Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2009, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2009, Side 4
Sandkorn n Staða Ólafs Ragnars Gríms- sonar, forseta Íslands, er ekk- ert sérstök um þessar mundir. Forsetinn liggur fremur lágt í umræðunni og hann virð- ist hafa misst bakland sitt að mestu. Þá þykja yf- irlýsingar hans vera í hæsta máta undarleg- ar. Í viðtali á Skjá ein- um lýsti hann yfir væntumþykju í garð fjandvin- ar síns Davíðs Oddssonar og virðist vera að leita skjóls þar. Þá veittist hann að Agli Helga- syni sjónvarpsmanni með óljósum yfirlýsingum og fetar þannig sömu slóð og Davíð og félagar. n Ólafur Ragnar Grímsson er á meðal þeirra sem koma við sögu í bók Jónasar Kristjáns- sonar ritstjóra, Frjáls og óháð- ur. Þar lýsir Jónas því hvernig hann sem formaður í heldri- manna- klúbbi á Sel- tjarnarnesi reyndi að fá menn til að samþykkja að ungur og árásargjarn maður, Ól- afur Ragnar, yrði tekinn í klúbbinn. Því var alfarið hafnað. Seinna hringdi Ólafur, þá fjármálaráðherra, í ritstjórann með þjósti og vildi segja Jónasi fyrir verkum. „Ég vinn ekki hjá þér, Óli minn, gerðu þig breiðan annars stað- ar,“ svaraði Jónas. Þar með lauk samskiptum þeirra fyrir fullt og allt. n Annar ritstjóri, Styrm- ir Gunnarsson, kenndur við Morgunblaðið, er einnig með bók fyrir þessi jól. Hann er þó ekki að fjalla um líf sitt og starf heldur hrun Íslands. Bókin heitir, Um- sátrið – Fall Íslands og endurreisn. Helsta skúbb henn- ar virðist vera það að Bjarni Benediktsson alþingismaður hafi í janúar tilkynnt formanni sínum, Geir Haarde, að hann ætlaði í framboð gegn honum. Fáir reikna með því að bók Styrmis sé hlutlaus úttekt á því sem gerðist. En það á eftir að koma í ljós. 4 föstudagur 23. október 2009 fréttir Eigendur World Class, Björn Leifs- son og Hafdís Jónsdóttir, hafa stofn- að nýja kennitölu undir reksturinn, samkvæmt heimildum DV. Þegar hefur eignum verið skotið inn í hið nýja félag og skuldirnar skildar eft- ir í því gamla. Þær skuldir eru nærri milljarði íslenskra króna. Nú þegar er búið að breyta ýmsum rekstrarsamningum yfir á nýja félag- ið, sem stofnað var um miðjan mán- uðinn, og eignir verið fluttar á milli án þess að greiðsla hafi komið yfir í gamla félagið í staðinn. Nýja félagið getur þannig tekið yfir reksturinn en milljarðurinn liggur eftir í skel gömlu kennitölunnar. Samkvæmt heimild- um DV eru einnig uppi grunsemdir um að kennitölubreytingin og færsla eigna hafi verið framkvæmd með aðstoð lánadrottins. Stærstur hluti skulda þeirra World Class-eigenda er til kominn vegna misheppnaðs útrásarævintýris World Class í Dan- mörku. Takist að færa eignirnar yfir á nýtt félag sleppa eigendurnir við milljarð í skuldir. Engin niðurfelling Á haustmánuðum árið 2006 fjár- festi World Class í keðju heilsurækt- arstöðva í Danmörku. Keðjan heitir Equinox og þá voru starfræktar þrett- án stöðvar undir því heiti, tólf stöðv- ar á Jótlandi og ein risastöð í Kaup- mannahöfn. Þá lýsti Björn yfir mikilli trú á danska heilsuræktarmarkaðn- um og að danska keðjan yrði stækk- uð fljótt. Það gekk ekki eftir og nýver- ið ákváðu eigendur World Class að hætta starfseminni og selja dönsku keðjuna. Straumur viðskiptabanki tók til sín Equinox og líkamræktarhjónin skulda bankanum hátt í milljarð eft- ir ævintýrið. Straumur hefur nú náð að selja keðjuna til erlendra aðila en skuldin stendur eftir. Í fyrstu fékk DV ábendingu þess efnis að til stæði að fella milljarðinn niður og að hjónin slyppu þannig með skrekkinn. Þegar það var borið undir talsmenn bank- ans fengust þau svör að allar vanga- veltur um niðurfellingu skuldanna væru algjörlega úr lausi lofti gripnar. Neita alfarið Helstu lánardrottnar hafa ekki tek- ið ákvörðun um hvernig aðgerðir hjónanna, kennitölubreytingin og færsla eigna, verða með- höndlaðar. Heimildir DV herma að málssókn komi þar sterklega til greina. Hafdís vísaði málinu alfarið yfir á Björn. Í samtali við DV byrjaði Björn á því að neita því að nokkur rekstur yrði undir hinu nýja félagi og að félagið væri einfaldlega stofnað því það væri alltaf gott að eiga félög. Síðar í samtalinu sagði hann að ein- vörðungu snyrti- og nuddþjónusta fyrirtæksins yrði færð þangað. Það stangast á við heimildir DV sem herma að nú þegar hafi eignir og helstu rekstrar- samningar líkamsrækt- arstöðvarinnar World Class verið færð- ir yfir. Aðspurð- ur segist Björn ekki vera að losna undan skuldum en viður- kennir að þær séu talsverð- ar. „Stofn- un hins nýja félags er algjörlega óviðkomandi dæminu í Danmörku. Þetta nýja félag hefur aldrei tengst, og mun aldrei tengjast, heilsurækt- arrekstrinum. Skuldin er hjá Straumi og hvílir enn á okkur. Þetta er ágætis summa en ég veit ekki betur en verið sé að innheimta hana gagnvart okk- ur. Ég yrði auðvitað mjög ánægður ef þessar skuldir yrðu felldar niður. Að öðru leyti vil ég ekki tjá mig um mál- ið,“ segir Björn. Á góðri stundu Björn og Hafdís hafa lengi verið í fararbroddi í heilsurækt- armálum á Íslandi. Hér er Björn á góðri stundu í World Class. Björn Leifsson og Hafdís Jónsdóttir, eigendur World Class, eru að færa eignir yfir á nýja kennitölu eftir misheppnað útrásarverkefni. Skuldir þeirra vegna ævintýris- ins nema nærri milljarði íslenskra króna og herma heimildir DV að þær verði eftir á gömlu kennitölunni. Lánveitendur óttast um sinn hag og íhuga málsókn. SLEPPA VIÐ MILLJARÐ TrausTi HafsTEiNssoN blaðamaður skrifar: trausti@dv.is „Þetta nýja félag hefur aldrei tengst, og mun aldrei tengjast, heilsu- ræktarrekstrinum.“ Ævintýrið á enda Mis- heppnuðu útrásarævintýri í Danmörku er lokið og eigendur World Class kljást við miklar skuldir. Miklar skuldir Samkvæmt heimildum DV eru skuldir heilsurækt- arhjón- anna nærri milljarði króna. Davíð Viðarsson hefur verið dæmd- ur til tólf mánaða fangelsisvistar fyr- ir kynferðisbrot gegn átta ára telpu. Davíð var fjölskylduvinur stúlkunnar og misnotaði það traust sem hún bar til hans. Davíð var fundinn sekur um að hafa þuklað á kynfærum stúlkunn- ar utanklæða og í fjögur skipti nuddað þau innan klæða með fingrum sínum. Upp komst um brot Davíðs í desember á síðasta ári þegar móð- ir stúlkunnar spurði hana hvort ein- hver hefði komið við „einkastaðina hennar“. Það var á aðfangadag sem telpan sagði móður sinni að „...mað- ur hefði snert kynfæri hennar, troðið fingri upp í leggöng hennar og sleikt hana að neðan. Einnig hefði hann klætt hana úr nærbuxunum“ eins og segir í dómstexta. Foreldrar stúlkunnar fóru í kjölfar- ið með hana á Barnaspítala Hringsins til skoðunar og þann 29. desember beindi Barnavernd Reykjavíkur kæru til lögreglunnar vegna gruns um að Davíð hefði brotið gegn stúlkunni. Hún hafði þá undanfarna mánuði grátið mikið, sagst vera hrædd, verið með magaverk og gengið illa að sofna. Faðir stúlkunnar sagði fyrir dómi að hann hefði ekkert samband haft við Davíð í fjölda ára en þeir hefðu tekið upp samband sumarið áður. Þá hefði Davíð farið að eyða miklum tíma með stúlkunni og bróður hen- ar, sótt þau í skólann, farið með þau í sund og gefið þeim gjafir. Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykja- víkur segir að stúlkan sé óttaslegin á kvöldin og þurfi að sofa með kveikt ljós og opnar dyr. Þá býr hún við mik- inn kvíða sem kemur fram í líkam- legri spennu og magaverk. „Afleið- ingar verknaðarins séu alvarlegar og til þess fallnar að hafa áhrif á andlega og líkamlega heilsu brotaþola um ókomna framtíð,“ segir í dómnum. Davíð þarf að greiða fjölskyldu stúlkunnar 600 þúsund krónur í miskabætur. Þar sem Davíð neitaði því staðfastlega að hafa kysst eða sleikt kynfæri telpunnar og sett fing- ur inn í leggöng hennar var hann sýknaður af þeim ákærulið. erla@dv.is Á leið í fangelsi Davíð Viðarsson misnotaði traust stúlkunnar og braut á henni kynferðislega. Við honum blasir nú fangavist. MyNd rakEL Ósk davíð Viðarsson var dæmdur í tólf mánaða fangelsi fyrir að þukla á barnungri telpu: Misnotaði traust átta ára stúlkuSmíðum allar gerðir lykla , smíðum og forritum bíllykla. Verslun og verkstæði Grensásvegi 16 Sími: 511 5858

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.