Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2009, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2009, Page 22
Tuddar í læknisleik föstudagur 8. maí 200922 Umræða Sandkorn n Enn hefur ekki verið upplýst um styrki til þingmanna og flokka í tengslum við kosningar og prófkjör. Hvað mesta athygli vakti listi DV yfir styrkþega Baugs. Kristinn H. Gunnars- son, fyrr- verandi þingmaður, vekur á því athygli að áhugi fjöl- miðla hefur minnkað snöggt- um eftir að kosningar eru afstaðnar. Gagnýnin er réttmæt en þó er ljóst að helsta sökin er hjá þingmönnunum sjálfum og ríkisbönkunum sem viðhalda leyndinni þrátt fyrir ítrekaðar spurningar. n Uppistand Agnesar Braga- dóttur, blaðamanns Moggans, á hátíð lögmanna olli nokkrum titringi í Há- degismóum. Blaðamað- urinn, sem var mætt- ur í nafni blaðs síns, fór mikinn í ræðu sem var sam- bland af söng og töluðu máli þar sem erfitt var að greina orðaskil. Þó mátti greina að lögmenn væru latir og yfir- borðskenndir á meðan hún kafaði dýpra í málin. Mynd- band frá lögmannasamkom- unni með tilþrifum Agnesar barst inn á Moggann og olli talsverðri depurð. n Á Mogganum er nú umtal- að að aðrir blaðamenn mæti á árshátíðir sem tilheyra þeirra málaflokkum og þiggi þann greiða sem í boði er. Síðan þeg- ar andinn rís taki þeir að sér skemmtiatriði og haldi merki blaðsins ríkisstyrkta hátt á lofti. Óvíst er þó að prúðmenninu Ólafi Stephensen ritstjóra líki þetta tal en hann er sagður brúnaþungur vegna fram- göngu blaðamannsins Agnesar Bragadóttur á hátíð lögfræð- inga þótt hann þræti fyrir að hafa af því heyrt. n Hjá Morgunblaðinu eru þetta væntanlega einu áhyggjurnar. Ríkisbankinn Glitnir strikaði út 3500 millj- óna króna óreiðuskuld og velti yfir á almenning. Bank- inn afhenti síðan nokkrum gæðingum blaðið á silfurfati þótt að vísu hafi þeir þurft að yfirtaka milljarðs króna skuld. Áhyggju- leysi Óskars Magnús- sonar út- gefanda og félaga er al- gjört og hvergi er að sjá merki sparnaðar í neinu. Blaðið reynir meira að segja að veiða áskrifendur með því að gefa utanlandsferðir. Sjálfsagt mun ríkisbankinn koma til bjargar aftur ef með þarf. LyngháLs 5, 110 reykjavík Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf. Stjórnarformaður: hreinn Loftsson framkvæmdaStjóri: elín ragnarsdóttir ritStjórar: jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is og reynir traustason, rt@dv.is fréttaStjórar: Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is auglýSingaStjóri: ásmundur helgason, asi@birtingur.is dv á netinu: dv.is aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010, áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 70 50. umbrot: dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: árvakur. dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. „Mér brá svoldið þegar ég sá hóp af út- skriftarnemum að dimit- era eins og Ásdís Rán.“ n Ásdís Rán Gunnarsdóttir um að fólk haldi æ oftar samkvæmi með „Ásdís Rán“-þema. Ásdís gefur nokkuð góð ráð á bloggi sínu um hvað geri gott Ásdísar-þema. - asdisran.blog.is „Engum er minnkun að því að leggjast inn á Vog, öðru nær.“ n Þorvaldur Gylfason hagfræðiprófessor um að Ísland þurfi að fara í meðferð líkt og alkóhólisti. Löngu fyrir hrun hafi ríkinu verið ráðlagt að hefja samstarf við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn en án árangurs. - Fréttablaðið „Ég á eftir að deyja hérna.“ n Ragnar Erling Hermannsson, grátandi í fréttum Stöðvar 2. Hann situr nú í fangelsi í Brasilíu eftir að hafa verið handtekinn með fimm kíló af kókaíni í farangri sínum. - Stöð 2 „Endurhönnun helvítis.“ n Kallar fréttastofa BBC brasilísk fangelsi í úttekt sinni á þeim. Þrír Íslendingar dúsa nú í fangelsum þar í landi. - dv.is „Þegar við vorum um það bil að stíga út úr bílnum kom bara einhver trukkur og keyrði aftan á okkur.“ n María Björk, umboðsmaður Jóhönnu Guðrúnar, en keyrt var á bíl þeirra í Moskvu í vikunni. Allir sluppu ómeiddir en bílstjórinn brunaði í burtu eftir slysið. - Fréttablaðið Þögn burðardýranna Leiðari Samúðarbylgja hefur risið vegna Ragnars Erlings Hermannssonar sem handtekinn var í Suður-Ameríku með sex kíló af kókaíni. Viðtal Stöðv- ar 2 við Ragnar, sem situr í fangelsi í Brasilíu, varð til þess að fólki er brugðið. Ungi mað- urinn lýsti því að hann óttaðist um líf sitt í fangelsi sem er á lægsta skala slíkra stofnana á heimsvísu. Ættingjar Ragnars eru eðlilega niðurbrotnir vegna örlaga hans og hafin er barátta til að fá hann heim til Íslands til af- plánunar. Þarna verður fólk að staldra að- eins við. Ábyrgð hins unga manns á gjörðum sínum verður að vera til staðar. Hann er þrátt fyrir allt sekur um alvarlegt afbrot sem þarf að gera upp við samfélagið. Ef íslenska þjóð- in á að taka á sig kostnað vegna þessa þarf að koma til einlæg iðrun og játning. Burð- ardýrið Ragnar verður undanbragðalaust að upplýsa yfirvöld um allt sem viðkemur málinu. Hann verður að segja til þeirra sem réðu hann til óhæfuverksins í því skyni að ná til höfuðpaura málsins. Að því gefnu er sjálfsagt og eðlilegt að íslenska þjóðin veiti honum allan mögulegan stuðning og vernd gegn þeim sem fengu hann til verka. Ákveði Ragnar hins vegar að hylma yfir með þeim glæpakóngum sem að baki honum standa er lítið hægt að gera annað en tryggja hon- um réttláta málsmeðferð. Þjóðin verður að fordæma yfirhylminguna og rjúfa þannig verndarhjúpinn um þá sem standa fyrir eit- urlyfjainnflutningi. Þekkt dæmi um þögn litlu mannanna í eiturlyfjaheiminum er mál Idol-stjörnunnar Kalla Bjarna. Frekar en að segja til hinna stóru sölumanna dauðans í fíkniefnaheiminum kaus hann að sitja af sér lengri dóm. Tvennt ræður því að ekki er sagt til höfuðpaura. Annars vegar er það óttinn við hefnd en hins vegar fær fólk greitt fyr- ir að sitja inni. Meðan þögn burðardýranna og smásalanna varir mun ekki nást veruleg- ur árangur í baráttunni gegn eiturlyfjakóng- unum. Litla fólkið tekur á sig skellinn af ótta við hina stóru. Þessu verður að linna. Burð- ardýrin eiga að fá skjól í réttarkerfinu til að komið verði böndum á hákarlana. reynir TrausTason riTsTjóri skrifar: Litla fólkið tekur á sig skellinn. bókStafLega Bjartsýni mun bæta allt Við áttum auðvitað von á því að Jó- hanna og Steingrímur leystu allan vanda í fyrsta teboði eftir kosningar. Ósk okkar var byggð á eðlilegri bjart- sýni, því við trúum því í einlægni að þau skötuhjúin hljóti að vera í þess- um bransa til að gera gott úr öllu og finna góðum verkum farveg. Þau stefna ábyggilega að því að redda öllu sem hægt er að redda. Sjálfur hefði ég viljað sjá meira gert fyrir heimilin í landinu og ég hefði þá fyrst og fremst viljað sjá bein- ar aðgerðir – ekki einhver ferli sem taka ár og daga. Ég hefði t.d. viljað sjá það gerast að ríkið tæki yfir eignir og skuldir einstaklinga og svo hefði ég viljað sjá afskriftir lána og okurvaxta ganga yfir alla línuna með réttlátum hætti. Ég verð að trúa því að þessi stjórn sé betri fyrir meðaljóninn en þær stjórnir sem reistar hafa verið á grunni helmingaskiptaveldis Sjálf- stæðisflokks og Framsóknar. Og jafn- vel þótt enn einn kjáninn sé súr eins og skyr og jafnvel þótt formaður hins alræmda Framsóknarflokks haldi að landið sé stjórnlaust, þá eigum við hin von. Við eigum von um að ástandið batni. Okkur er nefnilega ljóst að verra getur það varla orðið. Auðvitað eigum við að gera kröf- ur. Við getum mótmælt, við getum boðað til nýrrar búsáhaldabyltingar. Við getum gert þá kröfu að réttlæt- ið verði áþreifanlegt – að sanngirni nái fram að ganga. Við getum kraf- ist þess að kjör verði jöfnuð og við getum krafist þess að þungar byrðar verði ekki lagðar á þá sem stóðu til hlés og nærðust á sparnaði meðan ríkisbubbarnir, útrásarliðið, bitlinga- bræðurnir og pótintátar þeirra brösk- uðu með fjöregg okkar. Við getum krafist afskrifta og sanngjarnrar nið- urfellingar skulda. Kæru félagar, ég hef tekið þá ákvörðun að boða til byltingar. Fyrst verð ég þó að geta þess að fyrir u.þ.b. tíu árum byrjaði ég að minn- ast á réttlætisbyltingu og ég klifaði á því hugtaki á meðan óréttlætið keyrði hér allt um koll. Núna er það bjartsýnisbyltingin sem ég boða. Og til að sýna að ég er sannur merkis- beri í broddi fylkingar þá lofa ég því að reyna að vera bjartsýnn. Ég ætla að koma með hugmyndir að nýj- um störfum, nýsköpun, nýrri fram- leiðsluvöru og nýstárlegri hugsun, því ég vil leggja mitt í púkk. Ég legg til að bjartsýni verði sýni- leg í öllum aðgerðum ríkisvaldsins og ég krefst þess að jákvæðum fréttum verði fjölgað jafnt og þétt. Já, þó að lánið það sé valt og þjóð af kreppu rotuð þá bjartsýnin mun bæta allt bara ef hún er notuð. kristján hreinsson skáld skrifar „Kæru félagar, ég hef tekið þá ákvörðun að boða til byltingar.“ SkáLdið Skrifar Svarthöfði Örlaganornirnar, Urður, Verð-andi og Skuld, sem nú er orðin sú lang feitasta, virð-ast hafa það sem sérstakt áhugamál að leggja sjálfstæðar kemp- ur í einelti. Sérstaklega þykir þessum hvimleiðu systrum gaman að því að bregða sínum ljótu fótum fyrir sterka einstaklinga sem þora að standa einir gegn ofurefli illu aflanna. Þeir sem leggja á sig slíkt feigðarflan virðast allt- af þurfa að glíma við ofurefli og ein- hverra hluta vegna vex útsendurum myrkraaflanna, sem iðulega skáka í skjóli Sjálfstæðisflokksins og Fram- sóknar, ásmeginn þegar þau verjast áhlaupi manna eins og Ólafs F. Magn- ússonar og Ástþórs sem er sonur ann- ars Magnúsar. Þar sem illvirkjarnir hafa iðulega betur í glímunni við þessa riddara sannleikans og rétt- lætisins þurfa þeir alltaf að vera að og því endar brölt þeirra jafnan með því að framboðið á þeim verður meira en eftirspurnin. Fjöldinn fær sig fullsadd-an af hrópendunum í eyðimörkinni, snýr við þeim baki og leggst á bæn með vondu köllunum um að þessir Don Kíkótar hætti þessu sprikli sínu. En þeir halda áfram og áfam og áfram og Svarthöfði getur ekki að því gert að hann dáist að úthaldinu og seiglunni. Fall Ólafs hefur verið hærra en Ástþórs. Hann var einu sinni maður ársins á Rás 2. Bauð Sjálfstæðisflokknum byrginn í stóriðjumálum og sagði sig úr lögum við þann flokk umhverfissóða og sveif inn í borgarstjórn á eigin forsendum og öldu almenningsálitsins. Síðan veiktist hann og var dæmdur úr leik. Reis upp og komst í draumastöð- una, varð borgarstjóri. Hann var þó ekki lengi í þeirri paradís þar sem út- sendarar Framsóknar- og Sjálf- stæðisflokks komu á hann rothöggi og hann hefur síðan þá barist eins og ljón, einn og ein- angraður, við spillingargrísina við Tjörnina. Á tímabili naut hans stuðn- ings Frjálslynda flokksins en nú er sá flokkur kominn í frumeindir og Óli hefur þess vegna sagt skilið við hann og boðar nú nýjan lista heiðarleika og réttlætis. Hingað til hefur Ólafi fund-ist eineltispúkinn Óskar Bergsson vera leiðinlegasti gaurinn í Reykjavík en nú virðist hinn prúði kórdrengur Júlíus Vífill hafa tekið við kefli Óskars og er vægast sagt leiðinlegur við Óla. Júlíus sagði Óla nýlega að fara til læknis sem er vægast sagt lúa- legt útspil og ber eins og Ólafur bendir á vott um hroka, ókurteisi og fordóma. Ólafur er nú ekki meira lækn-isþurfi en svo að hann sýnir þann þroska að vægja og ætlar ekki að mæta á fleiri nefndarfundi með prakkaranum Júlla. Þetta ber þó alls ekki vott um uppgjöf þar sem Ólafur ætlar að halda áfram, fá fólk- ið aftur að baki sér og áður en yfir lýkur munu hrekkjusvínin öll þurfa að skríða til læknis. Og sá læknir er töffarinn Ólafur F.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.