Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2010, Blaðsíða 8
EinkatónlEikar
goðsins
n Gítargoðið Eric Clapton hef-
ur undanfarin ár veitt lax úr Laxá
á Ásum en sýnir nú stórlöxum í
Vatnsdalsá meiri
áhuga. Clapton
hefur dvalið á
Íslandi undan-
farna daga og
borðaði hann
meðal annars á
Hamborgarafa-
brikku Simma og
og Jóa síðastlið-
inn mánudag. DV.is greindi svo frá
því að hann hafi gist á Hótel Holti
þó það hafi ekki fengist staðfest. En
við komu hans nú til landsins rifjast
upp saga af Clapton þar sem hann
sat með veiðifélögum sínum á hóteli
á Blönduósi fyrir nokkrum árum
eftir vel heppnaðan dag á bökkum
Laxár. Piltur á táningsaldri bankaði
upp á með gítarinn sinn og bað goð-
ið um að rita nafn sitt á hann. Clap-
ton vildi verða við því gegn því að fá
gítarinn lánaðan eina kvöldstund
og var það auðsótt. Sagan segir að
hann hafi leikið sínar helstu ballöð-
ur á þesum einkatónleikum og verið
í miðju lagi þegar gall í leigutaka
árinnar: Háttatími, upp klukkan 7 í
fyrramálið!
röng gagnrýni?
n Margt hefur verið rætt um hæfni
Runólfs Ágústssonar til að gegna
starfi umboðsmanns skuldara sem
hann gegndi á
endanum í einn
dag eða svo. Víst
er að hann er
vel menntaður
og með mikla
reynslu, meðal
annars af því að
koma á fót starf-
hæfum eining-
um hratt og örugglega. Enda skoraði
hann ögn hærra á hæfnisprófi en
keppinauturinn Ásta Sigrún Helga-
dóttir. Þjóðfélagsrýnir vildi vekja
athygli DV á að lítið væri gefandi
fyrir umræðuna um flokksböndin
og skuldir Runólfs. Alvarlegra væri
að hann safnaði fé og stýrði háskóla
á Bifröst sem lét undir höfuð leggjast
að stunda gagnrýna fræðimennsku í
aðdraganda hrunsins.
öngstrætið
n Stjórnvöld virðast komin í öng-
stræti með hvert málið á fætur
öðru. Guð-
mundur Ólafs-
son hagfræð-
ingur er meðal
þeirra sem bent
hefur á hversu
veik ríkisstjórn-
in sé og þurfi í
sífellu að stilla
til friðar við
villta vinstrið sem fylgi eftir and-
stöðunni við Samfylkinguna af
meiri festu en rótgróinni andstöðu
sinni við vonda kapítalista og Sjálf-
stæðisflokkinn. Nefndarskipun
stjórnvalda til að rýna í Magma-
málið með hraði þykir dæmi um
auðsveipnina við villta vinstrið
þegar í rauninni sé einfaldara að
komast að því að Lilja Mósesdóttir,
Atli Gíslason, Guðfríður Lilja Grét-
arsdóttir og fáeinir aðrir þingmenn
VG vilja yfirhöfuð ekki nýta orku-
lindir á Suðurnesjum.
sandkorn
8 fréttir 6. ágúst 2010 föstudagur
Rúmteppi
• Tvær stærðir. 6 teg - 6 litir
• Létt og meðfærileg rúmteppi.
• Hægt að nota báðum megin.
• 2 stk púðaver fylgja.
• Má þvo í þvottavél.
TILBOÐSVERÐ aðeins kr. 15.995.-
Verum vinir ÚTSÖLULOK Full búð af flottum nýjum vörum á TILBOÐSVERÐI 20%
Rúmföt 20 teg.Opera
K r i n g l u n n i - S í m i : 5 6 8 9 9 5 5
40
ára
Vörur á verði fyrir þig
25%
Palio
Fusion
Invino
Trix
18 kristalsglös í gjafakassa
6 stk kampavín
6 stk rauðvín
6 stk hvítvín
Verð aðeins frá kr. 13.500.-
Aria
fimmtudag til sunnudags - öll glös á TILBOÐSVERÐI
Margrét Sverrisdóttir, fulltrúi í fram-
kvæmdastjórn Samfylkingarinn-
ar, hefur farið fram á fjárnám hjá
Frjálslynda flokknum. Þar gegndi
hún embætti framkvæmdastjóra um
nokkurt skeið og snýr fjárnámskraf-
an að ógreiddum launum upp á eina
milljón með vöxtum.
Árið 2007 hætti Margrét í fússi
hjá flokknum og sagði upp starfi
sínu sem framkvæmdastjóri hans.
Skömmu áður hafði hún verið í laun-
uðu leyfi sem slíkur áður en til að-
alfundar flokksins kom og fyrir þá
mánuði reynir Margrét nú að sækja
laun. Vangoldnu launin hafði Hér-
aðsdómur Reykjavíkur dæmt Frjáls-
lynda flokkinn til að greiða en þau
hafa enn ekki verið greidd. Margrét
segir fjárnámskröfuna því vera neyð-
arúrræði.
Réttlætismál
„Ég hef svo sem ekki verið að reikna
með þessum aurum því flokkurinn
hefur ekki sýnt neinn lit til að gera
þetta upp. Ég á inni vangoldin laun
frá sínum tíma og í mínum huga er
þetta réttlætismál,“ segir Margrét.
Margrét segist leið yfir því að
þurfa að krefjast fjárnáms en þess
þurfi hún einfaldlega þar sem for-
svarsmenn Frjálslynda flokksins hafi
ekki sýnt sóma sinn í að borga henni
vangoldin laun. Hún ítrekar að dóm-
stólar hafi dæmt í þá veru að flokkn-
um beri að greiða henni þessi laun.
„Auðvitað finnst mér það ómerkilegt
að flokkurinn skuli ekki bregðast bet-
ur við. Mér finnst það stórmál að ein-
staklingur þurfi að fara svona fram
gegn flokknum. Þrátt fyrir þennan
dóm hefur ekkert komið og þessi
fjárnámskrafa var bara næsta rök-
rétta skref. Engu að síður geri ég mér
engar sérstakar væntingar um að ná
þessu í gegn,“ segir Margrét.
Byggt á misskilningi
Aðspurður hafði Sigurjón Þórðar-
son, formaður Frjálslynda flokks-
ins, ekki heyrt af fjárnámskröfunni
þegar blaðamaður DV bar málið
undir hann. Hann telur hana vera
á misskilningi byggða þar sem
krafan snúi einkum að húseign
sem flokkurinn eigi ekki í dag. „Þú
segir mér fréttir en ég er kannski
ekkert endilega hissa. Eftir því sem
ég best veit þá er fjárnámið í hús-
næði sem flokkurinn er búinn að
selja. Því held ég að krafan sé á mis-
skilningi byggð,“ segir Sigurjón.
„Við erum öll af vilja gerð en höf-
um því miður takmarkaða fjármuni
úr að spila. Uppgjör Reykjavíkur-
borgar við flokkinn hefur tafist en
væri það komið hefðum við
rýmra svig-
rúm til að
gera upp
við Mar-
gréti. Ef
borgin
stæði
við sitt
gæt-
um við
staðið við
okkar.“
Margrét Sverrisdóttir, fulltrúi í framkvæmdastjórn Samfylking-
arinnar, hefur krafist fjárnáms hjá Frjálslynda flokknum, fyrrver-
andi vinnuveitenda sínum. Kröfuna segir hún vera neyðarúrræði
þar sem flokkurinn greiði ekki launin þrátt fyrir dómsúrskurð.
Formaður flokksins, Sigurjón Þórðarson, bíður eftir aurum til að
gera upp við Margréti.
Krefst fjárnáms hjá
frjálslynda floKKnum
tRAuSti HAfStEinSSon
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Þú segir mér frétt-ir en ég er kannski
ekkert endilega hissa.
Bíður uppgjörs Sigurjónbíðureftir
uppgjörihjáReykjavíkurborgogvonastþá
tilaðgetagertuppviðMargréti.
Vill launin Margrét
segirfjárnámskröfuna
neyðarúrræðienásama
tímaséþaðréttlætismál
aðfálauninsíngreidd.