Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2009, Page 42

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2009, Page 42
föstudagur 8. maí 200942 Sport Gamall Guðmundur Benediktsson – KR Fæddur: 1974 – Leikir: 217 Mörk: 53 guðmund Benediktsson þarf ekki að kynna fyrir nein- um. Hann er einn hæfileikaríkasti knattspyrnumaður íslands frá upphafi. gummi Ben er nú kominn aftur í Kr þar sem hann gerði garðinn frægan á sínum tíma. Hann er væntanlega að leika sitt síðasta tímabil og því öllum skylt að sjá hvað hann gerir í Vesturbænum í ár. umsjón: tómas þór þórðarson, tomas@dv.is Fylgstu í sumar með þessum 1. FH Íslandsmeistarar FH eru einfaldlega með langbesta liðið á landinu í dag. Þegar lið eins og FH heldur sama kjarna ár eftir ár verður alltaf erfiðara að sigra það. Það sást best hversu gífurlegur kar- akter er í liðinu á lokasprettinum á síðasta tímabili. Nú þegar yngri leik- menn munu fá fleiri tækifæri eru FH- ingar einnig bestir í stakk búnir þar. Það hefur sést á undirbúningstíma- bilinu að ungu leikmennirnir hjá FH eru allir tilbúnir í verkefni sumarsins. Það þarf eitthvað mikið að gerast ef titillinn á að renna úr höndum FH. Lykilmaður: davíð þór Viðarsson Fylgist með: Viktori guðmundssyni 2. KR KR-ingar hafa farið upp og niður á und- irbúningstímabil- inu en halda meira og minna sama mannskap frá því í fyrra sem gerir lítið annað en að hjálpa til. Mikil vandræði hafa verið á vörninni en með komu Hollendingsins Mark Rutgers virðist smá mynd vera að koma á vörnina. Með komu Baldurs Sigurðssonar eru KR-ingar afar vel mannaðir á miðj- unni og mun Guðmundur Benedikts- son eflaust hjálpa til við sóknarleikinn í sumar. Lykilmaður: jónas guðni sævarsson Fylgist með: guðmundi Benediktssyni 3. Keflavík Keflavík hefur misst mikið en þar á bæ eru menn staðráðnir í að halda sér á meðal þeirra bestu. Mik- ið munar um markvörðinn Ómar Jó- hannsson sem lék sitt langbesta tíma- bil í fyrra og er danski markvörðurinn, Lasse Jörgensen, spurningarmerki. Keflavík sýndi í fyrra að bólan þeirra þarf ekki alltaf að springa, allavega ekki fyrr en í síðustu tveimur umferð- unum. Síðasta ár var lærdómsríkt fyrir liðið og mun án efa hjálpa því í ár. Svo spilar það bara svo góðan fótbolta. Lykilmaður: Hólmar örn rúnarsson Fylgist með: Lasse jörgensen 4. Valur Valsmenn hanga ofarlega í spám manna út af mannskapnum. Það á ekki að vera hægt að lenda neðar í deildinni með annan eins mannskap. Liðið er þó allt annað en fullmótað hjá Will- um Þór Þórssyni og félögum að Hlíð- arenda og hafa ólíklegustu menn verið að spila ólíklegustu stöður á undirbúningstímabilinu. Marel Bald- vinsson og Helgi Sigurðsson munu þó mynda eitrað sóknarpar á Voda- fone-vellinum og er liðið nægilega vel mannað eins og áður segir til að gera fína hluti. Það er bara eins gott fyrir Valsmenn að mótið er 22 umferðir. Lykilmaður: atli sveinn þórarinsson Fylgist með: guðmundi steini Hafþórssyni 5. Grindavík Grindvíkingar héldu Zoran Sta- menic, miðverð- inum sínum, sem á eftir að skipta sköpum fyrir liðið. Þá er Gilles Ondo farinn að skora þegar hann lystir en hann kom sterkur inn undir lok síð- asta tímabils. Grindvíkingar spila góðan fótbolta og agaðan undir stjórn Milans Stefáns Jankovic. Frammi eru þeir afar vel settir með Ondo, Þórar- in Brynjar Kristjánsson, Grétar Ólaf Hjartarson og auðvitað meistarann, Scott Ramsey. Grindavíkurliðið er þó ungt og lítil breidd er í því. Einnig er á því pressa í fyrsta skipti í langan tíma og er spurning hvernig Grindjánar takast á við hana. Lykilmaður: scott ramsey Fylgist með: gilles ondo 6. Fram Það er auðvelt að spá Fram slæmu gengi í ár vegna missis liðs- ins á leikmönnum. Í raun er nóg að segja að Paul McShane sé farinn því vægi hans í þessu liði í fyrra var ómetanlegt. Það má þó ekki gleyma að Fram er undir stjórn Þor- valds Örlygssonar sem er meistari í að kortleggja önnur lið og skipuleggja sitt eigið. Það leit ekki nægilega vel út með brottför Reynis Leóssonar til Vals Íslandsmót karla í knattspyrnu hefst á sunnudag með fimm leikjum. Mikil spenna ríkir fyrir mótið. Íslandsmeistarar FH reyna að verja titil sinn frá síðasta ári en gera má ráð fyrir að Reykjavíkurstórveldin KR og Valur, og Keflvíkingar, sem voru nærri því að hampa titlinum í fyrra, geri harða atlögu að titlinum. Verja FH-ingar titilinn? Hafa haft ástæðu til að fagna? stuðningsmenn fH hafa verið vel haldnir síðustu ár. þeir hafa fagnað fjórum íslands- meistaratitlum á fimm árum og gera sér vonir um að sá fimmti bætist í safnið í ár. Liðið hefur hampað bæði deildabikarnum og lagt bikarmeistara Kr að velli í meistarakeppni Ksí. MYND ÁsGeiR skipta með sér titlunum íslandsmeistarar síðustu tveggja ára eiga eftir að berjast í efri hluta deildarinnar. MYND steFÁN tÓMAs ÞÓR ÞÓRÐARsON blaðamaður skrifar: tomas@dv.is úrvalsdeild karla Fyrsta umferð sunnudagur 17.15 Kr-fjölnir 19.15 fram-íBV 19.15 fylkir-Valur 19.15 stjarnan-grindavík 19.15 Breiðablik-þróttur Mánudagur 19.15 Keflavík-fH úrvalsdeild kvenna Fyrsta umferð Laugardagur 14.00 Keflavík-fylkir 14.00 Breiðablik-þór/Ka 14.00 Kr-Valur 14.00 afturelding/fjölnir-stjarnan 14.00 ír-grV 1. deild karla Fyrsta umferð sunnudagur 14.00 Víkingur r.-Víkingur ó. 14.00 þór-ía 14.00 selfoss-Ka 14.00 fjarðabyggð-afturelding Mánudagur 20.00 HK-ír 20.00 Leiknir-Haukar FH oG val spáð titlum á ís- landsmótinu 1. Valur 280 stig 2. Breiðablik 276 stig 3. þór/Ka 224 stig 4. stjarnan 212 stig 5. fylkir 191 stig 6. Kr 155 stig 7. afturelding/fjölnir 110 stig 8. grV 83 stig 9. Keflavík 75 stig 10. ír 44 stig 1. fH 420 stig 2. Keflavík 354 stig 3. Kr 345 stig 4. Valur 340 stig 5. fram 246 stig 6. Breiðablik 242 stig 7. grindavík 216 stig 8. fylkir 193 stig 9. fjölnir 142 stig 10. íBV 113 stig 11. þróttur r. 101 stig 12. stjarnan 96 stig úRVALsDeiLD KVeNNA úRVALsDDeiLD KARLA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.