Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2009, Qupperneq 8
Allir starfsmenn Zikzak-tískuversl-
ananna voru kallaðir á fund síð-
degis mánudaginn 27. apríl. Þar var
þeim tjáð af eigendunum Berglindi
Ásgeirsdóttur og Ómari Andrési
Gunnarssyni að Zikzak hefði lokað
öllum verslunum sínum og starfs-
fólkinu væri sagt upp. Enn frem-
ur fengu starfsmenn að vita að þeir
fengju engin laun fyrir aprílmán-
uð. Berglind og Ómar hafa að sögn
starfsfólks ekki greitt í lífeyrissjóð og
séreignarsparnað fyrir starfsmenn
sína tæpt ár aftur í tímann.
Hjónin að missa allt
Á fundinum var endurskoðandi frá
KPMG sem sagði að lífeyrissjóðs-
gjöld og séreignasparnaður yrðu
ekki greidd þar sem skuldir fyrir-
tækisins væru umfram eignir. Hann
sagði starfsfólki að það ætti ekki rétt
á atvinnuleysisbótum fyrr en eftir
þrjá til sex mánuði.
„Endurskoðandinn tjáir þar
starfsfólkinu, sem eftir var eftir
uppsagnir sem voru í desember, að
Zikzak fari í gjaldþrot. Starfsfólkið
þyrfti ekki að mæta meira í vinnu
og ætti að fara í stéttarfélagið sitt
til að gangast eftir launum og upp-
sagnarfresti,“ segir í bréfi sem fyrr-
verandi starfsmenn Zikzak sendu
blaðamanni DV. Þeir bíða nú svara
frá stéttarfélögum um hvernig þeir
geta leitað réttar síns. Í bréfinu hef-
ur fyrrverandi starfsfólk Zikzak eft-
ir endurskoðanda fyrirtækisins að
eigendurnir séu að missa allt sitt.
„Lögfræðingar stéttarfélaga okkar
hafa sagt okkur að Zikzak sé ekki
gjaldþrota sem gerir uppsagnir kol-
ólöglegar og ekki getum við sótt
okkar rétt í ábyrgðarsjóð launa þar
sem fyrirtækið er ekki gjaldþrota,“
segir jafnframt í bréfi starfsfólksins
sem unir hag sínum illa.
Gjaldþrot „svo dýrt“
Eftir því sem fram kemur í bréfi
starfsmanna munu Berglind og
Ómar hafa tjáð þeim að þau myndu
ekki lýsa fyrirtækið gjaldþrota því
það væri „svo dýrt“. Í staðinn var
stofnað einkahlutafélag í byrjun apr-
ílmánaðar sem er samkvæmt upp-
lýsingum Creditinfo skráð á dóttur
þeirra, Sigríði Ómarsdóttur, sem er
nítján ára gömul. Þetta nýja einka-
hlutafélag tók yfir rekstur Zikzak í
Kringlunni sem er eina verslunin
sem ekki var lokað.
Sigríður er stofnandi, stjórnar-
maður og framkvæmdastjóri nýja
einkahlutafélagsins og kærasti
hennar er varamaður í stjórn félags-
ins. Þess má geta að stofnun einka-
hlutafélags kostar 88.500 krónur. Ef
fyrirtæki hins vegar lýsir sig gjald-
þrota þarf að greiða 3.900 krónur
þegar mál er dómtekið. Ofan á það
þarf að greiða kostnað fyrir skipta-
stjóra en sú upphæð er mismunandi
eftir stærð fyrirtækis. Algengasta
upphæðin er 250.000 krónur, sam-
kvæmt Héraðsdómi Reykjavíkur.
Hræddar við Berglindi
Eftir að starfsmönnum verslananna
var sagt upp var heimasíðu Zikzak
lokað og því reyndist starfsmönn-
unum erfitt að ná sambandi hver við
annan.
DV hefur fengið fjölmargar póst-
sendingar og símtöl frá fyrrver-
andi starfsmönnum sem eru reiðir,
svekktir og sárir yfir hvernig Berglind
og Ómar hafa komið fram við þá.
Enginn starfsmaður vill koma fram
undir nafni með sögu sína sökum
hræðslu við Berglindi þar sem hún
hefur „gríðarleg völd í tískuheim-
inum“ eins og einn viðmælandi DV
orðaði það.
Annar viðmælandi DV segist vita
til þess að meðal fyrrverandi starfs-
manna Zikzak séu einstæðar mæð-
ur sem „vita ekki hvar þær eiga að fá
pening fyrir mat“ og vandar Berg-
lindi og Ómari ekki kveðjurnar.
Mikilvægt að halda í gott fólk
Hjónin Berglind og Ómar stofn-
uðu Zikzak-tískuveldið fyrir um átta
árum. Þau opnuðu fyrst verslunina
í Brekkuhúsum í Grafarvogi og slík
var velgengni hennar að þau opnuðu
verslanir í Reykjanesbæ, á Selfossi, í
Mörkinni, á Laugavegi, í Kópavogi, í
Hafnarfirði og Kringlunni. Sú síðast-
nefnda stendur ein eftir.
Í viðtali við Vikuna í apríl í fyrra
sagði Berglind það meðvitaða stefnu
að opna verslanir í úthverfum.
„Konur vilja yfirleitt að starfs-
menn þekki þær og þeirra þarf-
ir. Maður týnist auðveldlega inni í
stórum verslunarmiðstöðvum þar
sem þjónustan er í lágmarki en við
erum aftur á móti með mikið af föst-
um kúnnum sem koma aftur og aft-
ur,“ sagði Berglind í viðtalinu.
Þegar viðtalið var tekið var Berg-
lind með 35 til 40 konur í vinnu hjá
sér og sagði að góður andi væri í fyr-
irtækinu.
„Það er gott að vinna með konum
og hjá okkur ríkir mjög góður andi.
Við gerum margt saman, eins og að
fara í sumarbústaðaferðir, óvissu-
ferðir og fleira, enda er mikilvægt
að halda í gott starfsfólk. Það er ein-
faldlega lykillinn að góðu gengi og
án þessa fólks væri ég ekki á þessum
stað í dag. Einnig finnst mér ómiss-
andi að halda sambandi við við-
skiptavininn.“
Neita að svara spurningum
DV reyndi ítrekað að ná tali af Berg-
lindi en án árangurs. Blaðamaður
náði hins vegar tali af Sigríði sem
neitaði að segja hvernig hægt væri
að ná tali af móður sinni, Berglindi.
„Ég vil ekki gefa upp neitt hvað hún
er að gera núna,“ segir Sigríður.
Spurð hvort hún sjálf sé stjórnarfor-
maður í nýju hlutafélagi sem stofn-
að var um rekstur verslunar Zikzak
segir Sigríður: „Ég vil bara ekki svara
því.“
Að sögn Sigríðar hafa sprottið
upp ýmsar sögur um starfsemina
sem ekki séu sannar. Hún vill hvorki
segja hvaða sögur það eru né leið-
rétta þær í samtali við blaðamann.
„Nei, ég vil helst ekki taka það á mig.
Það þýðir ekkert að vera að reyna að
segja eitthvað.“
Sigríður segir forsvarsmenn
Zikzak almennt ekki vilja tjá sig
um mál verslunarinnar. „Þetta er
bara ákvörðun sem við höfum tek-
ið. Við ætlum ekki að svara nein-
um spurningum.“ Aðspurð hvort
hún eigi við spurningar fjölmiðla
eða starfsmanna sem nú hafa
misst þar vinnuna, er svarið: „Bara
öllu saman. Við viljum helst loka á
þetta sem fyrst.“
föstudagur 8. maí 20098 Fréttir
Berglind Ásgeirsdóttir, eigandi Zikzak-tískuverslananna, sagði öllum starfsmönnum verslananna upp rétt
fyrir mánaðamót vegna gjaldþrots. Fyrir uppsagnirnar var stofnað nýtt einkahlutafélag til að reka verslun-
ina í Kringlunni og það skráð á nítján ára dóttur Berglindar. Berglind hefur samkvæmt starfsfólki Zikzak
ekki greitt í lífeyrissjóð og séreignarsparnað fyrir starfsmenn í eitt ár og ætlar ekki að greiða laun fyrir apr-
ílmánuð. Starfsmenn Zikzak voru margir hverjir einstæðar mæður sem eiga nú ekki fyrir salti í grautinn.
STARFSMENN ZIKZAK
SVIKNIR UM LAUN
„Lögfræðingar stéttar-
félaga okkar hafa sagt
okkur að Zikzak sé ekki
gjaldþrota sem gerir
uppsagnir kolólögleg-
ar.“
LiLja KatríN GuNNarsdóttir
blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is
Zikzak-fjölskyldan starfsmenn
Zikzak eru afar óánægðir vegna
framkomu Berglindar og Ómars.
Þeir segjast ekki fá greidd laun
fyrir aprílmánuð.
skráð á dótturina Zikzak-
verslunin í Kringlunni er enn þá
opin og í eigu einkahlutafélags
sem er skráð á nítján ára dóttur
Berglindar og Ómars.
MYNd róBErt rEYNissoN
starfsfólk lykill að
velgengni í viðtali við
Vikuna sagði Berglind að
án starfsfólksins hefði
hún ekki notið slíkrar
velgengni í tískubrans-
anum.
MYNd GuNNar GuNNarssoN