Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2009, Síða 21
föstudagur 8. maí 2009 21Helgarblað
„Mjög ljótur“ Maður grunaður
upplifðu þegar þau uppgötvuðu að
dóttir þeirra væri horfin.
Á meðal þess sem Kate sagði var
að henni hefði verið ráðlagt að sýna
engar tilfinningar þegar hún höfð-
aði til mannræningjans, eða ræn-
ingjanna, og bað um að Madeleine
yrði skilað því sá sem rændi henni
„gæti fengið einhvers konar... ánægju
af því“. Kate var gjarna gagnrýnd á
þessum tíma fyrir að sýna ekki til-
finningar opinberlega.
Hjá Opruh Winfrey upplýsti Kate
að hún hefði „grátið í sjötíu og tvær
klukkustundir“ og hefði „verið dofin“.
Í nýlegum símtölum til einkaspæj-
ara McCann-hjónanna hafa komið
fram upplýsingar um hátt í þrjátíu til-
felli þar sem mögulega hefur sést til
Madeleine, aðallega í Bandaríkjun-
um og Suður-Ameríku, en fá tilfelli
sem rekja má til Evrópu.
Teikning af grunuð-
um manni sjónar-
vottur lýsir honum sem
„mjög ljótum“ manni.
Magnús Þorsteinsson hefur átt í viðræðum við skilanefnd
Landsbankans vegna hárrar skuldar við bankann. Magnús
fékk lán þegar hann keypti Eimskip árið 2004. Straumur fékk
Magnús lýstan gjaldþrota vegna ábyrgðar á láni BOM-fjár-
festinga.
Milljarða skuld
Magnús Þorsteinsson, sem úr-
skurðaður var gjaldþrota í Héraðs-
dómi Norðurlands eystra á mánu-
daginn vegna rúmlega milljarðs
króna skuldar við Straum-Burðar-
ás, skuldar gamla Landsbankan-
um um þrjá milljarða króna, sam-
kvæmt heimildum DV. Skuldir
Magnúsar við bankann munu vera
tilkomnar vegna þess að Magnús
fékk lán til að kaupa Eimskip árið
2004 sem hann svo renndi inn fyr-
irtæki sitt Avion Group.
Skilanefnd Landsbankans hef-
ur átt í viðræðum við Magnús út
af skuldinni. Þetta staðfestir Páll
Benediktsson, upplýsingafulltrúi
gamla Landsbankans. Páll get-
ur hins vegar hvorki gefið upp fyr-
ir hönd skilanefndarinnar hversu
háa fjárhæð Magnús skuldar né
hvort hann hafi skrifað undir sjálf-
skuldarábyrgð vegna skuldanna.
Hann getur heldur ekki sagt til um
hvernig viðræðurnar við Magnús
hafa gengið eða til hvaða aðgerða
skilanefnd Landsbankans muni
grípa gegn Magnúsi ef skuldin fæst
ekki greidd.
Í tilfelli skuldarinnar við Straum-
Burðarás skrifaði Magnús upp á
sjálfskuldarábyrgð í janúar árið
2008 vegna útistandandi láns sem
BOM-fjárfestingar tóku hjá bank-
anum árið 2005 en Magnús var þá
að kaupa fyrirtækið. Þess vegna féll
skuldin á bú Magnúsar sjálfs.
Samanlagt nema skuldir Magn-
úsar við þessi tvö fjármálafyrirtæki
því líklega rúmlega þremur millj-
örðum króna. Líklegt þykir að þessi
tvö fjármálafyrirtæki séu stærstu
skuldunautar Magnúsar vegna
tengsla hans við þau. En Magn-
ús var einn af stærstu eigendum
Landsbankans þar til árið 2005 og
var viðskiptafélagi Björgólfs Guð-
mundssonar og sonar hans Björg-
ólfs Thors sem voru stærstu ein-
stöku hluthafar Landsbankans og
Straums.
Magnús sendi á miðvikudag
frá sér yfirlýsingu þar sem hann
sagði að hann hefði ekki flutt lög-
heimili sitt til Rússlands vegna
þess að Straumur hefði lagt fram
gjaldþrotaskiptabeiðni gegn hon-
um vegna skuldarinnar því hann
hefði ekki vitað af
henni þegar
hann flutti
lögheimil-
ið. Magn-
ús sagðist
í tilkynn-
ingunni
harma
að
þessi
aðgerð
sín hefði
verið túlk-
uð sem
flóttatil-
raun og að hann
ætlaði ekki að
hlaupast undan
skyldum sín-
um.
ingi@dv.is
IngI F. VIlhjálMsson
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
skuldar landsbankanum nokkra
milljarða magnús Þorsteinsson,
sem úrskurðaður var gjaldþrota á
mánudaginn vegna vanefnda við
fjárfestingabankann straum, skuldar
Landsbankanum nokkra milljarða
króna. Hann hefur átt í viðræðum við
skilanefnd bankans út af málinu. Hann
sést hér með Björgólfi guðmundssyni.
„Samanlagt nema
skuldir Magnúsar við
þessi tvö fjármálafyr-
irtæki því líklega rúm-
lega þremur milljörð-
um króna.“