Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2009, Page 64
n Einn vinsælasti söngleikur sög-
unnar, Söngvaseiður, er frumsýnd-
ur um helgina í Borgarleikhúsinu.
Tveir hópar fara með hlutverk Von
Trapp-barnanna og skipta þau sýn-
ingum á milli sín. Athygli vekur að í
báðum hópum eru afkvæmi þekktra
fjölmiðlamanna. Í öðrum hópn-
um er dóttir Hafliða Helgason-
ar, ráðgjafa Bjarna Ármannssonar,
sem starfaði lengi vel á Fréttablað-
inu og ritstýrði Markaðnum. Dóttir
hans leikur Birgittu sem lætur allt
flakka og gerir blaðamannsdóttirin
það vel. Í hinum hópnum er dóttir
Svavars Halldórs-
sonar fréttamanns
á RÚV. Hún leik-
ur Mörtu sem
er næstyngst af
krökkunum. Bæði
fjölmiðlabörnin
setja sinn einstaka
svip á sýninguna
með fallegu brosi og
yndislegri útgeislun.
Ekkert toppar matseðil-
inn í djeilinu!
Fréttaskot 512 70 70
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður
aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt
að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar.
Kankvísa kynbomban Ásdís Rán gefur
íslenskum stúlkum mikilvæg hollráð á
heimasíðu sinni. Þetta gerir fyrirsæt-
an vegna þess að hún hefur tekið eft-
ir því að stúlknahópar hafa tekið upp
á því að hafa Ásdísar Ránar-þema þeg-
ar þær skemmta sér og henni líkar ekki
hvernig hún er túlkuð á þessum sam-
komum.
„Mér brá soldið þegar ég sá hóp af
útskriftarnemum að dimitera eins og
Ásdís Rán og ég tók eftir því að klæðn-
aðurinn voru einhverjir skær-
ir bolir, glimmer og stutt pils.
Þetta er hinn versti misskiln-
ingur og ég mundi ekki leyfa
þessum fötum að fara inn í
skápinn minn þó mér
yrði borgað fyrir!“
Ef þú vilt vera eins og
Ásdís Rán þá er aðallit-
ur klæðnaðarins svart-
ur en aðrir litir, eins
og hvítur, grár, brúnn,
jarðlitir, bleikur, í einstaka tilfellum
rauður og auk þess gengur galla-
efni líka. Ásdís leggur ríka áherslu
á mikið af gylltum, fínum skartgrip-
um, mjótt mitti, ávalar mjaðmir og
þrýstin brjóst.
Á heimasíðunni segist
Ásdís vera undir áhrifum
frá Ditu Von Teese, Vict-
oriu Beckham og Mar-
ilyn Monroe og mælir
með að stúlkur klæði
sig í litla svarta kjóla, korselettpils, pils
upp í mitti og há stígvél. Síðast en ekki
síst fer hún vel yfir farðann sem kórón-
ar útlitið.
„Svart í kringum og inn í augu, nett-
ur smoky skuggi og gervi augnhár. Var-
ir: lip kiss lifter base, varalínan stækk-
uð örlítið með neutral lit, bleiktónaður
varalitur og smá gloss til að gera þetta
kyssulegra! Brúnshimmertónaður lit-
ur á kinnbein.“
liljakatrin@dv.is
Fjölmiðla-
börn í SöngvaSeið
Ofurfyrirsætan Ásdís Rán kennir stúlkum að klæða sig eins og hún gerir:
mjótt mitti og þrýStin brjóSt
n Stjörnulögfræðingurinn Sveinn
Andri Sveinsson er mikill áhuga-
maður um fótbolta eins og margir
vita. Hann styður Manchester Un-
ited grimmt í ensku deildinni og í
þeirri íslensku er það Safamýrar-
stórveldið Fram sem nýtur stuðn-
ings hans. Sveinn er það harður
stuðningsmaður að hann ákvað að
verðlauna þrjúþúsundasta vin sinn
á Facebook sérstaklega þar sem vin-
urinn er að sögn Sveins „einn brjál-
aðasti stuðningsmaður
Safamýrarstórveld-
isins“. Sá heppni
fær ekki aðeins
þann heiður að
vera vinur Sveins
Andra á Face-
book heldur fær
hann pitsu í vina-
verðlaun á næsta
heimaleik Fram frá
einum þekktasta
lögfræðingi
Íslands.
Sveinn andri
geFur pitSu
n Idol-stjarnan Kalli Bjarni leit
einstaklega vel út er hann heim-
sótti heilsustaðinn Saffran í Glæsi-
bæ á dögunum. Eins og margir
vita afplánar Kalli Bjarni dóm á
Kvíabryggju fyrir fíkniefnasmygl.
Það vakti athygli gesta á Saffran að
þessi knái söngvari er
handleggsbrotinn á
vinstri handlegg og
gengur um með gifs
frá úlnlið og upp að
olnboga. Með Kalla
Bjarna á Saffran var
rauðhærð snót og virtist
fara vel á með þeim.
Eitthvað mislíkaði
þeim þó mat-
urinn því þau
litu hratt yfir
matseðilinn
og létu sig
fljótlega
hverfa án
þess að
panta.
Kalli bjarni
handleggSbrotinn
Athafnakona ásdísi
rán leiðist aldrei og
gefur íslenskum konum
góð fegrunarráð.