Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2009, Blaðsíða 46
föstudagur 8. maí 200946 Ættfræði
umsjón: Kjartan gunnar Kjartansson, kgk@dv.is
Teitur Jensson
fyrrv. skrifstofumaður
Teitur fæddist á hinu forna prest-
setri í Selárdal við Arnarfjörð og
ólst þar upp en þar bjuggu foreldr-
ar hans á árunum 1921-47. Hann
stundaði nám í tvo vetur við gagn-
fræðaskóla á Bíldudal sem kennd-
ur var við séra Jón Ísfeld og var síð-
an við nám í Samvinnuskólanum í
Reykjavík 1946-48.
Teitur hefur síðan unnið versl-
unar- og skrifstofustörf, fyrst sem
afgreiðslumaður og verslunarstjóri,
síðan sem starfsmaður Vinnufata-
gerðar Íslands í fimm ár og loks hjá
Olíufélaginu hf. þar sem hann hefur
starfað í fjörutíu ár.
Teitur hefur tekið þátt í ýmsum
félagsmálum. Hann hefur starfað
mikið fyrir Starfsmannafélag Olíufé-
lagsins og var formaður þess í nokk-
ur ár. Þá hefur hann starfað í Versl-
unarmannafélagi Reykjavíkur og sat
í stjórn þess í mörg ár, auk þess sem
hann sat í bankaráði Alþýðubank-
ans og gegndi fleiri trúnaðarstörf-
um. Hann hefur tekið virkan þátt í
félaginu Akóges frá 1955.
Fjölskylda
Teitur kvæntist 17.9. 1955 Elsie Sig-
urðardóttur, aðstoðarsjúkraþjálfara,
f. 25.5. 1936, dóttur Vilborgar Jóns-
dóttur, ljósmóður, og Sigurðar Mart-
einssonar bifreiðarstjóra.
Börn Teits og Elsie eru Sigmar, f.
1954, húsasmiður, kvæntur Hafdísi
Hlöðversdóttur og eiga þau fjög-
ur börn, Teit, Katrínu Sólveigu, Pál
og Sigríði Mörtu; Vilborg, f. 1956,
hárgreiðslumeistari, gift Helga Val-
tý Sverrissyni og eiga þau tvö börn,
Elsí Rós og Sverri Valtý.
Systkini Teits: Sigurfljóð, nú lát-
in, var gift Jóni Kristóferssyni sem
einnig er látinn; Gísli, nú látinn,
var kvæntur Ingu Hjartardóttur sem
einnig er látin; Davíð, nú látinn, var
kvæntur Jennýju Haraldsdóttur;
Ólafía sem gift var Gústaf Kristjáns-
syni en hann er látinn; Benedikta en
hún fórst með vs. Þormóði 1943.
Foreldrar Teits eru Jens Gíslason,
bóndi á Króki í Selárdal, og k.h., Ing-
veldur Benediktsdóttir húsfreyja.
Ætt
Teitur er af alþýðufólki kominn og
rekur ættir sínar allt til Hrafns Svein-
bjarnarsonar á Hrafnseyri, og til Sel-
dæla, en svo voru þeir nefndir sem
fyrstir byggðu Selárdal í Arnarfirði.
80 ára á laugardag 75 ára á föstudag
Jón Ingi Sigurmundsson
fyrrv. skólastjóri
Jón Ingi fæddist á Eyrarbakka og ólst
þar upp. Hann lauk kennaraprófi frá
KÍ 1954, lauk söngkennaraprófi sama
ár en hafði þá verið í orgel- og píanó-
námi í einkatímum hjá Tónskóla
Þjóðkirkjunnar og Tónlistarskóla
Reykjavíkur, stundaði nám við tón-
listardeild Kennaraháskólans í Kaup-
mannahöfn 1958-59 og aftur 1971-72
í tónlist og ensku, stundaði enskunám
í Lundúnum 1960, hefur sótt fjölda
námskeiða í tónlist og námskeið fyr-
ir enskukennara í starfsfræðslu og
skólastjórn, hefur sótt myndlistar-
námskeið á vegum Myndlistarfélags
Árnessýslu ásamt myndlistarnámi
hjá Ulrik Hoff í Kaupmannahöfn og
hjá Ron Ranson á Englandi.
Jón Ingi var kennari við Barna-
skólann á Selfossi 1954-59, kennari
við Gagnfræðaskóla Selfoss (nú Sól-
vallaskóla), yfirkennari þar frá 1976
og skólastjóri við Gagnfræðaskólann
1978-80 og 1987-91. Hann hefur ver-
ið stundakennari við Tónlistarskóla
Árnessýslu frá 1955 og skólastjóri
hans 1968-71.
Jón Ingi var stjórnandi stúlkna-
kórs Gagnfræðaskólans á Selfossi
1960-82 og var stjórnandi kórs Fjöl-
brautaskóla Suðurlands 1983-2000.
Hann heldur nú sína þrítugustu og
fimmtu málverkasýningu sem er á
Gallerý Gónhóli á Eyrarbakka. Auk
þess hefur hann tekið þátt í fjölda
samsýninga.
Fjölskylda
Jón Ingi kvæntist 2.8. 1958 Eddu
Björgu Jónsdóttur, f. 4.5. 1938, fyrrv.
skólasafnskennara. Hún er dóttir
Jóns Pálssonar, bókbandsmeistara í
Reykjavík, sem um árabil sá um tóm-
stundaþátt barna og unglinga við Rík-
isútvarpið, og Vilborgar Þórðardóttur
húsmóður.
Börn Jóns Inga og Eddu Bjargar
eru Vilborg, f. 25.2. 1960, kennari,
gift Ólafi Guðmundssyni iðnrekstr-
arfræðingi; Ágústa María, f. 13.10.
1961, leikskólakennari, gift Birgi
Guðmundssyni rekstrarhagfræð-
ingi; Selma Björk, f. 15.1. 1964, leik-
skólakennari, gift Jóhanni Böðvari
Sigþórssyni bakara; Sigurmundur
Páll, f. 10.5. 1975, tæknihönnuður í
Kaupmannahöfn en sambýliskona
hans er Sigrún Bjarnadóttir, nemi
í dýralækningum. Barnabörn Jóns
Inga og Eddu Bjargar eru átta tals-
ins.
Systir Jóns Inga er Guðrún, f. 19.8.
1928, gift Ólafi Erni Árnasyni, fyrrv.
gjaldkera hjá Sláturfélagi Suðurlands,
og eignuðust þau fjögur börn.
Foreldrar Jóns Inga: Sigurmund-
ur Guðjónsson, f. 4.2. 1903, d. 18.5.
1985, starfsmaður Sandgræðslu ríkis-
ins, búsettur á Eyrarbakka, og Ágústa
G. Magnúsdóttir, f. 28.8. 1905, d. 3.7.
1996, húsmóður.
Sigrún fæddist í Reykjavík en ólst
upp í Vík í Mýrdal. Hún var í Grunn-
skóla Mýrdalshrepps, stundaði nám
við Fjölbrautaskóla Suðurlands á
Selfossi, lauk síðan prófum frá Nýja
tölvu- og viðskiptaskólann og er nú
að ljúka námi af hugvísindadeild
við Keili.
Sigrún Dóra vann í Víkurskála
í Vík á sumrin á unglingsárunum,
vann í frystihúsi á Höfn í Hornafirði
eina vertíð, sinnti aðhlynningar-
störfum við dvalarheimili um skeið,
var skálavörður og matráðskona í
Þórsmörk sumarið 2000 og starf-
aði síðan á rannsóknarstofu hjá Ís-
lenskri erfðagreiningu 2001-2008.
Sigrún Dóra söng og spilaði á
þverflautu með
hljómsveitum í
heimabæ sín-
um, Vík í Mýr-
dal.
Fjölskylda
Unnusti Sig-
rúnar Dóru er
Jósef Jófreyr
Meekosha, starfsmaður við inn-
flutning hjá DHL á Keflavíkurflug-
velli.
Börn Sigrúnar Dóru og Barða
Sigurjónssonar eru Guðrún Dís
Barðadóttir, f. 1.2. 2003; Patrekur
Jón Barðason, f. 8.8. 2005.
Alsystkini Sigrúnar eru Hjördís
Rut Jónsdóttir, f. 14.3. 1977, leik-
skólakennari og bóndi á Suður-
Fossi í Mýrdal; Einar Sigurður Jóns-
son, f. 19.10.1988, bílstjóri í Vík í
Mýrdal.
Foreldrar Sigrúnar Dóru eru Jón
Erling Einarsson, f. 3.1. 1955, pakk-
hússtjóri á Hellu, og Guðrún Sig-
urðardóttir, f. 10.1. 1957, glerlista-
kona í Vík í Mýrdal.
Eiginmaður Guðrúnar er Guð-
mundur Emil Sæmundsson, f. 30.4.
1952, verktaki og smiður.
Eiginkona Jóns Erlings er Guð-
rún Jónsdóttir, f. 25.7. 1967, nemi og
starfskona á dvalarheimili.
Sigrún Dóra verður heima á af-
mælisdaginn.
Kjartan Gunnar Kjartansson
rekur ættir þjóðþekktra íslendinga sem
hafa verið í fréttum í vikunni, rifjar upp
fréttnæma viðburði liðinna ára og minnist
horfinna merkra íslendinga. Lesendur geta
sent inn tilkynningar um stórafmæli á
netfangið kgk@dv.is
30 ára á föstudag
Sigrún Dóra Jónsdóttir
nemi við keili
Erling Ormar Vignisson
forritari og viðmótshönnuður
Erling fæddist á Akranesi og ólst
þar upp. Hann var í Grundaskóla
á Akranesi, stundaði nám við Fjöl-
brautarskóla Vesturlands á Akra-
nesi, lauk stúdentsprófi þaðan
1999, stundaði nám við HR í eitt
ár, stundaði nám í margmiðlunar-
fræði við Full Sail University í Or-
lando í Flórída í Bandaríkjunum
og lauk þaðan prófum sem dúx
2002.
Erling starfaði hjá Ölgerð Egils
Skallagrímssonar á Akranesi með
framhaldsskólanámi, stofnaði og
starfrækti fyrirtækið Íslensk upp-
lýsingatækni 1998-2000 en seldi
þá sinn hlut í fyrirtækinu. Þá stóð
hann, ásamt fleirum, að vefnum
Einkamál.is árið 2000 sem enn
er starfræktur sem stærsti sam-
skiptavefur landsins.
Erling kynntist síðan skólafé-
laga í Flórída sem kynnst hafði
núverandi eiginkonu sinni á vefn-
um Einkamál.is en í gegnum þau
kynntist hann síðan konu sinni.
Erling starfaði hjá Nepal 2002-
2004 og hefur starfað hjá Kaup-
þingi frá 2004 þar sem hann er nú
forritari og viðmótshönnuður.
Erling hefur verið oddviti í
kjörndeildum í Kópavogi í síðustu
alþingis- og bæjarstjórnarkosn-
ingum.
Fjölskylda
Kona Erlings er G. Dögg Gunn-
arsdóttir, f. 5.6. 1976, MA í mann-
auðsstjórnun.
Dóttir Erlings og Daggar er
Katrín Ýr Erlingsdóttir, f. 3.1.
2005.
Systkini Erlings eru Magn-
ús Rafnar Kjartansson, f. 12.2.
1970, búsettur í Reykjavík; Marsi-
bil Brák Vignisdóttir, f. 22.8. 1977,
búsett á Akranesi; Hjörtur Jóhann
Vignisson, f. 27.9. 1994, búsettur í
Reykjavík.
Foreldrar Erlings eru Vignir Jó-
hannsson, f. 8.5. 1952, myndlist-
armaður í Reykjavík, og Elísabet
Árnadóttir, f. 8.8. 1949, læknaritari
við Barnaspítala Hringsins.
Erling og Dögg eiga von á barni
sem áætlað var að fæddist þann
6.5. en var ófætt þegar þetta er
skrifað. Ef barnið fæðist þann 8.5.
verður það þriðji ættliðurinn sem
fæddur er saman daginn, en Er-
ling og faðir hans eiga sama af-
mælisdag.
30 ára á föstudag
Sigurþór fæddist í Reykjavík,
og ólst þar upp og í Danmörku.
Hann var í Ísaksskóla, Vestbysko-
len í Horsens í Danmörku, í Laug-
arlækjaskóla og Seljaskóla, lauk
stúdentsprófi frá FB og kennara-
prófi frá KHÍ 2008.
Sigurþór var aðstoðarmaður
járnsmiðs, vann lengi hjá Húsa-
smiðjunni og Símanum, var stuðn-
ingsfulltrúi við Ingunnarskóla
2004-2005, kenndi í afleysingum
við Breiðholtsskóla 2007 og er nú
umsjónarkennari við Grunnskól-
ann í Borgarnesi frá sl. hausti.
Fjölskylda
Eiginkona Sigurþórs er Arna Þórdís
Árnadóttir, f. 26.6. 1982, nemi við Há-
skólann á Bifröst.
Dóttir Sigurþórs og Örnu er Áróra
Líf Sigurþórsdóttir, f. 28.3. 2007.
Systur Sigurþórs eru Kristrún
Gústafsdóttir, f. 6.1. 1985, sundþjálf-
ari og kennaranemi í Reykjavík; Ás-
björg Gústafsdóttir, f. 21.2. 1986,
nemi við Íþróttaháskólann á Laug-
arvatni og afrekskona í sundi; Jó-
hanna Gerða Gústafsdóttir, f. 13.9.
1990, nemi við FB og afrekskona í
sundi; Eygló Ósk Gústafsdóttir, f. 1.2.
1995, grunnskólanemi og afrekskona
í sundi.
Foreldrar Sigurþórs eru Gústaf
Adólf Hjaltason, f. 21.1. 1955, tækni-
fræðingur og rafsuðukennari, og
Guðrún Gerða Sigurþórsdóttir, f.
5.10. 1956, húsmóðir og starfsmaður
hjá sundfélaginu Ægi.
30 ára á föstudag
Sigurþór Hjalti Gústafsson
kennari í Borgarnesi