Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Síða 13
FRÉTTIR
2 dálkar = 9,9 *10
Opið: má-fö. 12-18, Opið á laugard. til jóla frá 12-16
Dalvegi 16a,
Rauðu múrsteinshúsunum
Kóp. 201 - S: 517 7727
www.nora.is
Fyrir bústaðinn og heimilið
KOMIÐ ÚTKOMIÐ ÚTOMIÐ ÚT
VEÐSETNING BJARNA TIL AÐ
BJARGA GLITNISBRÉFUNUM
hlutverki að vera leppur fyrir tvö eign-
arhaldsfélög, Racon annars vegar og
Vafning og Þátt International hins
vegar, sem skulduðu Morgan Stan-
ley fjármuni vegna kaupa á bréfum í
tveimur fjármálafyrirtækjum, Glitni
og Invik.
Vafningsviðskiptin eru því hluti
af ákveðnu vandamáli sem kom upp
í árslok 2007 þegar erlend fjármála-
fyrirtæki vildu ekki endurnýja lána-
samninga við stór íslensk eignar-
haldsfélög og fyrirtæki. Afleiðingin
af þessu var sú að íslensku bankarnir
fengu íslensku eignarhaldsfélögin aft-
ur í fangið ef svo má segja og þurftu að
tryggja þeim lánafyrirgreiðslu til að
varna því að félögin færu á hliðina.
Þarna spilar líka inn í að þessi eign-
arhaldsfélög, með-
al annars Þáttur
International, voru
mörg hver stórir
hluthafar í bönk-
unum. Fall þeirra
hefði því getað
þýtt upphafið að
falli bankanna en
með viðskiptum
eins og þeim sem
tengdust Vafningi
og Svartháfi var
komið í veg fyrir
upphafið að slíku
hruni, að minnsta
kosti um sinn.
KEYPTU Í KCAJ ÁRIÐ 2007
Benedikt Sveinsson, faðir Bjarna Benediktssonar, núverandi formanns Sjálfstæðis-
flokksins, skrifaði undir hlutafjárhækkun í fjárfestingarfélaginu Mætti á hluthafa-
fundi í lok júlí 2007 þar sem einnig var gengið frá kaupum Máttar á 12,1 prósents
hlut Milestone í breska fjárfestingarsjóðnum KCAJ. Máttur var í eigu dótturfélags
Sjóvár og eignarhaldsfélaga Benedikts og Einars, bróður hans, Hafsilfurs og Hró-
mundar. Einar skrifaði sömuleiðis upp á hlutafjárhækkunina á fundinum þar sem
kaupin voru ákveðin. Kaupverðið á bréfunum í KCAJ var tveir milljarðar króna.
DV greindi frá því á mánudaginn að sama dag í febrúar árið 2008 og Bjarni Bene-
diktsson veðsetti hlutabréfin í eignarhaldsfélaginu Vafningi fyrir hönd föður síns
og frænda keypti félagið 82 prósenta hlut í KCAJ af Sjóvá fyrir 5,4 milljarða króna
sem og fasteignaverkefni í Makaó í Asíu fyrir 5,2 milljarða króna. Báðar fjárfest-
ingarnar voru fjármagnaðar með láni frá Sjóvá. Vafningur var í eigu dótturfélags
Sjóvár sem aftur var í eigu Karls og Steingríms Wernerssona í gegnum Milestone
og Benedikts og Einars Sveinssona.
Í samtali við DV á sunnudaginn vildi Bjarni ekkert tjá sig um KCAJ og viðskipti
Vafnings í febrúar 2008. Sú staðreynd að Máttur keypti í KCAJ árið 2007 og að
Vafningur gerði það rúmu hálfu ári síðar sýnir að í kjölfarið hafa félög í Werners-
sona og þeirra Sveinssona ráðið yfir nær öllu hlutafénu í KCAJ. Viðskipti þeirra
bræðra með hlutabréf í KCAJ ná því lengra aftur en til febrúar 2008.
Umboð Bjarna Bjarni fékk þrjú umboð frá þremur eignarhaldsfélögum í eigu fjölskyldu sinnar til að veðsetja hlutabréf félagsins í Vafningi í febrúar í fyrra.
Veðsetningin var vegna lána frá Glitni sem síðan runnu til Vafnings í gegnum eignarhaldsfélagið Svartháf.
Nátengdir Myndin sýnir hvernig viðskiptahagsmun-
ir Karls og Steingríms Wernerssona og Benedikts og
Einars Sveinssona fóru saman. Eignarhaldsfélögin
Þáttur International og Vafningur voru meðal annars í
þeirra eigu en hið fyrrnefnda hélt utan um eignarhlut
þeirra í Glitni en hið síðarnefnda um turninn í Makaó
og breskan fjárfestingarsjóð.