Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2010, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2010, Qupperneq 21
föstudagur 6. ágúst 2010 fréttir 21 það, en þetta er fyrsta sumarið sem dóttir mín, sextán ára, er á sjón- um,“ segir Guðbjörg. „Ívar Bjarki ætlar að verða sjómaður eins og pabbi sinn – þetta á vel við hann eins og flesta stráka hér í Grímsey,“ segir Guðbjörg og hún bætir því við að í eynni hjálpist allir að við að vinna verkin og leysa vandamál komi þau upp. Upprennandi sjóarar Adam Helgi Jóhannesson er einn þeirra stráka sem er að koma af sjónum með pabba sínum – hann er fjórtán ára. „Það er bara ótrú- lega gaman á sjónum. Þetta er bara lífið því fuglalífið er fjölbreytt og svo þegar síldin er úti um allt þá er höfrungurinn syndandi í kring- um bátana,“ segir Adam en þrett- án ára gamall fór hann að vera allt sumarið á sjó með pabba sínum. „Ég fór eiginlega fyrst sex ára út á sjó og hef ætlað að verða sjómað- ur síðan þá,“ segir Adam en bróðir hans Henning, sem er átta ára, ætl- ar einnig að verða sjómaður. „Ég held það nú,“ segir Henning og þeir bræður verða ekki tafðir frekar því það er kominn kaffitími. Leikir á bryggjunni Strákarnir í Grímsey lifa í náinni snertingu við náttúruna og leikirn- ir sem þeir stunda eru margvísleg- ir. Fátt þykir þó skemmtilegra en að stökkva út í ískaldann sjóinn. Það er enginn maður með mönnum nema hann stökkvi. „Við erum að fara að stökkva,“ heyrist öskrað og þar eru Ægir Davíð og Guðjón vin- ur hans fremstir í flokki. „Þetta er ekkert mál,“ segir Ægir og þar með var hann stokkinn. Sjórinn er kald- ur og þegar hann skríður upp á ka- jann öskrar hann: „Djöfull er þetta kalt maður,“ og í sama streng tekur Guðjón vinur hans sem býr í Vest- mannaeyjum en finnst fátt betra en að vera í Grímsey. Stokkið á múkka Stuttu síðar kemur Ívar Bjarki sem þá er nýkominn af sjónum með pabba sínum. „Hey strákar má ég fá smá slor,“ spyr hann strákana í aðgerðinni. „Jú, náðu þér í eitthvað en ekki taka lifrina,“ segja strákarn- ir. Ívar læðir höndinni ofan í slor- dallinn, en nælir sér engu að síð- ur í eina væna lifur. Hann ætlar að stökkva á múkka. „Ég ætla ekkert að drepa hann – bara bregða honum smá,“ segir Ívar en leikurinn geng- ur út á að lifrinni er hent út á sjó – múkkinn tryllist og ræðst á hana – og þá stökkva strákarnir og reyna að ná einum. „Oj, hann ældi á þig,“ heyrist hrópað af bryggjunni: „Mér er alveg sama,“ öskrar Ívar Bjarki á móti. Þarna á bryggjunni mátti sjá upprennandi kynslóð sjómanna sem síðar á lífsleiðinni eiga eftir að hitta aðkomumenn í eynni og segja þeim sjóarasögur og örugglega gagnrýna Hafrannsóknarstofnun. Snemma beygist krókurinn Hafþór Andri Sigrúnarson er ný- orðinn þrettán ára og hann vinnur við að þræða króka á stokk. „Ég er að taka svona sex stokka á dag sem eru sirka þrír balar,“ segir Hafþór en hann býr á Akureyri og kemur til Grímseyjar til að vinna á sumr- in. „Það er ágætiskaup í þessu,“ segir hann og hefur engan tíma til að spjalla. Fyrir aftan hann er Ola Alexandra að þræða á stokka. Hún er pólsk og hefur verið á Íslandi í tvö og hálft ár. „Ég er búin að búa hér í Grímsey í níu mánuði og hér líkar mér vel. Hér eru allir eins og ein stór fjölskylda og allir þekkja alla. Og meira að segja ég þekki alla hér. Það er bara gott að vera hérna,“ segir Ola en auk hennar eru tveir pólskir karlmenn einnig í Gríms- ey við störf. „Ég bara vona að ég geti verið hér áfram,“ segir Ola um leið og hún réttir boginn krók sem þræddur verður upp á stokkinn. Búðin í Grímsey Verslunin í Grímsey ber ekki flókið nafn. Hún heitir einfaldlega Búð- in í Grímsey. Í henni ræður Anna María Sigvaldadóttir ríkjum, en hún kom fyrst til Grímseyjar til að hjálpa föður sínum að kenna dans í fimm daga. Stuttu síðar var hún flutt í eyna. „Ég er búin að vera hérna í tuttugu ár og líkar mjög vel. Ég myndi aldrei vilja búa í Reykja- vík – aldrei,“ segir Anna María en í búðinni eru póstkassar eyjar- skeggja. „Pósturinn er settur í hólf- in hérna á veggnum og svo koma íbúarnir að ná í hann hingað. Þetta er allt mjög heimilislegt.“  Himmelblå Í vetur var norski sjónvarpsþátt- urinn Himmelblå á dagskrá Rík- issjónvarpsins þar sem fylgst var með lífi norskra eyjarskeggja. Margar kvennanna í Grímsey horfðu á þættina og fannst þeir góðir. „Jú það er margt sem er líkt með okkar lífi hér í Grímsey og í þessum norsku þáttum. Það voru margir sem fylgdust með þeim,“ segir ung kona og vinkona henn- ar bætir við: „Í þáttunum voru að koma upp alls kyns vandamál og smáerjur. Það gerist líka í Grímsey en málin leysast alltaf.“ Stelpurnar ánægðar Júlía Ósk Ólafsdóttir og Valgerð- ur Halldórsdóttir eru báðar sautj- án ára og þær vinna báðar í salt- fiski hjá Sigurbirni ehf. Þær búa báðar í Reykjavík á vetrum en koma til Grímseyjar hvert sumar til að vinna. „Það er bara öðruvísi að vera hér en í Reykjavík. Maður gerir hluti hér sem maður myndi aldrei gera fyrir sunnan og mað- ur er meira frjáls,“ segja þær og það er nóg við að vera fyrir ungt fólk í Grímsey. „Við vinnum alla virka daga en reynum um helgar að gera eitthvað. Eins og til dæm- is um síðustu helgi þá fórum við með nokkrum stelpum til að tjalda upp á ey og það var mjög gaman. Svo ef það er gott veður þá förum við stundum á báti út í Básavík þar sem er sandfjara og þar liggjum við í sólbaði þegar það er gott veður,“ „Bara gott að vera hérna“ Ég er mjög feg-inn að vera laus úr stressinu í Reykjavík og mér líður mjög vel hér. framhald á næstu sÍÐu Upprennandi sjómenn Bræðurnir Adam Helgi og Henning Jóhannessynir ætla báðir að verða sjómenn. Adam var að koma úr túr með pabba sínum. myndir jóHanneS kr. Þræðir í rekka Hafþór Andri þræðir sex rekka á dag. Það jafngildir um þremur bölum af línu. Hafþór býr á Akureyri en kemur til Grímseyjar til að vinna. Stekkur í sjóinn Ívar Bjarki er hraustur. Hann stundar sjóinn og stekkur í sjóinn til að ná múkka.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.