Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2010, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2010, Side 6
6 FRÉTTIR 29. október 2010 FÖSTUDAGUR Veikasti þátturinn í skólastarfi Menntaskólans Hraðbrautar eru samskipti skólastjórans, Ólafs H. Johnson, og starfsmanna skólans sem og mikil fjarvera hans frá skólanum meðan á skólastarfinu stendur. Ólaf- ur á hús í Flórída þar sem hann hefur dvalið langdvölum meðan á skólaár- inu stendur, meðal annars um þess- ar mundir. Þetta er meðal þess sem kemur fram í úttekt sem Guðrún Geirsdóttir og Hafdís Ingvarsdóttir unnu fyrir menntamálaráðuneytið. Skýrslan var gerð opinber í vikunni og er aðgengileg á vef menntamálaráðu- neytisins. Mörgu í starfsemi skólans er einnig hælt mjög í úttektinni þannig að það er alls ekki svo að öllu sé ábótavant innan skólans: Inntakið í gagnrýninni snýr nær allt að Ólafi eingöngu. Skól- inn hefur verið nokkuð til umfjöllunar frá því í sumar eftir að DV greindi frá að Ólafur hefði tekið arð og veitt lán út úr skólanum, sem að langmestu leyti er fjármagnaður af íslenska ríkinu og að menntamálaráðuneytið ætlaði að láta Ríkis endurskoðun vinna skýrslu um starfsemi hans. Ólafur var svo gagnrýndur harðlega í skýrslu Ríkis- endurskoðunar fyrir arðgreiðslurnar og lánveitingarnar út úr rekstrarfélagi skólans. Kennararnir lofaðir Meðal þess jákvæða sem fram kem- ur í úttektinni er eftirfarandi niður- staða: „Eins og sjá má að ofansögðu hefur Menntaskólinn Hraðbraut yfir að búa mörgum sterkum þáttum sem eru til fyrirmyndar. Starfsmenn skólans eru mjög metnaðarfull- ir og kappsamir fyrir hönd skólans og nemenda sinna. Þeir eru skipu- lagðir og veita nemendum gott að- hald og eru mjög nálægir og auðvelt er fyrir nemendur að leita til þeirra. Yfir skólanum ríkir dagsdaglega létt andrúmsloft og samskipti nemenda og kennara virðast mjög góð. Sam- skipti nemenda eru mikil og þeim líður yfirleitt vel í skólanum og eru ánægðir með hann.“ Aðstoðarskólastjóri í tvöföldu starfi Í niðurstöðukafla úttektarinnar segir að veikasti þátturinn í skólastarfinu séu samskipti skólastjórans Ólafs og hluta starfsmannanna. „Þau eru það slæm að þau hljóta að setja mark sitt á allt faglegt starf skólans og við verð- ur ekki búið að mati okkar.“ Meðal þess sem minnst er á í skýrslunni er að kennararnir hafi ver- ið ósáttir við fjarveru Ólafs frá skóla- starfinu og telji að hann skipti sér of lítið af starfinu. Þar kemur jafnframt fram að aðstoðarskólastjóri skólans, Jóhanna Magnúsdóttir, hafi í reynd stýrt skólanum að mestu leyti en ekki Ólafur – ef frá eru skilin fjármál skólans. Orðrétt segir um Jóhönnu í úttektinni og er vitnað í nemendur skólans: „Hún er sú sem allir leita til.“ Jóhanna sagði upp störfum í skólan- um fyrr á árinu vegna álags og sam- skiptanna við Ólaf, líkt og segir í úttektinni. Eftir henni er haft í skýrsl- unni að hún hafi eiginlega þurft að gegna tveimur störfum vegna fjar- veru Ólafs sem hún gagnrýndi í út- tektinni. Skólastjórnin gagnrýnd Um fjarveru Ólafs og samskipt- in við kennarana segir meðal ann- ars í skýrslunni: „Fulltrúar kenn- ara telja að skólastjórnun gangi ekki sem skyldi og stjórnkerfi skólans sé meingallað. Skólastjóri er einn eigandi skólans og kennarar hafi þar enga aðkomu. Vinir og vanda- menn skólastjóra myndi stjórn skól- ans. Fulltrúar kennara voru mjög óánægðir með mikla fjarveru skóla- stjóra í vetur og telja hana og af- skiptaleysi skólastjóra hamla eðli- legu skólastarfi og hafa neikvæð áhrif á andrúmsloftið. Hann hafi verið mikið fjarverandi og mjög afskipta- laus.“ Niðurstaðan í úttektinni er því sú, ef svo má segja, að skólinn er lofaður fyrir margt en nær eingöngu það sem Ólafur hefur ekki bein áhrif á, eins og kennsluna og dugnað kennaranna. Á sama tíma snýr helsta gagnrýnin að Ólafi sjálfum og því hvernig hann stýrir skólanum. Þessi gagnrýni bæt- ist því við þá gagnrýni á fjármál skól- ans sem áður kom fram hjá Ríkis- endurskoðun. Hún er sú sem allir leita til.INGI F. VILHJÁLMSSON fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is Menntaskólinn Hraðbraut fær bæði lof og last í úttekt menntamálaráðuneytisins á starfsemi skólans. Lofið fá kennarar skólans en lastið fær eigandi og skóla- stjóri Hraðbrautar, Ólafur Johnson. Ólafur er meðal annars gagnrýndur fyrir fjarveru frá skólans og fyrir stirð sam- skipti við kennarana. Dvelur mikið erlendis Ólafur hefurdvaliðlangdvölumíhúsisínu íFlórídasíðastliðinárogbendahöf- undarúttektarinnaráaðkennarar skólansteljiþaðóheppilegt. HÁSKÓLINN Á AKUREYRI: Facebook truflar „Nemendur eru að trufla kennslu með því að hanga á Facebook,“ segir Jóhanna Guðrún Snæfeld Magn- úsdóttir, formaður Félags stúdenta við Háskólann á Akureyri (FSHA). Stjórn félagsins hefur sent nemend- um skólans tölvupóst þar sem þeir eru hvattir til að draga úr Facebook- notkun sinni í tímum. FSHA átti fund með stjórnendum skólans á dögunum og bar Face- book-notkun nemenda á góma. Í tölvupóstinum til nemenda kemur fram að kennarar hafi kvartað yfir því að nemendur séu að vafra um á netinu í tímum, meðal annars á Facebook og trufli þannig kennsl- una. Þá kom til tals hvort loka ætti á Facebook. „Ef einn nemandi uppfærir stöðu sína þá fara aðrir á Facebook og svara. Þannig myndast umræða og fólk missir einbeitinguna,“ segir Jó- hanna. Aðspurð hvort það komi til álita, að loka á þennan vinsæla vef seg- ir Jóhanna: „Það verður fundur á næstunni og ef þetta lagast ekki þá ætluðu kennarar að bera upp álykt- un um þetta. Hvorki við né stjórn- endur skólans vilja fara þá leið þannig að við ætlum að reyna allt annað fyrst.“ Hannes átti son Hannes Þór Helgason, sem myrtur var á heimili sínu í ágúst, átti árs- gamlan son í Eistlandi. Drengurinn er kominn til Íslands ásamt móður sinni að heimsækja fjölskyldu sína hér á landi. Helgi Vilhjálmsson, faðir Hann- esar Þórs, kveðst vera í sjöunda himni yfir afabarninu, að því er fram kemur á Pressunni. „Þetta er óvænt ljós í myrkrinu. Drengurinn kom með móður sinni síðdegis í gær,“ er haft eftir Helga á síðunni. Litli drengurinn heitir Siim og býr nú ásamt móður sinni hjá fjölskyld- unni hér á landi og er smám saman að kynnast ættingjum sínum. Helgi segir það hafa verið miklar gleði- fréttir þegar í ljós kom nýlega að Hannes Þór ætti barn. Fjölskyldan sé enn að átta sig á þessu en drengur- inn litli sé velkominn í hópinn. Lítið sparast með uppsögnum Búast má við því að fimmta hverj- um starfsmanni Heilbrigðisstofn- unar Vestfjarða verði sagt upp nái niðurskurðartillögur fjármálaráð- herra fram að ganga. Talið er að við það sparist ekki nema um 28 milljónir króna, þrátt fyrir að skera eigi niður um 185 milljónir. Þetta kemur fram í úttekt sem gerð var á efnahags- og samfé- lagslegum áhrifum fyrirhugaðs niðurskurðar á Heilbrigðisstofn- un Vestfjarða. Úttektin var unnin fyrir grasrótarhóp sem kallar sig Heimavarnarliðið. Hluti starfsmanna sem var sagt upp störfum hjá Orkuveitunni í síðustu viku fær eins árs uppsagnarfrest vegna hás starfsaldurs. Að minnsta kosti einn þessara starfsmanna átti aðeins eftir tvö ár í ellilífeyri. Mikill hiti er í starfs- mönnum vegna uppsagnanna og hef- ur það verið gagnrýnt að hátt laun- uðum stjórnendum sé hlíft á kostnað almennra starfsmanna sem hafa sýnt fyrirtækinu tryggð í áratugi. Eiríkur Hjálmarsson, upplýsinga- fulltrúi Orkuveitunnar, staðfestir að nokkrir þeirra sem hafi haft hvað lengstan starfsaldur fái árs uppsagn- arfrest og að veittir verði 100 þúsund króna endurmenntunarstyrkir til allra þeirra sem sagt var upp störfum. „Við fengum ábendingu um að þeir sem ættu eftir að eiga hvað erfiðast með að fóta sig á vinnumarkaði eftir upp- sögn yrðu þeir yngri og þeir eldri. Í kjölfarið var ákveðið að veita endur- menntunarstyrki til að styðja frekar við framgang þeirra á vinnumarkaði. Reiknireglunni sem var beitt hvað varðar lengri uppsagnarfrest er sú að einn aukamánuður bætist við upp- sagnarfrest fyrir hver fimm ár umfram fyrstu fimm árin. 40 ára starfsaldur gefur því rétt á sex auka mánuðum í uppsagnarfrest og bætast þeir á sex mánuði sem tilteknir eru í kjarasamn- ingum.“ Eiríkur segir stjórn fyrirtækisins vita af skiptum skoðunum starfsfólks síns. „Ég efast ekki um það eru margar skoðanir á því hvernig hefði átt að gera hlutina og hvar hefði átt að skera nið- ur. Uppsagnirnar áttu sér náttúrulega nokkurn aðdraganda og það var kom- inn óþreyja og kvíði vegna stöðugrar fjölmiðlaumræðu um uppsagnirnar.“ kristjana@dv.is Hluti fyrrverandi starfsmanna Orkuveitunnar fær árs uppsagnarfrest: Brottreknir fá laun í eitt ár Sársaukafullar uppsagnir EiríkurHjálmarsson,upplýsingafulltrúiOrkuveitunnar, segirstjórninahafafengiðábendinguumaðhugaaðframgangiþeirrayngstuog þeirraelstuávinnumarkaðieftiruppsögn. MYND SIGTRYGGUR ARI ÓLAFUR GAGNRÝNDUR VEGNA FLÓRÍDAFERÐA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.