Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2010, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2010, Qupperneq 16
16 FRÉTTIR 29. október 2010 FÖSTUDAGUR FLÓTTINN UNDAN KRÓNUNNI „Það er ekki hægt að reka fyrirtæki, sem starfa í mörgum löndum, undir gjaldeyrishöftum íslensku krónunnar,“ segir Hilmar Veigar Pétursson, fram- kvæmdastjóri CCP-hugbúnaðarfyrir- tækisins. „Það verður að verða hugar- farsbreyting. Það er ekki hægt að fella gengi fyrir hátæknifyrirtæki og sér- tækar lausnir gagnast þeim ekki,“ seg- ir Hilmar. CCP er með nærri 300 starfsmenn í vinnu hér á landi og fá þeir laun sín greidd í evrum. Stjórnendur íslenskra útflutningsfyrirtækja hafa flutt sig til útlanda og bendir Hilmar á forstjóra Actavis, Össurar og Marels máli sínu til áréttingar. „Þetta sýnir hvernig þunga- miðjan færist hægt og bítandi af landi brott vegna óstöðugleika og seina- gangs.“ Hilmar segir íslensku krónuna flækjast fyrir í rekstri fyrirtækja á Ís- landi. Erfitt sé að gera áætlanir og fyr- irtæki stórtapi á öfgakenndum sveifl- um hennar. „Því ákvað CCP að leggja krónuna niður einhliða í rekstri sín- um,“ segir Hilmar, en hann flutti erindi um krónuna og evruna á hádegisfundi í vikunni. CCP og LÍÚ á sama báti Hilmar segir að starfsmenn CCP fái greitt í evrum inn á gjaldeyrisreikninga í íslenskum bönkum. „Þetta er ekki gert hvernig sem er vegna gjaldeyris- haftanna. Svo taka starfsmenn bara út gjaldeyri og skipta í íslenskar krónur eftir þörfum. Þetta er í rauninni mjög svipað og á við um sjómenn. Þeirra laun eru bundin við erlenda gjald- miðla þótt þeir fái greitt í krónum; afli er seldur á erlendum markaði í evr- um eða öðrum gjaldmiðlum og þeir fá hlut af aflaverðmætinu sem skipt er yfir í krónur á gengi dagsins. Hagsmun- ir okkar eru alveg þeir sömu og útvegs- manna. Skuldir eru í evrum, launin eru í evrum, tekjur eru í evrum og svo fram- vegis. Svona fjarar undan krónunni án þess að stjórnvöld fái rönd við reist.“ Hilmar rifjar upp að hágengi krón- unnar árið 2005 hafi þurrkað út 150 milljóna króna hreinan hagnað fyr- irtækisins. Hann bendir á að ekki sé gefið að CCP verði áfram með höfuð- stöðvar á Íslandi. Stjórnmál í öngstræti Mesta áfall heimila og fyrirtækja fólst í falli krónunnar um og eftir banka- hrunið. Sú mynd er einnig að skýrast að með stórfelldri aukningu útlána í erlendum myntum eða með geng- istryggingum veltu bankar og aðrar fjármálastofnanir áhættunni af geng- ishruni krónunnar yfir á almenna lántakendur og fyrirtæki síðustu árin fyrir bankahrunið. Pólitískar deilur og málaferli vegna gengistrygginga eru bein afleiðing af þeim byrðum sem velt var yfir á herðar almennings og fyrirtækjanna með hrikalegu falli krónunnar gagnvart öðrum gjaldmiðl- um. Þótt afar margir séu þeirrar skoð- unar að langþráðum efnahagslegum stöðugleika verði ekki náð á Íslandi með krónunni bólar lítið á pólitískri einingu um hvert halda skuli til þess að tryggja stöðugleika. Umsókn um aðild að Evrópusambandinu, sem leitt getur til upptöku evrunnar, hefur þvert á móti aukið pólitíska spennu og átök sem birtist meðal annars í flokkadrátt- um á málefnafundi Vinstrihreyfing- arinnar – græns framboðs fyrir viku. Allir stjórnmálaflokkar utan Samfylk- ingarinnar eru klofnir í málinu. Vopn- aglamur heyrist einnig frá hagsmuna- samtökum og þrýstihópum eins og Heimssýn og Sterkara Íslandi. Vandinn á fjármálamarkaði augljós Í tölvupóstum snemma árs 2007, sem DV hefur birt, benti Heiðar Már Guð- jónsson, starfsmaður Novator, þeim Björgólfsfeðgum á mikilvægi þess að Landsbankinn byrjaði að gera reikn- ingsskil sín í evrum en ekki í íslensk- um krónum líkt og verið hafði. Heið- ar Már nefndi að Landsvirkjun hefði nýverið lýst því yfir að bókhald fyrir- tækisins yrði eftirleiðis fært í banda- rískum dollurum. Á Heiðari Má var að skilja að önnur fyrirtæki ættu að gera slíkt hið sama. „Nú er það stað- fest að Landsvirkjun mun færa reikn- ingsskil sín úr ISK yfir í USD á árinu. Það er þá fyrsta ríkisfyrirtæki sögunn- ar sem hafnar ríkisgjaldmiðli, en þeim er nauðugur einn kostur út af erlendri fjármögnun verkefna.“ Þess má geta að stór hluti tekna Landsvirkjunar er í dollurum. Heiðar Már var og er þeirrar skoð- unar að taka beri upp evru einhliða og hefur oftar ein einu sinni rökstutt þá afstöðu sína í ræðu og riti. Vanþroskuð umræða Hörður Arnarson, núverandi forstjóri Landsvirkjunar, talaði fyrir upptöku evru þegar hann var forstjóri Marels. Hann kom fram í Kastljósi Sjónvarps- ins vorið 2008 og gagnrýndi hávaxta- og hágengisstefnu stjórnvalda og Seðlabankans. Marel væri best borgið með því að taka út allan vöxt sinn er- lendis; ójafnvægið hér heima væri of áhættusamt. Hann bætti við að starfs- menn Marels hér á landi væru allt að 150 fleiri ef gengissveiflurnar væru ekki . Þess má geta að aðeins lítill hluti starfsmanna Marels starfar hér á landi og nær allar tekjur fyrirtækisins eru í erlendum gjaldmiðlum. Þann 16. ágúst 2008, skömmu fyr- ir bankahrunið, sagði Edda Rós Karls- dóttir, þá hagfræðingur í greining- ardeild Landsbankans, í viðtali við Markaðinn – viðskiptablað Frétta- blaðsins – að umræðan hér á landi um Evrópusambandið og upptöku evru væri óþroskuð og stór hluti stjórn- málamanna væri á móti hugmynd- inni. „Við þessar aðstæður hljóta bankarnir að skoða allar leiðir til þess að flytja starfsemi sína úr landi, ann- aðhvort með því að færa höfuðstöðv- arnar eða með því að flytja eignir og umsvif yfir í erlend dótturfélög. Það verður ekki bæði sleppt og haldið, því miður.“ Þrúgandi gengisfall krónunnar grefur enn undan tiltrú til gjaldmiðilsins. Meginmark- mið stjórnvalda hefur engu að síður verið að endurreisa hana með gjaldeyrishöftum og liðsinni Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Ís- lensk fyrirtæki, sem starfa á alþjóðamark- aði, hafa ýmsar leiðir til þess að sneiða hjá vanda krónunnar. Fyrirtækið CCP, sem hefur nær allar tekjur sínar í erlendum gjaldmiðlum, greiðir nær 300 starfsmönn- um sínum hér á landi laun í evrum og hef- ur í raun sagt skilið við krónuna. JÓHANN HAUKSSON blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Samfylkinginvill gangaíESBogtaka uppevru–Jóhanna Sigurðardóttirer formaðurflokksins. Framsóknarflokkur- innerekkieinhuga –SigmundurDavíð Gunnlaugsoner formaðurflokksins. Sjálfstæðisflokkurinn erklofinníafstöðutil evrunnar,innanflokks- inserherskáandstaða viðaðildaðESB– BjarniBenediktssoner formaðurflokksins. VGbýrviðdjúpstæðan ágreiningumevruog ESBenhefurviðrað hugmyndirumaðtaka uppnorskakrónu.– SteingrímurJ.Sigfússon erformaðurflokksins. Heimssýn–Ásmund- urEinarDaðason, þingmaðurVG,er formaðurHeimssýnar semberstgegn ESB-aðildogvill haldakrónunni. Óstöðugleikinn sem sjúkdómur HörðurArnarsonernúverandiforstjóri Landsvirkjunar.Hannfullyrtisemfor- stjóriMarelsaðefekkiværifyrirsveiflur krónunnarværustörfinhjáfyrirtækinu 150fleirihérálandi. Fjarar undan krónunni Nærri300starfsmenn CCPáÍslandifálaunsíngreiddíevruminná reikningaííslenskumbönkum,segirHilmar VeigarPétursson,framkvæmdastjóriCCP.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.