Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2009, Qupperneq 23
Þegar Ísland gekk í Evrópska efna-
hagssvæðið árið 1992 héldu menn
sig vera að gera reyfarakaup. Með
þessu móti væri hægt að fá alla
kosti Evrópusambandsaðildar og
enga af göllunum. Niðurstaðan var
þó á annan veg. Hefði Ísland staðið
utan EES hefðu þær aðstæður sem
leiddu til bankahrunsins ekki ver-
ið fyrir hendi. Hefði Ísland geng-
ið í Evrópusambandið er líklegt að
alþjóðlegt regluverk hefði haft ein-
hvern hemil á útrás bankanna. Því
var það að ganga í EES og ekki ESB
líklega versti hugsanlegi kosturinn í
stöðunni.
Ef Ísland ákveður hins vegar nú
að bæta fyrir þau mistök er líkleg-
ast að eftirfarandi gerist. Sótt verði
um aðild strax í vor, með þjóðarat-
kvæðagreiðslu í haust. Ef meirihluti
þjóðarinnar reynist hlynntur að-
ild, en slíkt er alls ekki víst, þarf að
breyta stjórnarskrá, rjúfa þing og
efna aftur til kosninga. Gefum okk-
ur hér að slíkt muni gert í kringum
næsta vor. En er líklegt að vinstri-
stjórnin lifi aðrar kosningar af?
Kosningarnar 2010
Slíkt er í raun ansi hæpið. Þó að
Vinstri-grænir samþykki viðræður
við Evrópusambandið og þjóðarat-
kvæðagreiðslu, er ekki víst að flokkur-
inn vilji tilheyra þeirri ríkisstjórn sem
í raun mun fara með landið inn í ESB.
Andstaðan innan flokksins er mjög
sterk, og flokksforystan mun að öllum
líkindum vilja forðast landráðastimp-
ilinn. Í kjölfar kosninganna 2010 er
því mögulegt að Sjálfstæðisflokkur-
inn og Vinstri-grænir muni ná saman
um að vera á móti ESB. Slíkt stjórnar-
samstarf myndi þó einnig henta VG
illa. Samneyti við erkióvininn myndi
einnig vera túlkað sem svik af mörg-
um flokksmönnum. Það er einnig
söguleg staðreynd að minni flokkar
fari illa út úr samstarfi við sjálfstæð-
ismenn, sem oftast fá sitt fram. Þarf
ekki nema líta á útkomuna fyrir Al-
þýðuflokkinn, Framsóknarflokkinn
og, að minnsta kosti til skemmri tíma
litið, Samfylkinguna eftir slíka stjórn-
arsetu.
Hinn möguleikinn er að Samfylk-
ingin myndi Evrópustjórn, þá lík-
lega með Framsóknarflokknum og
hugsanlega Borgarahreyfingu eða
jafnvel klofningshópi Evrópusinn-
aðra sjálfstæðismanna, sem hlýtur
að fara að láta á sér kræla fyrr eða
síðar. Líklega er því besta leiðin til
þess að vinstristjórnin haldi næstu
fjögur árin að bíða með aðildarvið-
ræður. Hinn möguleikinn er þá að
þjóðin kjósi einfaldlega á móti Evr-
ópusambandinu. Þetta myndi verða
álitshnekkir fyrir Samfylkinguna,
en það er ekkert sem segir að hún
geti ekki haldið áfram að leiða ríkis-
stjórnina eftir slíka þjóðaratkvæða-
greiðslu.
Það sem í boði er
En er Evrópusambandið góður kost-
ur? Svarið er einfalt: Við vitum það
ekki. Eina leiðin til þess að komast
að raun um það er að láta reyna á
aðildarviðræður. Ef til vill eru sterk-
ustu rökin fyrir aðild þau að svo virð-
ist sem nauðsynlegt sé að taka upp
nýjan gjaldmiðil. IMF-lánið er not-
að til þess að halda krónunni við, án
þess að losna við hana er varla hægt
að losna við verðtrygginguna sem
er að sliga okkur öll, og líklegt er að
öll erlend lán haldi áfram að hækka.
Svo virðist sem að íslenska krónan
sé rót alls ills, og án hennar hefði sú
spákaupmennska sem leiddi af sér
hrunið verið ómöguleg.
Flestir virðast sammála um að
það að taka upp Evruna sé eini
raunhæfi kosturinn. Hugmyndir
sjálfstæðismanna um að taka hana
upp einhliða með sérstöku leyfi IMF
virðast hálfdraumórakenndar, enda
ólíklegt að ESB hafi nokkurn áhuga
á slíku.
Það er þó verr og miður, því að
líklega hefur aldrei í sögunni ver-
ið óheppilegri tími til að ganga í
ESB en einmitt núna, ef ekki væri
fyrir krónuvandræðin. Ljóst er að
ESB vill enn fá okkur, en við vor-
um í mun betri samningsaðstöðu
sem óspjölluð fegurðardís en við
erum nú, útbrunnið skass í leit að
áfallahjálp. „Síðbúin brúður verð-
ur sorgmædd kona,“ segir gamall
málsháttur. En ef til vill verðum
við nú bara að taka þeim valkost-
um sem í boði eru.
föstudagur 8. maí 2009 23Umræða
Hver er maðurinn? „Ég er andri
stefan, handboltamaður og
bankamaður.“
Hvað drífur þig áfram? „fjölskyld-
an, kærastan og hvatningin til að
gera betur svo að fjölskyldunni líði
betur.“
Hvar ertu uppalinn? „Ég er
Hafnfirðingur alla leið.“
Hvaða þrjú orð lýsa þér best?
„skipulagður, óþolinmóður og
glaðvær.“
Hver er uppáhaldsmaturinn
þinn? „KfC er í algjöru uppáhaldi
enda þjóðarréttur Hafnfirðinga.“
Stendur einhver einn titill upp
úr af þessum sex? „Þegar fyrstu
tveir titlarnir voru unnir var ég bara
kjúklingur en í síðustu fjórum hef
ég verið í lykilhlutverki. manni líður
óneitanlega betur þegar maður
tekur meiri þátt.“
Heldurðu að titlarnir verði fleiri?
„Ég þarf þá kannski að skipta um
treyju þar sem ég er númer sex og
markið var þar af leiðandi sett á sex
titla. En auðvitað setur maður markið
alltaf hærra. Við tökum bara eitt ár
í einu.“
Muntu spila hér á landi á næstu
leiktíð? „Það er óráðið.“
Er stefnan hugsanlega tekin á
atvinnumennskuna? „Ég mun
klára þetta tímabil og einbeita mér
svo alfarið að næsta verkefni sem er
að taka á móti mínu fyrsta barni sem
átti nú reyndar að koma í heiminn
fyrir tíu dögum. svo sjáum við til.“
Hvað finnst þér um þróun
íþróttarinnar undanfarin ár? „allt
fer upp og allt fer niður. Nú finnst
mér sem handboltaíþróttin sé á
leiðinni upp eftir svolitla lægð.“
Hver er draumurinn? „Ég er
raunsæismaður og tekst á við það
sem kemur upp í lífinu.“
Kemst Jóhanna Guðrún upp úr forKeppni eurovision?
„Já, ég held að hún eigi eftir að vinna
þetta. Okkar tími er kominn.“
ÞorlEifur ValdiMar
StEfánSSon,
50 ára sölustJóri.
„Já, út af því að þetta er geðveikt flott
lag.“
tinna Ýr VEStMann,
15 ára gruNNsKólaNEmaNdi.
„Nei, engan veginn. Norðurlöndin fara
aldrei neitt í þessari keppni og það er
ekkert að fara að breytast.“
JóEl BrynJólfSSon,
21 árs HuNdaVEiðari.
„Já, ég vil trúa því.“
anna EMilía niKuláSdóttir,
46 ára HEimaViNNaNdi Húsmóðir.
Dómstóll götunnar
Jáhá, af því þetta er flott lag.“
Þóra lind VEStMann,
16 ára gruNNsKólaNEmaNdi.
Haukar urðu á dögunum annað
handboltafélagið frá upphafi til að
vinna sjö íslandsmeistaratitla í
karlaflokki á einum áratug. Einn
leikmaður Haukaliðsins hefur verið
með í að vinna alla titlana nema einn
en það er hinn tuttugu og fimm ára
andri StEfan GuðrúnarSon.
Þarf að skipta
um treyju
maður Dagsins
Er einhver leið fram hjá ESB?
kjallari
Valur
GunnarSSon
rithöfundur
„Við vorum í mun
betri samnings-
aðstöðu sem
óspjölluð feg-
urðardís en
við erum nú.“
svona er íslanD