Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2009, Blaðsíða 24
Ekki búin að leggja óperudrauminn
á hilluna Valgerði langar að þjálfa
sig betur í óperusöngnum. Hún segir
það kannski koma með aldrinum, þó
hefur hún mikið dálæti á því að syngja í
söngleikjum og þess háttar.
föstudagur 8. maí 200924 Fókus
um helgina
Tolli á Skaganum
Tolli opnar málverkasýningu í Listasetrinu Kirkju-
hvoli á Akranesi á morgun, laugardag, klukkan
15. Sýningin er opin alla daga vikunnar nema
mánudaga klukkan 15 til 18 og stendur til 24. maí.
Þess má geta að sýning Tolla og fleiri nútímalista-
manna í Reykjavík Art Gallery stendur enn yfir.
uppboð í
gallerí Fold
Listmunauppboð fer fram í Gallerí
Fold við Rauðarárstíg á mánudag-
inn. Að venju verða boðin upp fjöl-
mörg verk eftir gömlu meistarana,
þar á meðal verk eftir Guðmundu
Andrésdóttur, Svavar Guðnason, Ás-
grím Jónsson og Hring Jóhannesson.
Að þessu sinni eru einnig mörg verk
eftir yngri listamenn, má þar nefna
Karólínu Lárusdóttur, Harald Bilson,
Húbert Nóa og Daða Guðbjörns-
son. Forsýning verka er í Gallerí Fold
föstudag til mánudags og á heima-
síðu gallerísins, myndlist.is, á sama
tíma. Uppboðið á mánudaginn hefst
SulTur í
HaFnarFirði
Kvikmyndasafn Íslands sýnir
dönsku myndina Sult í Bæjarbíói
á morgun, laugardag. Myndin
sem er frá árinu 1966 er byggð á
samnefndri bók Knuts Hams-
un en í ár eru 150 ár frá fæð-
ingu skáldsins. Sultur gerist árið
1890 og fjallar um rithöfundinn
Pontus sem ráfar vannærður og
matarlaus um stræti Kristíaníu
(Osló) og þráir að finna ástina og
útgefanda fyrir ritverk sín. Mynd-
in hlaut dönsku Bodil-verðlaun-
in sem besta danska bíómyndin
árið 1967 og Per Oscarsson var
valinn besti leikarinn í Cann-
es og fékk Bodil-verðlaunin og
Gullbjölluna í Svíþjóð sem besti
leikarinn. Myndin er sýnd með
enskum texta og hefst sýningin
klukkan 16.
Heimildamynda-
röð í nýló
Myndin How I learned to overcome
my fear and love Arik Sharon eftir
ísraelska leikstjórann Avi Mograbi
verður sýnd í Nýlistasafninu í kvöld,
föstudag, klukkan 20. Sýningin er
hluti af heimildamyndaröð sem
myndlistarmaðurinn Yrsa Roca
Fannberg stendur fyrir í safninu.
Myndin er persónuleg sýn leikstjór-
ans Mograbi á hinn dáða en jafn-
framt umdeilda fyrrum forsætisráð-
herra Ísraels, Ariel „Arik“ Sharon.
Myndin, sem er í kaldhæðnum tón,
segir söguna af gerð heimildamynd-
ar um Sharon en fjallar í raun um
hið erfiða pólitíska ástand í Ísrael.
Pólitískar heimildamyndir verða
sýndar í Nýlistasafninu það sem eftir
lifir maímánaðar. Frítt inn.
Leikfélagið Hugleikur fagnar 25 ára
starfsafmæli sínu með því að frum-
sýna verkið Ó, þú aftur á Smíðaverk-
stæði Þjóðleikhússins næsta föstu-
dag, 15. maí. Höfundar verksins eru
Ingibjörg Hjartardóttir, Sigrún Ósk-
arsdóttir og Unnur Guttormsdótt-
ir en leikstjóri er Oddur Bjarni Þor-
kelsson.
Hugleikur hefur getið sér orð fyr-
ir glannalega meðferð á íslenskum
menningararfi, en að þessu sinni er
það hans eigin fortíð sem fær hina
hugleiksku meðferð því frumgerð
leikritsins var frumsýnd fyrir rúm-
um tuttugu árum. Og verkið bygg-
ir á persónum og stefjum úr hinni
klassísku ástarsögu Piltur og stúlka
eftir Jón Thoroddsen.
Ungu elskendurnir Sigríður og
Indriði verða ástfangin í sveitinni
og einsetja sér að hittast í borginni
að lokinni sláturtíð. Það gengur
hins vegar ekki áreynslulaust fyr-
ir sig því þegar til borgarinnar er
komið er svo ótal margt sem glepur,
svo sem fjöldamótmæli, vængstífð-
ir hrafnar, framandi skemmtistaðir,
kynleg grös og alls kyns ólifnaður.
Auk þess hefur önnur sveitastúlka,
Gróa, augastað á Indriða og ger-
ir allt til þess að koma í veg fyrir að
ástfangna parið nái saman. Í ör-
væntingu sinni heldur Sigríður til
Danmerkur til að hjúkra gömlum
íslenskum presti meðan Indriði fer
á sjóinn þess fullviss að hann finni
aldrei stúlkuna sína aftur.
Að hugleikskum sið leikur tón-
list stórt hlutverk í sýningunni. Höf-
undar hennar eru Ljótu hálfvitarnir
Þorgeir Tryggvason, Eggert Hilm-
arsson, Sævar Sigurgeirsson og
Oddur Bjarni Þorkelsson.
Miðaverð er 1.500 krónur en þrjú
hundruð kalli minna fyrir náms-
menn, eldri borgara, öryrkja og at-
vinnulausa. Miðasala er hafin hjá
Þjóðleikhúsinu. Sýningafjöldi er
afar takmarkaður.
Leikritið Ó, þú aftur er frumsýnt í Þjóðleikhúsinu næsta föstudag:
glannaleg Piltur og stúlka
Sér sjálfa sig í
Maríu Von Trapp
Óhætt er að segja að Söngvaseiður sé
einn vinsælasti söngleikur allra tíma
og er verkið nú sett upp í þriðja sinn
hér á landi. Valgerður Guðnadóttir
óperusöngkona fer með hlutverk
Maríu Von Trapp í söngleiknum
og fetar hún óhrædd í fótspor Julie
Andrews sem gerði hlutverkið
ódauðlegt á sínum tíma.
Ljótu hálfvitarnir semja og flytja tónlistina í Ó, þú aftur.