Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2009, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2009, Blaðsíða 6
föstudagur 8. maí 20096 Fréttir Sandkorn n Steingrímur J. Sigfússon var meðal gesta í afmælisboði Lúðvíks Bergvinssonar sem haldið var afmælisbarninu að óvöru fyrir skemmstu að Skóla- brú í hjarta höfuð- staðarins. Ræður voru haldnar í gríð og erg. Steingrímur J. bað um orðið og upplýsti að kvöld eftir kvöld í kring um 20. janúar hefðu hann, Ögmund- ur Jónasson og Össur Skarp- héðinsson setið með Lúðvík á heimili hans í Gnitanesi í Skerjafirði og lagt grunninn að samstjórn Samfyklingarinnar og Vinstrigrænna. Össur sagði í sinni ræðu að réttast væri að skýra ríkisstjórnina, sem nú er í burðarliðnum, Gnita- nesstjórnina, eftir staðnum þar sem grunnur hennar var lagður. n Allt bendir til þessi nýja rík- isstjórn verði barin saman á sunudaginn og að þann sama dag muni flokksformennirn- ir Jóhanna Sigurðar- dóttir og Steingrímur J. Sigfús- son kynna útkomuna úr ráðherra- kapalnum sem þau hafa verið að leggja samhliða stjórnarmyndunarviðræð- unum. Talið er víst að hvor stjórnarflokkurinn um sig fái fimm ráðuneyti hvor. Þá er þykir ekki útilokað að ellefti ráðherrann fljóti með, sem fagráðherra, og góðar líkur á að sá verði Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra en ekkert er þó frágengið í þeim efnum. n Þá má ganga að því gefnu að í það minnsta tveir nýir ráð- herrar muni skjóta upp kollinum, hvor úr sín- um flokki. Jóhanna sjálf og Öss- ur Skarp- héðinsson verða að sjálfsögðu ráðherrar og fregnir herma að nánast sé frágeng- ið að Árni Páll Árnason fái að spreyta sig í minniháttar ráðuneyti. Þá munu dreifbýlis- jöfrarnir Kristján L. Möller og Guðbjartur Hannesson togast á um embætti. Þá þykir Katrín Júlíusdóttir líklegust til þess að verða önnur konan í ráðherra- liði Samfylkingarinnar. n Hjá VG blasir við að Stein- grímur J. og Ögmundur verði áfram ráðherrar auk varafor- mannsins Katrínar Jakobs- dóttur. Svandís Svavarsdóttir þykir líkleg til þess að koma ný inn í ráðherralið vinstri grænna og hefur hún ver- ið orðuð við umhverfisráðu- neytið. Þá þykir ljóst að erfitt verði að ganga fram hjá hinum málglaða Jóni Bjarnasyni þegar stól- um verður úthlutað en honum telj- ast til tekna bæði löng þing- reynsla og góður árangur í Norð- vestur- kjör- dæmi. Fjórtán slökkviliðsmenn hjá Bruna- vörnum Árnessýslu sögðu upp störf- um fyrir tveimur mánuðum og hætta störfum um næstu mánaðamót. Ell- efu af þessum fjórtán sögðu upp vegna ágreinings við slökkviliðs- stjórann, Kristján Einarsson. Í þeim hópi eru flestir af reyndustu slökkvi- liðsmönnunum innan liðsins. Hinir þrír hætta vegna þess að þeir treysta sér ekki til að starfa í svo fámennu slökkviliði. Kornið sem fyllti mælinn DV skrifaði um Brunavarnir Árnes- sýslu í janúar þegar 25 af 63 slökkvi- liðsmönnum stefndu Brunavörnum. Snerist málið um síma sem slökkvi- liðsmennirnir fengu svo hægt væri að kalla þá út á öllum tímum sólar- hringsins. Samkvæmt kjarasamn- ingum eiga þeir að fá greiddar nítj- án þúsund krónur hver á ári fyrir að bera símann. Sú greiðsla hafði aldrei verið reidd af hendi og hljóðaði krafa slökkviliðsmannanna upp á 1,8 millj- ónir króna án vaxta og lögfræðikostn- aðar. Búið er að greiða þessa upphæð til slökkviliðsmannanna. Slökkviliðsmaður sem DV ræddi við og vildi ekki koma fram undir nafni segir að símamálið hafi verið kornið sem fyllti mælinn í samskipt- um slökkviliðsmanna við Kristján. Segir slökkviliðsmaðurinn að málið hafi borið þess merki að aldrei hafi staðið til að borga þennan pening. Eins og kom fram í DV í janúar var þetta brot á kjarasamningum slökkvi- liðsmannanna. Slökkviliðsmaður- inn furðar sig á því að Kristján hafi ekki verið ávíttur vegna þess þar sem ástæða hefði verið fyrir stjórn Bruna- varna að gera athugasemdir við störf hans. Í staðinn báðu þeir slökkviliðs- menn afsökunar. Ekkert hlustað Slökkviliðið hjá Brunavörnum Ár- nessýslu er hlutastarfandi lið sem krefst ekki fastrar viðveru á slökkvi- stöð. Starfsmenn stunda sína vinnu annars staðar og henda öllu frá sér ef útkall er. Um sex manns verða eftir á Selfossi þegar slökkviliðsmennirn- ir hætta störfum um næstu mánaða- mót. Viðmælandi DV segir skemmst frá því að segja að ekkert hafi verið hlustað á slökkviliðsmenn síðustu mánuði. Fundur var haldinn um miðjan síðasta mánuð með stjórn- arfulltrúaráði Brunavarna. Það var Kristján harðlega gagnrýndur en ekkert unnið úr þeim kvörtunum hjá Brunavörnum. Því hafi það eitt verið eftir í stöðunni að hætta. Svarar ekki spurningum Margrét Katrín Erlingsdóttir, stjórn- arformaður Brunavarna Árnessýslu, vill sem minnst tjá sig um málið. „Þetta er sama mál og við erum búin að vera með í gangi í töluverðan tíma og erum að vinna að. Fólk er að vinna saman að lausn málsins.“ Aðspurð um hvort einhvern tím- ann hafi komið til greina að víkja Kristjáni úr starfi voru þetta svör Margrétar: „Þú getur ekki spurt mig svona. Þetta er svo einhæft.“ Því næst spurði blaðamaður hvort kvartanir um slökkviliðsstjórann hefðu verið teknar til umhugsunar. „Þessar kvartanir um slökkviliðs- stjórann? Að þær hafi verið teknar til umhugsunar? Ég veit nú ekki eig- inlega hvað ég á að segja við þessari spurningu. Geturðu ekki sent mér þessar spurningar þínar á tölvupósti og ég skal bara svara þeim?“ Blaðamaður sendi Margréti spurningalista þar sem hann spurði meðal annars hvort kvartanir í garð Kristjáns hefðu verið skoðaðar, hvort Margrét hefði fundið fyrir óánægju meðal starfsmanna slökkviliðsins vegna starfa Kristjáns og hvort kom- ið hefði til greina að víkja Kristjáni úr starfi. Margrét sagðist ekki svara þeim spurningum er varða starfs- mann Brunavarna. Ekki pólitískt Blaðamaður spurði Margréti einn- ig hver staðan yrði hjá Brunavörn- um Árnessýslu um næstu mánaða- mót þegar fjórtán starfsmenn hætta þar. Blaðamaður spurði einnig hvort byrjað væri að gera ráðstafanir vegna þessara uppsagna, og ef svo væri, hvaða. Engin svör fengust við þess- um spurningum. Slökkviliðsmaður sem DV ræddi við segir að Kristján haldi starfinu vegna þess að hann sé framsóknar- maður og varinn af Framsóknar- flokknum í Árnessýslu. Þessu vísar Margrét alfarið á bug. „Ég bendi á að framsóknarmenn í Árborg eiga einn fulltrúa í fulltrúa- ráði Brunavarna Árnessýslu, sjálf- stæðismenn í Árborg einn og aðrir koma úr öllum flokkum frá öðrum sveitarfélögum. Alger samstaða er í fulltrúaráði og hefur þetta ekkert með pólitík að gera. Í fulltrúaráði sitja sex fulltrúar og fer ég aðeins með eitt atkvæði af þeim,“ segir Mar- grét sem er bæjarfulltrúi Framsókn- arflokksins í Árborg. Fjórtán starfsmenn Brunavarna Árnessýslu hafa sagt upp störfum, flestir vegna ágreinings við slökkviliðsstjórann, Kristján Einarsson. Slökkviliðsmennirnir hætta störfum um næstu mánaðamót. Slökkviliðsmenn segja stjórn Brunavarna ekki hafa hlustað á kvartanir þeirra í garð Kristjáns. Margrét K. Erlingsdóttir, stjórnarformað- ur Brunavarna Árnessýslu, svarar engum spurningum um Kristján. ÓÁNÆGÐIR SLÖKKVI- LIÐSMENN SEGJA UPP lilja Katrín gunnarSdóttir blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is „Þú getur ekki spurt mig svona. Þetta er svo einhæft.“ Vill lítið segja margrét vill ekki tjá sig um hvort rætt hefur ver- ið um að víkja Kristjáni úr starfi vegna óánægju meðal slökkviliðsmanna í hans garð. gagnrýndur slökkviliðsmenn hafa gagnrýnt Kristján harðlega án árangurs. „Það er búin að vera bullandi sátta- vinna í þessu máli. Strákarnir vilja fá greitt fyrir að fá símana og bera þá þrjú ár aftur í tímann samkvæmt kjarasamningi. Túlkun á því frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga er að það verði að gera. Þó svo við hefð- um látið þá fá góða síma og komið til móts við allskyns kröfur mega sveit- arfélög gera vel við sína menn en það kemur kjarasamningum ekki við,“ segir Kristján Einarsson, slökkviliðs- stjóri Brunavarna Árnessýslu. 25 af 63 slökkviliðsmönnum hafa stefnt Brunavörnum Árnessýslu og var málið þingfest í fyrradag. Símana fengu slökkviliðsmennirnir svo hægt sé að ná í þá á hvaða tíma sólar- hrings sem er ef eldur kviknar. Sam- kvæmt kjarasamningum eiga þeir að fá greiddar nítján þúsund krón- ur hver á ári. Sú greiðsla hefur aldrei verið reidd af hendi og krefjast þeir nú greiðslu þrjú ár aftur í tímann fyr- ir að hafa gsm-síma frá slökkviliðinu á sér allan sólarhringinn eins og seg- ir til um í kjarasamningum. Er upp- hæðin sem deilt er um komin upp í um 1,8 milljónir án vaxta og lög- fræðikostnaðar. Óánægja í slökkviliðinu Guðni Á. Haraldsson, lögmaður slökkviliðsmanna, segir sáttavið- ræður standa og á hann ekki von á því að málið fari mikið lengra. „Brunavarnir tóku sér frest til að skila greinargerð um málið en við erum í viðræðum um hvort hægt sé að semja um þetta og greiða þessa upphæð. Við vonum að það tak- ist sátt í málinu og ég á frekar von á því.“ Samkvæmt heimildum DV hefur verið mikil óánægja meðal slökkvi- liðsmanna í Árnessýslu og skilja þeir ekki af hverju málið hefur þurft að ganga svona langt. Heimilidir DV herma enn fremur að Kristján Ein- arsson slökkviliðsstjóri hafi neitað að borga þetta gjald og telja slökkvi- liðsmenn að með því hafi hann vís- vitandi verið að brjóta kjarasamn- inga. Því hafi málið undið upp á sig og slökkviliðsmenn séð sig knúna til að leita til lögfræðings. Kristján kannast ekki við ósætti hjá Brunavörnum og botnar ekki í því af hverju málið fór svona langt. „Þetta mál fór miklu lengra en allir aðilar ætluðu sér. Það hafa hin- ir og þessir slökkviliðsmenn sem standa í þessu komið til mín og þeir ætluðust ekki til þess að þetta mál færi svona. Það eru engir að skella hurðum. Þetta eru fínir strákar sem vilja þessu apparati vel. Vegna and- rúmsloftsins í þjóðfélaginu eru sum- ir hverjir með erfiðar skuldir og því pirraðir inni í sér en það er ekkert ósætti,“ segir Kristján. Einn stór misskilningur „Við höfum engar áhyggjur. Málið verður ekki tekið fyrir fyrr en eftir tvær til þrjár vikur og ég vona að við verðum búnir að ná lendingu fyr- ir það. Þetta er hundleiðinlegt mál,“ segir Kristján og telur það byggt á einum stórum misskilningi. „Við vorum í góðri trú að við vær- um að gera gott og það ætti að ganga frá þessum greiðslum í launaum- ræðunni í desember. Þá hefði þetta leiðrést gagnvart launanefnd sveit- arfélaganna og Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutninga- manna. En síðan voru samningarn- ir framlengdir og þetta atriði var ekki með. Ég kenni samt engum um.“ Svipað mál kom upp hjá slökkvi- liðinu í Þorlákshöfn en það gekk frá málinu í fyrra og bað slökkviliðs- menn sína afsökunar. Árnessýsla er nú eina sveitarfélagið sem hefur ekki borgað slökkviliðsmönnum þessar greiðslur. Margrét Katrín Erlingsdóttir, for- maður Brunavarna Árnessýslu, ber ábyrgð á málinu en hún vildi ekkert tjá sig um það af hverju málið hefði gengið svona langt. „Ég er búin að vera að vinna í þessu máli síðan það kom upp og ég vil ekkert tjá mig um það. Þetta er launamál starfsmanna sem ég vil ekki ræða í fjölmiðlum. Það er búið að stefna okkur fyrir dóm og þá þarf ég að passa mig. Við erum búin að vinna að lausn málsins á síðustu mánuðum og ég vona að það leysist sem fyrst.“ Kristján Einarsson föstudagur 23. janúar 20098 Fréttir „Vegna andrúmsloftsins í þjóðfélaginu eru sumir hverjir með erfiðar skuldir og því pirraðir inni í sér en það er ekkert ósætti.“ lilja Katrín gunnarsdÓttir blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is Óánægðir slökkviliðsmenn samkvæmt heimildum dV eru slökkviliðsmenn í Árnessýslu ekki ánægðir með framgöngu slökkviliðsstjóra í málinu. mynd guðmundur Vigfússon Á bakvakt allan sólarhringinn slökkviliðsmönnum hafa ekki verið greiddar nítján þúsund krónur á mann síðustu þrjú árin. mynd stEfÁn Karlsson Ekkert ósætti Kristján Einarsson harmar að lögfræðinga hafi þurft til að útkljá málið og segir ekkert ósætti vera milli sín og slökkviliðsmanna. SLÖKKVILIÐSMENNSTEFNA YFIRMANNI Kannast ekki við ósætti í samtali við dV í janúar sagðist Kristján ekki kannast við ósætti innan Brunavarna Árnessýslu. Hann kenndi kreppunni um pirring vegna vangold- inna símagreiðslna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.