Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2009, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2009, Qupperneq 18
föstudagur 8. maí 200918 Fréttir Stjórnarliðar fullyrða að lögð verði fram stjórnartillaga um lausn ESB-málsins á Alþingi. Jafnframt er full- yrt að stjórnarflokkarnir þurfi ekki að reiða sig á stuðning forystumanna stjórnarandstöðunnar þótt hendur stjórnarþingmanna verði ekki bundnar. Búist er við að stefnuskrá nýrrar ríkisstjórnar verði borin undir æðstu stofnanir flokkanna á sunnudag. Tillaga um ESB í nafni STjórnarinnar Stjórnarflokkarnir hafa komið sér niður á aðferð til þess að leggja fram ESB-málið fyrir Alþingi þannig að viðunandi teljist fyrir Samfylkinguna og VG. Tillagan verður þar af leiðandi lögð fram sem tillaga stjórnarinn- ar eða stjórnarfrumvarp. Það merk- ir hins vegar ekki að einstakir þing- menn geti ekki fylgt sannfæringu sinni svo sem lög gera ráð fyrir. Á það er bent að afstaða til umsóknar um aðild, hvað þá til inngöngu í Evrópu- sambandið, sé þverpólitískt mál sem ágreiningur sé um í öllum stjórn- málaflokkum. Margir stjórnarliðar fullyrða í samtali við DV að bundið verði svo um hnúta að afgreiðsla ESB-máls- ins verði ekki háð afstöðu forystu Sjálfstæðisflokksins og Framsókn- arflokksins. Meginatriði sé að tillag- an verður borin upp sem stjórnartil- laga. Ekki mótfallin sátt í þinginu Þótt margir þingmenn í Sjálfstæð- isflokknum og Framsóknarflokkn- um séu hlynntir aðildarumsókn hafa forystumenn flokkanna tvegga gagnrýnt þann möguleika að stjórn- arflokkarnir leggi málið í hendur þingsins og með þeim hætti verði treyst á stuðning úr röðum stjórn- arandstöðunnar. Ragnheiður Rík- harðsdóttir, þingkona Sjálfstæðis- flokksins, hefur lýst afdráttarlausum vilja til þess að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Hún kveðst hins vegar ekki vera viss um að hún gæti stutt tillögu sem Samfylkingin flytti ein eða fæli í sér að Samfylk- ingin fengi einhvers konar forræði um framvindu málsins. „Ég vil sjá hvað frá stjórnarflokkunum kemur. Mér þykir það harla bágborið ef þeir geta ekki komið sér saman um þetta og ætli að vísa þessu til annarra. Ég er ekkert á móti því hins vegar að reyna að skapa sátt um þetta í þing- inu,“ segir Ragnheiður. Meirihlutinn vill sækja um Stjórnarþingmenn eru þegjandaleg- ir um stefnuyfirlýsingu væntanlegr- ar ríkisstjórnar, en hún þarf að hljóta náð fyrir augum æðstu stofnana flokkanna tveggja áður en hún verð- ur kynnt opinberlega. Búist er við að miðstjórnir eða flokksráð flokk- anna verði kölluð saman til fundar á sunnudag. Könnun Capacent fyrir RÚV sýnir að liðlega 60 af hundraði landsmanna eru hlynntir viðræðum um aðild að ESB. Athygli vekur að umtalsverður meirihluti stuðningsmanna VG styð- ur aðildarviðræður eða 47 prósent. 36 prósent VG-kjósenda eru andvígir aðildarumsókn. Meirihluti er hlynnt- ur aðildarviðræðum í öllum flokkum nema Sjálfstæðisflokki. Litlu sem engu munar þegar spurt er um inngöngu í Evrópusambandið; fylkingarnar eru nánast jafn stórar, þó eru þeir ívið fleiri sem vilja inn í sam- bandið en þeir sem vilja standa utan þess. Forystumenn VG, sem DV talaði við í gær, telja að afstaðan innan VG sé nánast samhljóða afstöðu þjóðarinn- ar til Evrópumálanna. Ekkert sé því til fyrirstöðu að bera upp tillögu í þinginu sem svari spurningunni hvort sækja eigi um aðild. Það bindi ekki hendur flokka né einstakra þingmanna til þess að berjast gegn aðild eða fylgja málinu eftir komi til þjóðaratkvæðagreiðslu um hugsanlegan aðildarsamning. Endurspeglar þingið þjóðarvilj- ann? Stjórnarliðum úr röðum Samfylkingar- innar þykir lítið leggjast fyrir formenn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar- flokksins sem þeir telja að ætli að beita klækjum og leggja stein í götu ESB- málsins á þingi. Þeir velji að gera sem mest úr mismunandi afstöðu flokka og einstakra þingmanna frekar en að huga að því fyrst og fremst hvern- ig koma megi þjóðinni út úr mikl- um vanda. Borgarahreyfingin sýni að þessu leyti meiri ábyrgð, en hún hefur lýst eftir kynningu og samstarfsvilja á málefnalegum grundvelli. „Ég er ekkert á móti því hins vegar að reyna að skapa sátt um þetta í þinginu,“ Jóhann hauksson blaðamaður skrifar: johannh@dv.is aðildarsinni ragnheiður ríkharðsdóttir, sjálfstæðisflokki, er hlynnt aðild að EsB en vill ekki að málið verði á forræði samfylkingarinnar einnar. andstæðingur atli gíslason, þingmaður Vg, er andvígur EsB- aðild er fellst á að stjórnin beri málið undir þingið. Lög bjóða að þingmenn greiði atkvæði eftir sannfæringu sinni. Ráðherrar góðar lýkur eru á að Jóhanna sigurðardóttir og steingrímur J. sigfússon kynni nýja ríkisstjórn á sunnudag.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.