Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2009, Side 26
Miðvikudagur 22. júlí 200926 vestfirðir
Þetta er ellefta sumarið okkar hérna í Breiðavík en gisting hefur verið rekin hér frá því um 1980 og staðurinn nýtur
vaxandi vinsælda fereðalanga enda
dregur Látrabjargið fólk að úr öllum
áttum,“ segir Birna Mjöll Atladóttir,
bústýra í Breiðavík, hvar hún rekur
ferðamannaþjónustu ásamt manni
sínum Keran St. Ólasyni. Breiðavík
er aðeins steinsnar frá bjarginu eina,
fögur og friðsæl vík með fallegum
fjörusandi upp í miðjar hlíðar, sann-
kölluð hamravík í hinum mikilfeng-
lega fjallgarði.
Aldrei selt kAffi í sveitinni
„Það hefur verið haft á orði að það sé
hættulega fallegt hér, komið hefur fyr-
ir að ferðalangar hafi gleymt sér þegar
útsýnið yfir víkina opnast og ekið út af
veginum í næstu beygju. En ánægjan
leynir sér ekki. Það eru mest útlend-
ingar sem gista hérna hjá okkur, þegar
allt er fullt er líklega mest ef tveir Ís-
lendingar slæðast með. Samt kemur
svolítið af Íslendingum í mat og kaffi
hjá okkur.“
Gestrisni í Breiðavík er viðbrugð-
ið, til dæmis hefur aldrei verið selt
kaffi á staðnum enda þekkist það ekki
til sveita að selja gestum og gangandi
kaffisopa. Á meðan DV gerði stutt-
an stans komu innlendir gestir til að
vita hvort hægt væri að fá keypt kaffi á
brúsa. Svarið var stutt, hér er ekki selt
kaffi. Eftir stutta vandræðalega þögn
glotti Birna húsfreyja og sagði gest-
um að þeim væri velkomið að fá allt
það kaffi sem þeir vildu en þeir mættu
eiga það.
80 uppbúin rúm
Stöðug uppbygging hefur verið á
staðnum frá því að þau hjón tóku við
jörðinni. Nýlega er búið að bæta við
nýrri álmu með 24 tveggja manna
herbergjum og er nú hægt að hýsa um
áttatíu manns í uppbúnum rúmum.
„Við finnum fyrir mikilli aukningu
hjá okkur, vorin eru í sókn enda eru
þau stórkostlegur tími fyrir til dæm-
is fuglaáhugamenn, það eru mest
áhugamenn um náttúru sem koma á
þetta svæði. Enda verður enginn svik-
inn af náttúrunni hérna. Það er stund-
um verið að segja okkur að við þurf-
um að koma upp afþreyingu en hér
er náttúran afþreying og hefur verið
um aldir. Við erum með veiði hérna
í Vaðlinum og í Stæðavötnum, bæði
er hægt að renna fyrir urriða og svo
er hægt að egna fyrir ál sem mörgum
finnst skemmtilegur fiskur.“
ruddAleg símtöl vegnA
breiðAvíkurmálsins
Þrátt fyrir ferðaþjónustu í þrjá áratugi
er Breiðavík líklega þekkt fyrir eitt-
hvað allt annað en ljúfa gistiþjónustu.
Í huga fólks er Breiðavík helst tengd
þeirri meðferð sem unglingar voru
beittir þar á tímum upptökuheimilis
ríkisins á staðnum. „Ég þekkti nokkuð
vel til þessara mála þegar umræðan
gaus upp. Drengir sem voru hér hafa
verið í miklu og góðu sambandi við
okkur síðan við tókum við rekstrin-
um hérna. Margir þeirra hafa komið í
heimsókn vestur. Við eigum mikið af
góðum vinum í þeim drengjum.
Ástandið hér á meðan fyrsti fjöl-
miðlaskellurinn gekk yfir var hræði-
legt. Allir virtust tapa glórunni nema
Breiðavíkurdrengirnir, flugvélar flugu
hér upp að gluggum til að taka mynd-
ir og stöðugar hringingar voru hing-
að eins og við hefðum eitthvað að
gera með þá meðferð sem ríkið beitti
þess drengi. Fólk sem ekkert þekkti til
og var ekki neinn hátt tengt staðnum
né drengjunum sem hér höfðu verið
hringdi og lét mjög ruddalega í sím-
ann við okkur.“
sjónvArpið lét verst
„En það hefur ekki breytt neinu um
gott samband okkar við strákana sem
hér voru á upptökuheimilinu. Það
var afskiptasama fólkið úti í bæ sem
þurfti að laga eigin samvisku held ég
með því að hella sér yfir okkur. Eins
og væri ekki nóg að verða fyrir enda-
lausu áreiti fréttamanna sem virtust
alls ekki geta skilið að upptökuheim-
ilið hefði alls ekkert verið á okkar veg-
um og löngu fyrir okkar tíð, verst held
ég að Sjónvarpið hafi látið. Strákarnir
hafa verið að koma hérna allt frá því
að við byrjuðum hérna og ávallt ver-
ið velkomnir. Þeir hafa sagt manni
óhugnanlegar sögur af vistinni. Þess-
ir vinir okkar koma margir orðið á
hverju vori hingað til okkar. Mér þyk-
ir vænt um þá og held að þeim þyki
vænt um okkur hér,“ segir Birna Mjöll
og ljóst er að henni mislíkar verulega
hvernig farið hefur verið með þessa
vini hennar sem gistu þessa fallegu
sveit fyrir áratugum. GS
HættulegA
fallegt í Breiðavík
n Birna Mjöll Atladóttir, bústýra í Breiðavík, hefur rekið gistiheimili þar í tíu ár. Birna upplifði mikinn dóna-
skap í kjölfarið á Breiðavíkurmálinu en segir það nú liðna tíð.
BirnA Mjöll
Hefur rekið gistiheimili í
Breiðavík í tíu ár.
Mynd GuðMundur SiGurðSSon
Tökum á móti hópum í dýrindis Muurikkaveislur í Fjósinu sem hefur fengið
nýtt hlutverk sem veislusalur – framandi veislur í fallegu umhverfi.
Er brúðkaup, ferming, afmæli, árgangsmót í vændum? Viltu halda tónleika,
dansleik, námskeið? Við tökum vel á móti þér.
Dalaport – flóamarkaður og kaffihlaðborð
húsfreyjunnar sunnudaginn 9. ágúst frá kl: 13-16:30
Upplýsingar og bókanir í síma 860-6062
www.arnardalur.is
Ferðaþjónustan
Arnardal við Skutulsfjörð
- Með sól í hjarta