Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2009, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2009, Page 16
16 föstudagur 23. október 2009 fréttir Allt bendir til að Baldur Guðlaugsson láti senn af störfum sem settur ráðu- neytisstjóri í menntamálaráðuneyt- inu. Meint innherjasvik hans með hlutabréf í Landsbankanum skömmu fyrir fall bankans eru til rannsókn- ar hjá sérstökum saksóknara. Fleira er til athugunar. Rannsóknin þykir nægjanleg ástæða til þess að hann hverfi að minnsta kosti tímabund- ið úr embætti. Málið verður til lykta leitt innan fjármálaráðuneytisins fyr- ir helgi, líklega með starfslokasamn- ingi. Um áramótin rennur út sá tími sem hann var settur ráðuneytis- stjóri í menntamálaráðuneytinu og var ráð fyrir því gert að hann hyrfi til fyrri starfa sem ráðuneytisstjóri í fjár- málaráðuneytinu. Þar er fyrir á fleti Guðmundur Árnason, hinn raun- verulegi ráðuneytisstjóri í mennta- málaráðuneytinu.Ætlunin var að þeir hefðu aftur sætaskipti um næstu áramót eins og áður segir. Báðir eru þeir sjálfstæðismenn og voru mjög handgengnir Davíð Oddssyni í forsætisráðherratíð hans. Guðmundur starfaði í forsætisráðu- neytinu hjá Davíð frá því snemma á níunda áratugnum og Baldur hefur verið ráðuneytisstjóri í fjármálaráðu- neytinu síðan árið 2000. Vinirnir Vinir Baldurs Guðlaugssonar bera honum ákaflega vel söguna. Segja hann strangheiðarlegan heilinda- mann. Þeir undrast jafnvel að hann skuli ekki grípa til vopna þegar að honum er sótt nú. Pólitískir skoð- anabræður Baldurs í vinahópnum fullyrða að Baldur myndi aldrei vilja misnota stöðu sína sjálfum sér til hagsbóta. Þvert á móti sé hann lík- legri til þess að forðast það alveg sér- staklega. Jón Steinar Gunnlaugsson hæsta- réttardómari er gamall vinur Bald- urs, skólabróðir og viðskiptafélagi, en þeir ráku saman lögmannsstofu á Skólavörðustíg í Reykjavík í fyrri tíð. „Baldur er gegnheill sómamaður. Ég þekki hann náið og tel hann með heiðarlegustu mönnum sem ég hef kynnst á lífsleiðinni. Það er með sorg í hjarta sem ég fylgist með því nú sem yfir hann gengur. Ég held ég geti sagt með sanni að Baldur er einn af þess- um mönnum sem maður myndi geta treyst fyrir lífi sínu,“ segir Jón Steinar. Lítil þúfa veltir þungu hlassi Þær létu lítið yfir sér í fyrstu smáfréttir í október 2008 – skömmu eftir banka- hrunið – um að Baldri Guðlaugs- syni hefði tekist að selja hlutabréf sín í Landsbankanum skömmu fyrir hrunið. Það átti eftir að vinda utan á sig og grunur vaknaði fljótlega um innherjasvik; að Baldur hefði búið yfir upplýsingum sem hann hefði hagnýtt sér til þess að forðast stór- fellt tap. Þeir sem gerst fylgjast með hluta- bréfamarkaðnum hafa bent á að löngu hafi verið fyrirséð að Lands- bankinn ætti eftir að lenda í ógöng- um og furða sig á því hvers vegna Baldur hafði ekki selt hlutabréfin miklu fyrr. Þeir sjá með öðrum orð- um ekkert saknæmt við athæfi Bald- urs að þessu leyti. Hvað sem því líður er talið vafa- samt að hátt settir embættismenn, eins og Baldur, hafi fjárhagslegra hagsmuna að gæta í þessa veru. Embættismenn verði að minnsta kosti að gera grein fyrir þeim opin- berlega á gagnsæjan hátt. Tvíþætt rannsókn? Grunsemdir um innherjasvik urðu svo háværar að Baldur sá sitt óvænna, gaf út yfirlýsingu og skrif- aði varnargrein í Morgunblaðið 19. október í fyrra. Fjölmiðlar höfðu beint sjónum sínum að fundi sem Björgvin G. Sigurðsson, þáverandi viðskiptaráðherra, hafði átt með Alasdair Darling, fjármálaráðherra Breta, í London 2. september, um mánuði fyrir hrunið. Með Björgvin í för voru meðal annarra Baldur Guð- laugsson. Þess má geta að mjög hafði verið þrýst á Landsbankann að flytja Icesave-reikningana úr íslenskri í breska lögsögu og var Icesave-vand- inn meginviðfangsefni fundarins með Darling og breskum embættis- mönnum þennan dag. Baldur hafði þó gert lítið úr því viðfangsefni fund- arins í fjölmiðli. Í þessa umræðu hefur síðan of- ist þátttaka Baldurs í samráðshópi á vegum Seðlabankans snemma árs í fyrra. Í hópnum voru auk Baldurs ráðuneytisstjórar forsætis- og við- skiptaráðuneytisins og forstjóri Fjár- málaeftirlitsins sem lét af störfum snemma árs. Haldið hefur verið fram í fjöl- miðlum að hópnum hafi verið kynnt skýrsla Andrews Gracie, sérfræðings um fjármálastöðugleika, þar sem dregin var upp dökk mynd af yfirvof- andi falli íslensku bankanna. Í anda skýrslunnar hóf hópurinn undirbúning að viðbragðsáætlun og lagasetningu sem unnt yrði að grípa til í neyð, rétt eins og gert var með setningu neyðarlaganna. Fréttablaðið sagðist í vikunni hafa heimildir fyrir því að þátttaka Baldurs í þessu starfi hefði komið til skoðunar hjá sérstökum saksóknara. Þannig eru álitamálin tvö sem tengj- ast Baldri; meint innherjasvik með sölu á hlutabréfum í Landsbankan- um um miðjan september í fyrra og framangreind þátttaka í gerð við- bragðsáætlunar gegn yfirvofandi áföllum í bankakerfinu snemma árs í fyrra. Baldur andmælir Baldur andmælti ýmsu af því sem sagt hafði verið um ofangreind- an samráðshóp í Fréttablaðinu síð- astliðinn fimmtudag. Hann sagði meðal annars að samráðshópnum hefðu ekki verið kynnt nein gögn um rekstur eða útlán einstakra banka. Auk þess hefðu störf samráðshóps- ins aldrei verið neitt leyndarmál og greint hefði verið frá þeim á vefsíðu forsætisráðuneytisins. Baldur segir jafnframt að sam- ráðshópnum hafi aldrei verið kynnt skýrsla erlends fjármálastöðug- leikasérfræðings um yfirvofandi fall bankanna og vísar til rannsóknar „Ég þekki hann náið og tel hann með heiðar- legustu mönnum sem ég hef kynnst á lífsleið- inni.“ Baldur Guðlaugsson ráðuneytisstjóri lætur að líkindum af störfum á næstunni meðan mál hans eru til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara. Líkur eru til þess að hann kjósi að hætta störfum innan stjórnarráðsins. Starfsferill hans er sléttur og felldur en sam- ofinn Sjálfstæðisflokknum og fyrirtækjum sem staðið hafa nálægt honum um langa hríð. Í nærmynd DV lýsir Jón Steinar Gunnlaugs- son hæstaréttardómari Baldri sem gegnheil- um sómamanni. Pólitískir andstæðingar lýsa honum einnig sem heilindamanni. Valdamikill sómamaður á hægriVæng nærmynd

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.