Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2010, Page 36
36 viðtal 6. ágúst 2010 föstudagur
Ég hef ávallt viljað gera samfélaginu gagn,“ segir Ásta Sigrún Helgadóttir nýskipaður umboðsmaður skuldara. Eins og kunnt er var embætti umboðs-
manns skuldara auglýst til umsóknar í byrjun
sumars. Umsóknarfrestur var settur 12. júlí og
áætlað að starfsemi embættisins hæfist þegar
þann 1. ágúst.
Ástu Sigrúnu Helgadóttur, lögfræðingi og
fyrrverandi forstöðumanni Ráðgjafarstofu um
fjármál heimilanna, var tjáð í lok júlí að Run-
ólfur Ágústsson hefði hlotið stöðuna. Þau tvö
hefðu úr hópi umsækjanda verið valin hæf en
Runólfur hæfari.
Í ljósi reynslu sinnar og þess að Ásta Sigrún
hefur síðastliðin ár byggt upp starfsemi Ráð-
gjafarstofu á krefjandi tímum ákvað hún að láta
hart mæta hörðu og krafðist rökstuðnings.
Nú nýverið sagðist Árni Páll hafa fyrir ráðn-
ingu Runólfs í stað Ástu Sigrúnar efnisleg rök
og síðar kom fram að þau voru talin vera betri
sýn Runólfs á nýtt embætti auk góðrar frammi-
stöðu hans í starfsviðtali. Í fjölmiðlum voru
einnig bornar á Ástu sögusagnir um að á Ráð-
gjafarstofu væru 850 óafgreiddar umsóknir.
Ásta hefur sagt þessar staðhæfingar rangar.
Runólfur hefur nú stigið til hliðar vegna fjár-
málasögu sinnar eins og DV greindi frá og ráð-
herra hefur skipað Ástu umboðsmann skuld-
ara eftir mikið fjölmiðlafár.
EinbEittur áhugi
„Ég er lögfræðingur að mennt og lauk embætt-
isprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1993
og hóf þá strax störf hjá Félagsþjónustunni í
Reykjavík þar sem ég starfaði sem lögfræðing-
ur fjölskyldudeildar og barnaverndarnefndar
Reykjavíkur. Málaflokkurinn vakti strax með
mér áhuga og ég fann að ég vildi vinna með
fólki að því að bæta félagsstöðu þess. Ég starf-
aði hjá Félagsþjónustunni í nærri 6 ár. Næstu
fjögur árin starfaði ég í félags- og trygginga-
málaráðuneytinu á skrifstofu jafnréttis- og
vinnumála þar sem ég sinnti meðal annars
málefnum innflytjenda og úrskurðaði um ýmis
mál er vörðuðu Félagsþjónustuna. Hjá Ráð-
gjafarstofu um fjármál heimilanna hef ég síð-
an gegnt forstöðu frá árinu 2003 og mér hef-
ur fundist starfið bæði krefjandi og mikilvægt.
Mér finnst brýnt að vinna að greiðsluvanda
fólks vegna þess hve ábatinn er mikill og góð-
ur og skilar sér félagslega og í bættum efnahag.“
hröð uppbygging
og miklar annir
Hvernig var staða Ráðgjafarstofu heimilanna
fyrir hrunið í október 2008 og þróunin næstu
Félags -og tryggingamálaráðherra hefur skipað ástu Sigrúnu helgadóttur lögfræð-
ing umboðsmann skuldara. kristjana guðbrandsdóttir ræddi við Ástu Sigrúnu um
nýliðna atburði, hugsjónir hennar, uppbyggingu Ráðgjafarstofu undanfarin misseri,
líðan skuldsettra fjölskyldna í landinu og nýtt embætti umboðsmanns skuldara.
að minnsta kosti
jafnhæf Runólfi