Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2009, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2009, Blaðsíða 44
föstudagur 8. maí 200944 Sport Stemningin er alltaf góð hjá okkur. Liðið hefur verið að spila vel á undirbúningstíma-bilinu og þetta er allt á réttri leið,“ segir Heimir Guðjónsson, þjálfari Íslandsmeistara FH, um þá tilfinningu sem hann hefur fyr- ir liði sínu, nú þegar aðeins fáein- ir dagar eru þar til flautað verður til leiks á nýju 12 liða Íslandsmóti í knattspyrnu. Fullir sjálfstrausts Lengjubikarinn er orðinn fastur liður í undirbúningi liðanna fyr- ir Íslandsmótið. FH-ingar gerðu sér lítið fyrir og unnu mótið og bættu síðan við titlinum meist- arar meistaranna eftir sigur á KR. Heimir bendir þó á að þeir titlar hjálpi mönnum ekki mik- ið þegar út í Íslandsmót er kom- ið. „Það eina sem þetta gerir er að veita liðinu sjálfstraust í upphafi móts,“ segir hann. Heimir segir að staðan á liðinu sé fín. Reynd- ar sé meira um meiðsl núna en á sama tíma í fyrra. „Það eru auð- vitað fjórir menn meiddir og bara vika í mót. Þar af eru þrír varn- armenn,“ segir Heimir, en þeir Freyr Brynjarsson og Tommy Nil- sen munu að líkindum missa af fyrstu tveimur til þremur leikj- unum. Þá mun Dennis Siim ekki verða með í fyrstu sex umferðun- um, í það minnsta. „Á móti kem- ur að aðrir leikmenn fá tækifæri til að sýna sig og það er auðvitað jákvætt. Ef þeir standa sig vel þá er ekkert sjálfgefið að hinir labbi inn í liðið,“ segir Heimir og segir að samkeppni um stöður sé lið- inu til góða. Þannig haldi menn sér á tánum. Veit lítið um Sverri Nokkuð hefur verið rætt um að FH- ingurinn Sverrir Garðarson gangi til liðs við sitt gamla félag á lánssamn- ingi í sumar. Sverrir er á mála hjá sænska 1. deildarliðinu Sundsvall. Spurður hvort hann bindi vonir við að endurheimta varnarmanninn sterka segir Heimir að hann fylg- ist ekki náið með framgangi máls- ins. „Það er ekkert að gerast og ég veit ósköp lítið um þetta. Þú verð- ur bara að spyrja stjórnina,“ segir hann léttur í bragði. Blóðtaka í framlínu FH-ingar hafa orðið fyrir nokkurri blóðtöku frá því í fyrra, sérstak- lega framarlega á vellinum. Bræð- urnir Arnar og Bjarki Gunnlaugs- synir sem léku með FH framan af síðasta tímabili hafa tekið við 1. deildarliði ÍA auk þess sem sókn- armaðurinn Jónas Grani Garðar- son og varnarmaðurinn Höskuld- ur Eiríksson hafa gengið til liðs við önnur lið. Heimir segist binda miklar vondir við Norðmanninn Alexander Söderlund, sem hafi leikið mjög vel með liðinu á móti Val og Fylki í Lengjubikarnum, þar til hann meiddist. Hann bindur einnig miklar vonir við yngri leik- mennina í liðinu. „Þeir sýndu það í úrslitaleiknum á móti Breiðablik að þeir eru árinu eldri en í fyrra og eru tilbúnir að spila fyrir þetta lið í deildinni.“ Kunnugleg nöfn Heimir fullyrðir að FH verði í topp- baráttunni í sumar, eins og síðustu sumur. Á því verði engin breyting, enda sé krafa í Hafnarfirði um að lið- ið sé í þeirri baráttu. Spurður hvaða lið muni blanda sér í toppbaráttuna segir Heimir að alltaf megi gera ráð fyrir því að einhver lið komi á óvart. Hann á hins vegar von á kunnugleg- um nöfnum í efri hlutanum. „Vals- ararnir hafa verið að styrkja sig og KR-ingarnir verða með fínt lið, eins og Keflavík. Framarar, sem enduðu í þriðja sæti í fyrra, hafa ekki mikið misst frá því í fyrra, svo þeir verða sterkir. Svo eru það lið eins og Breiða- blik, Fylkir og Fjölnir, sem gætu kom- ið á óvart. Maður veit aldrei, en ég er viss um að deildin verður jöfn og skemmtileg,“ segir hann. Erfitt í fyrstu umferð FH-ingar eiga ekki öfundsvert verk- efni í fyrsta leik. Þá sækja þeir Kefl- víkinga heim, en liðin tvö börðust sín á milli um titilinn í fyrra. „Þeir hafa sýnt að þeir eru með sterkt lið og yfirleitt byrja þeir Íslands- mótin af krafti. Í fyrra fóru ríkjandi Íslandsmeistarar til Keflavíkur í fyrstu umferð og töpuðu stórt. Þetta verður því erfiður leikur fyrir okk- ur,“ segir Heimir en það voru Vals- menn sem lutu í gras fyrir Keflvík- ingum í fyrstu umferðinni í fyrra. Efnahagur íþróttafélaga á Ís- landi hefur verið til umræðu eft- ir bankahrunið. Bankarnir voru margir á meðal dyggustu bakhjarla liðanna í efstu deildunum. Heimir hefur ekki trú á því að bágur efna- hagur veiki deildina. „Ég held að liðin leyfi ungum leikmönnum að spreyta sig í ríkari mæli og það er bara jákvætt. Ég hef ekki orðið var við að margir góðir leikmenn hafi horfið á braut úr þessum liðum. Ég held reyndar að fólk fari frekar á völlinn til að sjá unga leikmenn, uppalda í liðinu sem það er búið að styðja stóran hluta ævinnar. Fólk vill frekar sjá þá heldur en ein- hverja aðkeypta leikmenn,“ segir Heimir að lokum. baldur@dv.is „SjálfStrauSt í upphafi mótS“ Heimir Guðjónsson, þjálfari Íslands- meistara FH í knattspyrnu, segir að FH verði í toppbaráttu Íslandsmótsins í sumar, eins og fyrri ár. Á því verði engin breyting. Fjórir leikmenn eru meiddir, núna þegar mótið er að hefjast, en Heim- ir segir að það gefi öðrum mönnum tæki- færi til að sanna sig. Hann spáir jafnri og spennandi 12 liða deild í sumar. „Þeir sýndu það í úrslita- leiknum á móti Breiðabliki að þeir eru árinu eldri en í fyrra og eru tilbúnir að spila fyrir þetta lið í deildinni.“ Ungir leikmenn fá tækifæri Heimir guðjónsson, þjálfari fH, segir þrengri efnahag ekki veikja deildina. ungir leikmenn fái nú frekar tækifæri. Krafa um toppbaráttuna Heimir segir að Hafnfirðingar geri kröfu um að fH verði í toppslagnum. Hann spáir því að Valur, Kr og Keflavík verði ofarlega.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.