Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2009, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2009, Side 11
fréttir 23. október 2009 föstudagur 11 KARL LÁNAÐI SJÁLFUM SÉR RÚMAN MILLJARÐ Hluti 104. greinar hlutafélagalaga: „Hlutafélagi er hvorki heimilt að veita hluthöfum, stjórnarmönnum eða framkvæmdastjórum félagsins eða móðurfélags þess lán né setja trygg- ingu fyrir þá. Félagi er einnig óheimilt að veita þeim lán eða setja fyrir þann tryggingu sem giftur er eða í óvígðri sambúð með aðila skv. 1. málsl. eða er skyldur honum að feðgatali eða niðja ellegar stendur hlutaðeigandi að öðru leyti sérstaklega nærri. Ákvæði þessarar málsgreinar taka þó ekki til venjulegra viðskiptalána.“ metra landsvæði í Búkarest, höf- uðborg Rúmeníu. Félagið skuldar rúmenska bankanum, Banca Com- erciale Romania, 13,8 milljónir evra, rúmlega tvo milljarða króna, sam- kvæmt ársreikningnum. Lánið gjald- féll í ágúst og vinnur Downtown nú að endurnýjun á lánasamningnum með bankanum. Af ársreikningum félaganna tveggja sést hversu staða Karls Wern- erssonar er slæm eftir íslenska efna- hagshrunið. Nú þegar er búið að setja eitt af eignarhaldsfélögum hans, Milestone, í þrot og framtíð annarra tveggja lítur ekki vel út því af ársreikningunum að dæma er óvíst hvort hann og félög hans geti stað- ið í skilum, hvort sem er hér heima eða í Rúmeníu. Spurningin er einn- ig sú hvort lánveitingarnar frá Karli til Háttar gætu varðað við lög, eða nán- ar tiltekið 104. grein hlutafélagalaga. Fjármálaeftirlitið hefur kært viðskipti Guðbjargar Matthíasdóttur með hlut sinn í Glitni til embætti sérstaks sak- sóknara. Guðbjörg, sem er stærsti eigandi Árvakurs, útgáfufélags Morg- unblaðsins, seldi 1,71 prósents hlut sinn í Glitni síðasta virka daginn fyrir þjóðnýtingu hans. Ólafur Þór Hauks- son, sérstakur saksóknari, staðfestir í samtali við DV að mál tengt þess- um viðskiptum sé til rannsóknar hjá embættinu. Hann gat að öðru leyti ekki tjáð sig frekar um málið. Guð- björg seldi sem áður segir rúmlega 1,7 prósenta hlut sinn í Glitni fyrir 3,5 milljarða króna föstudaginn 26. sept- ember. Mánudaginn 29. september 2008 var tilkynnt að Glitnir hefði ver- ið þjóðnýttur og hlutafjáreigendur töpuðu öllu sínu. Þvílík heppni hafði líklega ekki sést. Heppnasta kona hrunsins Samningur sem Guðbjörg hafði gert ári áður en bankahrunið varð hér á landi gerði henni kleift að selja hluti í Glitni fyrir 3,5 milljarða króna á síð- asta virka degi fyrir hrun. Gengið var frá kaupum Glitnis á hlutabréfum Kristins ehf. í eigu Guðbjargar eftir að 75 prósent bankans voru komin í hendur ríkisins. Guðbjörg var einn af tuttugu stærstu hluthöfum Glitnis fyrir söluna. Samkvæmt hlutahafayfirliti átti Kristinn ehf. nærri 254 milljónir hluta í bankanum miðvikudaginn 24. september síðastliðinn. Guðbjörg, eigandi Kristins ehf., hafði hins veg- ar heimild til að innleysa hluti sína dagana 25. og 26. september, síð- ustu virku dagana áður en Glitn- ir féll í hendur ríkisins mánudaginn 29. september. Sú heimild á rætur að rekja til kaupa hennar í Glitni með samningi sem gerður var í september 2007 er hún seldi hlut sinn í Trygg- ingamiðstöðinni. Sá samningur fól í sér rétt Guð- bjargar til þess að selja helming eign- ar sinnar í bankanum eða um 127 milljónir hluta fyrir nærri 4,1 milljarð króna. Að frádregnum arðgreiðslum og þóknun fékk Guðbjörg tæplega 3,5 milljarða króna í sinn hlut. Við- skiptin hvíldu á kaupréttar- og sölu- réttarsamningi sem FL-Group, helsti eigandi Glitnis, hafði gert við Kristin ehf. um kaup á þriðjungshlut í Trygg- ingamiðstöðinni hf. Hluti kaup- verðsins var greiddur Guðbjörgu með hlutabréfum í Glitni. Sigurbjörn Magnússon gerði þennan samning fyrir félag Guðbjargar, en hann er nú stjórnarformaður Árvakurs, útgáfu- félags Morgunblaðsins. Hrein tilviljun Sala á hlutabréfum Guðbjargar Matthíasdóttur á hlutum hennar í Glitni korteri fyrir bankahrunið vakti mikla tortryggni og var fjallað um söluna þegar í byrjun október. Sögu- sagnir voru uppi um upplýsingar um yfirvofandi þrot Glitnis hefðu lek- ið til Guðbjargar, einna helst í gegn- um lögfræðingana Gunnlaug Sæv- ar Gunnlaugsson eða Sigurbjörn Magnússon sem báðir hafa starfað fyrir Guðbjörgu og fyrirtæki hennar um langt árabil. Báðir eru þeir kunn- ir sjálfstæðismenn. Því gat það vakið tortryggni að Guðbjörg skyldi selja hluti sína í Glitni daginn eftir að Þor- steinn Már Baldvinsson, formaður bankaráðs Glitnis, gekk á fund Dav- íðs 25. október og tjáði seðlabanka- stjóranum að bankinn rambaði á barmi greiðsluþrots. Ekki var það til að draga úr tortryggninni að Seðla- bankinn og stjórnvöld gerðu ekk- ert í málum Glitnis fyrr en 29. sept- ember, á fjórða degi frá því Þorsteinn Már fór á fund Davíðs. Loks var á það bent að Einar Sigurðsson, son- ur Guðbjargar, væri millistjórnandi hjá Glitni og kynni að búa yfir gagn- legum upplýsingum. Kristinn ehf. átti samningsbundinn rétt á því að selja hlutabréfin með sérstakri inn- lausnartilkynningu sem bundin var við dagana 25. til 27. september. En grunsemdir um leka eða innherja- viðskipti leiddu til þess að Fjármála- eftirlitið tók málið til rannsóknar og hefur það nú verið kært til embættis sérstaks saksóknara. mikael@dv.is Heppnasta kona hrunsins? Guðbjörg Matthíasdóttir athafnakona sætir nú rannsókn embættis sérstaks saksóknara vegna sölu sinnar á 1,71 prósents hlut í Glitni korteri fyrir þjóðnýtingu bankans. Hún var sögð heppnasta kona hrunsins eftir að ljóst varð að hún hefði náð að selja 1,71 prósents hlut sinn í Glitni síðasta virka daginn fyrir þjóðnýtingu bankans. Heppnin virðist þó hafa yfirgefið Guðbjörgu Matthíasdóttur því embætti sérstaks saksóknara hefur nú borist kæra frá Fjármálaeftirlitinu vegna sölunnar. SALA Á GLItNISHLUt tIL RANNSóKNAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.