Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2009, Blaðsíða 20
Þó langt sé um liðið síðan Madel-
eine McCann hvarf þegar hún var í
fríi með með foreldrum sínum í Pra-
ia da Luz í Portúgal, nánar tiltekið
3. maí 2007, fer því fjarri að foreldr-
ar hennar hafi gefið upp von um að
hún finnist.
Nú hefur verið gerð teikning af
þeim sem nú er grunaður um að
hafa numið Madeleine á brott, en þó
nokkrir hafa verið grunaðir um það
hingað til og um tíma voru foreldrar
Madeleine nefndir til sögunnar hvað
varðaði aðild að hvarfi hennar.
Teikningin sýnir heldur ófrýni-
legan karlmann sem sagt er að hafi
fylgst með íbúðinni sem McCann-
fjölskyldan dvaldi í, daginn áður en
Madeleine hvarf.
Þeir sem rannsakað hafa hvarf
Madeleine hafa fengið hundruð sím-
hringinga síðan foreldrar hennar
komu fram í þætti Opruh Winfrey í
Bandaríkjunum.
Fyrrnefnd teikning byggir á lýs-
ingu breskrar konu sem var í frí í Pra-
ia da Luz um það leyti sem Madel-
eine hvarf. Kona segir að hún hafi séð
manninn, með bólugrafið andlit og
stórt nef, tvisvar sinnum dagana fyrir
hvarf Madeleine, og tjáði lögreglunni
að hann væri „mjög ljótur“, um 1,77
metrar á hæð, grannur í óáberandi
fatnaði, sennilega gallabuxum.
Tvö önnur vitni, 12 ára stúlka
og karlmaður frá Cheshire á Eng-
landi, hafa einnig tilkynnt að þau
hafi séð karlmann fylgjast með íbúð
McCann-fjölskyldunnar dagana fyrir
hvarf Madeleine.
Enn sem komið er hafa stúlkan og
maðurinn ekki staðfest af eða á um
hvort karlmaðurinn sem þau sáu sé
sá sem nýjasta teikningin sýnir.
Þúsundir síðna
Hvað sem teikningunni líður
telja breskir rannsóknarlögreglu-
menn sem sestir eru í helgan stein
að fimm aðskilin tilfelli þar sem sagt
er frá grunsamlegum karlmanni sem
kunni að stuðla að lausn gátunnar
um hvarf Madeleine.
Einn þeirra er Dave Edgar, fimm-
tíu og tveggja ára, og annar er Arth-
ur Cowley, fimmtíu og sjö ára, en
þeir hafa verið ráðnir af foreldrum
Madeleine til að halda áfram leitinni
að henni. Þessir tveir fyrrverandi
lögreglumenn hafa farið í gegnum
þúsundir síðna úr hinum opinberu
portúgölsku málsskjölum, sem voru
gerð opinber í júlí á síðasta ári.
Edgar og Cowley hafa mótað
kenningu sem byggir á nokkrum frá-
sögnum sem ekki hafa heyrst áður,
auk tveggja betur þekktra frásagna
af manni sem sást bera barn á brott
frá íbúð McCann-hjónanna kvöldið
sem Madeleine hvarf.
Fylgst með íbúðinni í viku
Samkvæmt kenningu Edgars og
Cowleys mun einhver hafa fylgst
með íbúðinni í allt að viku áður til
skarar var látið skríða og Madeleine
numin á brott.
„Samkvæmt minni reynslu er
engin tilviljun – það fer ekki einhver
inn, einhver sem á leið hjá, og tekur
barn og fer með það,“ sagði Dave Ed-
gar og bætti við að þrjú vitni hefðu
séð grunsamlegan mann á nákvæm-
lega sama stað.
Edgar sagðist ekki vita hvað portú-
gölsk yfirvöld hefðu gert til að útiloka
þá sem til sást frá rannsókninni og að
hann og Cowley yrðu að ætla að þau
hefðu ekkert gert í því og miða rann-
sókn sína við það.
„Þessi glæpur var framinn í Praia
da Luz. Það er afar lokaður ferða-
mannastaður, og þar held ég að svar-
ið sé að finna,“ sagði Edgar.
Sex ára á þriðjudaginn
McCann-hjónin notuðu tækifærið
sem þau fengu hjá Opruh Winfrey til
að birta tölvugerða mynd sem sýn-
ir hvernig dóttir þeirra lítur hugsan-
lega út í dag, en á þriðjudaginn er af-
mælisdagur hennar.
Hjá Opruh rifjuðu Kate og Gerry
McCann upp þann „hrylling“ og
„fullkomið hjálparleysi“ sem þau
föstudagur 8. maí 200920 Helgarblað
Við vinnum fyrir þig og
lækkum verðið um 25%
af allri þjónustu
Hár Snyrting Neglur Nudd
Hver sgata 125 við Hlemm
Sími 55-10-10-2
100% hjólastólaaðgengi
Hársport - herra - dömu - barna
Foreldrar Madeleine McCann, sem hvarf
í Portúgal árið 2007, hafa ráðið sér einka-
spæjara til að fylgja eftir nýjum upplýs-
ingu sem borist hafa. Teikning hefur verið
gerð af þeim sem nú er grunaður um aðild
að hvarfi Madeleine og telja einkaspæjar-
ar foreldra hennar að svarið sé að finna í
Praia da Luz, þar sem Madelaine hvarf.
„Mjög ljótur“ Maður grunaður
Madeleine McCann til hægri
er tölvugerð mynd sem sýnir
hvernig hún gæti litið út í dag.
Kolbeinn ÞorSteinSSon
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is