Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2010, Qupperneq 44
44 sakamál 6. ágúst 2010 föstudagur
DrykkfellDi
hárskerinn
Kanadamaðurinn Gilbert Paul Jordan var þekktur sem drykkfelldi hárskerinn. Hann var talinn raðmorðingi
því hann bendlaðist við dauða átta til tíu kvenna. Hárskerinn var þó aðeins dæmdur fyrir eitt manndráp.
Gilbert Paul Jordan er tal-inn hafa framið svo-nefnd „áfengismorð“ í Vancouver í Bresku Kól-
umbíu í Kanada. Hann bendlaðist
við dauða allt að tíu kvenna og voru
öll fórnarlömb hans frumbyggjakon-
ur sem haldið höfðu til í East Side-
hverfinu í Vancouver. Jordan fann
fórnarlömbin á börum, bauð þeim
drykk eða greiddi þeim fyrir kynlífs-
þjónustu og hvatti þær til að fá sér í
glas með sér. Jordan var hárskeri og
fékk nafngiftina drykkfelldi hársker-
inn vegna drykkjuvenja sinna.
Þegar konurnar liðu út af vegna
ofdrykkju hellti hann áfengi ofan í
þær með þeim afleiðingum að sum-
ar þeirra söfnuðust til forfeðra sinna.
Dánarorsök kvennanna var skráð
áfengiseitrun en lögreglan veitti
dauða þeirra litla athygli því ein-
hverjar þeirra voru þekktir áfengis-
sjúklingar.
Tvöhundruð drykkjufélagar á
ári
Árið 1965 lést Ivy Rose, starfskona
á skiptiborði, eftir að hafa setið að
drykkju í félagsskap Jordans. Rose,
sem var frumbyggjakona, er fyrsta
konan sem vitað er til að hafi mætt
örlögum sínum á þann hátt. Hún
fannst nakin og látin á hóteli í Van-
couver og mældist áfengismagn í
blóði hennar 0,51 prómill. Engar
kærur voru lagðar fram.
Við réttarhöld yfir Jordan síðar
meir kom í ljós að „hann leitaði ár-
lega félagsskapar um tvö hundruð
kvenna til ofsadrykkju frá 1980 til
1988. Hann sóttist einnig eftir kyn-
ferðislegri fullnægju“. Einnig kom í
ljós að hægt var með sönnunargögn-
um að tengja Jordan við sex aðrar
frumbyggjakonur sem látist höfðu
við svipaðar aðstæður og Ivy Rose
og að hann hefði aukinheldur verið
með sex öðrum konum þegar dauða
þeirra bar að.
Þær voru Mary Johnson, Barbara
Paul, Mary Johns, Patricia Thom-
as, Patricia Andrew og Vera Harry.
Áfengismagn í blóði þeirra mældist
frá 0,04 prómillum í Veru Harry, upp
í 0,79 prómill í Patriciu Andrew.
Dauði við Niagara-fossa
Þann 12. október 1987 fannst Van-
essa Lee Buckner nakin og látin á
gólfi herbergis á Niagara-hótelinu,
eftir að hún hafði setið að drykkju
með Jordan. Ýmislegt er á reiki hvað
varðar Vanessu og heimildum ber
ekki saman því samkvæmt sumum
var hún ekki frumbyggjakona held-
ur hvít, hvorki drykkjumanneskja né
vændiskona.
Hvað sem því líður segir í opin-
berum gögnum að dauði hennar hafi
verið afleiðing þess að Jordan hafi
„útvegað áfengissjúkri konu ban-
vænt magn áfengis, og hún hafi dáið
af völdum þess.“
Vanessa hafði nýlega misst for-
ræði yfir nýfæddu barni sínu sem
hafði fæðst með lyfjafíkn og í opin-
berum gögnum segir ennfremur um
Vanessu að hún hafi „verið áfengis-
sjúklingur og neytt ýmissa lyfja.“
Jordan settur undir eftirlit
Mánuði eftir dauða Vanessu fannst
önnur kona, Edna Shade, látin á
hóteli. Á vettvangi fundust fingraför
Jord ans sem tengdu hann með bein-
um hætti við dauða Vanessu Buckn-
er .
Jordan var þó ekki ákærður fyrir
neitt varðandi dauða Vanessu eftir
að hann var yfirheyrður. En lögregl-
an ákvað að gefa honum nánari gæt-
ur.
Frá 12. nóvember til 26. nóvem-
ber 1987 fylgdist lögreglan með Jorð-
an þegar hann leitaði frumbyggja-
kvenna í skítugum skúmaskotum
Vancouver. Í fjögur skipti kom lög-
reglan konum til bjargar áður en í
óefni var komið.
Samkvæmt dómskjölum heyrði
lögreglan sem lá á hleri fyrir utan
hótelherbergin orðaskipti á borð við:
„Fáð’ér sjúss. Slokaðu þessu niður
gæskan, 20 dalir ef þú klárar það; sjá-
um hvort þú ert alvöru kona; kláraðu
drykkinn; ég skal gefa þér 50 dali ef
þú þolir það.“ Og þar fram eftir göt-
unum.
Framburður lögreglunnar var
mikilvægur við réttarhöldin yfir Jord-
an árið 1988. Hann var fundinn sek-
ur um manndráp í tilviki Vanessu
Buckner og dæmdur til fimmtán ára
fangelsisvistar. Dómurinn var síðan
styttur í níu ár eftir áfrýjun.
Ákæra á ákæru ofan
Jordan afplánaði sex ár og fékk lausn
á skilorði sem bannaði honum að yf-
irgefa Vancouver Island. Í júní árið
2000 hafði hann verið ákærður fyrir
kynferðislega árás, líkamsárás, van-
rækslu sem olli líkamstjóni og fyrir
að veita áfengi. Hann reyndi árang-
urslaust að breyta nafni sínu í Paul
Pierce.
Jordan var handtekinn árið 2002
fyrir brot á skilorði eftir að hann var
staðinn að drykkju í návist konu.
Hann var dæmdur til fimmtán mán-
aða fangelsis og fékk að auki þriggja
ára skilorðsbundinn dóm.
Enn og aftur var hann hand-
tekinn árið 2004 eftir að hann var
gripinn glóðvolgur við ofsadrykkju
í félagsskap konu að nafni Barb
Burkley . Vinkona Barb kom henni
undir læknishendur og bar kennsl
á Jordan sem drykkjufélaga hennar.
Jordan var þó sýknaður af ákærum í
því tilfelli, en lögreglan brá á það ráð
að gefa út almenna viðvörun vegna
hans.
Gilbert Paul Jordan safnaðist til
feðra sinn árið 2006.
Fáð’ér sjúss. Slokaðu þessu niður gæskan, 20 dalir ef þú klárar það; sjáum hvort þú
ert alvöru kona; kláraðu drykkinn; ég skal gefa
þér 50 dali ef þú þolir það.
Drekkti konum í
áfengi Fórnarlömb
Gilberts Jordan voru
nánast eingöngu
frumbyggjakonur í
Vancouver.