Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2010, Qupperneq 34

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2010, Qupperneq 34
34 VIÐTAL 29. október 2010 FÖSTUDAGUR Á kaldasta degi haustsins til þessa stóð skáldkonan Gerður Kristný Guðjóns-dóttir frammi fyrir 50.000 íslenskum konum og las ljóð: Ástin komin með alvæpni drengurinn dró fram sverð hert í hatri skeftið skorið úr grimmd. Mannhaf og slagviðri virtust ekkert á hana fá. Vel pökkuð inn í dúnúlpu og fjólubláa húfu, svo rétt sást í andlitið, stóð hún keik á sviðinu og las upp úr nýjustu bók sinni, Blóðhófni, án þess að fip- ast og hlaut lof í lófa fyrir lesturinn. Þetta er kona með bein í nefinu. Morguninn eftir tekur hún á móti mér á heimili sínu í Skerjafirðinum. Er ég geng upp teppalagðan ganginn virði ég fyrir mér hvert skóparið á fætur öðru. Hér er af nógu að taka og skónum er raðað fallega upp í stiganum. Sjálf er hún í rauðum hælaskóm í dag og ekki nóg með það, í rauðbleikum sokkabuxum við gráan kjól. Þetta er kona í rauðum sokkum. Jafnréttissinni með meiru. Hún tekur á móti mér á stigapallinum og sýn- ir mér vinnuherbergið í forstofunni. Þarna sit- ur hún alla daga og yrkir. Núna er hún að leggja lokahönd á söngleikinn Ballið á Bessastöðum, sem hún á að skila af sér á morgun. Undir glugg- anum stendur skrifborð og bókahillur þekja tvo veggi. Þarna eru ýmsar gersemar eins og kyn- lífsbókin sem Halldór Laxness keypti sem ungur maður úti í Kaupmannahöfn. Hafði hann aðeins strikað undir eina setningu í bókinni, þar sem segir að hver maður sem hefur einu sinni kynnst sælu svipunnar geti ekki verið án hennar þaðan í frá. Hér er líka skissubókin sem Gerður Kristný skrifaði fyrsta uppkastið að Blóðhófni í og teikn- ingar sem fylgja, þar á meðal af gulum, fljúgandi hesti. Og Múmínálfar, sem Gerður Kristný bjarg- aði úr barnaherberginu fyrst synirnir höfðu ekki áhuga. Herbergið er lítið, sem er einn helsti kost- urinn við það. Hér kemst enginn annar að. Það getur enginn tyllt sér til að spjalla. Hér ríkir full- kominn friður. Þannig að þegar Gerður Kristný þarf að einbeita sér gengur hún út af heimilinu og inn í forstofuherbergið og lokar að sér. Sinnir verkum sínum í friði og ró. Þaðan göngum við inn á heimilið og kom- um inn í sjónvarpsholið þar sem eldri sonurinn, Skírnir, situr uppáklæddur í jakka, skyrtu og með slaufu um hálsinn og horfir á Latabæ en við fær- um okkur yfir í stofuna þar sem útsýnið nær all- an fjallahringinn auk þess sem Bessastaðir blasa við handan við sjóinn. MÖGNUÐ UPPLIFUN Gerður Kristný er í skýjunum með gærdaginn. „Það var svo magnað hvað það var vel mætt. Konur létu veðrið ekki á sig fá heldur sýndu samstöðu og styrk. Þetta var ótrúlegt.“ Án þess að hún vissi af því komu Kristján B. Jónasson, eiginmaður hennar, og synirnir, Skírnir og Hjalti, í bæinn í gær til þess að horfa á hana. „Þegar ég var búin að lesa upp birtust þeir allt í einu. Þá höfðu þeir farið ofan í bæ, lagt bílnum og gengið að sviðinu einmitt þeg- ar ég var að fara að hefja lest- urinn. Skírni fannst þetta rosa- lega merkilegt. En ég vissi ekki að þeir ætluðu að vera þarna og fann ekki fyrr en Skírnir kom allt í einu hlaupandi að mér að það skipti mig raunverulegu máli. Mér fannst mikilvægt að þeir sæju mannfjöldann, auk þess sem það er ekki á hverjum degi sem ég les ljóð fyrir 50.000 áheyrendur. Ég hafði ekki lagt á þá að koma því ég vissi ekki hvenær ég færi á svið.“ Eins og hún segir er það vitaskuld afar sjald- gæft að fá að flytja verk sín frammi fyrir svo gríð- arlegum fjölda. „Ég var svolítið hrædd áður en þetta hófst. Ég vissi ekkert hvernig mér myndi líða á sviðinu. Hvort ég kæmi upp orði vegna til- finningaþunga en svo var þetta bara skemmti- legt. Sigrún Pálína var líka dálítið kvíðin að fara á svið en síðan flutti hún ræðuna sína af svo miklum dug. Það minnti mig á það þegar ég var að vinna með Thelmu Ásdísardóttur sem er einmitt líka alltaf full af krafti. Sterkt fólk flytur kraft sinn yfir á okkur hin.“ VANDRÆÐALEGT VERKEFNI Baráttan gegn kynferðisofbeldi hefur lengi verið Gerði Kristnýju hugleikin. Tvær af hennar þekkt- ustu bókum fjalla um þetta málefni, verðlauna- bókin Myndin af pabba – saga Thelmu, sem setti þjóðfélagið á annan endann haustið 2005. Og sú nýjasta, sem hefur fengið margróma lof og fimm stjörnu dóma, ljóðabókin Blóðhófn- ir sem fjallar um jötnameyna Gerði Gymisdóttur sem Skírnir, skósveinn Freys, flutti nauðuga úr Jötunheimum til húsbónda síns. Aðspurð af hverju hún láti sig þetta varða segir hún að það sé vegna þeirra þekkingar sem hún öðlaðist sem blaðamaður. Skilningurinn á fjölmiðlum gagnvart kyn- ferðisglæpum var þó mismikill og eitt verkefnið er henni sérstaklega eftirminnilegt. „Nokkrum árum síðar þegar Stígamótakonur spruttu fram um verslunarmannahelgi var ég farin að vinna á vikublaði. Þar fékk ég það furðulega verkefni að hringja í frægar íslenskar konur og spyrja þær hvort þeim hefði verið nauðgað. Ég sagði frá þessu í hópi kvenna um daginn. Mín saga var á þá leið að ég hefði auðvitað ekki gert þetta og ég var farin að trúa því sjálf en þá stóð ein upp, Ólína Þorvarðardóttir, og sagði: „Jú. Þú hringd- ir í mig.“ Ekki var laust við að ég færi eilítið hjá mér!“ segir Gerður Kristný og hlær. „Minnið kom snögglega aftur og já, andskotinn, ég gerði þetta, varð ég að viðurkenna. Ég hringdi í tvær, þrjár konur og hugsaði svo: „Nei, ég get þetta ekki.“ En ég varð þá að koma með eitthvað á móti og yfir- trompa ritstjórann þannig að ég skottaðist nið- ur á Stígamót og spurði hvort við gætum fund- ið einhvern flöt á umfjöllun um hópnauðganir.“ „ÞÆR FANTASERA UM NAUÐGUN” Í kjölfarið tók hún viðtal við stúlku sem hafði ver- ið hópnauðgað. „Það var mikið grátið og það tók vitaskuld á að heyra stúlkuna segja frá. Ég hefði þurft að vera hoggin úr steini til þess að þetta snerti mig ekki. En inni á ritstjórninni ríkti und- arlegt skilningsleysi. Ég var eina konan þar fyr- ir utan prófarkalesarann og strákunum fannst þetta efni svo sem allt í lagi en þeir voru ekki upp- veðraðir eins og ég. Á þessum tíma virtist enginn annar vera að skrifa um kynferðisglæpi. Um tíma vann ég með blaðamanni sem aldrei mátti heyra minnst á kynferðisglæpi án þess að hann segði að til væru konur sem ættu sér þá fantasíu að láta nauðga sér. Það var svona það helsta sem hann hafði til málanna að leggja.“ Til að komast hjá því að skrifa um fisk, „ég veit svo lítið um bolfiskaflann“, réð gerður sig hjá Fróða árið 1994. Þar hélt hún áfram að skrifa um kynferðislegt ofbeldi. Hún skrifaði til dæm- is grein sem hét Er nauðgun ekki glæpur? „Ég sá skilti í þvögunni í gær þar sem stóð: Er nauðgun ekki ofbeldi? Við erum enn að spyrja að þessu,“ segir hún hugsi. SORGIN ELTIR Árið 1998 varð Gerður Kristný ritstjóri Mannlífs Gerður Kristný Guð- jónsdóttir ræðir um baráttuna gegn kynferð- isofbeldi, mikilvægi þess að búa í fallegu umhverfi þegar viðfangsefnin eru grimmileg, óhugnaðinn sem hún sækir í, óttann sem hún lætur ekki aftra sér og sorgina sem eltir hana. Í viðtali við Ingi- björgu Dögg Kjartans- dóttur segir hún líka frá ástinni, bónorðinu sem hún hafnaði og sonunum sem gera hana glaða. Hún hefur lært að hætta að velta sér upp úr veik- leikum, njóta velgengn- innar í botn og sættast við sjálfa sig. Enda ekkert verra en að vera síflaðr- andi upp um fólk. Hafnaði fyrsta bónorðinu Mér er alveg sama þótt sonur minn skjóti Íþróttaálfinn,“ segir hún „og helst Sollu stirðu líka.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.