Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2009, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2009, Qupperneq 14
föstudagur 8. maí 200914 Fréttir Sumarkort (gildir til 10. september 2009) og 5 tímar í ljós á aðeins 19.900 kr. KETILBJÖLLUR KARFA SPINNING LYFTINGAR SKVASS Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | www.veggsport.is Sumartilboð! Fólk sem ferðast til útlanda og geymir bílinn á Keflavíkurflugvelli hefur lent í því að þegar það kom til baka hafði bíllinn verið sóttur af lánsfyrirtækjum vegna vanskila. Viðmælendur DV segja þetta þó afar sjaldgæft. Algengara sé að útlendingar sem starfað hafi hérlendis hafi flutt brott og skilið bílana eftir í Keflavík. Fjarlægðir vegna vanskila Securitas rekur bílastæði við Kefla- víkurflugvöll þar sem bíla fólks er gætt á meðan það er statt erlend- is. Samkvæmt heimildum DV hafa komið upp tilfelli þar sem bílarnir hafa verið fjarlægðir vegna vanskila á meðan fólk dvelur erlendis. „Ég hef ekki heyrt af þessu. Það getur verið að þetta gerist. Það er hins vegar ekki unnið með okkur eða í samstarfi eða eitthvað slíkt. Það hefur aldrei neinn hringt í okkur eða beðið um heimild til að taka bíl. Við erum ekki í neinum lögguleik.,“ segir Kjartan Már Kjart- ansson, framkvæmdastjóri Securitas á Reykjanesi. Hann segir að ef fyrir- tæki sem eru í innheimtuaðgerðum hafi heimild og allir pappírar stand- ist skoðun sé ekki hægt að koma í veg fyrir að þeir taki bíla. „Við getum ekki stoppað það,“ segir hann. Fullkomlega löglegt Kjartan Georg Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri SP-fjármögnunar, seg- ist ekki hafa heyrt af svona tilfellum. Það sé hins vegar fullkomlega löglegt að fjarlægja bíla vegna vanskila hvort sem þeir séu staðsettir á bílaplani á Keflavíkurflugvelli eða annars staðar. Hann segist hins vegar setja spurn- ingamerki við það að fólk sé að ferð- ast til útlanda þegar það sé í vanskil- um með bílana sína. Samkvæmt heimildum DV eru dæmi um það að bílafjármögnun- arfyrirtæki hafi þurft að borga bíla- stæðagjöld upp á tugi þúsunda vegna bíla sem skildir hafa verið eftir á Keflavíkurflugvelli. Umráðamenn bílanna hafi þá flúið af landi brott og hætt að borga af bílunum. Er þá nokkuð um erlenda ríkisborgara að ræða, sem starfað hafa á Íslandi en hafa flutt af landi brott vegna efna- hagsástandsins. Afar sjaldgæft Annar heimildarmaður DV sem ekki vildi láta nafn síns getið segir að þetta sé afar sjaldgæf aðgerð. Þá sé búinn að vera eltingarleikur við umráða- mann bílsins lengi án árangurs. Hann segist muna eftir einu svona tilfelli á síðustu þremur árum hjá sínu fyrir- tæki. Þá er um að ræða svokallaða vörslusviptingu sem framkvæmd er eftir að sýslumaður hefur samþykkt beiðni um nauðungarsölu. Það komi hins vegar fyrir eins og áður hefur verið nefnt að útlending- ar skilji bíla eftir á Keflavíkurflugvelli. Þá hringi þeir jafnvel í fyrirtækið sem hefur verið að reyna að innheimta fyrir bílinn og tilkynna að bíllinn hafi verið skilinn eftir. Fyrirtækið geti þá nálgast hann á Keflavíkurflugvelli. AnnAs sigmundsson blaðamaður skrifar: as@dv.is Bílar teknir við Leifsstöð fari fólk í vanskilum úr landi er mögulegt að bíllinn verði fjarlægður af bílastæði við Leifsstöð. „Það er hins vegar ekki unnið með okkur eða í samstarfi eða eitthvað slíkt.”
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.