þúsund evrum fyrir að flytja
efnið til Spánar.
haukar
fagna
Íslandsmeistaratitillinn í hand-
bolta féll Haukum í skaut annað
árið í röð eftir að þeir báru sigur-
orð af Völsurum í fjögurra leikja
rimmu. Haukar tóku á móti titl-
inum á Hlíðarenda eftir að hafa
unnið fjórða leikinn í úrslita-
rimmunni 25-33. Aron Kristjáns-
son segir vinnu liðsins í andlegu
hliðinni á miðju móti hafa skil-
að því titlinum. Leikmenn, að-
standendur og stuðningsmenn
Haukaliðsins höfðu því fulla
ástæðu til að fagna í leikslok.
2
3
1
Þriðjudagur 5. maí 20092
Fréttir
Magnús Þorsteinsson er fyrsti íslenski
útrásarvíkingurinn sem úrskurðað-
ur hefur verið persónulega gjaldþrota
eftir að efnahagshrunið skall á í haust.
Héraðsdómur Norðurlands eystra
kvað upp úrskurð þess efnis í gær að
bú hans yrði tekið til gjaldþrotaskipta
vegna vanefnda við fjárfestingarbank-
ann Straum-Burðarás.
Magnús skuldar Straumi rúm-
an milljarð króna vegna sjálfskuldar-
ábyrgðar sem hann skrifaði upp á
árið 2007 þegar hann keypti BOM-
fjárfestingar af fjárfestingafélaginu
Sjöfn. BOM-fjárfestingar fengu lán-
ið frá Straumi-Burðarási árið 2005 og
tók Magnús hana yfir. Straumur gerði
ítrekaðar tilraunir til að fá skuldina
greidda upp eftir að hún hafði gjald-
fallið í byrjun september árið 2008,
samkvæmt úrskurði héraðsdóms.
Í byrjun febrúar var gerð kyrrsetn-
ingargerð hjá Magnúsi til að tryggja
skuldina en gat hann þá ekki bent á
eignir hér á landi sem dugað hefðu
til að standa skil á greiðslu skuldar-
innar. Samkvæmt úrskurðinum svar-
aði Magnús því hins vegar til að hann
ræki umfangsmikla viðskiptastarfsemi
í Rússlandi og væri fyllilega fær um að
standa í skilum við lánardrottna. Jafn-
framt taldi Magnús að ekki væri hægt
að taka bú hans til gjaldþrotaskipta hér
á landi því lögheimili hans væri skráð í
Rússlandi en ekki hér á landi.
Hæpið að þrotabú Magnúsar
standi undir skuldinni
Samkvæmt heimildum DV er afar hæp-
ið að nægilega miklar eignir séu inni í
þrotabúi Magnúsar til að hægt verði að
standa skil á skuldinni við Straum. En
í úrskurði héraðsdóms kemur fram að
ekkert hafi komið fram sem styðji þær
fullyrðingar hans að hann geti stað-
ið skil á skuldbindingum sínum við
bankann. Auk þess er ekki ljóst hvert
þrotabú Magnúsar er, hversu mikl-
ar eignir hann á hér á landi og hversu
miklar eignir hann á í Rússlandi.
Magnús byggði vörn sína í málinu
í öðru lagi á því að hann ætti ekki lög-
heimili á Íslandi vegna þess að hann
hefði flutt lögheimili sitt til Rússlands
og því væri ótækt að taka bú hans til
gjaldþrotaskipta hér á landi. Í úrskurð-
inum segir að lögheimili Magnúsar
hafi verið á Íslandi þegar gjaldþrota-
krafan barst til dómsins og því muni
dómurinn fylgja kröfunni eftir þar en
ekki í Rússlandi.
Fastlega er gert ráð fyrir að Magnús
áfrýji dómi héraðsdóms til Hæstarétt-
ar en það hefur ekki fengist staðfest og
DV hefur hvorki náð tali af Magnúsi né
lögmanni hans, Benedikt Ólafssyni.
Samkvæmt heimildum DV á gamli
Landsbankinn auk þess háar útistand-
andi kröfur á Magnús Þorsteinsson og
hefur skilanefnd bankans átt í viðræð-
um við hann upp á síðkastið um að
greiða þær. Ekki er vitað hvernig þær
viðræður hafa gengið.
Björgólfur opnar sig: Skuldar
Landsbankanum 58 milljarða
persónulega
Í gær opnaði Björgólfur Guðmunds-
son, fyrrverandi viðskiptafélagi Magn-
úsar úr Samson-hópnum, persónulegt
bókhald sitt í fréttatilkynningu sem
hann sendi til fjölmiðla. Í henni kem-
ur meðal annars fram að Björgólfur sé
í sjálfskuldarábyrgð við Landsbank-
ann fyrir lán sem eru alls um 58 millj-
arðar króna. Í tilkynningunni kemur
jafnframt fram að eignir Björgólfs hafi
lækkað úr 143 milljörðum í ársbyrjun
2008 og niður í 15 til 27 milljarða króna
í dag.
Stærsti hluti skulda Björgólfs við
Landsbankann, um 50 milljarðar
króna, eru ábyrgðir fyrir eignarhalds-
félagið Gretti sem tengdar eru Eim-
skipafélaginu og Icelandic en stjórn
Grettis mun óska eftir því við Hér-
aðsdóm Reykjavíkur að félagið verði
tekið til gjaldþrotaskipta á næstunni.
Innlendar og erlendar skuldir Björg-
ólfs við aðrar lánastofnanir munu svo
verða kunngerðar síðar, að því er segir
í tilkynningunni.
Björgólfur líkt og Magnús virðist
því ekki eiga eignir til að standa skil á
sjálfskuldarábyrgðum sem þeir skrif-
uðu upp á. Óvíst er hins vegar eins og
er hvort Björgólfur verður keyrður í
þrot persónulega því ekki liggur ljóst
fyrir hversu mikið af eignum Björgólf-
ur mun geta lagt á móti skuldunum.
Líklegt mun þó þykja að Björgólfur
fari sömu leið og Magnús miðað við
það sem vitað er um eignastöðu hans
í dag.
„Þeir enda allir persónulega í
þroti“
Samkvæmt heimildum DV skrifuðu
margir fleiri auðmenn en þeir Magn-
ús og Björgólfur upp á sjálfskuldar-
ábyrgðir vegna skulda hjá fjármála-
fyrirtækjum sem þeir munu þurfa að
standa skil á fljótlega. Þetta þýðir að
ef þeir geta ekki staðið í skilum vegna
skuldanna geti fjármálafyrirtækin
gengið beint á viðkomandi einstakling
og sett hann í þrot ef svo ber undir.
Fjöldi þeirra auðmanna sem skrif-
FYRSTI GJALDÞROTA
ÚTRÁSARVÍKINGURINN
„Allir þessir helstu útrásarvíkingar eru með sjálf-
skuldarábyrgðir úti um allan bæ. Þeir enda allir
persónulega í þroti.“
IngI F. VILHjáLMSSon
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Magnús Þorsteinsson
Björgólfur guðmundsson
Landsbankaeigendurnir í slæmum málum
magnús Þorsteinsson og Björgólfur guðmundsson, sem keyptu kjölfestuhlut í Landsbankanum ásamt Björgólfi Thor Björgólfssyni, eru tveir af þeim auðmönnum sem eru í afskaplega slæmum málum samkvæmt tíðindum gærdagsins.
naFn FéLagS VerðMætI 1. 1. 2008 30. 6. 2007
Landsbanki íslands 81 ma. kr. 90 ma. kr.
Straumur-Burðarás 28 ma. kr . 41 ma. kr.
Eimskip 16 ma. kr. 19 ma. kr.
icelandic 3 ma. kr. 4 ma. kr.
West Ham united 15 ma. kr. 15 ma. kr.
Samtals 143 milljarðar króna 169 milljarðar króna
EIGNIR BJöRGóLFS NÚ ERU mETNAR Á 15 TIL 27 mILLJARðA KRóNA
EIGNIR BJöRGóLFS ÁRIN 2007-2008
Miðvikudagur 6. Maí 2009 17
Sport
Leikmaður ársins LeBron James, leikmaður Cleveland Cavaliers, var um helgina útnefndur leik-maður ársins í NBa-deildinni. James skaut hinum geysisterka kobe Bryant hjá La Lakers ref fyrir rass en hann var í öðru sæti í kjörinu og dwayne Wade hjá Miami sem lenti í þriðja sæti. Bryant hreppti einmitt titilinn í fyrra. James er fyrsti leikmaðurinn í sögu Cavaliers til þess að hreppa titilinn. Hann skoraði 28,4 stig, tók 7,6 fráköst og gaf 7,2 stoðsendingar að meðaltali í 81 leik í vetur. LeBron hafði mikla yfirburði í valinu. Nafn hans var að finna á öllum atkvæðaseðlunum, 109 af þeim 121 sem tóku þátt í valinu settu hann efstan á sinn lista, ellefu völdu hann sem næstbesta leikmanninn og aðeins einn setti hann neðar á lista, í þriðja sætið. Le-Bron er aðeins 24 ára og 106 daga gamall, hann er yngsti maðurinn til að hreppa titilinn síðan Mos-es Malone var valinn leikmaður ársins 24 ára og sextán daga gamall veturinn 1978 til 1979.
Manchester United sigraði Arsenal ör-
ugglega 3-1 í síðari leik liðanna í und-
anúrslitum Meistaradeildar Evrópu í
gærkvöldi. Leikurinn fór fram á Em-
irates-leikvanginum í Lundúnum en
United vann fyrri leik liðanna 1-0 á
Old Trafford. United vann því einvígið
samanlagt, 4:1, og mætir annaðhvort
Chelsea eða Barcelona sem eigast við
á Stamford Bridge á morgun.
United-menn voru sterkari aðilinn
í leiknum allt frá upphafi og gerðu út
um leikinn strax í upphafi. Fyrsta mark
United kom eftir varnarmistök hjá
Arsenal þar sem hinn ungi bakvörð-
ur Gibbs í liði Arsenal rann á blautu
grasinu. Ji-Sung Park nýtti sér þau og
lagði boltann laglega yfir Almunia í
markinu. Annað mark United kom svo
strax á 11. mínútu leiksins en þar var
á ferðnni enginn annar en Christiano
Ronaldo. Hann skoraði beint úr auka-
spyrnu en þetta þýddi að heimamenn
hefðu þurft að skora fjögur mörk til
þess að tryggja sér sæti í úrslitum.
Þriðja og síðasta mark United kom
svo á 61. mínútu og var þar Ronaldo
aftur á ferð. Hann skoraði eftir laglega
skyndisókn United sem hann hóf sjálf-
ur. Arsenal náði svo að klóra í bakkann
þegar Van Persie skoraði á 74. mínútu
en það var of seint. Darren Fletcher
fékk að líta rauða spaldið í leiknum og
missir af úrslitunum.
asgeir@dv.is
Öruggt á emirates
stjarnan
missir menn
Stjarnan, sem nýlega tryggði sér
sæti í úrvalsdeild á næsta ári, mun
að öllum líkindum missa tvo sterka
leikmenn úr sínum röðum.
Morgunblaðið greindi frá þessu en
Björgvin Hólmgeirsson mun líklega
halda utan í atvinnumennsku. Hann
fer fljótlega til Svíþjóðar að skoða
aðstæður hjá úrvalsdeildarliðinu
Hammerby. Þá hyggst Fannar Örn
Þorbjörnsson leggja skóna á hilluna
og einbeita sér að vinnu og
fjölskyldu á næstunni. Hann vildi þó
ekki útiloka neitt en sagðist hafa
náð flestum þeim markmiðum sem
hann hefði sett sér sem handknatt-
leiksmaður.
Leikur með
ÓLa stef
Handboltasnillingurinn ivano Balic
mun leika með Ólafi Stefánssyni og
guðjóni val Sigurðssyni hjá þýska
úrvalsdeildarliðinu rhein-Neckar
Löwen á næstu leiktíð. guðjón valur
er hjá liðinu fyrir en bæði Balic og
Ólafur eru væntanlegir á næstu
leiktíð. Ólafur frá Ciudad real á Spáni
en Balic frá rk Zagreb. Balic fór
þangað frá spænska liðinu Portland
San antonio í fyrra fyrir metfé.
Fjárhagsstaða Zagreb er hins vegar
erfið eftir að hafa misst sinn helsta
styrktaraðila. Balic vildi ekki taka á
sig launalækkun og yfirgefur því liðið
eftir stutt stopp.
uMSJÓN: tÓMaS ÞÓr ÞÓrðarSoN, tomas@dv.is
F l u g u l í n u d a g a r í Ve s t u r r ö s t
Sérverslun veiðimannsins Laugarveg 178 - sími: 551 6770
Afsláttur af flugulínum frá
hinum þekkta framleiðanda
RIO
á línudögum í Vesturröst
20%
Það kom fátt á óvart í uppstillingu
liðanna í byrjun í Vodafone-höllinni
í gærkvöldi. Haukar byrjuðu í 3-2-1
vörn líkt og í síðasta leik enda skilaði
hún þeim nokkuð sannfærandi sigri
í þriðja leik liðanna. Vörn Haukanna
var sterk í upphafi á meðan Valsmenn
fundu ekki taktinn nægilega vel í 6-0
vörninni.
Eftir tíu mínútna leik var staðan 4-6
Haukum í vil. Sóknarleikur Hauka var
töluvert meira sannfærandi þar sem
Andri Stefan stjórnaði honum eins og
herforingi. Snemma leiks kom Mark-
ús Máni Michaelsson inn hjá Vals-
mönnum til þess að blása lífi í sókn-
arleikinn en án árangurs. Í staðinn tók
Markús tvö ótímabær skot sem skilaði
sér í mörkum hjá Haukum og staðan
skyndilega orðin 4-8.
Verkefni Valsmanna var ekki öf-
undsvert þar sem sterk vörn Hauka
neyddi Valsmenn í erfið skot hvað eftir
annað sem Birkir Ívar varði eða að þau
fóru fram hjá.
Endurkoma Valsmanna
Um miðjan hálfleikinn breyttu Vals-
menn vörn sinni í 5-1 þar sem þeir
spiluðu framarlega á Sigurberg
Sveinsson. Við það kom hik á sókn-
arleik Hauka og Valsmönnum tókst
að minnka muninn í eitt mark, 9-10.
Haukar héldu áfram að sækja en þrjár
brottvísanir gerði Valsmönnum auð-
veldara að saxa á forskot þeirra. Þegar
þrjár mínútur voru eftir í fyrri hálfleik
var staðan 12-14 Haukum í vil. Leik-
urinn var gríðarlega hraður síðustu
mínúturnar þar sem Heimir Árnason
og Sigurbergur fóru mikinn hvor sín-
um megin á vellinum. Hálfleikstölur
15-16.
Hungrið meira hjá Haukum
Bæði lið byrjuðu af miklum krafti í síð-
ari hálfleik en Valsmenn fóru illa með
færi sín. Birkir Ívar varði þrívegis en Ól-
afur Gíslason var einnig í stuði hinum
megin og varði jafnóðum frá Haukum.
Haukar voru þó ívið sterkari og staðan
16-18 eftir fimm mínútna leik. Enda
fékk Valur tvívegis brottvísun í upp-
hafi hálfleiksins og missti boltann þri-
svar. Mistökin voru þó beggja vegna
en Haukar alltaf skrefi á undan.
Áfram voru það markverðr liðanna
sem voru í aðalhlutverkum. Ólafur
stóð sig frábærlega hjá Valsmönnum
og gaf þeim tækifæri til þess að jafna
leikinn í stöðunni 19-20 Haukum í
vil. Þá varði Birkir hins vegar tvíveg-
is þegar Haukar voru einum færri og
þeir gengu á lagið og skoruðu í næstu
sókn.
Áfram þurfti Valur að hafa mun
meira fyrir mörkum sínum en Haukar
og neyddist til þess að taka erfið skot
í kjölfarið. Á meðan var flotið í sókn-
arleik Hauka mun betra og þegar tíu
mínútur lifðu leiks var staðan 21-
25 fyrir Hauka. Eftir það litu Haukar
aldrei um öxl og völtuðu yfir andstæð-
inga sína á lokasprettinum. Lokatölur
urðu 25-33 og Haukar Íslandsmeistar-
ar annað árið í röð.
Verðskuldað meistarar
„Við erum verðskuldað Íslandsmeist-
arar,“ sagði Aron Kristjánsson, þjálfari
Hauka, í leikslok í viðtali á RÚV. „Ég vil
þakka Völsurum fyrir frábæra rimmu
þar sem bæði lið vildu vinna en við
vorum sterkari á lokasprettinum,“ hélt
þjálfari Íslandsmeistaranna áfram en
hann hefur skilað titli í hús þau tvö ár
sem hann hefur verið með liðið.
Haukar byrjuðu tímabilið illa í
deildinni en spiluðu aftur frábærlega
í Meistaradeildinni. Eftir áramót var
það svo allt annað Haukalið sem tók
þátt í Íslandsmótinu og niðurstað-
an er deildar- og Íslandsmeistaratit-
ill. „Vinnan sem við lögðum í andlega
þáttinn um áramót hefur heldur betur
skilað sér. Þessir strákar eru sannkall-
aðir sigurvegarar.“
Aron Kristjánsson
ásgEir jónsson
blaðamaður skrifar: asgeir@dv.is
Íslandsmeistarar annað árið
í röð Haukar voru sterkari í
úrslitarimmunni og sigruðu 3-1.
MYnD rAKEL ósK sigUrÐArDóTTir
ronaldo
virðist vera óstöðvandi.
Valsmenn geta borið höfuðið hátt.
„Sannkallaðir
Sigurvegarar“
F l u g u l í n u d a g a r í Ve s t u r r ö s t
Sérverslun veiðimannsins Laugarveg 178 - sími: 551 6770
Afsláttur af flugulínum frá
hinum þekkta framleiðanda
RIO
á línudögum í Vesturröst
20%
„Ég viðurkenni að ég hef ekki einu
sinni kíkt á þetta. Það var maður sem
sá um þetta. Ég kom ekkert nálægt
fjármálunum sjálfur,“ segir Hörð-
ur Torfason um þær 1,4 milljónir
sem standa eftir sem eigið fé Radda
fólksins samkvæmt fjárhagsyfirliti
á vef samtakanna. Yfirlitið nær til
9. febrúar 2009 en mótmælafund-
ir Radda fólksins voru slegnir af 14.
mars.
Hörður segir að maðurinn sem
starfaði lengst af sem gjaldkeri sam-
takanna heiti Eiríkur að fyrra nafni.
„Ég man ekki hvers son hann er,“
segir Hörður. Hann bætir við: „Hann
flutti úr landi um páskana .“
Fljótt að hverfa
Rekstrarreikningur Radda fólksins
nær yfir tímabilið 24. október 2008
til 9. febrúar 2009. Þar kemur fram
að söfnunarfé hafi verið 3,7 milljón-
ir og rekstrargjöld tæpar 2,3 milljón-
ir. Hagnaður á tímabilinu er því 1,4
milljón og eigið fé samtakanna 1,4
milljónir í febrúar.
Spurður hvað hafi verið gert við
þessa peninga segir Hörður: „Það
eru reikningar fyrir þessu öllu sam-
an.“ Hann bendir á að fjórir mót-
mælafundir hafi verið haldnir eftir
að rekstrarreikingurinn var gerður
og kostnaður við hvern fund nemi
minnst tvöhundruð þúsund krón-
um. „Þetta er fljótt að telja niður,“
segir Hörður. Hann tekur fram að lít-
il mæting hafi verið á síðustu fund-
ina og því lítið sem ekkert safnast á
þeim.
Endurskoðandinn dýr
Hörður barðist mikið fyrir því á mót-
mælafundunum á Austurvelli að allt
væri uppi á borðum. Þegar blaða-
maður spyr hann hvort standi til
að leggja fram reikninga fyrir þeim
1,4 milljónum sem eftir stóðu seg-
ir hann: „Reyndar ekki. Þú ert fyrsta
manneskjan sem imprar á þessu. Ég
sé ekki ástæðu til að spandera pen-
ingum í þetta,“ segir Hörður og vís-
ar í þann kostnað sem fylgir því að fá
löggiltan endurskoðanda til að yfir-
fara bókhaldið. Hann ítrekar einn-
ig að fundunum hafi verið hætt svo
skömmu eftir að síðustu reikningar
voru yfirfarnir. Þórhallur Björnsson,
viðskiptafræðingur og löggiltur end-
urskoðandi, vottar þá.
Hörður tekur einnig fram að ef
af því yrði væri hann sömuleiðis í
vandræðum með að koma upplýs-
ingunum inn á vefsíðu samtakanna.
Þeim sem hafa hug á að skoða
rekstrarreikninginn er bent á að nota
Firefox-vafra þar sem hann sést ekki
ef Explorer-vafri er notaður. Hörður
segir þetta einn fylgifisk þess hversu
illa honum hefur gengið að koma
efni inn á síðuna. Hann segist þó
taka því fagnandi ef einhver býður
sig fram til að aðstoða hann við slíkt.
Hvattur áfram
Raddir fólksins börðust fyrir því að
stjórn Fjármálaeftirlitsins yrði sett
af, sem og stjórn Seðlabankans og
að boðað yrði til alþingiskosninga.
„Ég náði öllum þessum markmið-
um,“ segir Hörður. Hann hefur und-
anfarið fengið fjölda áskorana um að
taka aftur upp þráðinn þar sem frá
var horfið. „Það rignir yfir mig sím-
tölunum og skipunum um að ég eigi
að fara að mótmæla,“ segir Hörð-
ur. Raddir fólksins eru hins vegar í
dvala og sér Hörður ekki ástæðu til
að mótmæla sjálfur að sinni. „Ég fer
ekki að standa niðri á Austurvelli og
mótmæla einhverju út í bláinn.“
Margir hafa sagt aðgerðir ríkis-
stjórnarinnar ekki gagnast heimil-
unum nægilega en Hörður sér ekki
ástæðu til að mótmæla þeim. „Hér
búa 320 þúsund manns. Það hljóta
að vera einhverjir aðrir sem geta far-
ið og mótmælt. Ég hvet fólk sem hef-
ur samband við mig að fara sjálft og
mótmæla.“
Hörður segist enn vera að jafna
sig eftir mótmælahrinuna á Austur-
velli. „Ég stóð fyrir þessu í 22 vikur.
Þetta reyndi gífurlega á mig og ég
bara verð að fá að hvíla mig.“
MÓTMÆLIR EKKI
ÚT Í BLÁINN „Þú ert fyrsta manneskjan sem imprar á þessu“
Erla HlynsdóTTir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
Í hvíld frá mótmælum Hörður torfason
segir mótmælahrinuna í vetur hafa reynt
mikið á sig. Hann er því kominn í hvíld frá
mótmælum, í bili.
Myndir rakEl óskUl consilisqUE
Mótmælin Hörður
stóð fyrir öflugum
mótmælum á austurvelli
og í framhaldinu blossaði
Búsáhaldabyltingin upp.
AGNES STAL
SENUNNI
dv.is
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
mIðvIkUdAGUr oG fImmTUdAGUr 6. – 7. mAí 2009 dagblaðið vísir 71. tbl. – 99. árg. – verð
kr. 347
fréTTIr
FAÐIR RAGNARS HERMANNSSONAR:
„þetta er
helvíti
á jörðu“
SmYGLAðI SEX kíLÓUm Af kÓkAíNI
hANS BíðUrvíTISvIST í BrASILíSkU fANGELSI
fAðIr rAGNArS: „vIð BíðUm mILLI voNAr oG ÓTTA“
rAGNAr fYrIr TvEImUr ÁrUm:
„NENNI EkkI Að TAkA LífINU ALvArLEGA“
SLÓ í GEGN Á STÖð 2 í LEITINNI Að STrÁkUNUm
205% mUNUr
Á PITSUm
EkkI PANTA BLINdANdI
frJÁLS
EfTIr 16 Ár
dÆmdUr SAkLAUS 13 ÁrA
AfNEITAr
EIGNArhLUT
EIGINkoNU
SINNAr
forSTJÓrI EImSkIPS hAfNAr GÖGNUm
dv oG BÝðUr BLAðAmANNI vINNU
fréTTIr
fréTTIr
NíTJÁN ÁrA
NAUðGAð
í mIðBÆNUm
fréTTIr
LéT LÖGmENN Á hÁTíð hEYrA þAð
ICELANdAIr SPArAr mEð
ErLENdUm fLUGmÖNNUm
íSLENSkIr
fLUGmENN
rEkNIr
NEYTENdUr
ErLENT
Þriðjudagur 5. maí 2009 3
Fréttir
Davíð Oddsson
Ól-afur Arnarson
Sólon R. Sigurðsson, fyrrverandi
bankastjóri Búnaðarbankans, vís-
ar því á bug að Davíð Oddsson,
fyrrverandi forsætisráðherra,
hafi kúgað sig til þess að veita ekki
Baugi lán til kaupa á bresku versl-
anakeðjunni Arcadia veturinn
2001 til 2002.
Ólafur Arnarson fjallar um mál-
ið í nýrri bók sinni um bankahrun-
ið, Sofandi að feigðarósi. Orðrétt
segir Ólafur um viðskipti Sólons
og Davíðs:
„Hann (Davíð) hefði haft af því
fregnir að Búnaðarbankinn hygð-
ist koma að fjármögnun á kaupum
Baugsfeðga á útlendum tuskubúð-
um. Þetta litist sér ekki á og myndi
ekki láta líðast á sinni vakt. Ráð-
legt væri fyrir Búnaðarbankann að
kippa að sér höndum í þessu máli;
gætu viðbrögð bankans raun-
ar haft áhrif á starfslengd banka-
stjórnanna. Davíð minnti á að það
hefði tekið skamma stund að losna
við Sverri Hermannsson og félaga
úr Landsbankanum á sínum tíma.
Sólon sagði síðar í góðra vina hópi
að hann hefði svo sem ekki þurft
að fletta upp orðum forsætisráð-
herra til að ráða í merkingu þeirra.
Sagðist hann aldrei, hvorki fyrr né
síðar á langri starfsævi í banka-
kerfinu, hafa fengið viðlíka símtal
og þetta.“
Sólon gerir athugasemdir við
þetta í orðsendingu til DV, sem fjall-
aði um málið í síðustu viku: „Vegna
þessa vil ég aðeins segja að Davíð
reyndi aldrei að hafa áhrif á mig
vegna útlána bankans. Hinsvegar
get ég sagt að ég var á móti því að
bankinn lánaði til verkefnisins og
var það ekki í fyrsta skipti sem ég
var andvígur að lána til verkefna
erlendis á vegum þessara
aðila. Ef öll bók Ólafs er
jafn sönn og þetta atriði
þá er ekki mikil sagn-
fræði í bókinni!“
„Ég stend fast við
frásögn mína um
afskipti Davíðs
af Sólon. Ég hef
þetta úr nokkr-
um áttum og
eftir að at-
hugasemd
Sólons birtist á vefnum ykkar hafa
menn haft samband við mig og
staðfest að frásögn mín er rétt,“
segir Ólafur í orðsendingu til DV.
Lánsloforð en ekki lán
Nánari athugun DV bendir til þess
að Ólafur Arnarson fari efnislega
með rétt mál í bók sinni. Sam-
kvæmt heimildarmönnum, sem
til þekkja, birtist Davíð í eigin per-
sónu á skrifstofu Sólons í bankan-
um og hafði í hótunum við hann.
Baugur hafði veturinn 2001 og
2002 fjármagnað kaup á Arcadia
að mestu leyti, einkum hjá Royal
Bank of Scotland. Heimildarmenn
DV segja að Arcadia hafi verið of-
skattað og átt góðar vonir um að
fá stórar upphæðir endurgreidd-
ar frá skattayfirvöldum ytra. Hins
vegar hafi Royal Bank of Scotland
líklega þótt erfitt að taka áhættu
gegn breskum skattayfirvöldum.
Af þeim sökum hafi Baugur leitað
til íslensku bankanna um lánslof-
orð ef málið félli Arcadia í óhag.
Eftir því sem næst verður komist
var um að ræða 50 milljóna punda
lánsloforð samtals eða sem svar-
ar 9,5 milljörðum íslenskra króna
á gengi dagsins í dag. Fyrir átta
árum þóttu þetta miklir peningar
á íslenskan mælikvarða og var því
reynt að fá loforð um lán hjá þrem-
ur bönkum, Íslandsbanka, Lands-
banka og Búnaðarbanka. Þar af
var ætlunin að leita eftir 15 millj-
óna punda lánsloforði hjá Búnað-
arbankanum, afganginn átti að fá í
hinum bönkunum tveimur.
Báðir rætt þetta áður
Á þessum tíma var Halldór J. Kristj-
ánsson bankastjóri Landsbankans
og Kjartan Gunnarsson formaður
bankaráðsins. Formaður banka-
ráðs Íslandsbanka var á þessum
tíma Kristján Ragnarsson, for-
maður LÍÚ um langt skeið, og
Valur Valsson
banka-
stjóri. Valur og Kristján eru flokks-
bræður Davíðs og Kjartan auk
þess framkvæmdastjóri Sjálfstæð-
isflokksins á þessum tíma. Aug-
ljóslega var því vandalítið fyrir
Davíð að fá vilja sínum framgengt í
Landsbankanum og Íslandsbanka.
Hann kaus að beita óvenjulegri að-
ferð við Búnðarbankann, sem enn
var í eigu ríkisins, og birtist inni
á skrifstofu Sólons. „Við mig hafa
líka talað menn sem fullyrða að
Davíð hafi greint þeim frá þessum
samskiptum við Sólon og að frá-
sögninni beri saman við frásögn
mína. Þannig að ég stend fastur á
þessu þó að Sólon kjósi núna ein-
hverra hluta vegna að reyna að
hlaupa frá þessu, sem hann hefur
sjálfur sagt við mann og annan,“
segir Ólafur.
Sem kunnugt er fóru kaup
Baugs á Arcadia út um þúfur þegar
efnahagsbrotadeild ríkislögreglu-
stjóra lét gera húsleit hjá Baugi í
lok ágúst 2002, nánast sama dag
og Baugsmenn voru að ganga frá
kaupum á Arcadia í samstarfi við
skoska viðskiptajöfurinn Philip
Green í London.
Skrúfaði Sjálfur
fyrir lán til BaugS
JÓhAnn hAukssOn
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
„Ég hef þetta úr
nokkrum áttum og
eftir að athugasemd
Sólons birtist á vefn-
um ykkar hafa menn
haft samband við mig
og staðfest að frásögn
mín er rétt.“
Forsætis-
ráðherrann
fyrrverandi
davíð Oddsson
mætti á skrifstofu
Sólons og lét hann
vita að auðvelt væri að
segja upp bankastjór-
um ríkisbank-
anna. höfundurinn Ólafur
arnarson segir að Sólon
Sigurðsson bankastjóri
sé á hlaupum frá máli
sem hann hafi sjálfur
rætt við aðra.
DÞrOta
kingurinn
aði upp á slíkar sjálfskuldarábyrgðir
er nokkuð meiri en talið hefur verið
út frá umfjöllun fjölmiðla því það var
ekki svo að þeir baktryggðu sig alltaf
með því að láta ábyrgð á útistandandi
skuldum falla á eignarhaldsfélög en
ekki sig persónulega. Þessi tilhneiging
þeirra til að skrifa undir sjálfskuldar-
ábyrgðir mun hafa aukist til muna þeg-
ar bankahrunið var handan við hornið
og aðgangur að lánsfé varð enn erfið-
ari en áður og ljóst var hvert stefndi. Þá
örvæntu menn og skrifuðu upp á slík-
ar ábyrgðir persónulega.
Samkvæmt heimildum DV skrifuðu
sex eða sjö þekktustu íslensku auð-
mennirnir allir upp á slíkar ábyrgðir
upp á hundruð milljóna ef ekki millj-
arða sem falla muni á þá á næstunni.
„Þessir helstu útrásarvíkingar okk-
ar hafa allir verið með sjálfskuldar-
ábyrgðir úti um allan bæ. Þeir enda
allir persónulega í þroti. Það verður
gengið svona á alla þessa gæja,“ segir
heimildarmaður DV sem vill ekki láta
nafns síns getið. Heimildarmaðurinn
segir að það
hversu harka-
lega verði
gengið að auð-
mönnunum
velti eingöngu
á fjármálafyr-
irtækjunum og
hversu hart þau
sækja kröfurn-
ar.
SamSOn-hópurinn mjög laSkaður
Björgólfur guðmundsson og magnús Þorsteinsson voru tveir af stofnendum eignarhaldsfélagsins Samson sem stofnað var árið 2002 til þess að kaupa rúmlega 48 prósenta kjölfestuhlut í Landsbanka íslands í lok ársins. Þriðji maðurinn í hópnum var Björgólfur Thor Björgólfsson.
Þremenningarnir komu sem stormsveipur inn í íslenskt viðskiptalíf árið 2002 og notuðu meðal annars þær 400 milljónir dollara sem þeir höfðu fengið þegar þeir seldu Heineken Bravo-bjórverksmiðjuna í rússlandi fyrr á því ári.
Kjölfestuhluturinn í Landsbankanum var í þeirra eigu þar til Landsbankinn var yfirtekinn af íslenska ríkinu í október síðastliðnum.
Nú blæs ekki byrlega fyrir magnúsi, sem er fyrsti íslenski auðmaðurinn sem úrskurðaður er gjaldþrota í kjölfar efnahagshrunsins auk þess sem líklegt verður að teljast að Björgólfur fari sömu leið að öllu óbreyttu.
Meðan allt lék í lyndi Björgólfur guðmundsson
og magnús Þorsteinsson sjást hér á meðan allt
lék í lyndi í landinu og útrásarvíkingarnir þrjátíu
voru lofsungnir sem óskabörn þjóðarinnar. Fréttir
gærdagsins benda hins vegar til þess að bæði
magnús og Björgólfur muni eiga í erfiðleikum með
að standa í skilum með milljarðaskuldir sem þeir
eru persónulega ábyrgir fyrir.
Björgólfur Thor Björgólfsson Var stærsti
einstaki hluthafinn í fjárfestingabankanum
Straumi-Burðarási þegar hann var yfirtekinn
af ríkinu í byrjun mars. Bankinn sem áður
var í eigu hans hefur nú keyrt fyrrverandi
viðskiptafélaga Björgólfs, magnús Þorsteins-
son, í þrot vegna vanefnda.