Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2010, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2010, Blaðsíða 12
12 fréttir 3. desember 2010 Föstudagur „Þetta var bara venjulegur dag- ur. Ég hafði nýlokið langri vakt og var bara heima hjá mér þegar sím- inn hringdi klukkan hálf tvö,“ segir María Egilsdóttir móðir, Helgu Sig- ríðar Sigurðardóttur 12 ára sem ligg- ur þungt haldin á barnadeildinni á Sahlgrenska-sjúkrahúsinu í Gauta- borg. Þótt allt benti til þess að þessi dagur yrði bara venjulegur, beið hann fjölskyldunnar eins og tígrisdýr eins og segir í einu ljóða Sigurðar A. Magnússonar. Þegar síminn hringdi biðu hræðileg tíðindi. „Þetta var ritarinn í skólanum sem sagði að það hefði liðið yfir Helgu í sundi og að sjúkrabíllinn væri á leiðinni,“ segir María. Henni var brugðið en hélt þó að ekkert al- varlegt hefði komið fyrir dóttur sína. Tíu mínútum síðar kom svo annað símtal frá skólanum og þá er Maríu sagt að sjúkrabíllinn sé ekki lagður af stað á spítalann. „Þá vissi ég að eitt- hvað alvarlegt hefði komið fyrir. Ég dreif mig af stað en ég vonaði heitt og innilega að þetta væri bara eitthvað drama í ungri stúlku,“ segir móðirin. Þegar María mætti í sundlaugina voru sjúkraflutningamenn að stumra yfir dóttur hennar en enginn vissi hvað var að. Helga Sigríður lá á köld- um flísunum. Litaraft hennar var grátt og bláleitt. „Hún var sljó en þeg- ar maður hristi hana þá var eins og hún vaknaði í smá stund,“ segir Sig- urður Bjarnason, faðir Helgu. Skelfilegur tími Þegar hún var komin á sjúkrahúsið á Akureyri, FSA, vissi enginn hvað hafði komið fyrir Helgu. Hún hafði kastað upp í sturtuklefanum þannig að það voru uppi getgátur um hvort henni hafi svelgst illa á. „Það voru endalausar getgátur. Enginn vissi í rauninni hvað var að,“ segir María. Þegar þarna var komið sögu leit út fyrir að Helga væri að braggast. Hún gerði sér grein fyrir umhverfi sínu og lýsti öllu og hafði á orði að þetta væri eins og í uppá- haldssjónvarpsþættinum sínum, Grey‘s Anatomy. Svo var ákveðið að fara í allsherjar rannsókn en þá dundu ósköpin yfir. Hjarta Helgu hætti að slá. „Þarna fór allt í gang og hún var hnoðuð stanslaust,“ segir María. Rannsóknin kláraðist aldrei og nýr og skelfilegur kafli hófst í þessari sögu. María er ljósmóðir og þekkir vel til mikils álags í sinni vinnu þar sem sekúndur geta skilið á milli lífs og dauða. En hvernig skyldi það vera að upplifa að vera hinum megin við „línuna“ sem aðstandandi, ef svo má að orði komast. „Stundum er það gott og stundum er það vont. Ég veit bet- ur hvað er að gerast en þeir sem ekki vinna innan heilbrigðisgeirans. Það voru allir að reyna að halda póker- feisinu og ég líka. Það var samt svo- lítið nöturlegt að sjá fólk hlaupa milli herbergja, en hægja svo á sér niður í hraðgöngu, þegar það sá að ég var að fylgjast með,“ segir María. Sigurður sagði að það hefði verið fjöldi manns inni í herberginu og beita hafi þurft hjartahnoði. „Það var erfitt að horfa upp á þetta, en mér fannst betra að fylgjast með þessu en að bíða fyrir utan,“ segir hann. Í hjarta- og lungnavél Fljótlega upp úr þessu var ákveðið að senda Helgu til Reykjavíkur í hjarta- og lungnavél. „Þarna fékk ég algjört sjokk,“ segir Sigurður. „Ég bara trúði ekki að hún myndi lifa af flugið. Við vorum alveg í molum. Vissum ekkert nema að við yrðum að drífa okkur til Reykjavíkur.“ Við blasti að aka til Reykjavíkur í fimm og hálfan tíma í hálku og kulda í óvissu um það hvort dóttir þeirra lifði af. „Við gátum ekki hugsað okkur það og hringdum því í vin okkar sem er flugmaður.“ Vinur þeirra hjóna var á frímúr- arafundi og flugmaður sem vinnur með honum var í blaki. Þeir brugðust þó skjótt við og flugu foreldrunum til Reykjavíkur. „Svona hefur þetta allt verið. Allir svo fúsir til að aðstoða. Ég verð stundum orðlaus yfir gæsku alls þessa fólks,“ segir María. Greining: Kransæðastífla „Þeir voru ótrúlegir læknarnir í Reykjavík og reyndar allt starfsfólk- ið. Þau héldu okkur upplýstum allan tímann og létu okkur vita nákvæm- lega hvað þau voru að hugsa og hvað var að gerast,“ segir Sigurður. Hann heldur áfram: „Það er alveg ótrúlegt að vita hvernig samfélagið tekur við sér á svona stundum. Það eru alls konar teymi komin í gang og allir vinna sem einn maður.“ María hendir orð hans á lofti: „Guði sé lof fyrir að einhver nenni að læra þetta og vinna þessa vinnu. Ég er bara svo óendanlega þakklát.“ „Gautaborg vill hana“ Á laugardeginum var Helga mjög veik en engar framfarir. Hún var í hjarta- og lungnavélinni en sýndi engin batamerki. Óttinn var yfir- þyrmandi. „Það er svo skrýtið hvern- ig maður bregst við svona álagi,“ seg- ir Sigurður. „Við fórum milli þess að vera í dýpsta þunglyndi og yfir í fulla bjart- sýni á sömu mínútunni. Við töluð- um mikið saman og ég sagði við konuna mína að ég væri byrjaður að skipuleggja útförina. Þá sagði kon- an mín hún væri líka byrjuð á því. Herdís dóttir okkar, sem hefur verið eins og klettur í gegnum þetta, bætti þá við að hún væri ekki byrjuð að skipuleggja útförina en væri byrjuð að velja lögin sem ætti að spila. Við brostum að þessu þótt ótrúlegt sé að segja frá því. Álagið verður svo gríð- arlegt að stundum þá fórum við bara að hlæja milli þess sem við börðumst við tárin.“ Þegar þarna var komið sögu kom inn einhver og sagði við okkur: „Gautaborg vill fá hana.“ Máttur hinna mörgu „Þetta var léttir en um leið ógnvekj- andi. Við vissum að í Gautaborg hefði hún bestu möguleikana, en við óttuðumst að flugið yrði Helgu of- viða,“ segir María . Hún segir að stuðningur allra hafi verið ómetanlegur. „Það hafði alls konar fólk samband við okkur. Vinir og fólk sem við þekkjum ekki neitt. Allir vildu aðstoða. Sem dæmi um þennan stuðning þá hafði Hamborg- arafabrikkan samband við okkur og bauð allri fjölskyldunni í mat þeg- ar ljóst var að Helga myndi fara til Gautaborgar. Við þáðum það, ellefu manns – afar ömmur og skyldmenni. Stuðningurinn var alls staðar.“ Flugfreyjurnar redduðu þessu Flogið var með Helgu á laugardeg- inum og foreldrarnir fylgdu á eftir í áætlunarflugi. „Við bókuðum farið með tveggja tíma fyrirvara og þegar við fengum miðana þá sat Siggi aftast í vélinni en ég fremst. Það var svolítið skelfileg tilhugsun en flugfreyjurnar voru svo almennilegar og tillitsamar Helga Sigríður Sigurðardóttir, 12 ára, liggur þungt haldin á barnadeildinni á Sahlgrenska-sjúkrahúsinu í Gautaborg. Hún missti meðvitund í sundtíma heima á Akureyri og var flutt í ofboði til Sví- þjóðar þar sem hún fær bestu mögulegu lækningu. Teitur Atlason hitti foreldra litlu stúlkunnar, Maríu Egilsdóttur og Sigurð Bjarnason, þar sem þau voru við sjúkrabeð dóttur sinnar. Héldu að Helga lifði ekki af flugið Þessu er ekki lokið þótt segja megi að við séum komin í skjól. Ég verð stund-um orðlaus yfir gæsku alls þessa fólks. Á sjúkrahúsinu María Egilsdóttir og Sigurður Bjarnason vaka yfir dóttur sinni í Gautaborg. Þótt ákveðin bjartsýni sé til staðar ríkir óvissa um hvernig stúlkunni reiðir af. Mynd TeiTur ATlASon
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.