Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2009, Page 17
FME sem ekki sá neitt athugavert
við hlutabréfaviðskipti hans. „Við
athugun Fjármálaeftirlitsins var
beinlínis horft til þeirra upplýsinga
sem ég hefði haft vegna setu í um-
ræddum samráðshópi,“ segir Bald-
ur.
Loks segir Baldur að um fáa fundi
hafi verið jafnmikið rætt og fund-
inn 2. september í fyrra með breska
fjármálaráðherranum og varla geti
rannsókn á málum hans byggst á því
að FME hafi ekki verið kunnugt um
umræddan fund fyrr en í sumar.
Traustur og valdamikill
Þingmenn Framsóknarflokksins
kölluðu Baldur Guðlaugsson yfirráð-
herra Sjálfstæðisflokksins á göngum
Alþingis árið 2005. Þá hafði Halldór
Ásgrímsson, formaður Framsóknar-
flokksins, verið forsætisráðherra frá
því haustið 2004.
Á þessum tíma var Íbúðalána-
sjóður eina fjármálavígi framsókn-
armanna í ríkisrekstrinum en fjár-
málastjórn ríkisins hafði að öðru
leyti verið að mestu á valdi Sjálfstæð-
isflokksins.
Sjóðurinn heyrði undir Árna
Magnússon sem þá var félagsmála-
ráðherra og Guðmund Bjarnason,
forstjóra sjóðsins og flokksbróður
Árna í Framsóknarflokknum.
Á þessum tíma höfðu bankarnir
hafið innreið sína á íbúðalánamark-
aðinn og var vera Íbúðalánasjóðs á
þeim markaði mörgum þeirra þyrn-
ir í augum. Sjálfstæðismenn sóttust
eftir því að ná sjóðnum undir sig og
hugðust annaðhvort breyta honum í
heildsölubanka fyrir íbúðalánakerf-
ið eða einkavæða hann og afhenda
hann bönkunum alfarið.
Á bak við tjöldin beitti Baldur
Guðlaugsson sér í málinu og var það
ein ástæða þess að þingmenn Fram-
sóknarflokksins höfðu horn í síðu
Baldurs og samstarfsflokksins að
þessu leyti.
Maðurinn
Baldur Guðlaugsson fæddist 8.
desember 1946 í Reykjavík. Hann
lauk stúdentsprófi 1967
frá Menntaskólanum í Reykjavík og
lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands árið
1976, sama ár og margir aðrir flokks-
bræður hans, þeirra á meðal Davíð
Oddsson. Áfram hélt hann á mennta-
brautinni og lauk MA-prófi í alþjóða-
stjórnmálum frá Fletchers School of
Law and Diplomacy í Bandaríkjun-
um ári síðar.
Baldur hóf störf sem lögfræðing-
ur hjá Vinnuveitendasambandi Ís-
lands sama ár og hann kom heim frá
Bandaríkjunum og var framkvæmda-
stjóri þar árin 1977 og 1978.
Eiginkona Baldurs er Karítas
Kvaran og eiga þau þrjú börn.
Allar götur frá árinu 1978 til 2000
starfaði hann sem lögfræðingur og
rak meðal annars lögfræðiskrifstofu
með góðvini sínum og skólabróður
Jóni Steinari Gunnlaugssyni hæsta-
réttardómara.
Baldur hafði innsýn í fjár-
málmarkaðinn og fer sög-
um af því að eignir hans
í hlutabréfum séu allnokkrar, meðal
annars í Eimskipafélagi Íslands áður
en það komst í hendur Björgólfs
Guðmundssonar og viðskiptafélaga
hans.
Baldur var auk þess einn af stofn-
endum Kaupþings og fyrsti stjórn-
arformaður þess á árunum 1992 til
1996. Hann sat í stjórn Granda og
Útvegsbanka Íslands seint á níunda
áratug síðustu aldar. Hann stofn-
aði Hlutabréfamarkaðinn hf. og var
fyrsti stjórnarformaður hans árin
1985 til 1992. Í heilan áratug, eða
frá árinu 1991 til 2001, sat hann í
stjórn Eimskipafélags Íslands. Nær-
fellt jafnlengi sat hann í stjórn Ísfé-
lags Vestmannaeyja. Eigandi þess er
Guðbjörg Matthíasdóttir sem nú er
aðaleigandi Árvakurs, útgáfu Morg-
unblaðsins.
Baldur er einnig hnútum kunnur í
lífeyrissjóðakerfi landsmanna. Hann
var meðal annars stjórnarformað-
ur Lífeyrissjóðsins Einingar og hef-
ur verið stjórnarformaður Söfnunar-
sjóðs lífeyrisréttinda frá árinu 2001.
1. janúar 2007 settist Baldur einn-
ig í formannsstól framkvæmda-
nefndar um einkavæðingu.
Frumkvöðullinn
Segja má að Baldur hafi verið frum-
kvöðull á sviði verðbréfaviðskipta
hér á landi. Hann átti frumkvæði að
því að stofna Hlutabréfamarkaðinn
hf. og Kaupþing eins og áður segir.
Aðrir frumkvöðlar um stofnun hluta-
bréfamarkaðar hér á landi voru Eyj-
ólfur Konráð Jónsson heitinn, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins, og Pétur
H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, en hann var einn af stofn-
endum Kaupþings sem hóf starfsemi
sem verðbréfafyrirtæki.
Einn heimildarmanna DV tel-
ur víst að Baldur hafi á sínum tíma
eignast nokkurn hlut í Eimskipafé-
lagi Íslands. Með eigendaskiptum á
Eimskip og dótturfélaginu Burðarási
hafi á einhverjum tímapunkti kom-
ið til hlutabréfaskipta. Baldur hafi þá
orðið hluthafi í Landsbankanum án
þess nokkurn tíma að hafa keypt hlut
í honum. Það er einmitt sala Baldurs
á þessum hlut í Landsbankanum sem
vakið hefur grunsemdir um brot gegn
ákvæðum laga um innherjaviðskipti.
Flokkurinn
Nafn Baldurs Guðlaugssonar er sam-
ofið Sjálfstæðisflokknum. Hann sat
nokkur ár í stjórn Sambands ungra
sjálfstæðismanna á áttunda áratugn-
um. Formaður Varðar, fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, var
hann í ellefu ár, frá 1989 til ársins
2000.
Staldra má við það að Baldur hef-
ur augljóslega sagt af sér helstu trún-
aðarstöðum fyrir Sjálfstæðisflokkinn
og fyrir einstök einkafyrirtæki þegar
hann var skipaður ráðuneytisstjóri í
fjármálaráðuneytinu árið 2000. En
eins og upptalningin ber með sér um
störf hans í atvinnulífinu fyrr og síð-
ar eru þau oftast nær á vettvangi þar
sem ítök sjálfstæðismanna eru eða
voru mikil, eins og hjá VSÍ, Eimskipa-
félaginu og Ísfélagi Vestmannaeyja.
Baldur var auk þess einn af for-
kólfum Eimreiðarhópsins svo-
nefnda, sem varð til á áttunda áratug
síðustu aldar. Auk Baldurs skipuðu
hópinn þeir Hannes Hólmsteinn
Gissurarson, prófessor í stjórnmála-
fræði, Þorsteinn Pálsson, fyrrver-
andi forsætisráðherra og ritstjóri,
Geir H. Haarde, fyrrverandi forsæt-
isráðherra, Jón Steinar Gunnlaugs-
son hæstaréttardómari, Brynjólfur
Bjarnason, sem var gerður að for-
stjóra Símans á meðan hann var í
ríkiseigu, Kjartan Gunnarsson, fyrr-
verandi framkvæmdastjóri Sjálfstæð-
isflokksins, og Magnús Gunnarsson,
kaupsýslumaður og fyrrverandi for-
maður Vinnuveitendasambands-
ins. Þór Whitehead sagnfræðipróf-
essor og Birgir Ísleifur Gunnarsson,
fyrrverandi menntamálaráðherra,
tilheyrðu einnig hópnum. Loks má
nefna Davíð Oddsson, fyrrverandi
forsætisráðherra og nú ritstjóra
Morgunblaðsins, sem taldist þó ekki
meðal virkustu manna í hópnum.
Hópurinn hittist vikulega á skrif-
stofu Magnúsar Gunnarssonar sem
varð forstjóri Hafskips árið 1973 og
síðar vikulega um margra ára skeið
í svokölluðu turnherbergi á Hótel
Borg, segir Hannes Hólmsteinn Giss-
urarson í grein í tímaritinu Vísbend-
ingu frá árinu 2006.
Eins og mörg nafnanna gefa til
kynna er hér um afar valdamikinn
hóp að ræða sem hafði meðal annars
á dagskrá sinni hugmyndafræðilega
endurnýjun á hægrivæng íslenskra
stjórnmála í anda nýfrjálshyggjunn-
ar. Það má telja þversagnarkennt að
þrátt fyrir hugmyndir um einstakl-
ingsfrelsi, lágmarks umsvif ríkis-
valdsins, einkavæðingu fyrirtækja í
almenningseigu og virðingu fyrir sér-
eignarrétti, átti það fyrir meirihluta
Eimreiðarhópsins að liggja að gerast
embættismenn eða stjórnmálamenn
á launum hjá hinu opinbera.
Réttindin
Réttindi opinberra starfsmanna eru
rík samkvæmt lögum. Þau koma
mjög við sögu nú þegar ríkisstjórn
Samfylkingar og VG vill og þarf að
taka ákvörðun um framtíð Bald-
urs Guðlaugssonar ráðuneytisstjóra
í tengslum við rannsókn sérstaks
saksóknara og grunsemdirnar sem
vakna á meðan henni er ekki lokið.
Því má einnig halda til haga að Bald-
ur er sagður fastur fyrir og enginn
aukvisi um lagaleg málefni yfirleitt.
Þótt Baldur og Guðmundur Árna-
son séu gegnheilir sjálfstæðismenn
og hafi átt starfsframa sinn und-
ir Davíð Oddssyni og ráðuneytum
hans allt frá árinu 1991 er ekki þar
með sagt að ný ríkisstjórn þurfi ekki
að virða lög. Líta má á ráðstafanir um
tilflutning þeirra milli ráðuneyta fyrr
á árinu sem biðleik í málinu.
Einnig má telja víst að ráðherrar
viðkomandi ráðuneyta, Katrín Jak-
obsdóttir í menntamálaráðuneyt-
inu og Steingrímur J. Sigfússon í fjár-
málaráðuneytinu, kæri sig ekki um
að vera sökuð um pólitískar ofsókn-
ir eða ósanngirni af pólitískum and-
stæðingum með því að hrekja Baldur
og Guðmund úr embættum.
Auk þess vilja þau varla feta í fót-
spor Finns Ingólfssonar, Framsókn-
arflokki, sem í ráðherratíð sinni lagði
nánast í rúst starfsferil Björns Frið-
finnssonar ráðuneytisstjóra í iðnað-
ar- og viðskiptaráðuneytinu.
Vont fordæmi
Málavextir voru þeir að í desember
árið 2005 skipaði Valgerður Sverris-
dóttir, þáverandi viðskipta- og iðnað-
arráðherra, Kristján Skarphéðinsson
ráðuneytisstjóra iðnaðarráðuneytis-
ins án auglýsingar. Kristján er reynd-
ur embættismaður og vinur Finns
Ingólfssonar, forvera Valgerðar í iðn-
aðarráðuneytinu.
Þegar Valgerður skipaði Kristján
hafði Björn Friðfinnsson, ráðuneyt-
isstjóri viðskipta- og iðnaðarráðu-
neytisins, beðið þess árum saman að
fá að taka á ný við starfi sínu. Björn
hafði fengið leyfi frá störfum árið
1993 til þess að gegna stöðu fram-
kvæmdastjóra hjá ESA, Eftirlitsstofn-
unar EFTA í Brussel. Finnur Ingólfs-
son kallaði Björn heim árið 1996 til
að gegna ráðuneytisstjórastarfinu
á ný. Björn flutti búferlum heim en
þegar til átti að taka þóknaðist Finni
ekki að fá hann aftur í ráðuneytið.
Þrátt fyrir sérstaka samninga við fjóra
ráðherra varð engu um þokað og fór
Björn aldrei aftur inn í ráðuneytið.
Heimildir eru fyrir því að ráðherr-
arnir Finnur Ingólfsson og Valgerð-
ur Sverrisdóttir hafi í einkasamtöl-
um bæði fullyrt að Björn fengi starfið
sitt ekki aftur meðan þau fengju ein-
hverju um ráðið.
Sem kunnugt er lyktaði málinu
með réttarsátt þar sem ríkið var knú-
ið til þess að greiða Birni óskert ráðu-
neytisstjóralaun til sjötugs, en auk
þess tveggja milljóna króna miska-
bætur, sem teljast háar.
Jakob Möller, lögfræðingur Björns
Friðfinnssonar, sagði að lokinni rétt-
arsátt, að hvergi væri að finna hnökra
á embættisfærslu Björns og því væri
málið illskiljanlegt. „Það eina sem
ég get látið mér detta í hug er það að
Björn hafi það til saka unnið, sem og
einnig langstærstur hluti þjóðarinn-
ar, að vera ekki framsóknarmaður,“
sagði Jakob.
Aðgerðir ráðherranna tveggja
gegn Birni Friðfinnssyni eru dæmi
um spillt vinnubrögð. „Í réttarríkinu
fer stjórnsýslan í einu og öllu að lög-
um sem endurspegla almannahags-
muni á meðan annarleg sjónarmið
ráða ferðinni í spilltu þjóðfélagi,“ rit-
aði Páll Þórhallsson, nú embættis-
maður í forsætisráðuneytinu, í grein
um spillingu sem birt var í Morgun-
blaðinu í febrúar árið 2002.
fréttir 23. október 2009 föstudagur 17
Menntamálaráðherra Katrín Jakobs-
dóttir samdi við Baldur Guðlaugsson
um að hann færi í leyfi til áramóta vegna
rannsóknar sérstaks saksóknara á málum
sem tengjast honum.
Starfsbróðir og vinur Jón Steinar
Gunnlaugsson hæstaréttardómari lýsir
Baldri sem heiðarlegum og gegnheilum
sómamanni.
„Yes Minister“ Því hefur margoft verið
haldið fram að í fjármálaráðherratíð Árna
Mathiesen hafi Baldur verið hinn raun-
verulegi fjármálaráðherra. Þingmenn
Framsóknarflokksins kölluðu Baldur
yfirráðherra Sjálfstæðisflokksins.
Ráðuneytisstjóri án ráðuneytis
Björn Friðfinnsson ráðuneytisstjóri varð
framkvæmdastjóri ESA, eftirlitsstofnunar
EFTA, á vegum stjórnvalda árið 1993.
Hann átti ekki afturkvæmt í iðnaðar- og
viðskiptaráðuneytið.
Æðstráðandinn Mjög náið samband
var milli Baldurs og Davíðs Oddssonar í
forsætisráðherratíð hans frá árinu 2000
er Baldur varð ráðuneytisstjóri. Báðir
eru þeir lögfræðingar, skólabræður,
flokksbræður og voru meðlimir í
Eimreiðarhópnum svonefnda.