Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2010, Qupperneq 62
Dóttir Hemma Gunn, Edda Hermanns-
dóttir, er samkvæmt heimildum DV líkleg
sem næsti spyrill Gettu betur-keppninn-
ar. Eva María Jónsdóttir hefur verið spyr-
ill undanfarin ár en er nú í barneignar-
fríi. Ljóst er að ekki verður létt verk að
taka við af Evu Maríu enda er hún ein
vinsælasta sjónvarpskona landsins.
Edda hefur enga reynslu af fjölmiðlum en ætti ekki
að eiga í erfiðleikum með að koma fram ef henni
kippir í kynið enda fjölmiðlun í blóð borin. Hemmi
pabbi hennar hefur í mörg ár verið ein stærsta fjöl-
miðlastjarna okkar Íslendinga og er enn að.
Þegar DV náði tali af Eddu þá vildi hún ekki tjá
sig um málið að svo stöddu. Hún sagði að hún ætti
eftir að fara í lokaprufu og þá myndi skýrast hvort
starfið væri hennar. Edda hefur getið sér góðs orðs
í stúdentapólitíkinni í Háskóla Íslands og leiddi
hún framboðslista Röskvu fyrr á þessu ári. Inni
á framboðssíðu Röskvu kemur fram að Edda sé
nemi í hagfræði ásamt því að vera móðir og eig-
inkona. Það verður spennandi að fylgjast með því
hvort Edda taki við keflinu af föður sínum sem
stjarna í íslensku sjónvarpi.
Dóttir Hemma
Gunn í sjónvarpið
Edda HErmannsdóttir kEmur til grEina sEm spyrill í gEttu bEtur:
62 fólkið 6. ágúst 2010 föstudagur
Gríðarstór grein birtist um ís-
lensku tónlistarkonuna Ólöfu
Arnalds í vefútgáfu Wall Street
Journal á dögunum. Fjallað var
um tónleika hennar í Rockwood
Music Hall í Bandaríkjunum. En
um þessar mundir er Ólöf á ferð
og flugi um heiminn. Margar-
eth Lough höfundur greinarinn-
ar segir hana minna um margt á
Sigur Rós og Björk, og að kominn
sé tími til að nýr íslenskur tónlist-
armaður stígi fram í sviðsljósið.
Hún bætir þó við að þjóðlagatónn
Ólafar sé kærkominn viðbót við
íslenska yfirbragðið og fagnar því
að hún sé ekki jafn tilraunakennd
og fyrrnefndu tónlistarmennirnir.
ólöf
í Wall Street Journal
seabear
til banDa-
ríkjanna
Hljómsveitin Seabear heldur til
Bandaríkjanna í haust á tónleika-
ferðalag. Þar mun hún kynna sína
nýjustu plötu We Built A Fire, sem
gefin er út af Morr Music. Í sum-
ar hefur hljómsveitin ferðast um
Evrópu og því nóg að gera. Meðal
áfangastaða í Bandaríkjunum
má nefna New York, Denver, Salt
Lake City, Seattle, Portland, San
Fransisco og Los Angeles. Seabear
má eiga von á góðum viðtökum
vestra, en lag sveitarinnar Cold
Summer var notað í sjónvarps-
þáttunum Grey‘s Anatomy sem
njóta mikilla vinsælda þar í landi. Þ
ó mikið hafi gengið á hjá grínistanum
Steinþóri Hróari Steinþórssyni, bet-
ur þekktum sem Steinda Jr., á undan-
förnu ári hefur kappinn heldur betur
fundið sér tíma til þess að spila tölvuleiki á net-
inu. Samkvæmt öruggum heimildum DV hef-
ur Steindi spilað leikinn Call of Duty 4: Modern
Warfare 2 í sex daga, fimm klukkustundir og 40
mínútur á netinu, en þessar upplýsingar geta vin-
ir hans á PlayStation-netinu nálgast. Þar með er
ekki talinn sá tími sem hann eyðir í að spila við
tölvuna sjálfa, eða sá tími sem hann notar í að
spila aðra tölvuleiki en þann sem um ræðir. Gerir
það að minnsta kosti tæpar 140 klukkustundir í
það heila, sem verður að teljast ansi vel af sér vik-
ið, miðað við að Steindi sendi frá sér heila sjón-
varpsþáttaseríu, var í auglýsingaherferð og margt
annað tilfallandi á árinu. Call of Duty er skotleik-
ur þar sem leikmenn keppa í tveimur fylkingum
með tilheyrandi vélbyssum, og handsprengju-
vörpum. Hann hefur notið töluverðra vinsælda
og fékk meðal annars fimm stjörnur hér í DV.
Herma heimildir DV að félagi Steinda, Ágúst
Bent Sigbertsson, sem er leikstjóri gamanþátt-
anna Steindinn okkar, sé einnig liðtækur Modern
Warfare-spilari, en þó ekki jafn djarfur og grínist-
inn. Steindi er um þessar mundir staddur á Tene-
rife ásamt þeim Auðuni Blöndal og Sverri Berg-
mann, þar sem hann ætlar að hlaða rafhlöðurnar
fyrir átök komandi vetrar. Fyrir liggur upptaka
annarrar seríu af Steindanum, og jafnvel spilun
tölvuleikja í fleiri hundruð klukkustundir.
grínistinn slakar á í Call of duty 2: modern Warfare:
Steindi Jr.
Búinn að Spila í Sex
daga Samfleytt
Call of Duty
Einn vinsælasti
leikur síðasta árs.
Steindi Jr. og Bent Spila
tölvuleiki eins og meistarar.