Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2009, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2009, Qupperneq 16
Miðvikudagur 22. júlí 200916 vestfirðir „Helsti munurinn er færri kerlingar en þegar maður var á bassanum og svo veit maður núna alltaf hvar maður endar á kvöldin,“ segir Siggeir Pétursson, skipstjóri á flóabátnum Baldri, og brosir. En hann var um árabil bassaleikari í hinni mögn- uðu hljómsveit Vinum vors og blóma sem meðal annars hélt ófáa dansleiki í sam- komuhúsinu í Flatey á Breiðafirði Siggeir fer tvær ferðir á dag á Baldri með fólk og bíla yfir Breiðafjörðinn með viðkomu í Flatey fjórum sinnum á dag enda þaðan ættaður. „Mitt hlutverk er að færa Vestfirðing- um og Flateyingum ferðafólk. Við förum með upp í þrjú hundruð manns í ferð og það er stöðug aukning í þessu. Gaman að sjá hvað margir notfæra sér að koma við í Flatey enda er þar komið frábært hótel og veitingastaður. Vestfirðirnir eru inn hjá fólki núna,“ segir bassaleikarinn á Baldri. Á vetrum starfar Siggeir að fiskveiði- þróun í Brasilíu fyrir þarlend stjórnvöld og stýrir Baldri svo á sumrum þannig að hann er búinn að finna sitt eilífa sumar. GS n Siggeir Pétursson, skipstjóri og fyrrverandi bassaleikari Vina vors og blóma: fleiri kerlingar í tónlistinni Yst á Snæfjallaströnd, norðan Ísafjarðar-djúps, er hið gamla félagsheimili Dal-bær. Húsið hefur gengið í endurnýjun lífdaga og er nú orðið vinalegt kaffihús þar sem boðið er upp á mat og drykki auk vand- aðrar sögusýningar um líf fólks í þessu harðbýla héraði. Það eru hjónin Sigurður Sigurðsson og Áslaug Jóhannsdóttir sem sjá um rekstur Dal- bæjar. „Við leggjum áherslu á að vera með mat- seðil í samræmi við umhverfið, til dæmis erum við með fjölbreytta rabarbararétti, sérlagaðan plokkfisk og margt fleira mætti telja auk þess að vera með hefðbundnari rétti og kaffibrauð,“ seg- ir Sigurður. Auk þess að bjóða ferðalöngum mat, gistirými og aðstöðu fyrir tjöld og vagna ýmis- konar er boðið upp á margskonar görótt seyði og sultur sem fólk fær á krukkum og krúsum undir vörumerkinu Morgunsól. Einna mesta at- hygli vekur seyði sem trúað er að stöðvi öldrun og haldi mönnum ungum og fjörugum. „Við framleiðum hér sultur, marmelaði og fleira úr berjum, rabarbara og fleiru sem vex hér á svæðinu, ótrúlegt magn af aðalbláberjum sprettur hér og óhætt að segja að allt land hér sé teppalagt af berjum þegar kemur fram í ágúst. Ellistopparinn er einmitt afurð síðsumarsprett- unnar og þykir líklegur til að auka mönnum kraft og styrk,“ segir Sigurður um leið og hann snarar fram ljúffengri vöfflu með heimgerðri sultu og rjóma. Byggð og mannlíf á Snæfjallaströnd á sér langa og merka sögu. Til dæmis er boðið upp á skoðunarferð út í Æðey sem er skammt undan landi og skartar einstaklega skemmtilegu fugla- lífi auk þess sem sjá má minjar um Spánarvíg- in 1615. Fagrar gönguleiðir eru víða á strönd- inni sem og yfir í Jökulfirði og í víkur og firði á Ströndum. Kaldalón og skriðjökullinn sem skríður fram í lónið hefur mikið aðdráttarafl og náttúruunnendur njóta þess að geta ekið nánast að jöklinum. „Landslagið hér er stórkostlegt og lætur fáa ósnortna. Umhverfi eins og hér er elur af sér stórbrotið fólk, það er ekki nein tilviljun að Sig- valdi Kaldalóns samdi verk eins og Hamraborg- ina undir áhrifum þessa landslags þar sem hann bjó við skriðjökulinn úr Drangajökli sem einn jökla á Íslandi er að stækka þegar aðrir hopa. Steinn Steinarr er fæddur hér inn á Laugalandi 1908. Hið þekkta ljóð Það vex eitt blóm fyrir vest- an er einmitt óður til Etelríðar, móður skáldsins, afar raunalegt ljóð um löngun til að hitta móð- ur sína.“ Öllum framleiðsluvörum úr Dalbæ fylgja vís- ur eftir Skerjafjarðarskáldið Kristján Hreinsson, Ellistopparanum fylgja reyndar tvær: Kraftinn geyma krækiber, það kallast reyndar galdur og rabarbarinn ríkur er af reisn sem lengir aldur. Lítill sopi lífgar kropp Lasleik burt má sverfa, ósköp létt er ellistopp og allar hrukkur hverfa. n Sigurður Sigurðsson og Áslaug Jóhannsdóttir, vertar í Dalbæ á Snæfjallaströnd, taka á móti ferðlaöngum og bjóða upp á ýmislegt góðgæti. göróttur ungdómsseiður Siggeir PéturSSon Veit núna hvar hann endar á kvöldin. Mynd guðMundur SigurðSSon Sigurður og ÁSlaug Vísa fylgir öllum vörum frá Dalbæ. Mynd guðMundur SigurðSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.