Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2010, Qupperneq 48

Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2010, Qupperneq 48
48 útlit umsjón: viktoría hermannsdóttir viktoria@dv.is 6. ágúst 2010 föstudagur Við byrjuðum með þetta „concept“ í febrúar, það er Sir Hákon, endurunnar vörur. Þetta er allt saumað upp úr gömlu efni og gömlum flíkum með það að leiðarljósi að við séum umhverfisvæn. Við erum að nota það sem til er. Ég hef alltaf spáð mik- ið í endurnýtingu. Endurnýting heill- ar mig mjög,“ segir Hákon, en hann mun hefja sína fyrstu önn í fatahönn- un í Listaháskólanum í haust. „Það er gaman að vinna með þessi efni því þau eru takmörkuð. Þú hefur ekki al- veg frjálsar hendur til að gera hvað sem er og þarft að beita þér svolít- ið til að vera bæði skapandi og beita markvissri hugsun á hvað þú getur gert mikið úr efninu.“ herbergið leit út eins og byggðasafn Hákon segist alltaf hafa haft gaman af gömlum hlutum. „Það er einhver væntumþykja sem ég ber til gam- alla hluta. Mér finnst vont þegar ég sé að hlutum sem eiga sér sögu og eru gerðir til að endast er hent. Ég veit ekki hvaðan þessi áhugi kemur en ég veit bara að ég var örugglega ekki nema fimm ára þegar ég byrj- aði að skrifa niður alla hluti sem ég átti og hvaðan þeir komu. Ég var al- veg óþolandi barn með það. Það var ekki hægt að fara með mig í göngu- túra eða bara eitthvað út því ef ég sá eitthvað gamalt þá þurfti ég alltaf að hirða það. Herbergið mitt leit út eins og byggðasafn þegar ég var krakki.“ samvinnuverkefni með reyndri saumakonu Hugmyndin að baki Sir Hákon er komin frá Hákoni sjálfum en hann fékk í lið með sér reynda sauma- konu til að sjá um saumaskapinn. „Ég byrjaði að sauma af viti þegar ég var að gera umsóknina fyrir Listahá- skólann. Það sem ég er að gera núna er samvinnuverkefni mín og Önnu Gunnarsdóttur saumakonu. Okkur var komið í samband hvoru við ann- að, við höfum sameiginlegan áhuga á þessu og tókum höndum saman og fórum að gera Sir Hákon „concept“- ið,“ segir Hákon en að hans sögn gengur samstarfið ljómandi vel. „Ég sé um hönnunina og hún um sauma- skapinn. Það er alveg „brilliant“ fyr- irkomulag að vera með konu sem hefur svona mikla reynslu í sauma- skap. Hún er mjög tæknileg og út- sjónarsöm og getur náð sem mestu út úr hverju og einu.“ En þegar unnið er með efni úr gömlum flíkum skipt- ir miklu máli að geta nýtt efnið sem best. Undir álfasöguáhrifum „Innblásturinn kemur aðallega úr íslenskum þjóðsögum, sérstaklega álfasögum. Þetta er svolítið úr þess- um þjóðsagnaheimi, svona nostalg- ísku umhverfi,“ segir Hákon dreym- inn á svip. „Það er mjög mikið um blúndur og satín og alls konar tjull.“ Hákon segir markhópinn vera fólk á öllum aldri, sem þorir. „Mark- hópurinn okkar er í rauninni þó nokkuð dreifður. Við erum með rosa- lega klassískar flíkur sem geta bæði gengið á ungar stelpur og fullorðn- ar konur. Við erum líka með föt fyrir karlmenn,“ segir hann og vill meina að karlmenn mættu vera djarfari í fatavali. „Þeir þurfa að vera svolítið ögrandi. Við erum með jakka, legg- ings, slaufur og eitt og annað fyrir karla. Það þarf dálítið sterkan karl- mann til að ganga í fötunum okkar,“ segir Hákon og glottir. „Það er í raun ekki spurning um aldurinn hjá okk- ur heldur um „attitude“. Þetta eru allt svolítið sterkar týpur sem ganga í fötunum okkar. Þú þarft að hafa ein- hvern eld í brjóstinu.“ hver flík einstök Hákon segir þau leggja mikið upp úr því að hver flík sé einstök. „Það eru engar tvær flíkur eins. Hver ein- asta flík er einstök og það er líka það skemmtilega við endurvinnsl- una að þú færð bara að búa til eitt af hverju. Það er mjög fínt fyrir svona lítinn markað eins og á Íslandi. Þótt kannski séu tuttugu flíkur unnar úr sömu hugmyndinni þá eru engar tvær eins. Það eru öðruvísi litir eða mynstur eða eitthvað þannig og þú átt alltaf þína flík einn.“ dýrt að endurnýta Efnið kemur hvaðanæva af og hann reynir að leita eftir gömlum, góðum efnum. „Við höfum fengið efnin gef- ins og tökum á móti fatasendingum á vinnustofunni alla daga. Það hef- ur í raun verið nóg fyrir okkur en auk þess förum við í Rauða krossinn, Hjálpræðisherinn og þessar búðir og kaupum gamlar flíkur. Þá erum við að spá í að efnin séu góð og það sé ekki búið að sauma of mikið í þau. Það skiptir máli hversu stór flíkin er og hversu miklu efni við náum út úr henni. Þó að maður myndi sjálfkrafa álykta að það væri ódýrara að búa til endurnýttar flíkur vegna þess að efn- iskostnaðurinn er ekki mikill þá er það aftur á móti margfalt dýrara því það er mikil vinna að rekja upp flík- urnar og ná sem mestu út úr efninu. Þannig að við höfum farið eftir því hvort flíkin er úr mjög góðu efni og saumaskapurinn frekar einfaldur og að það sé þá fljótlegt fyrir okkur að ná saumunum úr.“ Frábærar viðtökur Hákon segir viðtökurnar hafa verið mjög góðar. „Það er búið að ganga mjög vel. Miklu betur en við hefðum nokkurn tímann þorað að vona. Við byrjuðum bara í 20 fermetra pínu- litlu iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði og sprengdum það utan af okkur á svona mánuði. Þá komum við hing- að niður í bæ og það hefur geng- ið ljómandi vel.“ En vinnustofan er staðsett að Smiðjustíg 10 í miðbæ Reykjavíkur. Einnig er hægt að nálg- ast vörur á góðviðrisdögum á Lauga- veginum þar sem Hákon stendur við hliðina á kaffihúsinu Hemma og Valda og selur flíkur. „Við erum opin vinnustofa en ekki verslun. Við erum með smá sýningaaðstöðu og það er alveg ótrúlegt hvað hefur gengið vel. Við höfum fengið alveg frábærar við- tökur.“ vöfflur og kaffi á Gay Pride Hákon er mikill smekkmaður og fatahönnun er ekki það eina sem hann gerir. Hann hefur líka verið að hanna kökudiska, svokallaða turna, úr gömlu leirtaui. Leirtauið er úr kaffihúsinu Frú Lúlú sem hann rak til skamms tíma á Neskaupsstað. „Ég hef alltaf verið hrifinn af postulíni,“ segir hann og skellir upp úr. Reynsl- an af kaffihúsarekstrinum kemur sér vel fyrir hann um helgina því þau ætla að bjóða upp á vöfflur og kaffi í vinnustofunni á laugardaginn. „Um helgina verður opið hjá okkur eftir að dagskránni á Gay Pride-sviðinu lýk- ur. Þá ætlum við að bjóða upp á vöffl- ur og kaffi fyrir þá sem verða hrakt- ir og kaldir eftir gönguna. Fólk getur þá komið hingað til okkar og hlýjað sér og kíkt á fötin í leiðinni. Það eru allir velkomnir,“ segir þessi ungi upp- rennandi hönnuður brosandi að lok- um. viktoria@dv.is hákon hildibrand er hönnuðurinn að baki línunni Sir Hákon. Flíkurnar eru saumaðar upp úr gömlum fötum og gömlu efni. Há- kon leggur mikið upp úr endurvinnslu og að hver flík sé einstök. föt fyrir fólk með eld í brjósti Í anda Grease Tíska sem kennd er við mynd- ina Grease mun ryðja sér til rúms í haust. Ökklasíð pils, væmnar prjónapeysur, há tögl, hælaskór og flatbotna skór í anda sjötta áratugarins munu verða áberandi þegar fer að hausta. Grease-tísk- an er frekar sæt og góð, kannski örlítið væmin á köflum. Pilsin eru í sídd sem langt er síðan var í tísku en er skemmtileg tilbreyt- ing. Prjónapeysur með stuttum ermum eða hálfermum gætu líka orðið vinsælar. Fylgihlutir í anda sjötta áratugarins munu líka skjóta upp kollinum. Kow hættir Hönnunarbúðin Kow mun senn hætta rekstri. Kow sel- ur hönnun eftir Kolbrúnu Ýr Gunnarsdóttur sem var annar hönnuður KVK-merkisins. Kol- brún hyggst leita á ný ævintýra- mið og hætta með búðina um sinn. Kow verður opin út ág- úst og því um að gera að kíkja við síðustu dagana. Kow-vörur munu þó enn um sinn verða fá- anlegar á netinu á vefsíðunni kow.is og á Facebook. Fata- markaður Fatahönnuðurinn Ágústa Hera Harðardóttir ætlar ásamt vin- konum sínum, Loru og Kötlu, að halda fatamarkað um helg- ina. Þær stöllur eiga víst fjöldann allan af fötum sem þær ætla að selja og mun kenna ýmissa grasa á markaðinum. Notuð föt, ný föt, merkjavara og fleira skemmti- legt. Markaðurinn verður í garð- inum að Laugavegi 52 á milli klukkan 12.00 og 17.00. m yn d r ó b er t re yn is so n
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.