Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2010, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2010, Side 24
24 erlent 6. ágúst 2010 FÖSTUDAGUR Á meðan Bandaríkjamaðurinn Bradley Birkenfeld starfaði sem millistjórnandi í svissnesku banka- samsteypunni UBS varð hann inn- anbúðarmaður í hinni leynilegu veröld bankastarfseminnar í Sviss. Árið 2007 greindi hann bandarísk- um yfirvöldum frá kerfisbundn- um skattsvikum í UBS þar sem ríkir Bandaríkjamenn földu háar upp- hæðir í skjóli svissneskrar banka- leyndar. Uppljóstranir hans sviptu á endanum hulunni af gríðarstórum vef alþjóðlegra skattsvika þar sem milljörðum Bandaríkjadala er kom- ið undan. Uppljóstranir hafa orð- ið tilefni umfangsmikilla lögreglu- rannsókna um allan heim, sem ekki sér fyrir endann á, og hafa valdið breyttu hugarfari hjá æðstu valda- mönnum heims í garð skattaskjóla. Þrátt fyrir að hafa af sjálfsdáðum leitað til yfirvalda og veitt þeim yf- irgripsmikla aðstoð, er Birkenfeld eini Bandaríkjamaðurinn sem hef- ur verið dæmdur í fangelsi vegna þessa hneykslis. Vefritið Global Post birti í gær ítarlega grein um Birkenfeld og ástæður þess að hann situr í stein- inum. Í viðtölum við Global Post segir hann frá hinni furðulegu ver- öld hinnar goðsagnakenndu svissn- esku bankaleyndar. Hafði aðgang að miklum leyndarmálum „Ég réðist á stærsta banka veraldar og hafði betur, og ég réðist á valda- mestu menn veraldar og ljóstraði upp um spillingu þeirra, og mér er launað með fangelsisvist. Þrátt fyrir það myndi ég samt endurtaka leik- inn,“ sagði Birkenfeld, sem nú sit- ur í hinu rammgirta Schuylkill-al- ríkisfangelsi í Pennsylvaníu-fylki í Bandaríkjunum, í samtali við Mic- hael Bronner, blaðamann Global Post, rétt áður en hann hóf fangels- isvist sína í janúar á þessu ári. Birkenfeld er fæddur í Boston í Bandaríkjunum og var hálaunaður bankastarfsmaður í áratugi, síðast hjá UBS í Sviss. Þar hafði hann að- gang að upplýsingum sem yfirvöld í Bandaríkjunum gátu varla leyft sé að dreyma um þrátt fyrir að þau hafi í áratugi reynt að þefa uppi fjármuni sem hryðjuverkamenn, einræðis- herrar, vopnasalar, mafíuforingjar og fjárglæframenn höfðu falið kirfi- lega á bankareikningum í Sviss. Eltu uppi ríkt fólk í Bandaríkjunum Birkenfeld annaðist einkabanka- þjónustu fyrir auðmenn hjá UBS. Starf hans fólst meðal annars í að umgangast auðugasta fólk heims og sannfæra það um að flytja við- skipti sín yfir til UBS. „Við beindum sjónum okkar að þeim sem búsett- ir voru í Bandaríkjunum – það var markmiðið. Þeir þurftu ekki að vera bandarískir ríkisborgarar – það gat verið Þjóðverji búsettur í New York, eða Ítali í LA, það sáu allir í hendi sér kostina við að skipta við okk- ur,“ sagði Birkenfeld. Hann sóttist, ásamt félögum sínum í UBS, eftir þeim auðmönnum sem þurftu að borga skatta í Bandaríkjunum – og gátu komist hjá því með því að fela peninganna í Sviss. Gamaldags spjaldskrá Hjá UBS eru nöfn viðskiptavinanna og upplýsingar um bankareikninga þeirra geymdar í gagnageymslum í tölvuþjónum á leynilegum stöð- um. Jafnvel þó að bestu tölvuþrjót- ar heims kæmust inn fyrir dyrnar og hefðu bankareikningana fyrir fram- an sig, væri engin leið til þess að samræma gögnin, þar sem tölur og nöfn koma aldrei fyrir saman. En eins furðulega og það hljóm- ar, eru gögnin einnig geymd á list- um sem minna á spjaldskrár á Borg- arbókasafninu í gamla daga. Að morgni hvers vinnudags fór Birken- feld niður í læsta öryggisgeymslu og náði í viðarkassann sinn. Í honum voru spjöld með upplýsingum um viðskiptavini hans. Á hverju spjaldi var prentað nafn, reikningsnúmer, upphæðir og ýmsar aðrar viðkvæm- ar upplýsingar. Sendi yfirvöldum gögnin „Ef ég væri mjög brögðóttur, hefði ég einfaldlega getað rennt kassan- um inn í íþróttatösku, gengið út um dyrnar og stokkið um borð í flug- vél,“ sagði Birkenfeld í viðtalinu við Global Post. En þegar hann fór af stað með uppljóstrun sína í júní 2007, ári eftir að hann sagði upp störfum hjá svissnesku banka- samsteypunni, var hann ekki með spjaldskrána í höndunum held- ur ýmis gögn sem hann hafði tekið með sér heim úr vinnunni á sínum tíma. Það voru tölvupóstar, hand- bækur starfsfólks, glærusýningar og símaskrá sem sýndu vel hvernig skattsvikin voru framkvæmd. Upplýsingarnar sem Bradley Birkinfeld veitti, fyrst dómsmála- ráðuneyti Bandaríkjanna og síðar skattrannsóknaryfirvöldum, fjár- málaráðuneytinu og fleiri stofnun- um vestanhafs, opnuðu flóðgáttir rannsókna á hendur UBS. Tveim- ur árum síðar urðu þær til þess að öll aflandsviðskipti við bandaríska auðmenn hjá UBS hættu og í kjöl- farið fylgdu gríðarlega umfangs- miklar samningaviðræður á milli æðstu ráðamanna Bandaríkjanna og Sviss. Tvö þúsund milljarðar á leynireikningum UBS viðurkenndi að hafa með ásetningi komist fram hjá banda- rískum skattalögum og svikið bandarísk stjórnvöld með því að senda tugi óskráðra bankamanna, Birkenfeld þar á meðal, til Banda- ríkjanna í þúsundir ólöglegra ferða til að auðvelda ríkum auðmönn- um í Bandaríkjunum að svíka und- an skatti. Talið er að bankinn hafi geymt um 20 milljarða Bandaríkja- dala, um 2.300 milljarða íslenskra króna, á leynilegum reikningum viðskiptavina sinna og aflað UBS um 200 milljóna dala á ári í gróða. Bankinn ákvað, til að forðast stefnu fyrir hegningarlagabrot og hugsanlegt gjaldþrot, að greiða bandarískum yfirvöldum 780 millj- ónir daa í sekt. Það sem meira var, bankinn sættist á að láta af hendi til bandarískra skattayfirvalda, nöfn þeirra mörg þúsund bandarískra auðmanna sem falið höfðu pen- HElGi Hrafn GuðmundSSon blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is Ég réðist á stærsta banka veraldar og hafði bet- ur, og ég réðist á valda- mestu menn veraldar og ljóstraði upp um spillingu þeirra, og mér er launað með fangelsisvist. Uppljóstrarinn sem dúsir í steininUm Banki leyndar MótmæltíkjölfaruppljóstranaBirkenfeld.UBS-bankinnáeignir yfireinnibilljónsvissneskrafranka(900milljarðardala,eða114,3billjónirkróna), tvöfaldastærðsvissneskahagkerfisins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.