Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2009, Síða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2009, Síða 34
34 föstudagur 23. október 2009 helgarblað „Auðvitað dregur svona lífsreynsla úr manni vissan styrk á meðan sárin eru enn þá opin. En um leið og þau fara að gróa og um leið og mað- ur tekur meðvitaða ákvörðun um að vinna úr reynslunni getur hún raunverulega snúist upp í styrk. Þegar fólk er komið á þann stað getur það hugsað með sér: Ég hef sannað fyrir sjálfri mér að ég gat lifað af þessa lífsreynslu og fund- ið hamingjuna á ný þannig að það hlýtur að vera ansi mikið í mig spunnið,“ segir Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, leikskáld og rithöfundur. Þórdís gaf nýverið út bókina „Á manna- máli“ þar sem hún fjallar um kynbundið of- beldi á Íslandi og brotalamir í íslensku dóms- kerfi þegar kemur að kynferðisbrotamálum. Þórdís talar í bókinni af eigin reynslu þar sem henni varð nauðgað þegar hún var sextán ára. Hún hefur síðan unnið mikið með þá reynslu og finnst hún í dag hafa lagt hana að baki sér. Fráhrindandi merkimiðar Að mati Þórdísar er líf eftir ofbeldi vanrækt- ur vinkill í samfélagsumræðu um kynferðis- ofbeldi. „Ég skammast út í fjölmiðla því mér finnst þeir reyna að gera sér mat úr ofbeldi sem fólk er beitt. Ofbeldi er samfélagsmein og að vissu leyti af því góða þegar slík þögn er rof- in en mig óar við því þegar það er gert í æsi- fréttastíl. Ofbeldi hefur verið söluvara. Lífs- reynsla fólks hefur verið sett fram á neikvæðan og einstrengingslegan hátt sem býður í raun ekki upp á að lesandinn eða áhorfandinn sjái fyrir sér að viðkomandi geti öðlast hamingju á ný eða öðlast líf eftir ofbeldi. Ég held að þetta auki á vandann. Ég ákvað í bókinni að stíga fram fyrir skjöldu og segja frá reynslu minni af kynferðis- legu ofbeldi. Í mörg ár hafði opinber umræða hins vegar mikinn fælingarmátt fyrir mann- eskju eins og mig, því ég vil meina að ég sé sterk manneskja, hafi bein í nefinu og skoðan- ir á hlutunum. Hið týpíska fórnarlamb, sem er reyndar orð sem ég forðast að nota, er birt sem manneskja sem búið er að murka sálartóruna úr, er lifandi dáin og nánast hulstur utan um eitthvað sem var. Í öll þau ár sem ég var að gera upp hug minn og var að vinna úr minni reynslu langaði mig ekkert að ganga í þann hóp. Mér fannst lýsingin mjög fráhrindandi. Lýsingin hefur í gegnum tíðina verið á einn veg. Ég held að það geri það að verkum að fólk sem upplifir sig ekki sem sálarmyrt og örkuml- að eigi til að þegja og stíga ekki fram því það vill ekki láta flokka sig á þennan hátt. Það leið- ir til þess að við missum af þeirra sjónarmiði, við missum af þessum mikilvæga vinkli og ég myndi segja að fyrir þá sem verða fyrir ofbeldi er miklu mikilvægara að heyra um hvernig fólk vinnur úr slíkri reynslu en að heyra um niður- læginguna, þótt það selji kannski fleiri tíma- rit.“ algjör vanmáttur Þekkt er að þeir sem verða fyrir ofbeldi upp- lifa gríðarlegan vanmátt og segir Þórdís orð- ræðuna í samfélaginu skipta máli fyrir hvern- ig fólk upplifir sig sem brotaþola. „Fyrir marga er það erfiðasta hindr- unin að komast yfir vanmáttinn, að öðlast aftur sjálfstraust og trú á því að maður stjórni eigin lífi og aðstæðum. Ég held að orð eins og „fórnarlamb“ auki á þennan vanmátt. Orð- ið lýsir umkomulausu, varnarlausu ungviði, skepnu sem er bundin á altari. Það er ekki til varnarlausari mynd. Vanmátturinn er algjör. Ef svona orð eru notuð til að lýsa manneskju sem hefur unnið sigra, unnið úr ofbeldinu sem hún var beitt og er komin á góðan stað í lífinu ertu í raun að setja hana aftur í aðstæður van- máttar.“ Þórdís vill því frekar nota orðið „brotaþoli“ yfir þolanda kynferðisofbeldis. „Enginn sem heldur áfram með lífið í kjölfar ofbeldis er fórnarlamb. Maður er fórnarlamb á meðan á ofbeldinu stendur, á meðan maður er í þeim aðstæðum að geta enga björg sér veitt. En um leið og ofbeldinu lýkur og viðkomandi tek- ur ákvörðun um að halda áfram með líf sitt er maður strax hættur að vera fórnarlamb.“ Páskaungi og bílasölumaður Þórdís segir brotaþola óttast þann merkimiða sem oft fylgir því að greina frá ofbeldi, að fólk sé hrætt um að verða skilgreint út frá ofbeldinu frekar en manneskjan sem það er. „Hér er ég sjálf sek. Ég datt í þá gryfju að fara að skilgreina mig út frá því sem henti mig. Einn daginn var ég á slæmum stað hvað það varðar og langaði mikið að losna við þessa ranghugmynd, því innst inni vissi ég að þetta var ranghugmynd. Ég var svo miklu meira en þessi atburður. Ég ákvað því að setjast niður og gera lista yfir það sem ég hef upplifað og það sem einkennt hef- ur líf mitt. Þetta voru bæði stórir atburðir og litlir og ómerkilegir. Ég byrjaði á því að skrifa niður nokkur störf sem ég hef unnið. Ég hef verið páskaungi í Hagkaupum, ég hef verið barþjónn, ég hef verið glasabarn, ég hef verið bílasölumaður. Þórdís elva Þorvaldsdóttir er ákveðin og sterk ung kona. Henni var nauðgað þegar hún var unglingur en hefur síðan unnið mikið með þá reynslu og finnst hún hafa lagt hana að baki. Í viðtali við erlu hlynsdóttur segir Þórdís Elva frá því hversu mikið það hjálpaði henni að gera lista með 100 atriðum sem einkennt hafa líf hennar og að í kjölfarið hætti hún að skilgreina sig út frá of- beldinu sem hún var beitt. „Ég er löngu komin yfir það að finn- ast þetta eitthvert feimnismál sem Ég þarf að skammast mín fyrir.“ margbrotin Þórdís Elva Þorvaldsdóttir hefur hjálpað lambi að fæðast, drukkið Manhattan á Manhattan og þurft að biðjast afsökunar eftir að hafa hagað sér eins og fáviti. Hún er því miklu meira en brotaþoli kynferðisofbeldis. mynd kristinn magnússon „Ég er ekki fÓrnarlamb“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.